Morgunblaðið - 03.06.1997, Síða 9

Morgunblaðið - 03.06.1997, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÖNÍ 1997 B 9 KNATTSPYRNA Parma í Meistaradeildina Keppni í ítölsku 1. deildinni lauk um helgina. Parma náði öðru sæti og tryggði sér rétt til að leika í meistaradeild Evrópu er liðið sigr- aði Verona, 2:1. Enrico Chiesa og Hernan Crespo gerðu mörk Parma, sem slóst með sigrinum í hóp með nýkrýndum meisturum Juventus í keppni bestu félagsliða Evrópu. Vonir Inter Milan um sæti í meist- aradeildinni urðu að engu eftir jafn- tefli við Bologna, 2:2. Fulltrúar ítal- íu í UEFA-bikarkeppninni verða Lazio, Sampdoria og Udinese, sem leikur nú í þeirri keppni í fyrsta sinn eftir að hafa farið létt með Roma, 3:0. Roberto Mancini lék sinn síðasta leik með Sampdoria þegar liðið gerði jafntefli við Fiorentina. Sænski þjálfarinn Sven-Göran Eriksson stýrði liðinu jafnframt í hinsta sinn, en hann tekur í sumar við stjórn Lazio í Róm. Lengi vel var óljóst hvar Mancini léki næsta vetur, en í gær var upplýst að hann fer sömu leið og þjálfarinn - verður hjá Lazio í Rómaborg. Juventus lauk tímabilinu með jafntefli við Lazio, en sá leikur var aðeins formsatriði enda vann liðið meistaratitilinn 23. maí og hafa orðið meistarar tvisvar á síðustu þremur árum. Tvö lið hafa þó ekki enn lokið keppni. Piacenza leikur gegn Cagl- iari 15. júní um það hvort liðið fær að halda áfram í 1. deild. Piacenza vann mikilvægan sigur, 2:1, á Per- ugia, sem þurfti aðeins jafntefli til að halda sér uppi og féll því ásamt Reggiana, sem vann engan leik á tímabilinu. Perugia, Reggiana og Cagliari voru bæði með 37 stig, en Cagliari fær möguleika á að bjarga sér frá falli vegna þess að liðið hafði betur í innbyrðis viðureignum við hin tvö félögin. Leikmaður Atalanta, Filippo Inzaghi, skoraði tvö mörk í leik gegn Reggiana og varð markakóngur með 24 mörk. Vicenza tapaði 0:1 fyrir Napólí, en liðið mun samt leika í Evrópukeppni bikarhafa á næsta tímabili og er það í fyrsta sinn sem liðið tekur þátt í slíkri keppni. lengi frá FINNUR Kolbeinsson, miðvallar- leikmaður Leiftursmanna, meiddist á hné í leiknum við Skagamenn í 2. umferð íslands- mótsins 22. maí. I fyrstu var tal- ið að meiðsli hans væru ekki al- varleg, en nú hefur komið í ljós að hann er með slitið krossband í hnénu og leikur ekki með liðinu næstu fimm til sex vikurnar. Vonameisti Barca slökkt- ur í Alicante Real Madrid vantar nú aðeins eitt stig til að hreppa meistaratitilinn Reuter JÚGÓSLAVNESKI framherjlnn Predrag Mijatovic hjá Real Madrid reynir að ná til knattarins en markvörður Extremad- ura, Argentínumaðurinn Mono Montaya, gerir tilraun tll að stöðva mótherjann. Montaya hafðl nóg að gera í leiknum. REAL MADRID þarf nú aðeins að hljóta eitt stig í síðustu tveimur leikjum liðsins til þess að hreppa spænska meistara- titilinn í knattspyrnu. Madrid vann fyrirhafnarlítinn stórsigur á botnliði Extremadura á sunnudagskvöld á sama tíma og Barcelona hlaut háðulega útreið í viðureign sinni við Hercules frá Alicante, sem fall- ið er í aðra deild og tapaði með tveimur mörkum gegn einu. Sevilla, sem forðum taldist til stórliða á Spáni, er fallið í aðra deild. Leikmenn Barcelona leyndu ekki vonbrigðum sínum er þeir hlupu af velli eftir ósigurinn í Alic- ante. Þeir neituðu allir sem einn að tala við blaðamenn og lögregluvörður sá til þess að óvið- komandi kæmust ekki nærri stjörn- unum. Úrslit þessa leiks þýða að Barcelona á aðeins fræðilega mögu- leika á meistaratitlinum. Til þess að svo megi verða þarf Real Madrid að tapa báðum leikjum sínum og Barcelona að vinna sigur í síðustu tveimur umferðunum. Barcelona, sem naut ekki krafta Brasilíumannsins Ronaldos, lék illa í Alicante. Sóknir Iiðsins voru mátt- litlar og lítil ógnun í leik þess. Söknuðu Ronaldos Barcelona náði forustu í leiknum þegar Luis Enrique skoraði þegar boltinn barst til hans eftir þrumu- skot frá Oscar Garcia. Framheijinn Paquito jafnaði leikinn fyrir Hercu- les eftir sérlega glæsilega sókn upp vinstri kantinn. Júgóslavinn Pavlicic skoraði sigurmarkið í síðari hálfleik eftir að leikmenn Hercules höfðu aftur tætt í sundur vörn Barc- elona með hnitmiðuðu samspili, að þessu sinni upp hægri kantinn. Leikmenn Hercules fengu síðan tvö ágæt færi til að auka muninn og áttu m.a. skot í slá. Greinilegt var að Barcelona saknaði mjög Ronaldos, sem tæp- ast mun klæðast aftur búningi liðs- ins þótt fréttir á sunnudagskvöld hermdu að hugsanlegt væri að hann og forráðamenn Barcelona myndu aftur taka upp viðræður um framlengingu á samningi hans. Luis Enrique, sem er næstmarka- hæsti leikmaður liðsins á þessari leiktíð og gert hefur 16 mörk, var sá eini sem náði að koma vörn Hercules úr jafnvægi. Niðurlæg- ingin var síðan fullkomnuð þegar varamaðurinn Angel Cuellar náði að misnota dauðafæri á lokamínútu leiksins frammi fyrir opnu marki andstæðinganna. Hercules liðið féll því með sæmd en leikmenn Barcelona hljóta að hugsa þeim þegjandi þörfina. Hercules sigraði einnig í fyrri leik liðanna með þremur mörkum gegn tveimur á heimavelli Barcelona, Camp Nou. Barcelona tapaði því sex stigum í viðureignum sínum gegn botnliðinu og þessi stig virð- ast ætla að skipta sköpum. Fimm mörk á Bernabeu Real Madrid tók á móti Ex- tremadura, sem enn á fræðilega möguleika á að halda sæti sínu í spænsku fyrstu deildinni. Nokkur taugaspenna einkenndi leik Madrid-liðsins í fyrri hálfleik en hinn 19 ára gamli Raul Gonzalez náði að bijóta ísinn er hann skor- aði einkennilegt mark úr þröngu færi frá vinstri kanti sem mark- vörður Extremadura hefði átt að veija auðveldlega. í síðari háfleik tóku leikmenn Madrid öll völd á vellinum og sendu knöttinn fjórum sinnum í mark andstæðinganna. Hollendingurinn Clarence Zeedorf skoraði tvívegis og síðustu tvö mörkin gerði Króatinn Davor Su- ker. Fyrra mark Sukers gerði hann úr vítaspyrnu eftir að hann hafði gerst sekur um yfirgengilegan leik- araskap og látið sig falla inni í vítateignum. Síðara markið var hins vegar mjög glæsilegt; þrumu- skot beint úr aukaspyrnu sem Kró- atinn náði að stýra yfir varnarvegg Extremadura og upp í markhornið nær. Real Madrid hefur nú 89 stig eftir 40 leiki og þarf nú aðeins að ná einu jafntefli í síðustu tveimur leikjunum. Svo getur farið að leik- menn Madrid fagni meistaratitlin- um á heimavelli í næstu umferð þegar þeir mæta nágrannaliðinu Atletico de Madrid. Sorgmæddir í Sevilla Sevilla féll í aðra deild þegar lið- ið beið ósigur fyrir Real Oviedo á útivelli með einu marki gegn engu. Mikil og almenn sorg ríkir í Sevilla auk þess sem fall liðsins þykir mikið áfall fyrir knattspyrnuna í Andalúsíu. Aðeins eitt lið frá Anda- lúsíu, Real Betis, er nú í hópi þeirra bestu á Spáni. Hercules er einnig fallið í aðra deild þrátt fyrir sigur- inn á Barcelona og Logronyes, sem tapaði með fimm mörkum gegn einu um helgina, er löngu fallið. Líklegast er að Extremadura fylgi þessum liðum og að Rayo Vallec- ano, Sporting eða Celta frá Vigo þurfi að leika aukaleiki um sæti í fyrstu deildinni. IR á meðal efstu liða Víkingar eru enn stigalausir í 1. deild, en þeir sóttu ÍR-inga heim í Mjódd á laugardag og töp- uðu, 3:0. Leikurinn einkenndist af Ró^nvaldsson slæmum samleik skrifar leikmanna, en mörkin komu um leið og leikmönnum tókst að leika skynsamlegan sóknarleik og nýta breidd vallarins til samvinnu. Barátta var helsta vopn Vík- inga og Þrándur Sigurðsson fyrir- liði reyndi að stappa stálinu í fé- laga sína, en þeir lentu strax und- ir á 17. mínútu þegar Marteinn Guðgeirsson gerði sjálfsmark. Heimamenn áttu því næst þijú ágæt færi. Víkingar börðust ágætlega á miðjunni, en varð lítið ágengt er þeir komust inn á vallar- helming ÍR. Á 55. mínútu léku þeir Kristján Brooks og Ásbjörn Jónsson laglega saman og Kristján skoraði annað mark IR, en Ásbjörn átti góðan leik og bestu sóknir ÍR komu úr smiðju hans. Sigur þeirra virtist þá í höfn, en með heppni hefðu Víkingar getað jafnað. Olafur Þór Gunnarsson varði vítaspyrnu Mar- teins Guðgeirssonar og boltinn small í þverslá ÍR-marksins eftir misskilning á milli Kristjáns Hall- dórssonar fyrirliða og Olafs mar- kvarðar. Kristján Brooks innsiglaði síðan sigur ÍR eftir undirbúning Ásbjörns á 88. mínútu. Jafntefli á Dalvík Dalvíkingar tóku á móti FH í brakandi þurrki, sunnan strekkingi og 20 stiga hita síðast- liðinn laugardag. StefanÞór Hafnfirðingar Sæmundsson kunnu vel við sig í skrifar þessu loftslagi og komust í 2:0, en misstu leikinn niður í jafntefli þrátt fyrir a_ð vera sterkari í seinni hálf- leik. Úrslitin 2:2 og heimamenn gengu sáttir af velli. Davíð Ólafsson skoraði snyrti- legt mark fyrir FH á 31. mínútu. Annars var jafnræði með liðunum framan af og Dalvíkurdrengjum gekk þolanlega að ösla upp í vind- inn. Staðan í leikhléi var 0:1. Lúð- vík Arnarsson skoraði seinna mark liðsins á 62. mínútu og fátt benti til frekari mótspyrnu heimamanna. Þeir réttu þó strax úr kútnum þeg- ar Grétar Steindórsson skoraði úr vítaspyrnu á 64. mínútu. FH-ingar sóttu nú mun meira án þess þó að skapa sér hættuleg marktækifæri. í blálokin náðu heimamenn svo að sýna mót- spyrnu og vítaspyrna var dæmd á FH á 89. mínútu. Daði Lárusson, markvörður FH, varði spyrnu Grétars glæsilega í horn og í kjöl- farið var Arnar Viðarsson FH-ing- ur rekinn út af, fékk sitt annað gula spjald fyrir mótmæli. Úr hornspyrnunni kom svo jöfnunar- markið, en það skoraði Vilhjálmur Haraldsson. Klinsmann skoraði í kveðju- leiknum Bayern Múnehen var krýndur meistari í þýsku 1. deildinni á laugardag, en það var síðasti leikdagur. Júrgen Klinsmann skoraði annað tveggja marka liðs- ins í jafnteflisleik - við Borussia Mönchengladbach en hann leikur með Sampdoria á Ítalíu eftir sum- arfrí. Bayern leikur því í meistaradeild Evrópu á næsta tímabili ásamt Bayer Leverkusen, en bæði lið höfðu þegar tryggt sér tvö efstu sætin áður en síðasta umferðin hófst. 18. titillinn en Trappatoni hef- ur aldrei fagnað eins mikið Þjálfari Bayern, ítalinn Trappattoni, á glæsilegan feril að baki. Þetta var 18. titillinn sem hann fagnar á 20 ára þjálfara- ferli. „Ég hef aldrei tekið þátt í öðrum eins fagnaðarlátum eins og hér í Múnchen,“ sagði þjálfar- inn um helgina. „ítalir eru mikið fyrir að fagna, en ég hef aldrei upplifað neitt eins og þetta. Fagn- aðarhátíðin hefur staðið í heila viku.“ Trappattoni og framheijinn Rizzitelli hjá Bayern eru fyrstu ítalirnir sem verða þýskir meistar- ar í knattspyrnu. Þetta var í fjórtánda skipti sem Bayern Múnchen verður þýskur meistari. Frábært „Það er frábært fyrir okkur að ná öðru sæti,“ sagði Christoph Daum, þjálfari Leverkusen. „Ég er sérstaklega ánægður með að Ulf Kirsten skuli hafa orðið markakóngur," bætti hann við. Kirsten, sem gerði 22 mörk í vet- ur, hlaut markakóngstignina þrátt fyrir að hafa verið í leikbanni í síðustu umferð og Toni Polster, leikmaður Köln, veitti Kirsten harða keppni en tókst ekki að skora þegar Köln tapaði fyrir Dortmund, 2:1. Það þótti reyndar með ólíkindum að Polster, sem gerði 21 mark í deildinni, skyldi ekki skora um helgina því hann átti sjö skot á mark í leiknum og þar af voru þijú úr dauðafæri. Óvenjulegt hjá þessum mikla markahrók. Karlsruhe tryggði sér rétt til að leika í UEFÁ-keppninni næsta vetur er liðið gerði jafntefli við Freiburg. 1860 Múnchen var ná- lægt því að öðlast þann rétt, en markamunur réð úrslitum. Sigur Dortmund í meistaradeild Evrópu gerir það að verkum að þijú lið úr þýsku 1. deildinni fá sæti í meistaradeildinni á næsta tíma- bili. Fortuna Dússeldorf, Freiburg og St. Pauli féllu niður í 2. deild, en Kaiserslautern og Hertha Berl- ín, lið Eyjólfs Sverrissonar, hafa þegar tryggt sér sæti í efstu deild. Ásgeir Sverrisson skrifar frá Spáni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.