Morgunblaðið - 07.11.1997, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.11.1997, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1997 fttorgunMafrtt) ■ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1997 BLAÐ Nýhönimnlyrirnýjakynslóð GENEVE KNATTSPYRNA Vialli með þrennu GIANLUCA Vialli var með þrennu þegar Chelsea tók Tromsö i kennslustund á Stam- ford Bridge og vann 7:1 í gær- kvöldi. Norska liðið vann óvænt 3:2 i fyrri leik liðanna í 2. um- ferð Evrópukeppni félagsliða en þá gerði Vialli bæði mörk Chelsea. Tor Andre Grenersen hafði nóg að gera í marki Tromsö en hann átti ekki svar við snilldar- leik ítalska framherjans. ■ Keppnin/C3 Birkir Kristinsson erá heimleið Byijað- urað pakka niður BIRKIR Kristinsson, markvörð- ur Brann, hefur ákveðið að koma heim til íslands eftir tveggja ára veru í Bergen. „Ég er bytjaður að pakka niður og setja í gám. Ég reikna með að vera búinn að ganga frá öllum mínum mál- um hér um miðjan mánuðinn. Síðan ætlum við í smá frí áður en við komum heim um næstu mánaðamót," sagði Birkir. Hann var á dögunum í Skot- landi til að skoða aðstæður hjá Dundee United, en sagði það ekki spennandi enda átti hann að vera annar markvörður liðs- ins. Eins voru tvö lið úr skosku 1. deildinni sem sýndu honum áhuga. „Þessi lið voru einfald- lega ekki nægilega spennandi." Birkir segist hafa áhuga á að leika í 1. deildinni hér á landi næsta sumar. „Það eina sem er klárt er að við erum að flytja heim og síðan verður bara að koma í ljós með hvaða liði ég spila næsta surnar," sagði Birkir. Reuters Þrír færeyskir leikmenn gangatil liðs við Leiftur Líkur á að Páll Gíslason og Árni Þór Árnason fari úr Þór í Leiftur Einhvemveginn verðum við að bregðast við flótta knatt- spymumanna frá íslandi," sagði Þorsteinn Þorvaldsson, formaður knattspyrnudeildar Leifturs, en fé- lagið hefur gert samninga við þijá færeyska knattspyrnumenn um að leika með félaginu á næstu leiktíð. Leikmennimir sem um er að ræða era Jens Martin Knudsen markvörð- ur, 0ssur Hansen varnarmaður og framheijinn Une Arge, sem hefur verið markahæsti leikmaður efstu deildar í heimalandi sínu undanfarin ár og gerði m.a. 26 mörk í sumar í 15 leikjum - sem er markamet í færeysku deildinni. Jens og 0ssur léku síðast með Götu en Une var með meistaraliði HB í Þórshöfn. Eflaust þekkja margir markvörð- inn, Jens Martin, en hann hefur lengi verið aðalmarkvörður fær- eyska landsliðsins og var um tíma þekktur fyrir að leika með hvíta dúskhúfu á höfðinu. Hann hefur nú lagt húfunni að sögn Páls Guðlaugs- sonar. „Það gæti verið að hann mætti með hana til leiks næsta sum- ar,“ sagði Páll í gær. „Allir þessir leikmenn hafa sett sterkan svip á færeyska landsliðið sl. ár og verið kjölfestan í því,“ sagði Páll og kvað vera almenna ánægju með að leikmennimir hefðu skrifað undir samning við Leiftur. „Mér líst vel á verkefnið sem stendur fyrir dyram hjá Leiftri," sagði Páll enn- fremur. Páll sagði einnig að fljótlega yrði gengið frá samningi við Pál Gíslason og Árna Þór Ámason, leikmenn Þórs á Akureyri, um að þeir léku með Leiftri á næstu leiktíð. Einnig reiknaði hann með að Arngrímur Amarson, Völsungi, skipti yfir í raðir Ólafsfirðinga. Þorsteinn Þorvaldsson sagðist vera svartsýnn á að Baldur Braga- son og Gunnar Már Másson léku með Leiftri á næsta keppnistímabili en samningar þeirra við félagið era útrannir. Hácken í efstu deild Hácken vann Vásterás 4:2 í gær- kvöldi og tryggði sér þar með sæti í 1. deild í Sviþjóð næsta tíma- bil, en liðin gerðu 1:1 jafntefli í fyrri leiknum um sætið. Hácken komst í 4:1 en Einar Brekkan, sem hefur verið orðaður við Örgryte, minnkaði muninn skömmu fyrir leikslok. Gunnar Gíslason er aðstoðarþjálfari Hácken sem lék síðast í efstu deild fyrir þremur árum. Stefán Þórðarson og samheijar í Öster halda sætinu en þeir unnu Djurgárden 2:0 í seinni leiknum eft- ir að hafa gert 1:1 jafntefli úti. KÖRFUKIMATTLEIKUR: SÆTUR SIGUR HNDASTÓLS Á SELTJARIMARNESI / C2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.