Morgunblaðið - 12.04.1997, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.04.1997, Qupperneq 2
2 C LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR UM HELGINA || KNATTSPYRNA Handknattieikur LAUGARDAGUR: Úrslitakeppni 1. deildar karla 4. leikur: KA-heimili: KA-UMFA................16 Knattspyrna Deildarbikarkeppni KSÍ Leiknisv.: ÞrótturN. - KR..........11 Ásvellir: Völsungur- ÍBV...........13 Sandgras Kóp.: Dalvík - Valur......13 Ásvellir: FH - Sindri..............15 Sandgras Kóp.: Þór A. - Skallagr...15 Leiknisv.: Fram - Selfoss..........15 Ásvellir: 1A - V íkingur Ó.........17 SUNNUDAGUR: Ásvellir: ÍBV - Breiðablik.........11 Sandgras Kóp.: Njarðvík - Sindri...11 Leiknisv.: Dalvík - Léttir.........11 Ásvellir: ÞrótturN. - FH...........13 Víkingsv.: VíkingurR. - Völsungur..13 Leiknisv.: Fjolnir-ÞórA............13 Ásvellir: Leiftur- Haukar..........15 Grindavíkurv.: Grindavík - ÍA......15 Leiknisv.: ÍR-VíkingurÓ............15 Ásvellir: Fylkir - Afturelding.....17 Suðurnesjamót SUNNUDAGUR: KGG-Víðir..........................18 Skvass íslandsmeistaramótið íslandsmótið í skvassi hófst í Veggsporti i gær. Keppni heldur áfram í dag frá kl. 10 en 2. umferð í karlaflokki hefst kl. 13.30 og í kvennaflokki kl. 14.30. Á morgun byijar keppni kl. 10 en úrslitaleikir heflast kl. 13, síðast í kvenna- og karlaflokki. Verðlaunaf- hending verður kl. 17. íþróttir fatlaðra Norðurlandamót í bogfimi Norðurlandameistaramót fatlaðra í bogfimi verður í Laugardalshöll um helgina og hefst með mótssetningu kl. 12.30 í dag en keppni verður siðan fram eftir degi. Á morgun hefst keppni kl. 10 og lýkur væntanlega um kl. 14. Borðtennis Adidasmótið í borðtennis fer fram í TBR- húsinu á morgun og verður keppt í sex flokkum frá kl. 10.30. Pílukast Reykjavíkurmeistaramót Reykjavíkurmeistaramótið í pílukasti verður haldið að Smiðsbúð 9, Garðabæ, um helg- ina. Kl. 11 í dag byijar einmenningur karla og kvenna en kl. 11 á morgun hefst tví- menningur og úrslitakeppni allra flokka. Skíði Unglingameistaramót íslands Mótið hófst í Skálafelli í gær og verður framhaldið í Biáfjöllum í dag þar sem keppt verður í svigi kl. 09.00 og göngu kl. 11.00. Mótinu lýkur með keppni í risasvigi og boð- göngu í Skálafelli á morgun kl. 10.00. ÚRSLIT Knattspyrna Reykjavíkurmótið Fvlkir-ÍR 2:0 Kristinn Tómasson, Ólafur Sigurjónsson. Þróttur - Fjölnir 4:2 Pái Einarsson, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Gestur Pálsson, Andri Sveinsson - Sveinn Ögmundsson, Olafur Páll Snorrason. Körfuknattleikur NBA-deildin Toronto - Orlando ..69:105 Miami - Detroit ....93:83 New Jersey - Milwaukee New York - Chicago ....93:88 103:105 Dallas - Seattle ....82:90 Houston - Vancouver ..102:94 San Antonio - Portland ....81:98 Golden State - Denver 109:107 ■ Eftir framlengingu. LA Clippers - Minnesota ..96:108 Scaramento - Phoenix ..99:101 Íshokkí NHL-deildin Boston - Buffalo Philadelphia - NY Rangers 1:5 3:6 Tampa Bay - Pittsburgh Washington - Montr^al,,-,- 4:3 3:2 St T miís - Tnrnnfn 5:1 FELAGSLIF Aðdáendur Formula 1 hittast Formula 1 kappaksturinn er í fullum gangi og á morgun verður keppt í Argentínu. Af því tilefni ætla aðdáendur kappakstursins að hittast á Glaumbar kl. 16 á morgun og fylgjast með keppninni beint í sjónvarpi. Aðalfundur knatt- spyrnudeildar ÍR Aðalfundur knattspyrnudeildar ÍR verður haldinn þriðjudaginn 22. apríl nk. og hefst hann kl. 20.30 í ÍR-heimilinu við Skógars- el. Venjuleg aðalfundarstörf. Æfingabúðir í sól og sumaryl í Algarve Fimm íslensk knattspymulið voru í æfinffa- búðum í Algarve í Portúgal fyrír skömmu og er þetta í fyrsta sinn sem íslenskir knatt- spymumenn búa sig undir keppnistímabilið á þessum slóðum auk þess sem svo mörg íslensk meistaraflokkslið hafa ekki áður ver- ið í æfíngabúðum saman. Steinþór Guð- bjartsson var með í för, kynnti sér aðstæð- ur og ræddi við þjálfarana en fjórir þeirra em fyrmrn landsliðsmenn og atvinnumenn og hafa aldrei kynnst betri aðstæðum. UPPbygging knattspyrnuvalla og æfingasvæða á íslandi hefur verið mikil á undanförnum árum og hafa flest félög yfir ágæt- is aðstöðu að ráða. Hins vegar nýtist hún þeim ekki nema lítinn hluta ársins og meðan ekki er til yfirbyggður knattspyrnuvöllur standa félögin frammi fyrir tveim- ur kostum: annaðhvort að sætta sig við það sem í boði er og láta slag standa þegar í keppni er kom- ið eða fara í æfinga- og keppnis- ferðir til útlanda á undirbúnings- tímanum. Framsækin félög hafa í æ auknari mæli valið síðari kostinn og hefur hann yfirleitt reynst þeim drjúgt veganesti. Besta svæðið íþróttadeild ferðaskrifstofunnar Úrvals-Útsýnar hefur skipulagt ótal æfingaferðir fyrir íslensk lið og sagði Þórir Jónsson, starfsmað- ur deildarinnar, að ásókn í slíkar ferðir hefði aukist gífurlega á undanförnum árum. Heistu áfangastaðir hafa verið í Hollandi, Þýskalandi, Belgíu, á Kýpur, Bret- landi og Norðurlöndum en fyrir páska bauð ferðaskrifstofan í fyrsta sinn upp á átta daga ferð til Algarve syðst í Portúgal. „Ég hef séð æfingasvæði víða um heim og skipulagt ferðir fyrir meira en 100 lið en þegar ég kynntist þessu svæði sá ég að þetta hentaði ís- lenskum liðum sérstaklega vel á veturna," sagði Þórir sem var fé- lögunum innan handar í ferðinni ásamt fararstjóranum Þorgrími Þráinssyni, fyrrum landsliðsmanni. Reyndar var Þórir svo ánægður með fyrstu viðbrögð liðanna að hann gekk frá pöntun að ári og hefur þegar skipulagt tvær viku- ferðir, aðra í lok mars og hina í byrjun apríl 1998. Gert er ráð fyr- ir sex liðum karla og kvenna í hvora ferð og bárust fyrstu pant- anirnar á staðnum. Eusebio átti hugmyndina Hótel Montechoro í Algarve sem er skammt frá gamla fiskibænum Albufeira var byggt fyrir 18 árum, stórt og glæsilegt hótel með full- kominni aðstöðu fyrir ferðamenn. Eusebio, frægasti knattspyrnu- maður Portúgals, og Torres, annar þekktur landsliðsmaður og síðar þjálfari, eru tíðir gestir á hótelinu og að sögn Vitors Fernandes, framkvæmdastjóra þess, lögðu þeir til að sköpuð yrði aðstaða fyrir knattspyrnulið. Stjórn hótelsins tók þá á orðinu og fyrir tveimur árum voru tilbúnir tveir grasvellir í göngufæri (tæplega tvo km í burtu). Auk liðlega 300 herbergja í aðalbyggingu hótelsins hefur það yfir að ráða fjölda mismunandi stórra íbúða í raðhúsum allt í kring og undanfarin tvö ár hafa portúg- ölsk lið heimsótt Montechoro reglu- lega. Þýsk lið fréttu fljótlega af aðstöðunni og í fyrra æfðu ma. Stuttgart, Dússeldorf og Watten- scheid á svæðinu, en Stuttgart hefur pantað aftur að ári. Félög geta valið hvort þau vilja fá fæði með gistingunni og er boð- ið upp á hvað sem hver vill. í þess- ari fyrstu æfingaferð til Algarve voru karlalið Vals í Reykjavík, Fylkis, FH og Þróttar í Neskaup- stað og kvennalið ÍBV. Leikmenn íslensku félaganna sáu sjálfir um morgunmat, fengu næringarríkan hádegismat á hótelinu og fóru út að borða á kvöldin. Þeim stóð til boða að fara í rútu á æfingar og í leiki og til baka og var sá háttur yfirleitt hafður á en sumir leigðu sér vespur, aðrir gengu og dómar- arnir Eyjólfur Ólafsson og Jón Sig- urjónsson skokkuðu til baka eftir dómarastörfin. Aldrei kynnst því betra Sigurður Grétarsson tók við Valsliðinu í fyrra eftir 13 ára at- vinnumennsku erlendis og varð lið- ið í 5. sæti 1. deildar undir hans stjórn. Fyrir liðið tímabil fóru Vals- menn í æfingaferð til Þýskalands en í janúar, þegar bauðst að fara til Portúgals, var stefna sett á Algarve. „Við vorum óheppnir með veður í Þýskalandi en hitastigið var við frostmark á morgnana," sagði Sig- urður, sem leikur líka með liðinu. „Aðstaðan var ágæt í Grúnberg eins og víða en þar var ekkert annað hægt að gera en æfa. Ef félag borgar allan pakkann er ekk- ert við því að segja en þegar strák- arnir borga meirihluta eða allt eins og í okkar tilfelli verður að fara bil beggja. í þessu tilfelli fá menn örlítið frí í leiðinni og það er af hinu góða. Valsliðið er mikið breytt frá því í fyrra og því lagði ég mik- ið upp úr æfingaferð á þessum tíma. Svona ferðir eru góðar til að efla samkenndina en tilgangur- inn er líka að breyta um um- hverfi, komast á gras og æfa á góðum völlum. Það hefur verið þreytandi að æfa heima í vetur eins og veðrið hefur verið og því er uppörvandi að fá tækifæri til að æfa á svona stað við svona aðstæður.“ Sigurður fór í æfingaferðir víða FH-INGAR léku tvo leiki, annan við 2. deildar liA frá Portúg- VI al, og hafði Pétur Ormslev nóg að segja sínum mönnum. um heim með erlendu félagsliðum sínum og sagðist hafa kynnst góð- um aðstæðum en þegar á heildina væri litið væri Algarve það besta sem hann hefði kynnst. „Þegar ég fór fyrst í æfingaferð til Spánar var allt með ágætum nema vellirnir. Stjórnendur hótela hafa í auknum mæli áttað sig á því að þeir geta drýgt tekjurnar á „dauða“ tímanum með því að bjóða góða aðstöðu fyrir knattspyrnulið. Kýpurbúar voru fyrstir til að átta sig á þessu og þangað fór ég tvisv- ar með svissneska liðinu Luzern en ég hef sjaldan komið í svona „allt með öllu“ umhverfi. Við vor- um sérstaklega heppnir með veð- ur, íbúðirnar voru frábærar og Þorgrímur og Þórir sáu til þess að allt gekk upp. Þetta er kjörinn æfingastaður fyrir íslensk lið og þegar á heildina er litið hef ég ekki kynnst því betra.“ Áttum að velja fullt fæði Guðjón Guðmundsson var með 3. deildar lið Þróttar í Neskaupstað á staðnum og sagði kærkomið tækifæri að komast úr snjónum fyrir austan. „Við höfum farið í æfingaferðir til útlanda og kynnst góðum að- stæðum," sagði hann en bætti við að þar sem hann hefði verið með unga stráka hefði verið heppilegra að hafa eftirlit með mataræðinu. „Við höfum reynslu af því að vera í fullu fæði og það hentar betur þessum ungu strákum. Ég vil að þeir borði næringarríkan mat og það gera þeir þegar við borðum saman en nú voru þeir frjálsir á kvöldin og því var meiri hætta á að pizzur og hamborgarar yrðu fyrir valinu. Eftir á að hyggja hefði verið betra að vera í fullu fæði en ATLI Eðvaldsson lagði línurnar | Fylkismönnum í Portúgalsferðinnl

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.