Morgunblaðið - 03.06.1997, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 03.06.1997, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997 B 5 HM I HANDKNATTLEIK „Sex tröll og Lavrov“ Rússar urðu heimsmeistarar í handknattleik. Þeir sigruðu Svía 23:21 í úrslitaleik í Japan á sunnudag. Sigmundur Ó. »Þetta var bar- Steinarsson átta tveggja frá- skrifar bærra liða, sem frá Kumamoto þekkja hvort annað mjög vel. Það má segja með sanni að það var rússneska maskínan sem stóð uppi sem sigurvegari — gegn sænsku stálvélinni. Það kom mér ekki á óvart, þar sem Rússar eru með heilsteyptara lið, mun skipu- Þrír fóru á undan ÞRÍR leikmenn íslenska landsliðsins fóru frá Kuma- moto á sunnudaginn, einum degi á undan landsliðshópn- um. Það voru „Þjóðverjarnir“ Patrekur Jóhannesson, leik- maður með Essen, sem á Spánarferð framundan með Iiðinu og Wuppertal-leik- mennirnir Dagur Sigurðsson og Ólafur Stefánsson. Eg öfunda íslendinga „ÉG get ekki annað en öfund- að íslendinga. Þeir eiga ungt og stórgott lið, á sama tíma og við erum með eldri leik- menn, sem eru að falla á tima,“ sagði sænski leikmað- urinn Magnus Andersson. lagðara en það sænska,“ sagði Þor- björn, eftir úrslitaleikinn. „Þetta var sanngjart. Rússarinir hafa verið að leika best manna hér í Kumamoto. Svíarnir komu því þannig í kring, að þeir náðu í úr- slitaleikinn - þeir hefðu alveg getað dottið út fyrr. Já, ef við hefðum mætt þeim í undanúrslitum. Það var aldrei spuming, Rússarnir voru betri. Varnarleikur Rússa var stór- kostlegur — undir lok leiksins var vörn Rússa eins og „Berlínarmúr". Svíarnir komust ekki í gegn — inni á vellinum voru sex tröll og þegar skot komust fram hjá þeim, varði Lavrov. Svíarnir skomðu ekki nema fjögur mörk úr langskotum," sagði Þorbjörn. Þegar Þorbjöm var beðinn að svara því, hvort HM hér í Kuma- moto hafi verið betra, en heima á íslandi, sagði hann að það væri erfitt að svara því. „Það sem mér er efst í huga og ánægður með, er að við vorum betri hér en heima. Með smá heppni hefðum við verið að leika hér gegn Rússum — ég ætla ekki að segja þér hvernig hefði farið,“ sagði Þorbjörn, sem hélt hér frá Kumamoto með mjög þreytta, en ánægða menn. „Ég er einnig mjög þreyttur og vii helst ekki hugsa um handknattleik næstu daga - nú er ég á leið í faðm fjölskyldunnar. Þar á ég heima,“ sagði Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari - stoltur, og ég sá ekki annað en hann væri þyngri eftir kræsingarnar hér, inni á vell- inum og í matsalnum. „Davíð“ hringdi í Þorbjöm „ÉG fékk upphringingu nótt- ina eftir leikinn gegn Egyptum - mér var tjáð að Davíð Odds- son, forsætisráðherra væri á línunni. Ég hlustaði, tók við heillaóskum - vitandi að Davíð væri ekki í símanum, heldur maður að nafni Hjálmar, sem er mjög góð eftirherma. Ég lét Davíð, það er að segja Hjálm- ar, rausa um stund, síðan þakkaðiég honum fyrir og sagði: „Ég bið að heilsa Hjálm- ari. Um leið sprakk allt inni í herberginu sem hann var í - hláturinn glumdi," sagði Þorbjörn Jensson við Morgun- blaðið. Buðu Júlíusi handklæði EFTIR siðasta leik íslands í Kumamoto - sigurleikinn gegn Egyptum, var ástandið eins á skiptimarkaði. „Þetta er eins og í kolaportinu," sagði Geir, þegar einn leikmaður Egyptalands óskaði eftir að fá keppnistreyju hans. Júlíus Jón- asson fór inn í búningsklefa Egypta til að skipta um peysu. Leikmaðurinn sem hann átti í skiptum við, vildi einnig fá buxur hans. Það kom á Júlíus og hann sagðist vera nakinn undir þeim. Leikmaðurinn rétti honum þá handklæði, hélt að hann væri svo feiminn. Júl- íus þurfti ekki á handklæðinu að halda - hann gekk stuttu síðar út í rauðum buxum. Stórkostleg tilfinning „ÞAÐ var stórkostleg tilfinning þegar nafn mitt var kallað upp og tilkynnt að ég væri í sjö manna liði mótsins,11 sagði Valdimar Grímsson, sem var valinn í sjö manna lið heims- meistaramótsins í Kumamoto. Eftir að Rússar tóku á móti guHverðlaunum sínum var til- kynnt hvaða leikmenn væru í sjö manna HM-liðinu. Fyrstur var kallaður fram á gólf- ið Mats Olsson, markvörður Svía, síðan Valeri Gopin frá Rúss- landi, var var valinn besti vinstri hornaleikmaðurinn. Þá Valdimar Grímsson, besti hægri hornamaður- inn, síðan kom að Frakkanum Gueric Kervadec, sem var valinn besti línumaðurinn. Næstur fram á gólfið gekk Rússinn Vassili Koud- inov, sem var valinn besta skyttan vinstra megin, þá leikstjórnandinn Talant Dujshebaev frá Spáni, sem er Rússi, en hann var jafnframt valinn maður mótsins. Síðastur fram á gólfið var kallaður Staffan Olsson, sem var valinn besta skytt- an hægra megin. „Ég var óneitanlega í góðum fé- lagsskap inni á gólfinu. Ég get ekki annað en verið ánægður. Ein- um mánuði fyrir HM var ég ekki bjartsýnn á að ég gæti verið með, eða eftir að ég handarbrotnaði. En sem betur fer náði ég mér og kom með landsliðinu hingað til Kuma- moto. Ég fékk hveija rósina á fæt- ur annarri hér, skoraði þúsundasta mark íslands í HM og einnig tólf- hundraðasta markið. Eg var valinn í heimsliðið, sem leikur gegn Dön- um í ágúst, og síðan kom kallið - ég var valinn í sjö manna lið HM, sem segir að ég sé besti hægri homamaður í heiminum," sagði Valdimar. Valdimar er þriðji íslendingurinn sem er valinn í sjö manna lið HM. Bjarki Sigurðsson var valinn besti hægri homamaðurinn eftir HM í Svíþjóð 1993, Geir Sveinsson besti línumaðurinn á HM á íslandi 1993 og Valdimar Grímsson gekk fram í sviðsljósið hér I Kumamoto. Hvað segir þetta okkur um íslenskan handknattleik? Að sjáfsögðu svarar Valdimar spumingunni. „Þetta sýn- ir styrk handknattleiksins á ís- landi, við íslendingar höfum sýnt það og sannað, að við erum í hópi þeirra bestu í heimi. Við eigum marga góða og hæfileikaríka hand- knattleiksmenn. Eins og þú segir erum við hér að staðfesta það - það er stórkostlegt fyrir íslendinga að eiga leikmenn í þessu liði. Eg vil óska íslensku þjóðinni til ham- ingju með það - við komum hingað til að skemmta okkur og lands- mönnum öllum. Ég held að okkur hafí tekist það með sóma, ekki satt? Við höfum átt leikmenn í heimslið- inu undanfarin ár. Það sýnir styrk okkar,“ sagði Valdimar, sem er enn á ný á leiðinni til Danmerkur. Það var afi Valdimars, Valdimar Sveinbjörnsson, sem kom með handknattleikinn til íslands - frá Danmörku, reyndi leikinn fyrst í Barnaskólanum í Reykjavík haustið 1921. „Afi stóð sig vel í Danmörku og ég á margar ánægjustundir frá því landi. Ég er ekki búinn að gleyma ferðinni til Álaborgar, þar sem við lögðum Dani að velli og tryggðum okkur farseðilinn hingað til Kumamoto. Ég kem við í Kaup- mannahöfn á leiðinni heim, en síðan fer ég til Danmerkur aftur í byijun ágúst. Það verður gaman að hitta leikmenn heimsliðsins þá, ég hef leikið með þeim flestum áður, eins og markvörðunum Mats Olsson og Andrei Lavrov, útispilurunum Dujs- hebaev, Eles, Staffan Olsson, Rúss- unum Pogoelov og Gopine, svo ein- hveijir séu nefndir til sögunnar," sagði Valdimar, sem leikur sinn fímmta leik með heimsliðinu í Dan- mörku. Toppurínn i feríinum „Þetta er toppurinn, ef þú leikur með landsliðinu, en nærð ekki að verða heimsmeistari, er þetta mikil viðurkenning. Eins og ég hef sagt áður, er þetta rós í hnappagatið," sagði Valdimar. „Að vera valinn í sjö manna úr- valslið HM er toppurinn á ferlinum hjá mér sem handknattleiksmanni," sagði Valdimar, sem var þriðji markahæsti leikmaður HM - skor- aði 52 mörk. Suður-Kóreumaðurinn Kyung-Shin Yoong var markahæst- ur annað HM í röð, skoraði 62 mörk og annar var Ungveijinn Joz- ef Eles með 59 mörk. „Það er ekki slæmt að vera í hópi markahæstu leikmanna, þar sem ég er hornaleikmaður. Yfirleitt eru það skyttur sem raða sér í efstu sætin. Það er ógerningur að ætlast til þess að homamaður verði marka- kóngur. Eins og menn vita eru það yfirleitt skyttur sem ljúka sóknar- lotunum. Eg náði þó að veita þeim harða samkeppni. Það vantaði að- eins herslumuninn. Þetta er ákveðið afrek, þegar maður lítur til baka - ég var handarbrotinn mánuði áður en HM hófst. Ég fer ánægður héð- an, hvert metið hefur fallið á fætur öðru - ég skoraði 52 mörk, sem enginn annar íslendingur hefur náð á HM og við urðum ýfimmta sæti, sem er besti árangur íslands. Ég er í heimsliðinu og sjö manna úrvalsl- iði HM. Keppnin hér hefur verið meiriháttar og ég mun seint gleyma henni,“ sagði Valdimar, sem útilok- ar ekki að leika með íslenska lands- liðinu á næsta HM. „Ég segi ekki, ég læt árið 1999 segja til um það,“ sagði Valdimar, en næsta heims- meistarakeppni fer fram í Egypta- landi eftir tvö ár. © ÁRANGUR HEIMSMEISTARANNA © HM-ár Leikstaður Sæti sem heimaþjóð hafnaði I Úrslitaleikur... Örslit Árangur heimsmeistaranna Leikir Unnið Jafnt Tap LeikirAJ 1938 Þýskaland 1 Þýskaland varð stigahæst1* 3 3 0 0 100% 1954 Svíþjóð 1 Svíþjóð - Þýskaland 17:14 3 3 0 0 100% 1958 A-Þýskaland 3 Svíþjóð - Tékkóslóvakía 22:12 6 6 0 0 100% 1961 V-Þýskaland 4 Rúmenía - Tékkóslóvakía 9:821 6 5 0 1 83% 1964 Tékkóslóvakía 3 Rúmenla - Svíþjóð 25:22 6 6 0 0 100% 1967 Svíþjóð 5 Tékkóslóvakía - Danmörk 14:11 6 6 0 0 100% 1970 Frakkland 12 Rúmenía - A-Þýskaland 13:122) 6 5 0 1 83% 1974 A-Þýskaland 2 Rúmenía - A-Þýskaland 14:12 6 5 0 1 83% 1978 Danmörk 4 V-Þýskaland - Sovétrikin 20:19 6 4 2 0 83% 1982 V-Þýskaland 7 Sovétríkin - Júgóslavía 30:273) 7 7 0 0 100% 1986 Sviss 11 Júgóslavía - Ungverjaland 24:22 7 7 0 0 100% 1990 Tékkóslóvakía 7 Svíþjóð - Sovétríkin 27:23 7 6 0 1 86% 1993 Svíþjóð 3 Rússland - Frakkland 28:19 7 6 1 0 93% 1995 ísland 13.-16. Frakkland - Króatía 23:19 9 7 0 2 78% 1997 Japan 15. Rússland - Svíþjóð 23:21 9 9 0 0 100% 1) I keppninni 1938 léku fjórar þjóðir í einum riðli. 2) Tvíframlengdur leikur. 3) í framlengdum leik. Sigmunduró Sifflramwiióksaman/

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.