Morgunblaðið - 03.06.1997, Síða 11

Morgunblaðið - 03.06.1997, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR3. JÚNÍ 1997 B 11 mein, Skógarhlið - Flugvallarbraut - - Flugvallarvegur Skógarhlið________ ^_____J V/ Reykjavíkhr- flugvöllur Öskjuhlíb 10 km HLAUP 5 km HLAUP Bröndby meistari Bröndby tryggði sér danska meistaratitilinn í gær, er liðið sigraði AGF í Árósum, 3:2. 20 þús- und áhorfendur voru á leiknum, sem er mesti fjöldi tímabilsins í Dan- mörku. Bröndby sigraði einnig í fyrra, en þetta er sjöundi meistara- titill félagsins frá upphafi. Tvær umferðir eru enn eftir. Bröndby-lið- ið hefur haft nokkra yfirburði á tímabilinu og hefur verið í toppsæt- inu frá 2. umferð. „Það er alltaf sérstakt að sigra en það er enn betra þegar titill er varinn því þá vilja öll lið sigra meist- arana,“ sagði þjálfari Bröndby eftir leikinn við AGF. Hið fornfræga fé- lag, FC Kaupmannahöfn, forðaði sér frá falli með sigri á OB, 1:0. England sigraði Englendingar sigruðu Pólverja í undankeppni heimsmeistara- mótsins á laugardag, 2:0, í Pól- landi. Þeir eru því öruggir um að leika í úrslitakeppni mótsins í Frakklandi á næsta ári. Alan Shear- er gerði fyrra mark gestanna á 5. mínútu, en hann misnotaði einnig vítaspyrnu skömmu áður en fyrri hálfleikurinn rann sitt skeið. Leik- urinn var nokkuð harður og Paul Ince sagðist aldrei hafa leikið gróf- ari landsleik, en hann lék mjög vel. Teddy Sheringham skoraði seinna mark Englands rétt fyrir leikslok og gulltryggði sigurinn, en enska liðið hafði góð tök á leiknum og Pólveijarnir gerðu sig ekki lík- lega til að jafna eftir að Shearer hafði slökkt í þeim. í kvöld Knattspyrna Sjóvá-AImennra deildin: (Efsta deild í karlaflokki) Valbjarnarvöllur: Fram - Stjaman ..18 Akranes: ÍA - Grindavík.........20 Vestm.eyjar: ÍBV - Skallagrímur....20 Keflavík: Keflavík - Valur......20 KR-völlur: KR - Leiftur.........20 Stofn deildin: (Efsta deild í kvennaflokki) Asvellir: Haukar - Stjarnan.......20 1. deild karla: (Næst efsta deild í karlaflokki) Akureyri. Þór-ÍR................20 Kaplakriki: FH - KA.............20 1. deild kvenna A: (Næst efsta deild í kvennaflokki) Varmá: UMFA - Reynir S..........20 2. deild karla: (Þriðja efsta deild) Húsavík: Völsungur - Selfoss...20. Leiknisvöllur: Leiknir - Fjölnir .20 j Kópavogur: HK - Þróttur...............20 , Þorlákshöfn: Ægir - KVA.........20 Heilsuhlaup í tíunda sinn HEILSUHLAUP Krabbameinfél- agsins fer nú fram í tíunda skipti. Fyrsta hlaupið var í Grímsey á laug- ardaginn en á fimmtudag verður hlaupið í Reykjavík, Borgarnesi, á Ólafsfirði, Akureyri, í Hrísey, á Grenivík, Húsavík og í Keflavík. Skráning í hlaupið er hjá Krabba- meinsfélaginu í dag og á morgun kl. 16-18 og á fimmtudag kl. 8-18. Þátttökugjald er 200 krónur fyrir 14 ára og yngri en 500 krónur fyr- ir 15 ára og eldri. í Reykjavík hefst hlaupið við hús Krabbameinsfélagsins við Skógar- hlíð. í Borgarnesi við íþróttamið- stöðina, á Ólafsfirði við Gagnfræða- skólann, á Akureyri verður hlaupið í Kjarnaskógi, í Hrísey er lagt af stað frá sundlauginni, á Grenivík við Kaupfélagið og í Keflavík frá Sundmiðstöðinni. Laugardaginn 7. júní kl. 12 verður hlaupið á Dalvík. Michael Jordan tryggði Chicago siguri ífyrsta leik lokaúrslita gegn Utah Bréfberínn vinnur ekki á sunnudögum ÞRÁTT fyrir sigur á Utah Jazz ífyrsta leiknum í lokaúrslitum NBA-deildarinnar, 84:82, geta leikmenn Chicago Bulls ekki verið ánægðir með leik sinn. Utah hafði forystu mestallan leikinn, en þegar til kom var það sjálfur Karl Malone sem klúðraði tveimur vítaskotum rétt fyrir leikslok sem sett hefðu mikla pressu á Chicago. í stað þess var það Michael Jordan sem vann leikinn á loka- sekúndunni fyrir meistarana. Leikurinn í Chicago á sunnudag einkenndist af því að leikmenn beggja liða virtust vera að þreifa fyrir sér, enda mæt- ast þau aðeins tvisv- Valgeirsson ar a an- Hvorugt lið skriiar frá lék nógu vel í sókn Bandaríkjunum til að ná afgerandi forystu og þegar Karl Malone mis- notaði tvö vítaskot þegar 9 sekúnd- ur voru eftir í jöfnum leik vissu allir hvaða leikmaður Chicago myndi fá tækifæri á að vinna leik- inn fyrir meistarana. „Við vildum gefa Michael [Jordan] tækifæri á að fá boltann aleinn öðrum megin á vellinum og það tókst,“ sagði Phil Jackson, þjálfari Chicago, eftir leikinn. Chicago náði að setja sóknina eins og fyrir hafði verið lagt og Jordan var ekki í miklum vandræð- um með að skapa sér skotfæri. Hann beið þar til tvær sekúndur voru eftir og skoraði þegar leik- tíminn rann út, 84:82, fyrir Chicago. Pippen lék vel tapaði knettinum 18 sinnum, sem er mjög óvenjulegt hjá Jazz. Karl Malone átti góðan leik, þrátt fyrir að hafa misnotað vítaskotin í Iokin. Hann skoraði 23 stig og tók 15 fráköst. John Stockton skoraði 16 stig. Malone var ekkert að afsaka sig eftir leikinn. „Ég er vissulega vonsvikinn að hafa klúðrað vítunum í lokin, en við hefðum aldrei átt að láta leikinn vera svo jafnan í lokin. Skógarhlið - Flugvallarvegur - HHðarfótur ÍNauthólsvik - fyrir flugbraut og gangstígur um Skerjafjörð og Ægisíðu - Kaplaskjólsvegur - Hríngbraut að Njarðargötu - Vatnsmýrar- vegur - Flugvallarbraut - Flugvallarvegur - Skógarhlið Scottie Pippen, sem er meiddur á fæti, lék framar öllum vonum fyrir Chicago. Hann skoraði 27 stig og tók níu fráköst, þrátt fyrir _að geta ekki beitt sér að fullu. „Ég sagði við Karl [Maione] að bréfber- ar bæru ekki út á sunnudögum rétt áður en hann tók vítaskotin. Ég veit ekki hvort það hafði áhrif á hann, en hann missti allavega bæði skotin," sagði Pippen eftir leikinn, en „Bréfberinn" er gælunafn Malo- nes. Jordan átti góðan leik, þrátt fyr- ir að hafa misnotað mörg skot. Hann skoraði 31 stig og gaf átta stoðsendingar. „Fyrsti leikurinn er alltaf erfiður í lokaúrslitunum. Sig- urinn í þessum leik virtist alltaf ætla að enda á einu skoti í lokin og það var ákveðið að ef ég hefði pláss, myndi ég reyna að nota eins mikið af klukkunni og hægt væri áður en að ég tæki skot. Þegar Bryon [Russell] reyndi að stela bolt- anum náði ég að skapa mér skot og ég hef alltaf sjálfstraust á að skora þegar svo er,“ sagði Jordan eftir leikinn. Styrkurinn varö að veikleika Styrkleiki Utah, að halda boltan- um mjög vel í sókninni, , reyndist liðinu veikleiki í þessum leik. Liðið SHAWN Kemp, framheijinn sterki hjá Seattle Supersonics, hefur beðið stjórnendur félagsins um skipti til annars liðs. „Við höfum heyrt frá nokkr- um öðrum liðum sem vilja fá Kemp,“ sagði Wally Walker, forseti Sonics. „Við höfum ekki rætt við Kemp vegna þess, en við skiptum aðeins um leikmenn ef það gerir liðinu gott,“ bætti hann við. Kemp hefur verið mjög óánægður með samning sinn við félagið og telur launin ekki nógu há. Þegar miðheijinn Jim Mcllvaine kom til liðs- ins, og fékk hærri laun en Kemp, sauð uppúr. Kemp var með 18,7 stig og 10 fráköst að meðaltali á liðnu tímabili, en Mcllvaine var með 3,8 stig og fjögur fráköst að meðaltali. Seattle er komið upp fyrir launaþakið og getur ekki hækkað laun Kemps. Kemp hefur látið lítið á sér bera eftir að Seattle tapaði fyrir Houston í úrslitakeppninni og mætti ekki á lokafund leikmanna tveimur dögum síðar. „Það er mikilvægt að Kemp segi okkur hvað honum liggur á hjarta. Samskipti okkar hafa ekki verið of góð undanfarið,“ sagði Walker. Jonathan Daniel/Allsport MICHAEL Jordan gerði sigurkörfuna fyrir Chicago um leið og flautan gall, eftir að Karl Malone hafði misnotað tvö víta- skot. Hér sækir Jeff Hornacek að Jordan í leiknum. Við munum ekki láta þetta tap hafa of mikil áhrif á okkur. Ég held að við getum leikið betur gegn þeim og við verðum tilbúnir í slag- inn á miðvikudaginn," sagði hann eftir leikinn. Óvenjulegur leikur Leikur liðanna einkenndist af góðum varnarleik, en að sama skapi lélegri sókn. Færri stig hafa ekíri verið skoruð í lokaúrslitum síðan árið 1956 og færri vítaskot hafa aldrei verið tekin í úrslitaleik, en leikmennirnir tóku samtals 27 víta- skot í leiknum á sunnudagskvöld. Ef Scottie Pippen heldur áfram góðum leik fyrir Chicago, verður erfitt fyrir Utah að vinna fjóra af næstu sex leikjum lokaúrslitanna. Chicago þarf að vinna á morgun, því það verður óskemmtileg reynsla að þurfa að vinna einn leik í Utah, þar sem liðið hefur ekki tapað nema þremur leikjum allt tímabilið að úrslitakeppninni meðtalinni. Þrátt fyrir sigurinn verður afgangurinn ekki auðveldur fyrir meistarana, til þess er Utah of sterkt á heima- velli. Bulls ætti samt að geta klárað viðureignina í sex leikjum. Spurs datt í lukku- pottinn SAN Antonio fékk fyrsta val- réttinn í háskólavalinu og mun að öllum líkindum velja Tim Duncan frá Wake Forest- háskólanum. Ef liðið gerir það mun það státa af framlínu sem þeir David Robinsson, Duncan og Sean Elliott skipa og yrði hún mjög öflug. Duncan lék í stöðu miðheija í háskóla, en það getur hann væntanlega ekki gert þegar Robinson er inni á vellinum. Þó er hugsanlegt að Robinson leiki í stöðu framheija, eins og hann gerði stundum með landsliði Bandaríkjanna á Ólympíuleikunum í Atlanta. Liðin sem komust ekki í úr- slitakeppnina fá að velja leik- menn úr háskólum samkvæmt eftirfarandi röð. Hin liðin velja í röð samkvæmt árangri fyrir úrslitakeppnina. 1 ..............San Antonio 2 ..............Philadelphia 3 ....................Boston 4 .................Vancouver 5 ....................Denver 6 ....................Boston 7 ..............New Jersey 8 ..............Golden State 9 ...................Toronto 10 .................Milwaukee 11 ................Sacramento 12 ...................Indiana 13 .................Cleveland 14 ......Los Angeles Clippers KORFUKNATTLEIKUR / NBA Kemp f rá Seattle? KNATTSPYRNA M A R K við hús Krabba- meinsfélagsins, Skógarhlíð 8 Fimmtudagmn , 5. júní 1997 I. 19. Skogamliö - Flugvallarvegur Bústaðavegur - Öskjuhlíðar- vegur - Vesturhlíð - niður öskjuhlið - Nauthólsvegur - Hliðarfótur - Flugvallarvegur *°utt’óu vík fossmcvn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.