Morgunblaðið - 03.06.1997, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 03.06.1997, Qupperneq 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐiÐ _________________HM I HAIMPKIMATTLEIK_________ Við erum allir á lífi Það var létt yfír Þorbirni Jenssyni þjálfara og ieikmönnunum Valdimar Grímssyni, Júlíusi Jónassyni og Geir Sveinssyni, þegar ---------------3------------------------ Sigmundur O. Steinarsson og Einar Faiur Ingólfsson buðu þeim upp á ís og gos fyrir úrslitaleik Rússa og Svía. Eg er mjög ánægður, það reiknaði enginn með að við myndum hafna í fimmta sæti, sagði Þorbjörn og Valdimar greip fram í og sagði að það væri engin spuming. „Við fórum hingað til Kumamoto með því hugarfari að skemmta okkur og gera okkar besta. Það hvarflaði ekki að neinum að við myndum ná þessum árangri. Þegar maður lítur yfir farinn veg, þá er aðeins eitt sem angrar okkur - það er leikurinn gegn Ungverjum, sem tapaðist. Það situr í manni, en árangur okkar er frábær hér - það verður aldrei tekið af okk- ur,“ sagði Valdimar og hann átti síðan sendingu til Geirs. „Það er spurningin hvort þetta sé taktíkin, að þegar vænt- ingarnar eru sem minnstar, náum við árangri." „Það virðist greiniiega henta okkur betur,“ skaut Júlíus inn í. „í framhaldinu óttast ég - sagan segir okkur það - að eftir góðan árangur kemur áfall. Það er kannski best að maður taki ekki þátt í næstu keppni,“ sagði Geir og menn hlógu. Gamlir, ekki dauðir Það er ijóst að landsliðið er skipað mörgum hæfileikaríkum leikmönnum - þetta er „bland í poka“; reyndum leikmönnum, leikmönnum sem hafa öðlaðst reynslu hér í Kumamoto og síðan ungum leikmönnum. Verður þessi hópur saman fyrir heims- meistarakeppnina í Egyptalandi 1999? Það er Þorbjörn Jensson sem svarar spurningunni. „Jú, ég get ímyndað mér það - meiri- hlutinn verður með. Þó þeir séu nokkrir hér gamlir, eru þeir ekki dauðir,“ sagði Þorbjörn og aftur kvað við hlátur. „Ég get tekið undir með Geira, þegar maður hugsar aftur þá höfum við náð bestum ár- angri þegar enginn hefur reikn- að með neinu. Við höfum áður verið í þægilegu umhverfi, eins og hér - á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984, í B-keppninni í Frakklandi 1989 og svo núna. Væntingarnar voru ekki miklar, en árangur náðist. Menn koma og njóta þess að vera í hópi þeirra bestu og það skilar greini- lega árangri," sagði Valdimar. „Við erum alltaf að læra - and- rúmsloftið sem við höfum verið að vinna í virðist henta okkur vel,“ sagði Geir. Júlíus í hraðaupphlaupí Þorbjörn sagði að aðalburða- rásarnir verði áfram með - hvað segir einn af aldursforsetunum, Júlíus, um það? „Ég ætla ekki að fara gefa út neinar yfirlýsing- ar. Hef sagt það áður, hvers vegna á maður að vera að hætta, þegar maður er frískur og hefur gaman af starfinu," sagði Júlíus. Geir greip frammí og sagði - „þú getur ímyndað þér Ólympíuleik- ana 2004, þegar lýst verður fá leikjum: „Júlíus í hraðaupphlaupi - nei, hann komst ekki fram yfir miðlínuna," sagði fyrirliðinn. „Láttu ekki svona, ég á við að þó maður sé hættur sem leik- maður, getur maður skilað öðru hlutverki með liðinu,“ sagði Júl- íus og Geir var snöggur til: „Það sem hann á við, er að hann vill komast sem fararstjóri - segist ætla smátt og smátt á draga sig út úr þessu,“ sagði Geir og það þarf ekki að spyrja um viðbrögð: Hlátur! Þorbjörn, tekur Júlíus við hlutverki Davís Sigurðarsonar, sem liðsstjóri? „Það er aldrei að vita. Ég sé Júlíus reyndar ekki fyrir mér, að taka saman treyj- urnar og sjá um að allt sé í lagi á bekknum.“ „Það liggur ekki fyrir honum,“ sagði Geir. „Kafbátahernaðurinn er byrj- aður,“ sagði Júlíus. Hvað segir Valdimar - ætlarðu að vera áfram í slagnum? „Já, ég er leik- maður og þjálfari hjá Stjörn- unni. Bið spenntur eftir því að koma heim og byija undirbúning fyrir næsta vetur. Ég var ekki búinn að leika handknattleik í mánuð áður en ég kom hingað og það tók sinn tíma fyrir mig að hita upp fyrir leiki.“ „Upphitun - það rauk úr öxl- inni á honum, er hann var að hita upp,“ sagði Júlíus. „Mig klæjaði þess vegna meira í fing- uma,“ sagði Valdimar og Geir átti skot: „Veika fingurinn?“ Þetta er góðurhópur Þorbjörn sagði, að eins og við heyrðum, væri andrúmsloftið í hópnum gott. „Það er létt yfir öllum og stutt í kjánaskapinn. Það sem einkennir þennan hóp, er að leikmennirnir hafa mikinn metnað. Gott dæmi um það er að menn voru hundfúlir eftir sig- urleiki - vegna þess að þeir voru ekki að leika vel.“ Geir sagði að eftir leiki hafi hópurinn haldið fundi - þó við værum að vinna, var deilt á það sem miður fór.“ Júlíus sagði að þegar menn sáu hvað við vorum komnir langt, var lítil pressa á leikmönn- um - hvorki innan- eða utanfrá. „Þegar maður hugsar fram á veg er keppnin hér í Kumamoto geysilega góður skóli fyrir leik- menn eins og Ólaf, Dag og Pat- rek - leikmennina sem voru í aðalhlutverkum. Þeir voru í hlut- verkum, sem þeir hafa ekki ver- ið í áður. Þeir fengu nú að kynn- ast því að vera lykilmenn í liði, sem er að leika gegn bestu landsliðum heims. Framtíðin er þeirra, það eru þeir sem verða að halda skútunni á floti í fram- tíðinni." „Það er þannig, að þetta er löng keppni - þrjár vikur. Þegar upp er staðið vorum við að læra. Smáslökun á hópnum, sem átti sér stað fyrir leikinn gegn Ung- veijum, kostaði það að við lékum ekki hér í dag um verðlauna- sæti. Þetta er ómeðvitað - auð- vitað ætluðu menn sér það besta, en síðan var sofnað á verðinum. Þetta sýnir að við verðum að vera vakandi allan tímann - menn þurfa að leggja sig alla fram. Þetta er ekki aðeins líkam- legt erfiði, heldur andlegt - sem menn hafa gengið hér í gegnum. Ekki aðeins fyrir þá sem eru að ieika, heldur hina leikmennina sem eru ekki með,“ sagði Geir. Júlís sagði að hér hafi leik- menn verið saman í þijár vikur - hvern einasta dag og hveija andsk ... mínútu. „Svitalykt og táfýla, er það sem við búum við. Það sýnir best hvað hópurinn er góður, að við erum enn allir á lífi,“ sagði Júlíus. Hann er góður með sig Valdimar missti af marka- kóngstitlinum á lokasprettinum. „Þó að ég hafi átt einhveija möguleika eru alltaf litlar líkur á að hornamaður verði marka- kóngur. Það er eitthvað sem á ekki að geta gerst,“ sagði Valdi- mar og Geir skaut: „Hann er góður með sig.“ „Já, allir lögð- ust á eitt - en árangurinn náð- ist ekki,“ sagði Valdimar. Geir sagði að þó að Valdimar hefði ekki orðið markakóngur, væri ekki hægt að loka augunum fyrir því að „það sem hann gerði fyrir okkur hér, er stórkostlegt afrek. Valdi hefur leikið frábær- lega vel - hann gengur út héðan með marga aðra titla.“ Þorbjörn sagði að það fyrir- komulag sem var á keppninni, væri nokkuð sérstakt. „Þú þarft að vera með lið sem leikur fyrst í deildarkeppni. Þegar deildar- keppninni er lokið, hefst bikar- keppni - útsláttarfyrirkomulag. Maður verður að vera með tvær uppskriftir að liði - fyrst lið sem getur þolað deildarkeppnina, síð- an lið sem er tilbúið í slaginn og kemst sem lengst.“ Geir sagði að svo væri annað atriði sem legðist þungt á menn - við voram að leika klukkan sjö á kvöldin og síðan aftur dag- inn eftir klukkan eitt. Þessi framkvæmd er óvirðing við handknattleiksmenn, sem eru að leika hér um heimsmeistaratit- il.“ Valdimar sagði að þetta væri ekki hægt í framtíðinni. „Það er eins og segja við leikmenn, komdu þér heim - vertu síðan mættur klukkan eitt á morgun.“ Þorbjörn sagði að hér hefði verið um að ræða að mótshaldarar hefðu hugsað meira um skóla- krakkana sem komu á leikina, en leikmennina sjálfa. „Þetta er geysilega mikið álag á leikmenn- ina.“ Geir hrópaði: „Er hægt að fá meiri kraft á loftkælinguna hér?!“ Hlátur! „Ég held að þessir hestar, eins og ég segi um menn- ina sem stjórna alþjóðlega hand- knattleikssambandinu - verði að fara hugsa á annan hátt. Það þarf að breyta, að hafa fjórtán leikmenn á leikskýrslu - það þurfa að vera tveir leikmenn um hverja stöðu. Já, og það þarf að vera lengra á milli leikja." Eitt sem við tókum eftir, sem er lítisvirðing við lið að okkar mati - er að franska dómarapar- ið dæmdi þrjá af níu leikjum ykkar. Er það ekki óþolandi? „Það er afar einkennilegt - þú verður að spyija Kjartan Steinbach. Er það ekki hann sem ræður?“ sagði Geir. „Þessir frönsku dómarar voru þeir lélegustu sem við fengum. Við fengum þá þrisvar," sagði Þorbjörn og Valdimar bætti við. „Þeir fá ekki fálkaorðuna!“ „Það kom berlega í ljós í leikn- um gegn Egyptum, að mikill kraftur hjá leikmönnum mínum birni. „Tobbi á eftir að gera ennþá meiri afrek með landslið- ið, við bíðum með fálkaorðuna. Ef við færum honum orðuna nú, er ekkert hægt að gefa honum þegar hann verður fimmtugur,“ sagði Geir og Valdimar bætti við: „Ef hann fær fálkaorðuna nú, verður hægt að færa honum arnarorðuna er hann verður fimmtugur." RúllaA Inn í hjólastól Við vitnum í orð Dags Sig- urðssonar, sem sagði fyrir þrem- ur árum - að þegar þið væruð aftur komnir í Val, myndu Vals- menn hirða Evrópudolluna. Hvað með það? „Þeir eru farnir og við erum ekki að koma - tíminn er því ekki runninn upp,“ sagði Júlíus og Geir bætti við. „Það er þetta sem ég sagði um VALDIMAR Grímsson í góðui keppninnar; frá vinstri. Vass landi, Valdimar Grímsson, Va þjóð, Talant Dujshebac Lokastaðan í Kumamoto ROÐ liðanna á heimsmeistara- keppninni að þessu sinni varð sem hér segir: 1. Rússland, 2. Svíþjóð, 3. Frakkland, 4. Ungveijaland, 5. ísland, 6. Egytpaland, 7. Spánn, 8. S-Kórea, 9. Júgóslavía, 10. Lithá- en, 11. Tékkland, 12. Noregur, 13. Króatía, 14. Kúba, 15. Japan, 16. Túnis, 17. Alsír, 18. Ítalía, 19. Port- úgal, 20. Kína, 21. Saudi-Arabía, 22. Argentína, 23. Marokkó, 24. Brasilía. fór í það að vera svekktir út í dómarana, þar sem þeir dæmdu svo illa gegn Ungveijum. Sem betur fer gat ég bremsað það af í leikhéi og bað leikmenn að hugsa um að leika sem best, en ekki vera að þrasa í dómurun- um,“ sagði Þorbjörn og Geir bætti við: „Við ræddum um það að gíra okkur niður.“ Þorbjörn sagði að menn hefðu ákveðið það í leikhléi - að fyrst að menn þyrftu að leggja dómarana einn- ig að velli, myndu menn gera það. Ef þeir ætluðu að gera sig að fíflum í dómgæslunni, ætluð- um við ekki að taka þátt í því. Þetta var hugsunarhátturinn sem menn fóru með í seinni hálf- leikinn. Fálkaoröan Strákar, þegar B-keppnin stóð yfir í Frakklandi - hrópaði einn fjölmiðlamaðurinn, að þjálf- arinn, Bogdan, ætti að fá fálka- orðuna, sem hann síðan fékk. Er tími Þorbjörns kominn? Þegar þessi spurning kom, kvað við mikill hlátur og mestur frá Þor- árið 2004 - okkar tími mun koma. Þá verðum við allir saman að Hlíðarenda." „Já, þá verður þeim rúllað inn í hjólastólum,“ sagði Þorbjörn og enn og aftur kvað við hlátur. „Hér er mikið af góðum Valsmönnum, án þess að ég...“ Júlíus greip fram í og sagði: „Komdu með yfirlýs- ingu, segðu hvað þú ætlar að leika lengi.“ „Nei, nei.. . ég er ekki að ræða um það. Það skipt- ir miklu máli að vera með sigur- vegara í liði. Við erum margir hér sem höfum gengið í gegnum margt - leikmenn sem vita hvað það er að vinna. Það skiptir miklu máli að vita hvað er að vera sigurvegari - það er mikil- vægt,“ sagði Geir. Þess vgena fór Valdi frá Val - hann var orðinn þreyttur að vera sigurvegari, ekki satt? „Já, hann vildi hvíla sig - jú, og búa til fleiri sigurvegara," sagði Geir og Valdimar sagði: „Já, maður verður að dreifa þessu eitthvað - að skapa nýja sigurvegara. Það er markmiðið númer eitt, tvö og þijú.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.