Morgunblaðið - 08.08.1997, Blaðsíða 5
4 B FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
+
DAGLEGT LÍF
SÝNDARGÆLUDÝRIN
til vinstri hafa farið
signrför um heiminn
í milljónavi's og eiga því
hvíldina skilið.
POPPDROTTN-
ingin Kyoko Date
leikur í augiýsing-
um, tyggur tyggjó
og á afmæli í októ-
ber.
Sýndarheimur
og ofurraunsæi í leikfangalandi
; “V,-
Börn í Barbí-leik geta valið starfsgreinar af
tölvugeisladiski og japanska unglingastjarn-
an Kyoko Date er hvorki af holdi né blóði.
Brosmilda-Bekkí, sem er í hjólastól, kemst
hins vegar hvorki lönd né strönd. Helga
Kristín Einarsdóttir skoðaði netfréttir
af sýndar- og samviskuleikföngum.
TÖLVUSÖNGKONAN Kyoko Date
er grannvaxin, stuttklippt, með stút
á vörum og í míkró-stuttbuxum. Hún
er 16 ára og verður næsta unglinga-
stjarna Japan, fái umboðsmaður
hennar, Yoshitaka Osawa, nokkru
um það ráðið. Kyoko Date var mark-
aðssett í fyrravor og farin að „leika“
í auglýsingum heima fyrir, löngu áð-
ur en geisladiskur með gervisætum
tölvutónum náði eyrum hlustenda.
Osawa segir fröken Date hafa
marga kosti framyfir starfssystkini
af holdi og blóði. Hún hvorki gildnar
né eldist og lætur engin eiturefni oní
í sinn tölvumaga.
í æviágripi er greint frá hæð, lík-
amsþyngd og fæðingardegi, og eins
og lög gera ráð fyrir, hinum stöðuga
slag við sýndarkílóin, sem haldið er
víðs fjarri með hnefaleikum og
dansi. Kyoko Date tyggur líka
tyggjó, horfir á Toy Story og er
alltaf með einnota myndavél í hand-
töskunni, líkt og 85% japanskra
skólastúlkna.
„í Tókíó er ekki gott að átta sig á
því hvar landamæri sýndarheims og
veruleika liggja," hefur Electronic
Telegraph eftir bandarískum blaða-
manni. „Ömmur í kimono-sloppum
hneigja sig fyrir hraðbankanum, ung
pör fara á stefnumót með leikjatölv-
ur í sitt hvorri hönd, og starfsmenn
hjá Toyota kjósa vélmenni í stjórn
verkalýðsfélagsins."
Tölvusamband fyrir einmana,
feimna og fláráða
Mun færri Japanar nota alnetið en
tíðkast á Bretlandseyjum og í
Bandaríkjunum, þótt það fari vax-
andi. Yoshihisa Kurosawa, 24 ára
tölvuþrjótur, vill að fleiri japanskar
konur nýti sér spjallrásir alnetsins,
því hann er svo feiminn.
„Eins og málum er háttað nú er
yfir helmingur kvenna á netinu í
Japan karlar sem villa á sér heimild-
ir til þess að véla dýrar gjafir út úr
einmana kynbræðrum," segir Kuro-
sawa í netútgáfu Telegraph.
Fleiri leiðir gefast fyrír þá sem
ekki þora að fást við lifandi verur.
Japanski uppeldisleikurinn „Princ-
ess Maker“ hefst á fæðingu stúlku-
barns og sá sem spilar þarf að ann-
ast uppeldi, velja skóla, gefa vasa-
pening og leggja lífsreglurnar. Sé
viðkomandi gott foreldri liggur leið
dótturinnar í kennara- eða læknis-
nám. Ef ekki strýkur hún að heiman
og leggst í vændi.
Er leikur þessi sagður vinsæll hjá
einhleypum karlmönnum og vina-
lausum.
Barbí bandaríska leikfangarisans
Mattel kom út á tölvugeisladiski á
liðnu ári svo bömin geta keypt
handa henni mismunandi dægradvöl.
Vinsæl starfssvið eru tískuhönnun
og kvikmyndaleikur og getur not-
wm
andinn leikstýrt
Barbí í nýjustu
kvikmynd sinni ef þvi
er að skipta. Hálf
milljón geisladiska
með Barbí í tískuleik
hefur þegar selst, samkvæmt
tölvublaði Telegraph. Mun Mattel
ætla að gefa út þrjá nýja
diska með fleiri starfsgreinum, >§||
eins og til dæmis hárgreiðslu.
í sumar kom líka á markað í Banda- 5
ríkjunum Barbí sem talar þegar hún er \í|
tengd við heimilistölvuna. Barbí þessi lítur 1
út eins og sú gamla en er ætlað að líkja eftir
venjulegri manneskju. Fylgihlutir Spjall-Barbí
eru CD-Rom diskur, lítil einkatölva, rafhlöður
segulbandstæki og þráðlaus sími. Allir bleikir.
Barbí Bond
BÖRNIN geta búið til kvikmynd um Barbí í tölvu.
Spjall-Barbi er með kísilflögu í maganum sem ger-
ir henni mögulegt að hreyfa rósrauðar varir í sam-
ræmi við tal á radd-kubbi. Tölvugeisladiskurinn er
tengdur við innrauðan, þráðlausan sendi sem falinn
er í lyklaborði Barbíai' og þegar hún sest við tölvuna
sína tekur mótttökubúnaður í demantshálsmeni
hennar við merkinu.
Ég heiti Bond, Barbí Bond.
En Barbí er ekki bara gengin sýndarveruleikanum
á hönd. í maí setti Mattel á markað vinkonu handa
henni, Brosmildu-Bekkí, sem er fótluð. Bekkí er með
rauðbrúnt hár og í bleikum hátæknihjólastól með lit-
hverfum dekkjum, sem duga skammt þvi stóllinn
kemst ekki leiðar sinnar í húsi Barbíar við Malibu-
strönd.
Leið ekki á löngu þar til forráðamenn Mattel aft-
urkölluðu Brosmildu-Bekkí, heldur skömmustulegir,
sem greint var frá í fréttatímum helstu sjónvai'ps-
stöðva í Bandaríkjunum.
„Alísjón-maðurinn", er nýorðinn þrítugur, átta ár-
um yngri en Barbí, og hefur einnig náð að hlaupa
uppi tímans takt. Fyrr á þessu ári eignaðist hann
vin, þeldökka hnefaleikakappann Krunch, sem ætlað
er að leggja honum lið í eilífri baráttu við Doktor X
og Prófessor Holdfúa. Talsmenn framleiðandans
Hasbro, þvertaka fyrir að Krunch sé tilkominn
vegna samfélagsþrýstings, en í órdaga var athafna-
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LIF
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 B 5
maðurinn
sem er 15 sinni
var í upphafi, o{
sem notendur ki
tölvugeisladiski
Apple Macintos
um um tamago
knái jafnan fyrirmynd
ifja, engilsaxneskra óláta-
njósnari, hermaður eða
Buddar a villigötum
Japanska leikfangafyrirtækið
andai framleiðir 1,5 milljónir tama-
otchi-sýndargæludýra á mánuði,
er 15 sinnum meira en ráðgert
í upphafi, og nú eru sýndareggin
notendur koma á sjálfir á legg, á
fyrir Windows 95 og
Macintosh. Sitt sýnist hverj-
um tamagotchi og margir hafa
áfallahjálp. eftir að dýrin geisp-
skyndilega sýndargolunni.
Nokkrir sýndarkirkjugarðar eru
1 á vefnum handa syrgjendum
tamagotchi og hafa fáeinir Búdda-
munkar, sem vildu sinna slíkri
þjónustu fyrir raunverulegt fólk,
verið að drukkna í fyrirspurn-
um. Til þessa hafa þeim borist
5.000 umsóknir frá forráða-
mönnum og -konum sem
vildu „grafa“ sýndai'gælu-
dýrin sín hjá þeim.
Tólf voru vegna lát-
inna lögpersóna.
Munu öll börn fram-
tíðarinnar ramba á
barmi veruleika og
sýndarheims?
MÆÐGURNAR Þórhalla og Inga Björg við saumavélina.
Morgunblaðið/Jim Smart
^ Þvottaskjóða
sem fer um landið og miðin
Morgunblaðið/Kristinn
ÞOLFIMI-Barbí hefur fyrir þvi
að halda línunum í lagi.
STUNDUM eru það tilviljanir sem eru ráðandi
í lífí okkar, allavega er óhætt að segja það um
hana Þórhöllu S. Sigmarsdóttur. Upphaf þess
að hún fór út í eigin atvinnurekstur má rekja til
þvottar á spangarbrjóstahöldum. Þau skiluðu
sér spangarlaus út úr þvottavélinni og þar sem
Þórhalla hafði áhyggjur af því að spangirnar
gætu eyðilagt þvottavélina, þá hringdi hún á
raftækjaverkstæði. Þar var henni sagt að svona
óhöpp væru mjög algeng og að spangirnar
gætu farið illa með vélarnar, jafnvel eyðilagt
þær.
Hentugt fyrir allan viðkvæman þvott
Þórhalla, gift og tveggja barna móðir í fullri
vinnu utan heimilis, hafði engan áhuga á því að
fara að bæta við sig heimavinnu með því að fara
að handþvo blessuð höldin. Vandamálið þurfti
að leysa á annan hátt. Hún keypti svokallaðan
„þvottapoka" sem voni innfluttir
og til þess gerðir að vernda við-
kvæman þvott í þvottavélum. -aSL
„Þessi innflutta þvottaskjóða reynd-
ist ekki vel því hún var svo gróf að |
spangir gátu auðveldlega farið í gegn- j
um efnið. Það varð því úr að ég fór að %
hanna og sauma mína eigin þvottaskjóðu,
enda hef ég alltaf haft gaman af sauma-
skap.“
Það tók Þórhöllu töluverðan tíma að
hanna þvottaskjóðuna sem hún notaði
eingöngu sjálf í upphafi. Skjóðan reyndist
mjög vel, ekki bara fyrir brjóstahöld held-
ur fyrír allan viðkvæman þvott, m.a. peys-
ur sem vilja teygjast í þvotti. Þá segir Þór-
halla þægilegt að þvo smáhluti s.s. sokka í
þvottaskjóðunni og skella henni síðan í
þurrkarann.
Kórinn kom hreyfingu á málið
Það var svo þegar Þórhalla mætti með
eintak af þvottaskjóðunni á kóræfingu í
Kvennakórnum, að hreyfing komst á málin.
„Ég ætlaði varla að þora að sýna stelpunum
skjóðuna. Mér tókst þó að manna mig upp í
það og þær tóku framtakinu vel. Margar vildu
prófa skjóðuna og eftir þetta mætti ég ekki á
æfingu án þess að vera með nokkrar þvotta-
skjóður í töskunni."
Smám saman fór boltinn að rúlla. Skjóðan
góða var notuð til fjáröflunar fyrir söngferðalag
Kvennakórsins til Ítalíu síðastliðið sumar og
Það er alltaf ánægjulegt
þegar einstaklinffum tekst
að skapa sér starf. Helga
Barðadóttir heimsótti unga
konu sem áður en hún vissi
af var komin á kaf í eigin
atvinnurekstur og hefur
gaman af.
hún prenta sérhannaða poka utan um hana.
Fiskisagan flýgur og einn daginn fékk Þór-
halla upphringingu frá Hafrannsóknastofnun.
„Ég var spurð hvort ég gæti saumað fyi-ir þá
poka úr samskonar efni og þvottaskjóðan, en
öðruvísi að lögun. Þeir vildu fá mjórri og lengri
poka sem átti að nota við tilraunaverkefni úti á
Faxaflóa, þannig þvottaskjóðan mín er komin
til sjós,“ segir Þórhalla brosandi. Og ekki er
enn allt upptalið, Þórhalla hefur saumað hettur
sem koma sér vel í mátunarklefum kvenfata-
verslana. „Með því að smeygja hettunni yfii'
höfuðið er komið í veg fyrir að andlitsfarði kom-
ist í fötin sem verið er að máta, en svipaðar
hettur eru notaðar víða erlendis."
Burt úr hjónaherberginu
Nú er svo komið að fjölskyldan er farin
að hugsa um að festa kaup á stærra hús-
næði því það gengur ekki lengur að hafa
fyrirtækið inni í hjónaherberginu. Um-
svifin eru enda orðin mikil og Þórhalla
segist leita til móður sinnar, tengda-
móður og frænku eiginmannsins þegar
mest sé að gera.
Þórhalla sagði að það hafi aldrei
hvarflað að sér að hún ætti eftir að
fara út í eigin fyrirtækjarekstur og
framleiðslu á eftirsóttri vöru. „I
byrjun var þetta mjög óraunveru-
legt og ég átti erfitt með að trúa því
að mér gæti gengið svona vel.“
VIII ekki taka lán
ÞVOTTASKJÓÐA.
áður en Þórhalla vissi af var hún komin á kaf í
framleiðslu á þessu þarfaþingi. Að lokum fóru
mál svo að hún kvaddi sinn gamla vinnustað og
hóf að sauma þvottaskjóður í hjónaherberginu
heima hjá sér.
„Það kemur sér vel að geta unnið heima, því
við eigum ung böm,“ segir Þórhalla sem fram-
leiðir nú þvottaskjóður fyrir þrjátíu söluaðila
um allt land. Upphaflega pakkaði hún skjóð-
unni í venjulega glæra plastpoka en nú lætur
Þegar Þórhalla fór að gera sér
það ljóst að hún stefndi óðfluga á
eigin atvinnurekstur, fór hún á
námskeið um rekstur smáfyrir-
tækja hjá Iðntæknistofnum, sem
hún segir hafa verið mjög gagn-
legt. „Eg var líka svo heppin að fá
styrk frá félagsmálaráðuneytinu
sem kom sér afskaplega vel því ég hef ekki vilj-
að taka lán útá þetta. Ég hef reyndar þurft að
taka af sparifé fjölskyldunnar, en það er engin
eftirsjá að því núna.“
Sama dag og Daglegt líf heimsótti Þórhöllu
fékk hún bréf frá Einkaleyfisstofu sem færði
henni þær fréttir að nú væri hún komin með
einkaleyfi á nafninu Nytja, en það er nafnið á
fyrirtækinu hennar sem framleiðir Þvotta-
skjóðumar.