Morgunblaðið - 13.06.1997, Page 5

Morgunblaðið - 13.06.1997, Page 5
4 B FÖSTUDAGUR13. JÚNÍ1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1997 B DAGLEGT LÍF DAGLEGT LÍF ÞAÐ er alltaf tekið vel á móti okkur í Skjólakjöri. DOPPA og Ljúfa eru nú oftast ágætar vinkonur þó stundum sjóði uppúr. í Vesturbænum „VBD vorum búin að vera með hunda í um tuttugu ár,“ sagði Jak- obina G. Finnbogadóttir sem býr í vesturbænum í Reykjavík ásamt ís- lensku tíkinni sinni henni Ljúfu. Jak- obína og maðurinn hennar, Þórir Kr. Þórðarsson guðfræðiprófessor sem nú er látinn, voru mikið áhuga- fólk um hundahald og má segja að þau hafi bæði lagt sitt af mörkum til stuðnings hundahaldi á íslandi. Jak- obína vann um nokkurra ára skeið hjá Hundaræktarfélaginu og eftir Þóri liggja margar sögur um hundana þeirra, sem hann skrifaði Hundarnir í Vesturbæn- um eru í klíku og fara saman í göngutúra. Helga B. Barðadóttir fór á röltið með eigend- um þeirra, ræddi lífíð með besta vini mannsins og spurði hundaþjálfara um kjör hundsins. af einstakri næmni eins og sagan af tikinni Tinnu „Þegar besti vinurinn deyr“ vitnar um. F6r austur og kom helm með LJúfu „Þegar við misstum cokerinn okkar í lok október 1994 var Þórir orðinn mikið veikur en hann dó í febrúar 1995. Þórir lagði ríka áherslu á að ég fengi annan hund í stað Kósíar, en það hét cokerinn, svo ég yrði ekki ein. Svo var það að Guðrún dóttir mín, sem bjó í Hruna, segir mér frá íslenskri tík á Flúðum Morgunblaðið/Ásdís LJÚFA og Jakobína sanian á Ægissíðunni. sem hafði gotið og spyr hvort ég hafi ekki áhuga á að fá hvolp. Ég hafði aldrei ætlað mér að fá íslensk- an hund, en Guðrún sagði mér nú að koma og sjá hvolpinn og sagði að þau systkinin vildu gefa mér hann. Þórir hvatti mig mjög og sagði að þama væri komið ljós,“ sagði Jak- obína. Það var svo á jóladag að hún fór austur og kom heim með Ljúfu. „Það var gaman þegar ég kom með hana heim, Þórir varð strax afskap- lega hrifinn af henni og ég uppgötv- aði að íslenski fjárhundurinn er al- veg sérstaklega skemmtilegt dýr. Ljúfa er ekta Islendingur, nöldrari, afskiptasöm, afskaplega glöð og góð og má helst ekki missa af neinu. Það er oftast hægt að sjá það á eyrunum á henni hvað hún er að hugsa. Hún iagðl eyrun aftur - sjálð þlð ekkl hvað 6g er saklaus Þegar hún var fjögurra mánaða kom hjúkrunarkona hingað til að sinna Þóri. Konan lagði hanskana sína á lágt borð, Ljúfa tók hansk- ana, og þegar kon- an ætlaði að taka þá en fann enga, varð okkur litið á Ljúfu. Hún lagði eyrun aftur og gaf til kynna með þeim -sjáið þið ekki hvað ég er saklaus ég færi aldrei að taka hanskana," sagði Jakobína og brosti við tilhugsunina. Hún sagði að Ljúfa eigi það til að fara í íylu og verða reið út í sig, en það var eitthvað sem hinir hundarnir gerðu aldrei „Stundum er það þannig að ef hún er búin að vera ein heima og í stað þess að fagna mér þegar ég kem, eins og hinir hundamir gerðu alltaf, situr hún og horfír á mig, setur ann- að eyrað fram, hitt aftur eins og gömul „tanta“ og segir -mikið er að þú ert komin heim!“ Og eitt sinn er Jakobína kom heim að kvöldi, en hún hafði verið í burtu um þrjá tíma, þá lá Ljúfa niðri á stigagang- inum „Hún leit vart á mig þegar ég kom inn hvað þá að hún hreyfði skottið. Ég kallaði í hana þegar ég kom upp og spurði hvort hún ætlaði ekki að koma upp að sofa, nei hún kom ekki upp alla nóttina, hún var svo móðguð." En Ljúfa er langt frá því að vera alltaf reið og fúl. „Það var um það leyti sem Þórir var orðinn mikið veikur, hann var búinn að vera ým- ist hér heima eða á sjúkrahúsi. Þá var það eins og Ljúfa, þessi ærsla- fulli hvolpur, skynjaði óróleikann og dró sig í hlé þegar hjúkrunarfólkið kom heim til að líkna Þóri. Ljúfa sýndi þá svo vel hversu mikil næmni býr í dýrunum, næmni sem við átt- um okkur ekki alltaf á,“ sagði Jak- obína, og leit á Ljúfu. Klikan Það er nú óhætt að segja að Ljúfa hafí ýmsum skyldum að gegna, því einu sinni í viku kemur Lappi í pössun til hennar. „Hún er dagmamma á hverjum miðviku- dagsmorgni, en svo launar Lappi henni það með því að bjóða henni með sér í sumarbústaðinn sinn fyr- ir austan um helg- ar,“ sagði Jak- obína og hló. Ljúfa og Lappi eru í mjög skemmtilegum fé- lagsskap en þau ásamt fleiri hund- um og hundaeig- endum úr vestur- bænum eru í gönguhóp, sem er svo mikið í tísku í dag. „Við erum nokkrir hundar héma úr vestur- bænum sem hitt- umst á hverjum morgni og göngum eftir Ægissíðunni. I hópnum eru: ég, Lappi og Doppa, ágæt vinkona mín þó stundum sjóði uppúr, og Ebenezer kallaður Ebbi, hvers manns hugljúfí. Þetta er fastaklíkan, en svo era stundum fleh-i eins og Fófa, Sherrý, Icy og Kofri -en þeim era Vesturbæingar líka. Göngunni lýkur síðan í harð- físk hjá þeim heiðurshjónum Erlu og Einari í Skjólakjöri. Þau vita bæði mikið um hunda og gefa eig- endum okkar oft góð ráð í sambandi við uppeldið á okkur, sem mér finnst nú að þeir ættu oftar að fara betur eftir,“ sagði Ljúfa sposk á svipinn. Lappi „HANN átti að heita Tómas vegna þess að hann á heima á Tómasar- haganum, en Lappanafnið festist fljótlega við hann vegna þess að hann er jú með hvítar loppur, en sérstaklega þar sem honum finnst svo notalegt að liggja við fæturna á okkur,“ sagði Sigrún eigandi hans. Lappi er algjör „kokteill" eins og eigandinn orðaði það. Hann varð eins árs 5. júní sl., en þá var að sjálfsögðu bökuð kaka á Tómasarhaganum. „Við Lappi erum alltaf á ein- hveijum námskeiðum, síðast í sporleit, því hann hefur einstak- lega gott lyktarskyn eins og reyndar allir hundar. Einu sinni var sagt um hann að hann gæti orðið sórstaklega góður leitar- hundur vegna þess að hann er svo glaður og forvitinn," sagði Sigrún stolt og klappaði Lappa sínum sem dinglaði rófunni. En hvað skyldi nú Lappi hafa mest gaman af því að gera. „Vera úti, helst uppi í sveit, þar sem ég get hlaupið fijáls, og að fá Ljúfu í hcimsókn i bústaðinn okkar i Bisk- upstungunum," sagði Lappi glaður og bætti við að honum fyndist vanta svæði hér í borginni þar sem hundar geti verið frjálsir - lausir við ólina. miiMi Morgunblaðið/Ásdís LAPPI á Ægissíðunni með Sigrúnu. Doppa „HÚN ER alltaf til í allt og fíinnst gaman að leika með krökkun- um,“ sagði Líva, eigandi Doppu, þegar blaðamaður heimsótti þær á heimili þeirra í vesturbænum. „Hún er skosk-íslensk blanda, skapið er dálítið misjafnt en oft- ast er það gott. Doppa er þriggja ára, hún fæddist á sveitabæ rétt fyrir austan Vík í Mýrdal á sjálf- an þjóðhátíðardaginn, 17.júní, en mamma hennar hefur tvisvar gotið þann dag,“ sagði Líva. Þegar ég spurði hvað Doppu þætti skemmtilegast svaraði Líva, „að synda,“ og það var greinilegt á tíkinni að svo væri því hún dillaði skottinu mjög sannfærandi. „Ég syndi stundum í Hvítá, en þar rétt hjá á fjöl- skyldan mín sumarbústað. Svo hef ég gaman af því að sitja í kassabílnum sem krakkarnir eiga,“ sagði Doppa. Doppa er búin að vera í Ægis- síðuhópnum í tæp þrjú ár og má segja að hún sé frumkvöðullinn í gönguhópnum. Sleppurðu ein- hverntímann göngu? „Já, einu sinni í fyrravetur snjóaði svo mikið að ég skreið bara undir sófa, hún Líva reyndi nú að koma mér út en ég gaf mig ekkert," sagði sú ferfætta ákveðin á svip. Morgunblaðið/Þorkell DOPPA í kassabflnum. Með henni eru vinkonurnar Eyrún og Ingibjörg. Fordóm- ar í garð hunda Morgunblaðið/Amaldur Halldórsson. HUNDAÞJÁLFARARNIR Þórhildur Bjartmarz og Emilia Sigursteins- dóttir og hundurinn hennar. í HUNDARÆKTARFÉLAGI ís- lands eru um ellefuhundruð félags- menn. Helstu markmið félagsins eru að halda utan um ræktun allra hundategunda sem til eru í landinu, fræða hundaeigendur, standa vörð um góða meðferð á dýrunum og að uppeldisaðstæður þeirra séu viðun- andi. Félagið er eina félag hunda- eigenda sem berst fyrir rétti þeirra út á við. Blaðamaðm- hitti þær Emilíu Sigursteinsdóttur og Þórhildi Bjartmarz í húsakynnum Hunda- ræktarfélagsins í Síðumúla, og spjallaði við þær um hundahald á Islandi. Þær eru báðar menntaðir hundaþjálfarar frá hundaskóla í Svíþjóð, reka saman hundaskóla í Garðabæ og eru sjálfar að sjálf- sögðu hundaeigendur. Hundamlr ð undanþágu „Hundurinn er ekki viðurkennd- ur í íslensku samfélagi þrátt íyrir að hundahald sé staðreynd. Það eru sennilega aðeins þrír staðir á öllu landinu sem leyfa hundahald en það era Hafnarfjörður, Álftanes og Akureyri. Annarstaðar eru hunda- eigendur með hundana sína á und- anþágu frá reglugerðinni; þessu þarf að breyta,“ sögðu þær. Ástæðuna telja þær Þórhildur og Emilía aðalega vera byggða á for- dómum og þröngsýni. „Það er svo stutt síðan við komum út úr mold- arkofunum og því þykir hundurinn óhreint dýr sem á ekki að vera í hý- býlum manna, hvað þá í borg,“ sagði Emilíja. „Við eram komin svo langt frá náttúrunni að það er um- hugsunarvert, við sem ættum að vera stutt frá henni því saga lands- ins er stutt, miðað við önnur lönd. Hundaeigendur era alltaf að berj- ast við fordóma í garð hundanna sinna, en það er sennilega líka vegna þess að hundahald í þeirri mynd sem það er í dag er svo ungt. Oft heyrir maður að hundar eigi bara að vera í sveit og hafi það best þar. Þetta er ekki rétt því hundar vilja vera með manninum. Við erum t.d. með hundakyn í dag sem gæti aldrei lifað í sveit eins og hundur- inn gerði hér áður. Jórunn Sören- sen, fyrrverandi formaður dýra- verndunarfélagsins, sagði eitt sinn að „borgimar eru nógu góðar fýrir okkur en þær era ekki nógu góðar fyrir hundana," sagði Þórhildur. Þær stöllur telja að hundurinn þurfi fyrst og fremst að fá viður- kenningu frá yfirvöldum. „I Sví- þjóð, og Danmörku sjálfsagt líka, er rekinn hundaskóli á vegum ríkis- ins þar sem hundaeigendum er kennt að umgangast hundinn. Víða erlendis era hundar notaðir í því skyni að byggja upp einstak- linga sem eiga við einhverskonar fötlun að stríða og einnig gegna þeir mikilvægu hlutverki í lög- gæslu. Ekki má gleyma því mikla félagslega hlutverki sem hundar gegna hjá gömlu fólki, sem oft á tíð- um einangrast í þjóðfélagi hraðans. Þetta á sér að sjálfsögðu bara stað í þeim þjóðfélögum þai’ sem hundur- inn er viðurkenndur," sagði Emilía. Trassamlr alls staðar En nú snerist umræðan að óþæg- indum sem fólk getur orðið fyrir af hundum, eins og hundaskíturinn og lausum dýram. „Við sem eigum hunda viljum nú ekki frekar en hin- ir stíga í hundaskít en trassarnii' era alls staðai’ - meðal hundaeig- enda líka. Það er sjálfsagt mál að hafa hundinn í bandi og að þrífa upp eftir hann. Stundum verður maður vitni að því að hundaeigandi þrífur ekki upp eftir hundinn sinn. Þá er gott ráð að spyrja: gleymdist pokinn? og rétta fram einn,“ Hundurinn er ekki leikfang og hundaeigandinn verður að bera ábyrgð á sínu dýri. „Það er rangt að fá sér hund með það fýrir augum að hann verði eitthvert leikfang fýrir börnin. En þau geta lært mik- ið á því að hafa hund inni á heimil- inu. Þau geta upplifað lífsmynstrið í gegnum hundinn, því líf hundsins er miklu styttra en þeirra,“ sagði Þórhildur og bætti við: „Börnin sjá jafnvel þegar hundarnir para sig, þau sjá þegar tíkin gýtur og þegar hún hlúir að hvolpunum sínum, síð- an upplifa þau viðskilnaðinn við hvolpana þegar þeir fara til ann- arra eigenda. Þau þurfa að hugsa um hundinn ef hann verður veikur og þegar hann verður gamall. Síðan kemur að endalokunum - sjálfum dauðanum." Mlkll framför En þær Emilíja og Þórhildur líta björtum augum á framtíðina þvi al- menn hundaeign landsmanna er að aukast og eftir því sem hún eykst þá breytist viðhorfið. „Garðbæing- ar hafa sýnt framför í þessa átt hvað varðar skiltin. í staðinn fyrir skiltin með hundinum og striki yfir hann, sem þýðir að hundurinn er óvelkominn er farið að hafa hund í bandi sem þýðir að hundurinn má vera á svæðinu ef hann er í bandi, þetta eitt og sér mikil framfór. Ungum hundaeigendum fer stöðugt fjölgandi og í kjölfarið fjölgar meðlimum í Hundaræktar- félagi Islands. Þessir krakkar hafa brennandi áhuga á öllu sem hund- inum viðkemur og þau eru mjög vel inni í málum félagsins. Mörg þeirra hafa alist upp með hundum og eru því laus við alla fordóma. Þau eiga vonandi eftir að marka tímamót í sögu hundahalds á íslandi," sögðu þær að lokum. Þegar besti vinurinn deyr JÓLIN eru hátíð samverunnar um gleðigjafann, en þau fjalla um raunveruleikann, ljósið og myrkrið. Á annan dag jóla er text- inn um dauða Stefáns píslarvotts og heitir Stefánsdagur frumvotts. Þegar besti vinurinn deyr er það mikið áfall fyrir alla í fjölskyld- unni. En okkur ber að hugsa til þess hve börnin taka sér þetta nærri. Þess vegna er nauðsynlegt að hugleiða hvernig við getum veitt úti’ás tilfinningum okkar, en ekki síst barnanna, hvernig við getum hjálpað þeim til að syrgja á þann hátt sem hjálpar þeim. Tinna var orðin mikið veik af krabbameini þá uin vorið. Spurn- ingin var hvenær æxlið brytist út, svo stórt var það. Því var á síðustu stundu leitað til dýralæknisins. Ég gleymi ekki því trúnaðartrausti sem lýsti sér í augum hennar er hún leyfði mér að halda laust um vinstri framfótinn meðan dýra- læknirinn var að finna æð, sem var mjög seinlegt og þurfti margar til- raunir. En ekki hreyfði hún sig. Hún treysti því að hjá mér væri hún örugg. Og það var hún. Þetta var það besta eins og komið var. Hún fékk svo sprautuna og var önduð á sömu sekúndunni. Á gólfinu var falleg kista úr spónaplötu. Við höfðum undirbúið þetta vel, leituðum til vinar sem benti okkur á trésmið á Akranesi sem smíðar kistur fyrir slík tilefni. Hann hafði koinið með hana um leið og hann átti erindi í bæinn. Nú stóð hún þarna og við kistulögðum Tinnu. Hún lagðist á hægri vang- ann sinn og við lokuðum kistunni. Kistan stóð uppi í bflskúrnum einn sólarhring, svo var haldið austur í Ölfus þar sem við eigum hektara. Með okkur fóru tvö barnabarnanna, Ólafur Stefánsson til að bera með mér og Guðrún Lilja Tryggvadóttir, systir hans. Konan mín hafði skreytt kistulokið fallega og fest þar uppáhaldsleik- fangið hennar, gúmmfkarl, sem hún hafði eitt sinn fengið í jóla- gjöf. Með þá jólagjöf var hlaupið marga hringi kringum borð og stóla og alla viðstadda, eins og Tinnu var vandi er hún fékk pakka á aðfangadagskvöld, til þess að all- ir gætu séð og dáðst að, og svo að Iokum lagst niður og rifið utan af pakkanum, sem í þetta sinn hafði verið þessi gúmmíkarl, sem hún hafði mikið dálæti á. Hann tísti um leið og hún beit í hann, það fannst lienni mikið ævintýr! Nú fylgdi hann henni síðasta spölinn og fór með henni í gröfina. Nokkrum dögum áður hafði ég tekið gröfina þar sem fallegt var umhverfis og nú bárum við Óli hana þangað út, létum kistuna standa við grafar- bakkann um stund meðan við leiddum hugann að liðnum ánægjustundum og tókum myndir sem hin 15 barnabörnin mundu vilja sjá til þess að geta syrgt Tinnu sína á þann hátt sem hæfði tilfinningalífi þeirra. - Svo létum við kistuna síga. - Við settum blóm á leiðið og síðar í mánuðinum komu barnabömin úr Hruna, Bjarki og Nanna IDin, Hall- dórsbörn og Guðrúnar, og plöntuðu greniplöntum á gröfina og áttu þar sína stund. Öll hin fengu svo að sjá myndirnar. Það var þeim augsýni- leg fróun að sjá að Tinna hafði hlot- ið þá umhyggju látin sem hún hafði veitt öðrum í lifanda lífi. Hvað þau öll hugsuðu, veit ég ekki, en ég varð var við það af látbragði þeirra og viðbrögðum að þeim veittist auðveldara að komast yfir sorgina vegna þess að vel var að öllu staðið. Því að dauðinn er partur af Iffinu, það uppgötva börnin þegar besti vinurinn deyr. Þórir Kr. Þórðarson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.