Morgunblaðið - 13.08.1997, Blaðsíða 1
Fuglavísur
Fuglinn flýgur
fuglinn svífur.
Fuglinn syngur
vorljóð.
Fuglinn hefur
fögur hljóð
fuglinn syngur
fógur ljóð.
Karl upp
á hól og
kortagerð
HÆ!
Ég heiti Óskar Völundarson
og ég er 6 ára. Ég sendi
hérna tvær myndir. Önnur
myndin er af íslandi og hin
myndin er af karli, sem er
að fara upp á hól.
Á myndinni af íslandi
tákna brúnu fletirnir fjöll,
svörtu fletirnir eru tjald-
stæði, bláu strikin eru ár og hafið um-
hverfis er misdjúpt; fagurblátt táknar mesta dýpi, dökk-
blátt meðaldýpi og fölblátt grunnsævi.
LJÓÐ UM FUGL
OG HLJÓÐ
ÞETTA ljóð samdi ég 13. júlí. Kolbrún Tara Frið-
riksdóttir, 9 ára, fædd 31. maí 1988, Háaleitis-
braut 36, 105 Reykjavík.
Við þökkum Óskari kærlega fyr-
ir myndirnar. Hann er ef til vill
einn af þessum drengjum sem
gleymir stund og stað við korta-
og sagnagerð. Vitað er um strák
sem bjó til heilu löndin, með vega-
kerfi, borgum og bæjum og náttúr-
lega líka fjöll og firnindi, vötn, ár
og læki. Meira að segja teiknaði
þessi strákur mynd af konungi
landsins, ráðherrum, hershöfðingj-
um og alls konar hertólum, stórum
og smáum - það var nefnilega her í
þessu landi hans eins og verða vill
í stærri löndum, sem segjast verða
að verja sig og sína fyrir hugsan-
legum óvinum, sýnilegum og
ósýnilegum. En nóg um það, við
hvetjum alla yngri (!) kortagerðar-
menn til að senda okkur hugverk
sín - og nýir heimar opnast okkur!
SAFNARAR
ÉG SAFNA öllu með
Spice Girls. í staðinn get
ég látið glansmyndir, blý-
anta og margt, margt
fleira.
Arndís Bjarnadóttir
Kúrlandi 16
108 Reykjavík
Ljósku-
brandari
HVAÐ sagði Ijóskan þegar
hún sá Cheerios hringina?
- Nei, sko, kleinuhriugs-
fræ.
Sendandi: Tinna Daníels-
dóttir, 11 ára, Skógarási 1,
110 Reykjavík.
Hvað heitir hún?
HALLÓ!
Ég heiti Eyrún Halla og er 8 ára. Getið hvað virðulega kon- I
an á myndinni heitir. Að fenginni niðurstöðu er sjálfsagt að
setja blaðið á haus og fá staðfestingu á nafninu í Lausnum.
■£jofqu;,ug us iujvu buuiui pma nu jpraq unff :urusmtq
! 5 fj