Morgunblaðið - 25.06.1997, Side 1

Morgunblaðið - 25.06.1997, Side 1
m n*t -f í ~i& i tstöt .. m 'ÖÚfí í§ss ; órgmiMröit* MIÐVIKUDAGUR 25. JUN! BLAÐ B KNATTBORÐSLEIKUR / SNOKER Krislján lékfrá- bæriega á9; KRISTJÁN Heigason er kominn í 16 manna úrslit á Evrópumóti áhugamanna í snóker sem fram fer í Biarritz í Frakklandi. Hann vann alla andstæðingana í sín- um riðli með miklum yfirburð- um. Hann mætti Frakkanum Eric Lepaul ígær og vann 4:0 (106-0, 71-40, 63-20 og 130-1). ÆT Arangur Kristjáns hefur vakið mikla athygli á mótinu enda hefur hann sex sinnum farið yfir 100 í einu stuði og þar af einu sinni 130 sem er næsthæsta stuð í einum leik á mótinu. Ellefu sinnum hefur verið farið yfir 100 í einu stuði og á Krist- ján sex þeirra eins og áður segir, en enginn annar hefur náð meira en einu sinni yfir 100 í stuði það sem af er móti. Keppni í 16 manna úrslitum hefst í dag, en síðan verður gefið eins dags frí á morgun. Til að komast í 8 manna úrslit verður að vinna fimm Sigur á Finn- um á NM KVENNALANDSLIÐ íslands, skipað leikmönnum 17 ára og yngri, vann 2:1 sigur á Finnum í gær á Norðurlandamótinu í knattspyrnu í Svíþjóð. Finnar komust yfir í fyrri hálfleik en það var síðan Hrefna Jóhann- esdóttir úr KR sem tryggði fslendingum sigurinn með tveimur mörkum. Finnar fengu kjörið tækifæri til þess að jafna metin á síðustu mínút- um leiksins þegar dæmd var vítaspyrna á íslensku stúlkurn- ar en markvörður íslands, Þóra Helgadóttir, gerði sér lít- ið fyrir og varði. ramma. Ekki var ljóst í gærkvöldi við hvem Kristján spilar í 16 manna úrslitum í dag. Ásgeir Ásgeirsson komst ekki áfram í 16 manna úrslit og er úr leik. Hann endaði í 3. sæti í sínum riðli en aðeins tveir efstu úr hveijum riðli komast áfram. Hér er listi yfir þá keppendur sem hafa farið yfir 100 í einu stuði á mótinu til þessa: Mark Gary, Englandi...........133 Kristján Helgason.............130 Graham Horne, Englandi........129 Stanley Murphy, írlandi.......120 Kristján Helgason.............117 Kristján Helgason.............116 Kristján Helgason.............110 Kristján Helgason.............108 Krislján Helgason.............106 Alex Borg, Möltu..............105 Billy O’Neill, írlandi........105 Heynckes tekur við Capello hjá Real Madrid JUPP Heynckes, fyrrum landsliðsmaður Þýskalands, hefur tekið við stjórninni hjá Spánarmeisturum Real Madrid — tekur við þjálfarastarfi Fabio Capello, sem er á leið til AC Milan á ný. Heynckes, sem hefur þjálf- að Athletic Bilbao og Tenerife á Spáni, skrif- aði undir tveggja ára samning við Real Madrid I gær. Liðið hefur hug á að fá til sín miðvörðinn Roberto Rios frá Real Betis til að taka stöðu Rafael Alkorta, sem er á leið til Bilbao. Aðrar fréttir frá Madrid eru þær að Radom- ir Antic, þjálfari Athletico Madrid, hefur skrif- að undir nýjan tveggja ára samning við liðið. Morgunblaðið/Ámi Sæberg KRISTJÁN Helgason hefur gert góða hluti í Frakklandi. Dómari fékk stein í höfuðið á Akranesi ÍSLANDSMEISTARAR f A voru á fundi aganefndar KSÍ í gær, dæmdir til að greiða tíu þús. kr. í sekt fyrir fram- komu áhorfenda í leik IA og Vals. Steinvölu var kastað í höf- uðið á dómara leiksins, Gylfa Orrasyni, þegar hann gekk af leikvelli í leikhléi og þá var einn af boltadrengjum leiks- ins með miður fagran munn- söfnuð. Skallagrímur var sektaður um tíu þús. kr. vegna brottvís- unar Ólafs Jóhannessonar þjálfara í leik liðsins gegn í A. Undir lok leiksins sýndi dóm- ari honum rauða spjaldið - fyrir slæma hegðun. Fjórir leikmenn voru úr- skurðaðir í eins leiks bann vegna fjögurra rauðra spjalda í gær. Valdimar Kristófers- son, fyrirliði Stjörnunnar, Zoran Zikic, Víkingi R., Stein- dór Birgisson, KS, og Heiðar Orn Ómarsson, Leikni R. Ólafur H. Kristjánsson, varnarleikmaður KR, sem var rekinn af leikvelli í Eyjum, tekur út eins leiks bann i leik Stjörnunnar og KR í bikar- keppninni annað kvöld. Ben Johnson einka- þjálfari Maradona DIEGO Maradona, argentínska knattspyrnustjaman sem lengi var talin besti leikmaður heims, segist ætla að taka fram skóna enn einu sinni og hefur ráðið kanadíska spretthlauparann Ben Johnson sem einkaþjálfara. Maradona greiðir honum 1.000 dollara á dag fyrir - andvirði 70 þúsund króna, skv. frétt International Herald Tribune. „Ég vil verða sá besti í heimin- um aftur,“ er haft eftir Mara- dona, að lokinni tveggja klukku- stunda æfingu í Toronto í Kanada á laugardag. „Ben er fótfráasti maður veraldar, hamhleypa, dýrs- legur.“ Johnson, sem er 35 ára, var sviptur gullverðlaunum sínum fyrir sigur í 100 m hlaupi á ólympíuleikunum í Suður-Kóreu 1988, eftir að hann féll á lyfja- prófi, og settur í lífstíðarbann þegar hann féll aftur á lyfjaprófi 1993. Maradona, sem er ári eldri en Johnson, var settur í keppnisbann 1991 eftir að fram kom við lyfja- próf að hann hafði neitt kókaíns. Hann var síðan rekinn heim úr heimsmeistarakeppninni í Banda- ríkjunum 1994, eftir að hann féll á lyíjaprófi. „Fortíðin er að baki,“ var haft eftir Johnson. „Við erum einungis að reyna að sinna því sem við gerum best. Og eini samjöfnuður- inn er að tveir af bestu íþrótta- rnönnum veraldar eru að snúa aft- ur.“ KNATTSPYRIMA: BJARNISTJÓRNAR STJÖRNUNNI í BIKARLEIK GEGN KR / B4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.