Morgunblaðið - 03.06.1997, Side 12
I
Litlu mun-
aðiað
illa færi
FRJALSIÞROTTIR
LÍKT og fyrri daginn hóf Jón
síðari keppnisdaginn með látum
og sló Islandsmetið í 110 m
grindahlaupi. Kom í mark á
14,00 sek., sem er 19/100 betri
tími en gamla íslandsmetið var
sem einnig var í hans eigu -
sett Evrópubikarkeppninni í Tall-
inn í Eistlandi 11. júní 1995.
Mótvindur var 1/m á sekúndu.
Besti tími Jóns í þessari grein í
tugþraut var 14,22 frá Ólympíu-
leikunum í Atlanta. Litlu munaði
að Jón félli um áttundu grind í
hlaupinu þar sem Bandaríkja-
maðurinn Drawn Fucci, er hljóp
við hlið hans, slæmdi hendi sinni
óvart í hné Jóns. „Svona atvik
geta alltaf gerst þegar andstæð-
ingur á næstu braut stekkur upp
á gagnstæðum fæti miðað við
þann sem er við hliðina á. Ég
hrasaði aðeins við og missti takt-
inn í hlaupinu, en tókst samt að
ljúka og tíminn sá besti. Ég hefði
eflaust geta hlaupið á 13,85 hefði
þetta óhapp hefði ekki hent,“
sagði Jón. „Eftir þennan árangur
sá ég að íslandsmetið í tugþraut
var innan seilingar héldi ég rétt
á spöðunum."
Morgunblaðið/Kristinn
JÓN Arnar fagnar hér góðum árangri í kúluvarpi I tugþraut-
arkeppni Ólympíuleikanna í Atlanta. Hann bætti íslandsmet
sitt í tugþraut frá því í Atlanta um 196 stig í Götzis.
inni í Talence í Frakklandi í septem-
ber sl.
Síðasta grein dagsins var 400 m
hlaup og þar náði Jón öðrum besta
tíma sínum í greininni í tugþrautar-
keppni, 47,27 sek. Aðeins hlaupið í
Atlanta i fyrra er betra, 47,17. Þrátt
fyrir allt sagðist Jón ekki vera full-
komlega ánægður með tímann.
„Hlaupið fór of hægt að stað hjá öll-
um, þegar ég fann það bætti ég í
seglin á síðustu tvö hundruð metrun-
um. Það dugði þó ekki til, en samt
var útkoman annar besti tími minn
í greininni."
Þessi árangur gaf Jóni 4.493 stig
sem besti árangur en hann hefur
áður náð á fyrri keppnisdegi. Best
hafði hann áður fengið 4.425 stig í
Talerice í haust er leið. Næstbesti
fyrri dagur var í Götzis fyrir tveimur
árum, 4.386, og þriðji besti árangur
á fyrri degi var á Ólympíuleikunum
í Atlanta í fyrra, 4.346 stig. Jón var
í 3. sæti og keppnin var jöfn. Nool
var frystur með 4.508 stig en
Hámalainen annar, hafði fimm stig-
um færra. Dvorak var fjórði með
4.427 stig og_ Smith fimmti, hafði
4.411 stig. „Ég hef mesta trú á
Hámálainen, hann virðist vera léttari
en áður og afslappaðri," sagði Gísli
Sigurðsson, er hann spáði í spilin að
loknum fyrri deginum og það kom í
ljós að Gísli hafði rétt fyrir sér.
Jón hóf seinni daginn á því að
setja íslandsmet í 110 m grinda-
hlaupi, eins og sagt er frá annars
staðar á síðunni.
Kringlukastið hefur mislukkast hjá
Jóni bæði Talence og í Atlanta en
að þessu sinni tókst honum allvel
upp. Náði öðrum besta árangri sínum
í tugþraut er hann kastði 45,98 m,
best á hann 46,96. „Ég var með
smáhnút vegna árangursins í fyrra,
en eftir fyrsta kastið hvarf skrekkur-
inn.“ Fyrsta kastið var 44,53, annað
kastið var ógilt og það þriðja 45,98
m. „Aðalatriðið var að lenta ekki í
áfölíum og það tókst.“
„Segja má að ég hefði vel geta
farið tíu eða tuttugu cm hærra í
stönginni með því að útfæra stökkin
betur. Þegar atrennan verður orðin
betri bæti ég mig, en þetta var í lagi,“
sagði Jón. Hann hefur stokkið best
4,90 m í stangarstökki í tugþraut en
rétt er að vekja athygli á því að hverj-
ir 10 cm gefa um 30 stig svo hverjri
10 cm eru dýrmætir.
Spjótkastið heppnaðist vel og
lengsta kastið var 63,50 m í þriðju
tilraun. Fyrsta kastið var 61,98 en
það annað varð ógilt. Árangur Jóns
að þessu sinni var hans næstbesti í
spjótkasti í tugþraut, best á hann 64
m frá því klukkustundartugþraut í
Austurríki í fyrrahaust, en í hefð
bundinni tugþrautarkeppni hafði
hann lengst kastað 62,94 í Talence
í spetember 1995.
Þar með var ljóst að hann yrði að
hlaupa 1.500 m, síðustu grein þraut-
arinnar á um 4,47 mínútum til að
ná 8.500 stiga markinu, en það gekk
ekki og tíminn var 4.52,22 mín.
„Bæði var hlaupið frekar hægt eins
og tímar bestu manna sýna en einn-
ig vantaði mér trú á sjálfum mér.
Ég hékk í þeim fyrstu sem voru mi-
stök í stað þess að taka af skarið,
svona er þetta,“ sagði Jón.
„Ég er ánægður með að ná þessum
árangri svo snemma árs og komast
ómeiddur í gegnum þrautina. Eins
og mál standa nú lítur vel út fyrir
sumarið," sagði Jón í mótslok.
Nýjar æfingar famar að skila sér
„ÞETTA er mjög glæsileg byijun
á tímabilinu hjá Jóni og vonandi
verður framhaldið eins jákvætt,"
sagði Gísli Sigurðsson, þjálfari Jóns
Arnars Magnússonar. „Sannast
sagna átti ég ekki von á meti og
síðast en ekki síst svona miklum
framförum en greinilegt er að stutt
hvíld fyrir mótið gerði honum gott.“
Gísli sagði að Jón ætti enn mikið
inni í stökkgreinunum en þyrfti að
keppa meira til að slípa til atrennu.
Þeir félagar hefðu farið í gegnum
miklar stökkæfingar síðla vetrar
og í vor en hingað til hefur Jón
ekki stundað mikið æfingar af því
tagi. Eins hefðu þeir haldið áfram
við að liðka Jón. „Hann er sterkur
og það hefur tekið sinn tíma liðka
þennan sterka líkama upp. Það er
nú smám saman að skila sér eins
og í grindahlaupjnu."
Gísli sagði að íslandsmetin í 100
m og 110 m grindahlaupinu hefðu
ekki komið sér á óvart. „Jón hefur
aukið hraðann og hefur meiri mýkt
í mjöðunum en áður og ég var viss
um að það myndi skila sér í grinda-
hlaupinu. Hann hefði örugglega
náð enn betri tíma ef hann hefði
ekki lent í því óhappi að andstæð-
ingur hans á næstu braut slæmdi
hendi sinni óvart í hnéð á honum
á áttundu grind.“
Keppnin í Götzis var hörð að
þessu sinni að sögn Gísla. Euduard
Hámálainen sem sigraði fékk 8.617
stig, §órum stigum fleira en á
Olympíuleikunum í fyrra er hann
hafnaði í 5. sæti. Dvorak er hafn-
aði í öðru sæti fékk 82 stigum
færra en í sterku þrautinni í Atl-
anta er hann hlaut bronsverðlaun
og Michael Smith og Erki Nool
voru nærri sínu besta. Alls náðu
10 menn yfir 8.000 stigum í keppn-
inni. Þess má geta að árangur Jóns
nú, 8.470 stig, hefði nægt til 9.
sætis á heimsafrekalistanum í tug-
þraut í fyrra.
„Tugþrautarmenn eru sífellt að
verða sterkari og sterkari og þró-
unin er mjög hröð. Það sýnir best
að árangur Jóns nú nægir aðeins
í fimmta sæti hér.“
Gísli sagði að í þessum mánuði
yrði æft baki brotnu en í lok mánað-
arins keppir Jón í Evrópubikar-
keppninni í fjölþraut í Slóveníu.
„Síðan verður júlímánuður rólegri
og megináherslan lögð á að ná
toppárangri á HM í Aþenu í ágúst.“
Jón Arnar Magnússon bætir Islandsmet
sitt í tugþraut um 196 stig í Götzis
Loks gekk
allt upp
„LOKSINS komst ég í gegnum
eina þraut þar sem allt gekk
upp,“ sagði Jón Arnar Magnús-
son, tugþrautarmaður úr Tinda-
stóli, eftir að hann hafði sett
glæsilegt íslandsmet ítugþraut
á alþjóðlegu móti í Götzis á
sunnudaginn Jón fékk 8.470 stig
og bætti gamla metið sitt um
196 stig frá Ólympíuleikunum í
Atlanta ífyrrasumar. Auk ís-
landsmetsins; tugþraut setti
Jón tvö önnur íslandsmet, í 100
m hlaupi, 10,56 sek og 1110 m
grindahlaupi, 14,00 sek. Hann
hreppti 5. sæti en sigurvegari
varð Eduard Hámálainen, Finn-
landi, hlaut 8.617 stig og setti
Norðurlandamet.
Eg get ekki verið annað en
ánægður með árangurinn því
tímabilið er rétt að byija hjá mér.
Fyrirfram reiknaði
ég ekki með því að
ná svona jafnri
þraut, þó svo ég hafi
stefnt á að bæta ís-
landsmetið," sagði Jón glaðbeittur
við Morgunblaðið eftir mótið í Götz-
is. _
Óhætt er að segja að Jón hafi
fengið fljúgandi byijun í þrautinni
sem fram fór í ijómablíðu við bestu
hugsanlegu aðstæður. Hann setti
íslandsmet í 100 m hlaupi, kom í
mark annar á 10,56 sek. Aðeins
Nool hljóp hraðar 10,50. Gamia
metið var 10,57 sekúndur í eigu
Vilmundar Vilhjálmssonar, KR, og
Einar Einarssonar, Ármanni. Best
hafði Jón áður hlaupið 100 m í tug-
þraut á 10,65. „Auðvitað kynti þessi
tími upp í mér og gaf mér sjálfs-
traust fyrir framhaldið," sagði Jón
og bætti við. „Tíminn var góður og
hlaupið heppnaðist vel þó það hafi
Ivar
Benediktsson
skrifar
ekki verið hnökralaust. Það var gam-
an að fá staðfestingu á að ég geti
hlaupið á þessum tíma og jafnvel
gert betur." Þess má geta að með-
vindur var 1,4 m/sek. en má mest
vera 2/m á sek. til þess að met fá-
ist staðfest.
Næsta grein var langstökk og þar
stökk hann 7,66 m í annarri umferð
en gerði hin tvö stökkin hárfínt ógild.
Best á Jón 7,67 m í greininni í tug-
þraut, en sem kunnugt er á einnig
Islandsmetið 800 m. Hann var því
aðeins 1 sm frá sínu besta í þraut.
„Langstökkið á eftir að verða betra
hjá mér, en þetta var í lagi.“ Jón
átti fjórða lengsta stökkið.
„Kúluvarpið hefði mátt ganga
betur, ég þarf bara að slaka betur
í við köstin," sagði Jón um kúluvarp-
ið en hann kastaði 15,31 m sem er
57 cm styttra en hann á best í þraut.
Þetta kasta kom í þriðju tilraun en
áður hafði hann kastað 14,66 og
15,21. Kast Jón var það fimmta
lengsta. Lengst kastið átti Kanada-
maðurinn Smtih, 17,45 m sem er 5
sm iengra en áður hefur verið kast-
að í tugþrautarkeppni.
Fjórða grein á fyrri keppnisdegi
var hástökk og þar undirstrikaði Jón
að hann er í framför í þeirri grein
og virðist vera orðinn öruggur með
2 m. „Ég var grátlega nærri því að
fara yfir 2,03, það hefði gefið 28
stig til viðbótar," sagði Jón um þá
grein. „Ráin datt ekki niður fyrr en
ég var lentur í dýnunni, ég sá hana
tifa og falla síðan, grátlegt." Jón
segir hástökkið virkilega lofa góðu
hjá sér. „Aldrei áður hef ég fundið
fyrir svona miklum krafti í fótunum
og nú,“ bætir hann við og segir að
nýjar hoppæfingar sem hann hafi
stundað í vetur og vor séu greinilega
að skila sér. Jón á best 2,04 í há-
stökki í tugþrautarmóti, frá keppn-