Morgunblaðið - 13.06.1997, Blaðsíða 1
Handsmíðar
jafnt úr gulli sem tré
SILFUR
Tobaksponta
VIÐUR
Skartgnpaskrin
Hálsmen
FAGURLAGAÐ gullmen, silfur-
slegið annband, munstraður hring-
ur og svipa reiðmanns úr
spanskreyr og nýsilfri eru meðal
gripa Leifs Sigurðssonar á sýningu
í Félagsheimili aldraðra í Hæðar-
garði 31 í Reykjavík.
Leifur hefur hannað og smíðað úr
gulli, silfri, tré og öðru efni í
meira en hálfa öld og
ævinlega gefíð vinum
og vandamönnum,
nema hvað hann hefur
selt svipur.
A sýningunni eru líka
útskornar klukkur, lamp-
ar, speglarammar, skart-
gripaskrín, baromet úr
mahoní, og beizlisstangir
og ístöð fyrir hestamenn úr
stáli. Munstrið í gripunum
hefur orðið fyrirmynd í verk-
um annarra hagleiksmanna.
Leifur Sigurðsson er Skag-
firðingur og lærði rennismíði
hjá Héðni, undirstöðu í silfur-
smíði á stríðsárunum hjá Gísla
Gíslasyni silfursmiði sem þá var
orðinn blindur. Leifur var svo á
gullsmíðaverkstæði Halldórs Sig-
urðssonar bróður síns á Skóla-
vörðustíg.
„Tréskurðinn lærði ég
Handíða- og myndlist-
arskólanum árin
1945-46,“ segir
hann, „en hætti að
vinna með tré og byrjaði
ekki aftur fyn- en 1993. Eg hef
alla tíð verið með verkfæri í hönd-
unum og smíðað."
I
Morgunblaðið/Arnaldur
LEIFUR Sigurðsson, útskorin klukka og hilla í bakgrunni.
Athygli sýningargesta vaknar á
fjölbreytileika muna og efnis sem
unnið er með: Fánastangir úr birki,
rammi með mynd af forsetahjónun-
um, súla úr kopar, reynivið og ma-
honí, kertastjakar úr renndum
kopar húðaðir með nýsilfri o.fl.
Hafdís Helgadóttir, sem kennir
öldruðum myndlist, setti sýninguna
upp og Leifur segir að Þórhalla
Harðardóttir hafi endurmennt-
að hann í tréskurðinum.
Lena Hákonardóttir
forstpðumaður félags-
miðstöðvarinnar segir
að sýningin standi til
næstu mánaðamóta.
Sýningar á munum
aldraðra verða svo í
Hæðargarði mánaðarlega
næsta vetur, eins og veturinn
1996-1997.
B UNGLINGAR FYRIR HUNDRAÐ ÁRUM/2 ■ STÓLARNIR JAKI OG DREKI
HRÍFA ÚTLENDINGA/2 ■ VINIR í VESTURBÆNUM - HUNDALÍF/4 ■
SAFNKORTASPIL/6 ■ HJARTASTUÐTÆKI/6 ■ BLAÐBERASYSTKIN/7
'3G
:qi«
Við verslun ðtlii Þverbrekku
frá kl 16:00 til 19:00 í dag
ár Grillað lambakjöt
Jr Leiktæki fyrir börnin
Jr Svalabræður skemmta
> Steinar Viktorsson með þátt
sinn í beinni frá Þverbrekku á
909^909
AÐALSTÖÐIN
.V Þurrkryddaðar grillsneiðar frá Goða kr. S99,- pr. kg
> Heimaís frá Kjörís, tveir fyrir einn.
> Brazzi frá Sól, tveir fyrir einn.
Tilboð þessi gilda aðeins meðan lukkustund stendur yfir.