Morgunblaðið - 03.06.1997, Síða 2

Morgunblaðið - 03.06.1997, Síða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR BESTI ARANGUR ISLANDS I HM FRA UPPHAFI Sætii úrslita- 1958 1961 1964 1967 1970 1974 1978 1982 1986 1990 1993 1995 1997 keppni A-Þýskal. V-Þýskaí. Tékkósl. Sviþjóð Frakkland A-ÞýskaJ Ðanmófk V-PýskaI. Sviss Tekkósl. Sviþjóó ÍSlAfJD Japan Árangur íslendinga gegn einstökum þjóðum í HM Islendingartóku ekki þátt í fyrstu tveim ' HM-keppnunum, 193S ÍÞyskalandi ■ og 1954 í Svíþjóð Sigmundur Ó. Steinarsson tók saman ""■i—i' / Morgunblaðið, AIG" -■<" ■ Árangur fslendinga í HM KEPPNI Leikir U J T Mörk Stig Sæti 1958 3 1 0 2 46:57 33% 10. 1961 6 2 1 3 85:% 42% 6. 1964 3 2 0 1 40:39 67% 10. 1967 1970 6 6 0 4 96:112 33% 11. 1974 3 3 0 3 48:66 0 1978 3 3 0 3 54:68 0 13. 1982 1986 7 3 0 4 155:159 43% 6. 1990 7 2 0 5 151:169 29% 11. 1993 7 3 0 4 158:155 43% 8. 1995 6 3 0 4 154:160 43% 13.-16. 1997 9 7 1 1 236:203 83% 5. Jpjóð ... Leikir u j T Mörk Danmörk 7 2 0 5 122:135 Ungverjaland 7 2 0 5 130:147 Tékkóslóvakía 5 1 1 3 87:107 Svíþjóð 4 1 0 3 61:76 Spánn 4 1 0 3 94:91 Frakkland 3 2 0 1 62:59 Sovétríkin 3 0 0 3 52:68 2 2 0 0 38:34 Pólland 2 1 0 1 46:45 Sviss 2 1 0 1 35:36 Egyptaland 2 2 0 0 39:28 Japan 2 1 0 1 43:40 Júgóslavía 2 1 0 1 47:45 Rússland 2 0 0 2 30:51 Suður-Kórea 2 0 0 2 43:56 Bandaríkin 2 2 0 0 61:35 V-Þýskaland 1 0 0 1 16:22 A-Þýskaland 1 1 0 0 19:17 Þýskaland 1 0 0 1 16:23 Kúba 1 1 0 0 27:23 Túnis 1 1 0 0 25:21 Hvíta-Rússland 1 0 0 1 23:28 Alsír 1 0 1 0 27:27 Litháen 1 1 0 0 21:19 Saudi-Arabía 1 1 0 0 25:22 Noregur 1 1 0 0 32:28 ífíRÚmR FOLK ■ HELGI Sigurðsson, knatt- spyrnumaður hjá Fram, hefur vakið áhuga norska 1. deildar liðsins Stabæk og komist félagið að samn- ingum við TB Berlin félag það sem Helgi er samningsbundinn er líklegt að hann flytji sig um set. Berlínarlið- ið lánaði Helga til Fram í sumar. ■ AÐALSTEINN Jónsson, fyrr- um handknattleiksmaður og þjálfari hjá Breiðabliki, hefur verið ráðinn þjálfari 1. deildar liðs Stjörnunnar í kvennaflokki. ■ BJARKI Gunnlaugsson og fé- lagar í Mannheim sigruðu Olden- burg 2:0 um helgina og eiga einn möguleika á að bjarga sér frá falli í 3. deild þegar ein umferð er eftir. ■ EKERENsigraði Anderlecht 4:2 í úrslitum bikarkeppninnar í Belgiu á sunnudaginn. Liðin þurftu að leika framlengingu til að knýja fram úrslit. ■ RANGERS hefur boðið um 4 milljarða króna í knattspyrnumann- inn Ronaldo sem er á förum frá Barcelona. Verði af kaupunum yrði um langhæstu upphæð að ræða sem félag hefur greitt fyrir knattspyrnu- mann. Metið er 1,7 milljarðar er Alan Shearer var keyptur til New- castle frá Blackburn í fyrra. ■ BRASILÍSKI knattspyrnumað- urinn Juninho fer að öllum líkindum til Atletico Madrid á Spáni frá Middlesbrough. Enska félagið keypti Juninho frá Sao Paulo á 4,75 milljónir punda fyrir tveimur árum en Spánverjarnir eru nú til- búnir að greiða 12,5 milljónir punda fyrir hann - andvirði rúmlega 1,4 milljarða króna. ■ JUNINHO, sem er 24 ára, er sagður eiga að fá andvirði 10 millj- óna punda í tekjur á fimm árum, eftir að greiddur hefur verið skattur af launum hans, skv. frétt Daily Mailí gær. Það er rúmlega 1,1 millj- arður króna. ■ MAURO Tassotti lék á sunnu- daginn síðasta leik sinn með AC Milan eftir 17 ára feril með félag- inu. Hann er 37 ára og ætlar að leggja skóna á hilluna. ■ ARGENTÍNSKUR áfrýjunar- dómstóll hefur staðfest 13 mánaða keppnisbann Jose Luis Chilaverts, markvarðar og fyrirliða Paraguay, fyrir að slá vallarstarfsmann meðan á leik stóð í apríl 1994. Chilavert leikur með argentínsku félagsliði. ■ BILL Hanzlik hefur verið ráðinn þjálfari Denver Nuggets, en liðinu hefur ekki gengið sem skyldi síðan það sló Seattle út úr úrslitakeppn- inni árið 1994. ■ DETROIT Free Press greindi nýlega frá því að Chris Webber hefði þegið peningagreiðslur er hann lék fyrir Michigan-háskóla, en íþróttamenn í háskólum þar ytra mega ekki hagnast íjárhagslega af þátttöku sinni í skólaíþróttum. ■ WEBBER leikur nú með Wash- ington Wizards, en það skipti ný- lega um nafn og hét áður Bullets. Þetta á að bæta ímynd félagsins, en ekki þykir aðlaðandi að lið eigi aðsetur í Washington og nefni lið sitt „byssukúlurnar“. ■ BOSTON vonast nú til þess að „arftaki" Larry Bird komi til liðs- ins. Það er hinn 207 cm hái Keith Van Horn frá Utah-háskóla. ■ TRACY McGrady er eini menntaskólaneminn, sem hefur skráð sig í nýliðaval NBA-deildarinnar. STOLT ÍSLAND er landið, sagði einn landsliðsmanna íslands, eftir að „strákarnir okkar“ höfðu náð besta árangri sem íslandingar hafa náði í HM - fimmta sætinu í Kumamoto. Gleðin var mikil og menn ræddu um að herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, þyrfti að leita til stálsmiðju, til að láta búa til fálkaorðu fyrir Þorbjörn Jensson; sig- ursælasta þjálfara Islands. Að öllu gamni slepptu er aðeins eitt orð yfir þátt- töku íslands á HM í Kumamoto - STOLT. Það var afar ánægju- legt að vera íslendingur hér. Að upplifa jarðskjálfta, sprengju- kraft eldgoss, „smuguveiðar,“ sólmyrkva og ævintýrasiglingu niður Níl í Park Dome-höllinni, er nokkuð sem mun aldrei gleym- ast. Gleði, vonbrigði og tár - já, tárin sem féllu eftir leikinn gegn Ungvetjum, eru ekki þornuð. Eg var stoltur að fá tækifæri til að vera með strákunum hér. Eg rit- aði fyrir leik íslands og Danmerk- ur, sem fram fór í Álaborg á full- veldisdaginn 1. desember, að strákarnir ættu að fara til Dan- merkur og fagna deginum - þeir skulduðu þjóðinni „næturfyllirí.“ Þeir fóru að hætti víkinga, sáu og sigruðu - komu heim og fóru síðan aftur í víking; til Kuma- moto. Þjóðin getur verið stolt af strákunum - þeir eru búnir að bæta fyrir vonbrigðin á HM á íslandi fyrir tveimur árum. Þeir léku hér níu leiki, unnu sjö, gerðu eitt jafntefli. Við skulum sleppa tapleiknum gegn Ungveijum - það var slys. Foringinn í hópnum er Geir Sveinsson, maðurinn sem leggur sig allan fram fyrir að veija heiður Islands. Hann sagði mér undir fjögur augu að hann hefði aðeins átt eina ósk - það að faðir hans væri á lífi til að fagna með honum. Eins og menn vita þá var faðir hans _ Sveinn Björnsson, fyrrum forseti íþrótta- sambands íslands og formaður Ólympíunefndar - að öllum ólöst- uðum, sá maður sem íþrótta- hreyfingin á Íslandi naut góðs af. Ég er viss um að Sveinn var með syni sínum hér, hann var gæfumaður. Ólympíuhugsunin var ríkjandi í huga hans - hann var maður sátta, en ekki sundr- ungar. Sonur hans er steyptur í sama mót - krafturinn er mikill. Geir er svo sannarlega sendiherra íslands, drengur góður. „Það er betra að hafa hann með sér, en á móti,“ sögðu félagar hans á Spáni. „Munið strákar, berum virðingu fyrir Norðmönnum - verum ekki með mikilmennsku,“ sagði Geir við sína menn, eftir að Norðmenn voru lagðir að velli, sendir heim, Þeir bjuggu á sama hóteli og strákarnir. „Munið, við vildum ekki vera í þeirrar spor- um.“ Handknattleikurinn þarf stuðning. Þjóðin getur verðlaunað strákana og ég vitna þá í orð Jóns Hjaltalíns Magnússonar, fyrrverandi fprmanns HSÍ, sem sagði oft: „Islendingar, munið eftir happdrættinu!“ Sigmundur Ó. Steinarsson Þjóðin getur verið stolt af strákunum á HM í Kumamoto Hvenær hefur læknirinn STEFÁN CARLSSON það best á bekknum hjá landsliðinu? Bestefekk- erteraðgera „ÉG ER ánægður með Stefán, hann hefur ekki þurft að skera neinn upp,“ sagði Geir Sveinsson, fyrirliði landsliðsins um þátt Stefáns Carlssonar, læknis landsliðsins. Stefán erekki ókunnugur landsliðsstrákunum, hann byrjaði að veita þeim þjónustu 1984 - og hefur „leikið" fleiri landsleiki en flestir þeirra. „Það er gaman að vinna með strákunum. Já, og syngja fyrir þá," sagði Stefán, áður en hann hélt frá Kumamoto sæll, vel sunginn og ánægður með lífið og tilveruna. SfEFÁN sagði að það hafi ver- ð vinur sinn og starfsfélagi á Borgarspítalanum, Gunnar Þór Jónsson, sem hafi fengið hann til að starfa með sér. Eftir Gunnar Þór var þá Sigmund Ó. læknir landsliðsins. Steinarsson „Ég byijaði að i Kumamoto starfa með landsl- iðinu fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles 1984, en fór ekki með því þangað. Fyrstu landsieikir mínir voru á Spáni, rétt fyrir Ólympíu- leikana, síðan hef ég verið meira og minna með landsliðinu," sagði Stefán við Morgunblaðið. Hvenær kom fyrsta stórmótið? „Það var þegar ég og Gunnar Þór fórum saman með landsliðinu á Ólympíuleikana í Seoul _1988. Þú varst einnig með í för. Ég var með landsliðinu í Tékkóslóvakíu 1990, en ekki þú. Ég var með í för 1993 í Svíþjóð, þú ekki, og síð- an á HM á íslandi 1995 - þú varst þar og við erum nú saman hér í Kumamoto." Læknir landsliðsins. Hvaða starf er það? „Það er ágætis starf. Ég þekki alla strákana mjög vel. Starfið byggist ekki eingöngu á ferðinni sjálfri, heldur einnig fyrir keppnina. Þegar ég er í ferðum eins og þess- ari, líður mér best þegar ekkert er að gera. Hér í Kumamoto hef ég sem betur fer ekki þurft að starfa mikið - engin meiðsli hafa komið hér upp, sem er ánægjulegt.“ Þú tekur meiddan mann með hingað - Bjarka Sigurðsson. „Jú, það er rétt. Það má aldrei gleyma því að hann er einn af lykil- mönnum í landsliðinu - leikmaður með mikla reynslu. Við ræddum lengi um það, ég og Þorbjörn Jens- son, áður en haldið var hingað hvort Bjarki ætti að koma með. Það er alltaf erfitt að halda upp í ferð sem þessa, með mann sem Morgunblaðið/Einar Falur STEFÁIM Carlsson, læknir íslenska landsliðsins, dáist hér glaðhlakkalegur að einstaklega smekklegum og formrænum kjötpakkningum í kjötborði japansks stórmarkaðs. er meiddur - sem gæti meiðst meira.“ Varst það þú sem tókst ákvörð- unina um að Bjarki færi með? „Jú, það var ég. Við Þorbjörn Jensson höfum unnið lengi saman - ég var læknir Valsliðsins þegar Þorbjörn þjálfaði það. Þorbjörn er þannig þjálfari, að hann tefiir ekki fram meiddum leikmönnum - heldur leikmönnum sem eru tilbún- ir í slaginn, er kallið kemur. Þess vegna tilkynntum við ekki Bjarka í fyrstu leikina. Um tíma kom til greina að kalla eftir leikmanni að heiman, til að taka sæti Bjarka. Sem betur fer þróuðust málin þannig að Bjarki gæti leikið - hvílt Valdimar Grímsson, sem er nýstaðinn upp úr meiðslum. Valdimar hefur sýnt mikinn styrk, að koma stuttu eftir að hann handarbrotnaði og standa síðan upp hér sem einn af sigurvegurum mótsins.“ Er það í þínum verkarhring að sjá um mataræði liðsins? „Það er ég sem legg línurnar, en sem betur fer hef ég ekki þurft að standa í eldhúsinu hér. Við viss- um að hér er mjög gott fæði, hrein- lætið er mikið. Það vissi ég vel, því ég kom hingað með landsliðinu fyr- ir ári. Það sem strákarnir þurfa er kol- vetnaríkt fæði - þeir hafa fengið það. Maturinn hér er framreiddur á annan hátt en heima. Já, matur- inn er einhæfur. Nokkrir leikmenn hafa sett út á það, en það er þó ekki hægt að segja að menn hafi haft ofan í sig - maturinn hefur verið frábær,“ sagði Stefán.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.