Morgunblaðið - 03.06.1997, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 03.06.1997, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1997 B 7 HM I HANDKNATTLEflK Morgunblaðið/Einar Falur GEIR Sveinsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, stekkur inn í vítateiginn í leiknum gegn Spánverjum á HM. Það er Ignacio Urdangarin sem er tll varnar - en hann hælir Geir mjög sem lelkmanni. Morgunblaðið/Einar Falur n félagsskap. Þessir sjö leikmenn voru valdir í úrvalslið heimsmeistara- III Koudinov skytta frá Rússlandi, Gueric Kervadec, línumaður frá Frakk- ileri Gopin, hornamaður frá Rússlandi, Mats Olsson, markvörður frá Sví- iv, leikstjórnandi frá Spáni, og Staffan Olsson, skytta frá Svíþjóð. Guðmundur og Berg- sveinn stóðu sig vel Islensku markverðirnir Guðmundur Hrafnkelsson og Bergsveinn Berg- sveinsson stóðu sig vel - eftir tölulegum upplýsingum mótshaldara að dæma var Guðmundur í áttunda sæti á listanum yfir varin skot, 49 af 155 skotum sem komu á markið og Bergsveinn var í tí- unda sæti, með 42 skot varin af 138 sem komu á rnarkið. Sá sem varði flest skot var FH-ingurinn Suk-hyung Lee, sem lék með kóreska landsliðinu í Kumamoto, - varði alls 89 skot af 301 sem komu á markið. Á listanum yfir varin vítaköst var Guðmundur í þriðja sæti, með átta varin skot, efstir voru Niederwieser, ítal- íu, og Hashimoto, Japan, með níu varin vítaköst. Bergsveinn var í nítjánda sæti með tvö varin skot. Ánægður að vera á heimleið „ÉG ER orðinn þreyttur - spennufallið er komið, ég hlakka til að komast heim,“ sagði Boris Bjarni Akbavhev, aðstoðarþjálfari Þorbjarnar Jenssonar, landsliðsþjálfara. Bosis Bjarni sagði að útlegan hafi verið löng og ströng. „Strákarnir gleymdu sér eitt andartak - sofnuðu á verðin- um gegn Ungveijum, sem kostaði þá mikið. Ég er orðinn þreyttur eins og strákarnir - við bíðum aðeins eftir einu, að koma heim til íslands," sagði Boris Bjarni, sem er mjög stoltur af strákunum sínum. Hann þekkir landsliðs- strákana manna best, er mað- urinn á bak við unglingastarf- ið hjá Val á Hlíðarenda - maðurinn sem tottar pípuna sína og hugsar, lætur verkin tala. „Islenska liðið er ungt, eins og sést best á því að lykii- mennirnir fyrir utan eru ekki nema 24 ára, Patrekur, Dagur og Ólafur,“ sagði Boris Bjarni. Erfið ferð LANDSLIÐSHÓPURINN hefur heldur betur verið á ferð og flugi. Haldið var frá Kumamoto í gær kl. 14.20 með fiugvél til Tókýó, lent þar kl. 15.55 og gist eina nótt. Frá Tókýó áttu „strákarnir okk- ar“ að leggja af stað í morgun kl. 10.20 - þaðan átti að fljúga í tólf tíma til Stokkhólms, þar sem lentverður kl. 14.10 að staðartíma. Frá Stokkhólmi, Arlanda-flugvellinum, verður flogið í kvöld kl. 19.30 til Kaupmannahafnar, Kas- trupfluvallar - lent kl. 20.40. Frá Kastrup heldur hópurinn áleiðis til íslands kl. 22 að staðartíma og lent verður á Keflavíkurflugvelli kl. 23.20 í kvöld. Þess má geta að tímamis- munur á íslandi og Japan eru níu tímar. Leikmenn spænska liðsins hæla Geir landsliðsfyrirliða Sveinssyni í hástert Geir einn besti línu- maðurinn GEIR Sveinsson, fyrirliði ís- lenska landsliðsins, er einn besti línumaður heims. Þrír línumenn eru taldir í sérfiokki, Geir, Dmitri Torgovanov frá Rússlandi og Svíinn Thomas Sivertsson. „Það væri heiður fyrir mig að hafa leikmann eins og Geir í mínu Hði,“ sagði Vlad- imir Maximov, þjálfari heims- meistara Rússa. Ekki er ætlunin að fá skoðun þjálfara á Geir, þeir vildu eflaust allir hafa piltinn sér við hlið. Við ætlum okkur Sigmundur Ó. aftur á móti að Steinarsson stmga okkur mður í skrifar frá herbúðir Spánveija, Kumamoto sem þekkja Geir manna best, hann lék á Spáni í þijú ár. Morgunblaðið náði tali af ekki ómerkari manni en sjálfum Ignacio Urdangarin, sem trúlofaðist prinsessunni Kristínu á Spáni á dögunum. Hann leikur með Barcel- ona og sagði að það væri stórlega ýkt, að hann ætli að leggja skóna á hilluna eftir HM hér í Kuma- moto. „Ég verð á ferðinni fram yfir Ólympíuleikana í Sydney í Ástralíu árið tvö þúsund,“ sagði Urdangarin. Það var ánægjulegt að vita það, en hvað segir hann um Geir? „Geir er heiðvirður og göfugur leikmaður. Þó að maður lendi í stimpingum við hann inni á vellin- um, veit maður að því fylgja aldrei nein illindi.“ Jaume Fort, markvörður, lék með Geir hjá Avidesa á Spáni, var eitt breitt bros, þegar hann var spurður um Geir. „Hann er mjög góður varnarleikmaður, leikmaður liðs- heildarinnar - þýðingarmikill fyrir lið sem er að fara í harða keppni á vellinum. Þú veist alltaf hvar þú hefur hann - leggur sig allan fram í það verkefni sem hann fæst við hveiju sinni. Það var mikið öryggi að hafa hann fyrir framan sig,“ sagði Fort og bætti við: „Það kæmi mér ekki á óvart, að hann yrði val- inn besti línumaðurinn hér í Kuma- moto.“ Þess má geta að þetta sagði Fort daginn áður en HM-liðið var tilkynnt. Það þarf ekki mann með gler- augu til að sjá að Spánveijar bera mikla virðingu fyrir Geir. Hvað seg- ir David Barrufet, markvörður Barcelona? „Geir er góður leikmað- ur. Ég get manna best sagt um það, þar sem ég er í bestu aðstöðu á vellinum til að dæma um það. Hann er maðurinn sem er alltaf fyrir framan mig - alltaf tilbúinn að hrella mann. Ég þekki Geir vel, þar sem ég hef oft og mörgum sinn- um leikið gegn honum í deildar- keppninni heima á Spáni. Geir er reyndur leikmaður, sem þekkir handknattleikinn eins og fingurna á sér. Það er alltaf erfitt að leika gegn mönnum eins og Geir,“ sagði Barrufet og bætti við: „Sem betur fer þarf ég ekki oft að leika gegn honum, þar sem hann hélt frá Spáni til Frakklands og er að fara að leika í Þýskalandi." Býð Geir sérstaklega velkominn „ÍSLENSKA liðið hefur staðið sig frábærlega hér í Kumamoto. Ég þekki leikmenn liðsins vel og veit hvað íslenskir_ hand- knattleiksmenn geta. Ég hef þjálfað Kristján Arason og Júl- íus Jónasson hjá Gummersbach - frábæra leikmenn, sem vinna vel sín störf. Það hafa margir íslenskir leikmenn leikið í Þýska- landi. Já, eru reyndar að nú með þýskum liðum. Það er mikill heiður fyrir okkur Þjóðveija að hafa þessa leikmenn og ég býð Geir Sveinsson sérstaklega vel- kominn í hópinn,“ sagði Heiner Brand, þjálfari þýska landsliðs- ins, sem fylgdist með HM í Kumamoto. _ Morgunblaðið/Einar Falur GUÐMUNDUR Ingvarsson, formaður HSÍ, fylgist með sigur- leiknum gegn Egyptum á laugardaginn. Formaðurinn stóð alltaf á sama stað í hölllnni meðan íslenska liðið var að spila. ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.