Morgunblaðið - 06.06.1997, Side 4

Morgunblaðið - 06.06.1997, Side 4
4 B FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997 DAGLEGT LIF MORGUNBLAÐIÐ SKAPA gleraugun manninn? PÖNKDROTTNINGIN Nina Hagen, klæðskiptingurinn RuPaul, leikstjórinn John Waters og rokkkóngurinn E1 Vez eru meðal þeirra sem komið hafa fram í auglýsingum fyrir L.A. Eyeworks. í GLERAUGNAVERSLUNINNI Sjáðu við Laugaveg verður í dag og á morgun kynnt nýja línan frá bandaríska gleraugnaframleiðend- anum L.A. Eyeworks. Petra Gail- ing, umboðsmaður fyrirtækisins á Norðurlöndum, mun aðstoða við- skiptavini við val á umgjörðum. Anna Þóra Björnsdóttir og Gylfí Bjömsson opnuðu verslunina Sjáðu fyrir tæpum tveimur árum og að þeirra sögn er markaðshlutdeild L.A. Eyeworks hæst á Islandi af Norðurlöndunum. Umgjarðimar frá fyrirtækinu þykja fínar meðal þotuliðsins í Hollywood og í nýlegu tölublaði kvikmyndatímaritsins Movieline kemur fram að kvik- myndastjömurnar Brad Pitt, Gwy- neth Paltrow, George Clooney, Jennifer Aniston og Jeff Goldblum eigi það sameiginlegt að nota gler- augu frá fyrirtækinu, eins og tón- listarmennirnir Elton John og Elvis Costello. Sólgleraugun stöðutákn Gai Gerhardi og Barbara McReynolds opnuðu fyrstu L.A. Eyeworks verslunina árið 1979. Þær byijuðu að selja gleraugnaum- gjarðir sem voru smíðaðar eftir gömlum módelum, en árið 1980 settu þær fyrst á markað sína eigin hönnun. Þær hanna einnig og fram- leiða sólgleraugu og dálkahöfundur The New York Times sagði í íyrra að í Hollywood væru sólgleraugu frá L.A. Eyeworks stöðutákn á sama hátt og hraðskreiðir bflar og svissnesk úr. Fyrirtækið sendir frá sér nýja línu tvisvar á ári, í júní og október. Þá em kynntar tíu um- gjarðir sem hægt er að fá í mismun- andi útfærslum, en lögð er áhersla á að hver umgjörð sé framleidd í litlu upplagi. Gylfi og Anna Þóra segja að það sé furðulegt hvað fólk leggi litla áherslu á að vanda til vals á gler- augum, í ljósi þess að þau séu oft það fyrsta sem aðrir taki eftir. Fólk kaupi sér dýra bíla, jakkaföt og dragtir, en telji eftir sér að borga 25 þúsund krónur fyrir vönduð gler- augu. Þau telja þó að þetta viðhorf sé smátt og smátt að breytast, fólk sé að gera sér grein fyrir að gler- augun skapi manninn, ef svo má segja. Einnig benda þau á mikil- vægi þess að nota sólgleraugu, en Islendingar átti sig oft ekki á því að útfjólubláir geislar sólarinnar skaði augun verulega. Hugmy sóttar í menning Ljósmyndir/Bára TILVALINN klæðnaður fyrir feðga á þjóðhátíðardaginn. Textíllistakonan Gerla hefur hannað og fram- leitt fatnað í þjóðlegum stfl með útskurðarsaumi úi' roði og sel- skinni. Hún sækir hugmyndir sínar í gamlan íslenskan tréskurð og not- ar eingöngu innlent hráefni. „Þegar ég vai' „atvinnulítil" fyrir fjórum árum notaði ég tækifærið til að gera það sem hugur minn hafði lengi staðið til og ákvað að rann- saka hina gömlu íslensku mynstur- hefð“, segir Gerla. „Ég sat þá lang- tímum saman á Þjóðminjasafninu og skoðaði gamlan tréskurð. Mér fínnst nærtækt að sækja hugmynd- ir í tréskurðinn, því hann er þjóð- legasti menningararfur íslendinga og mér finnst sorglega lítill gaumur að honum gefinn.“ Hún bætir við að þjóðlegur áhugi sinn hafi kviknað strax í barnæsku og hún hafi þá heimsótt Þjóðminjasafnið óvenju oft. Gerla hefur ásamt Erlu Þórarins- dóttur starfað að textflhönnun und- ir nafninu Rótin undanfarin ár. Þær leggja áherslu á að hanna úr ís- lensku hráefni og hafa fengið til þess styrk úr sjóði til atvinnusköp- unar kvenna. Verðlaun fyrir drengjabúning Gerla hefur hannað drengjabún- ing, kápu, vesti, peysur og karl- mannsklæðnað með útskurðar- saumi úr roði og selsldnni. Fatnað- urinn hefur um nokkurra mánaða skeið verið til sölu í verslununum Kviku og íslenskum heimilisiðnaði og segist hún hafa fengið mjög góð viðbrögð frá viðskiptavinum. Hún segir að það borgi sig að klæð- skerasauma karlmannsfatnaðinn og láta þá mismunandi mynstur prýða hverja flík, enda bjóði fléttumynst- ur upp á endalausa möguleika í út- færslu. Drengjabúningurinn er hins vegar framleiddur fyrir stráka á aldrinum tveggja til átta ára og kostar tíu til fjórtán þúsund krónur. Þess má geta að búningurinn fékk verðlaun fyrir notkun á roði í sam- keppni um framleiðslu úr íslensku hráefni, sem haldin var í tengslum við reynsluverkefnið Handverk fyr- ir tveimur árum. „Drengjabúningurinn á að geta gengið frá einni kynslóð til annarr- ar eins og upphlutir stúlkna", segir HUGMYNDIN að kápunni er sótt til 200 ára gamallar kápu sem geymd er á Þj skreytt með flosvefnaði, en útskurðarsaumur úr selskinni prýðir þessa. Vestið Ljósmynd/Arnaldur TEXTÍLLISTAKONAN Gerla sækir mynstur í gamlan íslenskan tréskurð. Jakkinn sem hún klæðist er skreyttur með útskurðarsaumi úr selskinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.