Morgunblaðið - 07.11.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.11.1997, Blaðsíða 2
2 C FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1997 C 3 URSLIT KR-Tindastóll 66:67 íþróttahúsið Seltjarnarnesi, CHL-deildin í körfuknattleik, 6. umferð, fimmtudaginn 6. nóvember 1997: Gangur leiksins: 7:7, 15:9, 17:17, 23:23, 30:30, 37:36, 41:40, 46:46, 48:51, 48:55, 49:59, 53:61, 60:61, 62:63, 64:63, 66:65, 66:67. Stig KR: Hermann Hauksson 12, Marel Guðlaugsson 12, Baldur Ólafsson 10, Kevin Tuckson 8, Ingvar Ormarsson 7, Nokkvi Már Jónsson 7, Sigurður Jónsson 6, Óskar Kristjánsson 4. Fráköst: 16 í vörn - 5 í sókn. Stig Tindastóls: Arnar Kárason 12, Jose Maria Naranjo 12, Torrey John 10, Hinrik Gunnarsson 9, Ómar Sigurðsson 9, Isak Einarsson 6, Skarphéðinn Ingason 4, Óli Barðdal 3, Halldór Halldórsson 2. Fráköst: 32 í vörn - 8 í sókn. Villur: KR 17 - Tindastóll 16. Dómarar: Jón Bender og Sigmundur Már Herbertsson, ágætir. Áhorfendur: Um 200. ÍR-Valur 79:83 Iþróttahús Seljaskóla: Gangur leiksins: 8:6, 10:15, 17:21, 23:23, 34:36, 40:42,45:49, 45:59, 48:63, 57:63, 62:67, 63:70, 67:75, 74:77, 77:80, 79:83. Stig ÍR: Lawrence Culver 25, Márus Arnar- son 13, Eirikur Önundarson 13, Ásgeir Hlöðversson 10, Guðni Einarsson 8, Daði Sigþórsson 3, Atli Sigþórsson 3, Þór Har- aldsson 2, Hjörleifur Sigurþórsson 2. Fráköst: 22 í vöm - 13 í sókn Stig Vals: Warren Peebles 31, Brynjar Karl Sigurðsson 21, Ólafur Jóhannsson 12, Gunnar Zoega 6, Guðmundur Björnsson 6, HjörturÞ. Hjartarson 4, Guðni Hafsteinsson 2, Bergur Emilsson 1. Fráköst: 26 i vöm - 10 í sókn. Villur: ÍR 15 - Valur 23 Dómarar: Einar Skarphéðinsson og Krist- ján Möller. Áliorfendur: Um 100 Keflavík - Haukar 86:87 Keflavík: Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 10:6, 28:29, 42:34, 48:42, 60:49, 65:63, 75:75, 78:80, 80:80, 80:85, 83:87, 86:87. Stig Keflavíkur: Guðjón Skúlason 21, Dana Dungl 20, Falur Harðarson 13, Gunn- ar Einarsson 12, Birgir Örn Birgisson 12, Kristján Guðlaugsson 5, Halldór Karlsson 2, Ásgeir Guðmundsson 1. Fráköst: 17 í vörn - 10 í sókn. Stig Hauka: Sigfús Gizurarson 24, Jón Arnar Ingvarsson 22, Sherrick Simpson 12, Pétur Ingvarsson 12, Baldvin Johnsen 11, Björgvin Jónsson 4, Daníel Árnason 2. Fráköst: 23 í vörn - 8 í sókn. Dómarar: Kristinn Albertsson og Eggert Þór Aðalsteinsson sem dæmdu ágætlega Villur:Keflavik 16 - Haukar 16. ’Ahorfendur: Um 250. ÍA-Þór 98:81 Akranes: Gangur leiksins: 5:0, 14:6, 28:16, 35:26, 40:28, 46:30, 56:32, 60:36, 70:38, 74:53, 80:60; 92:69, 94:76, 98:81. Stig IA: Damon Johnson 30, Dagur Þóris- son 24, Pálmi Þórisson 14, Alexander Er- molinskij 13, Sigurður Elvar Þórólfsson 9, Guðjón Jónasson 4, Brynjar Sigurðsson 2, Björgvin Karl Gunnarsson 2. Fráköst: 28 í vörn - 3 í sókn. Stig þórs: Jo Jo Chambers 30, Hafsteinn Lúðvíksson 19, Sigurður Sigurðsson 15, Högni Friðriksson 10, Þórður Steindórsson 3, Guðmundur Oddsson 2, Magnús Helga- son 2. Fráköst: 14 i vörn - 6 í sókn. Villur: ÍA 17 - Þór 9. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Erlingur Erlingsson. Áhorfendur: 300. NBA-deildin Boston-Miami.....................74:90 Detoit - Indiana.................87:99 Charlotte - Dallas.............110:103 Philadelphia - Atianta...........88:93 Atlanta jafnaði besta árangur sinn i 11 ár með því að vinna íjórða leikinn i röð. Steve Smith var stigahæstur með 22 stig og Dikembe Mutombo gerði 20 og tók auk þess 16 fráköst. San Antonio - Vancouver..........87:79 David Robinson skoraði 22 stig og tók 17 fráköst fyrir San Antonio Spurs. Táning- urinn Tim Duncan stóð sig vel í liði heima- manna, gerði 19 stig og tók níu af 50 frá- köstum Spurs f leiknum. Anthony Peeler var með 19 stig fyrir Vancouver Grizzlies. Nets - Golden State.............112:96 Þetta er besta byrjun New York Nets en liðið hefur unnið þijá fyrstu leiki sína í deildinni. Chris Gatling gerði 21 stig, Sam Cassell 19 og Kevin Edwards 15 fyrir Nets. „Ég held að við getum verið ánægðir ef við vinnum fyrstu fimm leikina, en það er stefnan,” sagði Kendall Gill, sem gerði 14 stig. Donyell Marshall var með 21 stig fyr- ir Golden State og Bimbo Coles kom næst- ur með 19. Chicago Orlando..................94:81 Michael Jordan gerði 18 af 29 stigum sínum fyrir Chicago í síðari hálfleik. Hann tók auk þess 17 fráköst. Toni Kukoc var með 14 stig fyrir Bulls, sem hefur unnið þrjá síðustu leiki eftir að hafa tapað fyrsta leiknum í Boston. Rony Seikaly setti niður 34 stig og tók 13 fráköst fyrir Orlando. Íshokkí NHL-deildin Pittsburgh - Dallas................2:5 Carolina - Detroit.................3:1 Florida - New Jersey...............2:4 Montreal - Phoenix.................4:2 NY Islanders - Edmonton............4:4 Calgary - Toronto..................3:4 Colorado - NY Rangers..............2:4 Anaheim - Tampa Bay................5:2 Knattspyrna Evrópukeppni bikarhafa Seinni leikir í 2. umferð London, Englandi: Chelsea - Tromsö...................7:1 Dan Petrescu 13., 86., Gianluca Vialli 24., 60., 76., Gianfranco Zola 43., Frank Leboe- uf 55. vsp. - Bjorn Johansen 39. 29.363. ■ Chelsea vann 9:4 samanlagt. Stuttgart, Þýskalandi: VfB Stuttgart - Germinal Ekeren....2:4 Frank Veriaat 13., Gerhard Poschner 35. - Edwin Van Ankeren 44., 83., Ronny Van Geneugden 45., Manu Karagiannis 73. 10.000. ■ VfB Stuttgart vann 6:4 samanlagt. Izmit, Tyrklandi: Kocaelispor - Lokmotiv Moskva......0:0 12.000. ■ Lokomotiv vann 2:1 samanlagt. Kaupmannahöfn, Danmörku: FC Kaupmannahöfn - Real Betis......1:1 Peter Nielsen 61. vsp. - Juan Urena 78. 10.140. ■ Real Betis vann 3:1 samanlagt. Kerkrade, Hollandi: Roda JC Kerkrade - Primoije........4:0 Eric van de Luer 45., Bob Peeters 50., Davy Zavarin 74., Joos Valgaeren 85. 5.000. ■ Roda vann 6:0 samanlagt. Prag, Tékklandi: Slavia Prag - Nice.................1:1 Vladimir Labant 80. - Franck Vandecaste- ele 75. 7.312. ■ Samanlögð markatala 3:3 en Slavia áfram á fleiri mörkum á útivelli. Vicenza, ftalíu: Vicenza - Shakhtar Donetsk.........2:1 Pasquale Luiso 24., Fabio Viviani 70. - Serhiy Atlekin 60. 15.000. ■ Vicenza vann 5:2 samanlagt. Graz, Austurríki: Sturm Graz - AEK...................1:0 Spiteri 82. 15.400. ■ AEK vann 2:1 samanlagt. Evrópukeppni félagsliða Seinni leikir i 2. umferð Bochum, Þýskalandi: Bochum - Club Bríigge..............4:1 Georgi Donkov 13. vsp., 56., Sergei Yuran 83., Dariusz Wosz 89. - Nordin Jbari 37. 24.000. ■ VfL Bochum vann 4:2 samanlagt. Brussel, Belgíu: Anderlecht - Schalke 04............1:2 Glen De Boeck 16. - Marco van Hoogdalem 59., Marc Wilmots 66. 20.186. ■ Schalke 04 vann 3:1 samanlagt. Riðlakeppni HM A-riðili Asíu Saudi Arabía- Kina.................1:1 Khaled Masaad 4. - Hao Haidong 12. 60.000. Staðan íran...................7 3 3 1 13:6 12 SaudiArabía............7 3 2 2 7:6 11 Kuwait.................7 2 2 3 7:7 8 Kína...................7 2 2 3 10:14 8 Qatar..................6 2 1 3 5:9 7 Svíþjóð Leikir um sæti í 1. deild Vasterás - Hácken..................2:4 ■ Einar Brekkan gerði annað mark heima- manna á 79. mín. en lið hans féll þar sem liðin gerðu 1:1 jafntefli í fyrri leiknum. Gunnar Gíslason, aðstoðarþjálfari Hácken, er þv! aftur kominn ! efstu deild. Öster - Djurgárden.................2:0 ■ Stefán Þórðarson og samheijar halda sætinu þar sem liðin gerðu 1:1 jafntefli í fyrri leiknum. í kvöld Körfuknattleikur DHL-deildin (efsta deild karla) ísafjörður: KFÍ - Skallagrímur. 20 Njarðvík: UMFN-Grindavík... 20 1. deild karla: Hveragerði: Hamar - Stafholtst ....20 Handknattleikur 1. deild kvenna: Vestm.: ÍBV - Vlkingur 20 2. deild karla: Fylkishús: Fylkir - Hörður 20 Akureyri: Þór-Ármann 20.30 Selfoss: Selfoss - Grótta-KR.... 20 Biak 1. deild karla: Hagaskóli: ÍS-KA 19.30 FELAGSLIF Kynning á ungl- ingaknattspyrnu í Manchester Sunnudaginn 9. nóvember n.k. verður David Shepherd með kynningu á stærsta knatt- spymumóti Bretlands, The Manchester Int- ernational Football Festival. Ennfremur kynnir hann Knattspymuskóla Manchester United og Manchester Ciiy. Kynningin hefst kl. 14 ! húsakynnum Urvals-Útsýnar að Lágmúla 4 í Reykjavík. IÞROTTIR IÞROTTIR KORFUKNATTLEIKUR Sigurinn einn sá sætasti á ferlinum Borgar Þór Einarsson skrifar „ÞESSI sigur er einn sá sæt- asti á ferlinum,11 sagði Páll Kolbeinsson, þjálfari Tinda- stóls, við Morgunblaðið í gær- kvöldi eftir að Sauðkrækingar höfðu lagt KR-inga í DHL-deild- inni í körfuknattleik með sigur- körfu frá Jose Maria Naranjo þegar einungis sjö sekúndur voru til leiksloka. Tindastóls- menn höfðu yfirhöndina nær allan síðari hálfleik en KR-ing- ar, sem voru yfir f leikhléi, virt- ust ætla að hafa sigur á loka- sprettinum. Norðanmenn stóð- ust þó álagið og tryggðu sér tvö mikilvæg stig, lokatölur 66:67. Lið Tindastóls var hálf vængbrot- ið þegar það mætti leiks á Seltjarnarnesi í gærkvöldi, þar sem þeir Sverrir Þór Sverrisson og Lárus D. Pálsson áttu við meiðsli að stríða. Fyrri hálfleikur var fremur rólegur og höfðu KR-ingar undirtökin en gestirnir voru þó aldr- ei langt undan. Svo virtist sem ógæfan hefði dunið yfir Sauðkræk- inga á 10. mínútu þegar Torrey John missteig sig og fór af leik- velli. Skömmu síðar fékk Jose Mar- ia Naranjo sína §ÓTðu villu og var tekinn af velli. En KR-ingar náðu ekki að færa sér fjarveru þessara lykilmanna Tindastóls í nyt og voru þeir mjög ónákvæmir í sínum að- gerðum. Engu að síður höfðu KR- inga yfir í hálfleik, 37:36. Gestirnir komu ákveðnir til leiks eftir hlé og náðu yfirhöndinni en hvorki gekk né rak hjá KR-ingum. Mestur varð munurinn 10 stig, 49:59, en þá hrukku KR-ingar í gang. Þeir söxuðu jafnt og þétt á forskot Tindastóls og náðu forystu, 64:63, þegar þrfáar mínútur voru til leiksloka. Á þessum góða kafla KR-inga urðu Tindastólsmenn fyrir enn einu áfalli þegar Ómar Sigurðs- son fór meiddur af leikvelli. Þær fáu mínútur sem eftir lifðu leiks einkenndust af mistökum á báða bóga, enda taugaspennan í há- marki. Þegar Marel Guðlaugsson kom KR í 66:65 og rúm mínúta til leiksloka tók Páll Kolbeinsson leik- hlé. Tindastólsmenn hófu sókn en misstu knöttinn og allt virtist stefna í sigur KR. En lukkudísirnar snér- ust loks á sveif með gestunum og KR-ingar misstu knöttinn í sinni næstu sókn, Sauðkrækingar snéru vörn í sókn og Jose Maria Naranjo, sem var fyrstur fram, lagði knöttinn í körfuna þegar vallarklukkan sýndi að sjö sekúndur voru eftir. Barátta leikmanna Tindastóls var það sem öðru fremur skóp sigur þeirra í gærkvöldi. Þeir tóku alls 32 varnarfráköst og segir það sína sögu. Torrey John hafði góð áhrif á leik Tindastóls þegar hann kom aftur inn á eftir leikhlé og þá átti Arnar Kárason góðan leik. KR-ingar geta sjálfum sér um kennt að hafa tapað þessum leik. Þeir höfðu leikinn í hendi sér um tíma og hefðu með skynsamlegum leikjxetað innbyrt bæði stigin. Bald- ur Olafsson lék mjög vel í vörn og sókn og var besti maður KR. Þá voru Hermann Hauksson og Marel Guðlaugsson dijúgir í sókninni. Páll Kolbeinsson, þjálfari Tinda- stóls, var að vonum ánægður í leiks- lok: „Ég er mjög ánægður að hafa komið hingað og haft sigur, þrátt fyrir að tveir lykilmenn ættu í meiðslum. Við sýndum mikinn styrk þegar við urðum fyrir því að missa erlendu leikmennina báða af velli í fyrri hálfleik,“ sagði Páll Kolbeins- son, sem lék með KR nær allan sinn feril. Sætur sigur hjá Haukum Haukar frá Hafnarfirði gerðu sér lltið fyrir og sigruðu íslands- og bikarmeistara Keflvíkinga í Keflavík í gærkvöldi og hafa þeir þar með Biöndat s'grað > öllum leikJ- skrifar um sínum í deild- inni. Síðustu mínút- ur leiksins voru æsispennandi þar sem sigur gat lent hvorum megin sem var. Keflvíkingar höfðu boltann þegar innan við 30 sekúndur voru eftir og staðan 87:86 fyrir Hauka, en þeim mistókst að hitta og máttu þar með þola enn eitt tapið á heima- velli sínum. í hálfleik var staðan 48:42 fyrir Keflavík. Haukar og Grindvíkingar eru einu liðin sem hafa unnið alla leiki sína, en Grind- víkingar mæta Njarðvíkingum í Ljó- nagryfjunni í kvöld. Keflvíkingar voru betri lengstum í leiknum og eftir góða byijun í síðari hálfleik virtist sem útlitið væri allt annað en gott fyrir Hafn- firðinga. En þá töpuðu heimamenn þræðinum og áður en varði höfðu Haukarnir náð að jafna, 75:75. Þá voru 6 mínútur eftir. Síðustu mínút- ur leiksins voru spennandi og ljóst að það lið sem hitti úr síðasta skoti sínu færi með sigur. Haukar misstu síðan boltann þegar rúmar 20 sek- úndur voru til leiksloka í stöðunni 87:86, en síðasta skot Keflvíkinga missti marks og Haukar fögnuðu því enn einum sigrinum. „Vörnin var ekki góð hjá okkur í fyrri hálf- leik því þriggja stiga skyttur þeirra fengu allt of mikið næði. En við lékum góða vörn í síðari hálfleik og hún lagði grunninn að þessum sigri. Keflvíkingar eru með mjög sterkt Iið og ég er því ákaflega ánægður með að okkur tókst að sigra þá á þeirra heimavelli," sagði Einar Einarsson þjálfari Hauka eft- ir leikinn. Guðjón Skúlason, Dana Dungl, Falur Harðarson og Birgir Örn Birgisson voru bestu menn liðsins. Haukar léku vel í síðari hálfleik hvort heldur var í vörn eða sókn og voru vel að sigrinum komnir. Bestir í liði þeirra voru bræðurnir Jón Arnar og Pétur Ingvarssynir, Sherrick Simpson, Sigfús Gizurar- son og Baldvin Johnsen. Barátta á botninum Það var hörku barátta sem bæði lið sýndu þegar Valur sigraði ÍR 83:79 í íþróttahúsi Seljaskóla í gærkvöldi. Bæði lið- in hafa farið frekar illa af stað, mættu sigurlaus til leiks. Barátta var ein- kennandi fyrir leikinn en minna fór fyrir góðum körfuknattleik. í upphafi leiks var lítið skorað en fljótlega tóku Valsmenn frum- kvæðið og komust 5 stigum yfir, 10:15, þegar sjö mínútur voru liðn- ar. Um miðjan fyrri hálfleikinn náðu ÍR-ingar að jafna 23:23 en eftir það tóku Valsmenn aftur frumkvæðið og leiddu í hálfleik, 49:45. Valsmenn hófu seinni hálfleikinn af miklum krafti og skoruðu 10 stig án þess að ÍR-ingar næðu að svara fyrir sig. Heimamenn gáfust þó ekki upp og náðu með mikilli baráttu að jafna 77:77 með þriggja stiga körfu Márusar Arnarsonar þegar innan við tvær mínútur lifðu af leiknum. Þeirri körfu svaraði Halldór Bachmann skrifar Warren Peebles um hæl einnig með þriggja stiga körfu og þá annarri tveggja stiga skömmu síðar. Eiríkur Önundarson minnkaði muninn í þijú stig með því að skora úr tveimur vítaskotum en Ólafur Jóhannsson innsiglaði loks sigur Vals með því að skora úr öðru vítaskota sinna þegar 6 sekúndur voru eftir. I liði ÍR lék Lawrence Culver best þó hann ætti frekar erfitt með að sleppa í gegnum góða vörn Vals. Einnig áttu Márus Arnarson og Ásgeir Hlöðversson góða spretti en Eiríkur Önundarson var töluvert frá sínu besta. í liði Vals voru Warren Peebles og Brynjar Karl Sigurðsson mjög góðir. Auk þeirra lék Hjörtur Hjart- arson mjög vel í vörn og varði sam- tals 9 skot. Þá má ekki gleyma hlut Ólafs Jóhannssonar sem skor- aði þriggja stiga „flautukörfu“ í lok fyrri hálfleiks auk þess að innsigla sigurinn. Valsliðið hefur batnað með hveij- um leiknum og greinilegt er að Svali Björgvinsson þjálfari er að gera góða hluti. Með þessu áfram- haldi fer falldraugurinn brátt af Hlíðarenda. Þór afgreiddur fyrir hlé Þegar leikmenn Skagamanna og Þórs gengu til leiks að loknu leikhléi var aðeins formsatriði að Ijúka leiknum. Heimamenn höfðu gersamlega yfirspil- að gestina og voru 24 stigum yfir. Mestur var munurinn 32 stig eftir hlé, 70:38, en lokatölur 98:81. Skagamenn gátu sigrað með meiri mun en algengur er á Akra- nesi en liðið hélt ekki haus og leikur- inn leystist upp í hálfgerða vitleysu undir lokin. Damon Johnson og Dagur Þórisson voru bestir hjá ÍA, en Dagur var óstöðvandi í seinni hálfleik og skoraði 18 stig. Pálmi bróðir hans sýndi ágætis tilþrif og skoraði 14 stig, þar af fjórar þriggja stiga körfur. Lið Þórs var afspyrnu slakt, lék á löngum köflum ráðleysislega og var óheppið að auki - boltinn vildi ekki í körfuna. En vítanýtingin var til fyrirmyndar - liðið fékk 28 víta- skot og skoraði úr 25. Jo Jo Chamb- ers og Sigurður Sigurðarson voru mest áberandi og Hafsteinn Lúð- víksson var mjög öruggur á vítalín- unni. En róður Þórsara er þungur í deildinni og mikið þarf að breyt- ast ætli liðið að halda sér uppi. KNATTSPYRNA Liverpool - Man. United Dagsferð með S-L til Liverpool Liverpool-klúbburinn á íslandi hefur í samvinnu við ferðaskrifstofuna Samvinnuferðir-Landsýn ákveðið að efna til dagsferðar til Liverpool laug- ardaginn 6. desember, ef næg þátttaka verður. Umræddan dag kl. 11.15 leika Liverpool 0g Manchester United á Anfield og hefur Liverp00l- klúbburinn útvegað 130 miða á 10.000 kr. stykk- ið. Blackburn og Bolton leika kl. 15 sama dag og eins Leeds og Everton og hefur Liverp00i- klúbburinn 30 miða á hvorn leik til umráða en miðinn kostar 3.000 kr. Liverpool-klúbburinn (s. 588 6166) sér Um sölu miða á umrædda leiki en Samvinnuferðir selja farseðla í ferðina og er ekki bundið að fara á völlinn. Lagt verður af stað frá Keflavík kl. 6 um morguninn og frá Liverpool kl. 22 um kvöld- ið en flugmiði með sköttum kostar 15.300 kr. KNATTSPYRNA Tindastóll hafði betur Morgunblaðið/Ásdís KR-INGURINN Baldur Ólafsson reynlr hér aö komast framhjá hinum hávaxna lelkmanni Tindastóls, Jose Maria Naranjo. Baldur áttl skínandl góflan leik fyrir KR en lifl hans þurfti þó afl láta í mlnni pok- ann fyrir Tindastóli. Jose Maria tryggfli lifli sínu sigur með körfu sjö sekúndum fyrir leikslok. 2. umferð Evrópukeppni félagsliða Chelsea burstadi Tromsö LIÐIN sem talin eru sigur- stranglegust í Evrópukeppni bikarhafa í vetur komust bæði áfram í keppninni ígærkvöldi, þegar sfðari leikir annarrar umferðar voru á dagskrá. Chelsea burstaði norska liðið Tromsö, 7:1, íLondonog VfB Stuttgart frá Þýskalandi - sem sló ÍBV út í fyrstu umferð - ruddi belgíska liðinu Ekeren úr vegi, þrátt fyrir að tapa í gær. Italski framheijinn Gianluca Vialli var í aðalhlutverki þegar Chelsea tók á móti Tromsö. Vialli gerði bæði mörk Chelsea í fyrri leiknum, sem Norðmennirnir unnu 3:2 í eftirminnilegum leik í Tromsö, þar sem stórhríð setti mark sitt á viðureignina. Aðstæður voru allt aðrar og miklu betri í London í gær og Vialli hélt sínu striki og skoraði þrívegis. Norðmennirnir minnkuðu muninn reyndar í 2:1 þegar Björn Johansen skoraði á 39. mín. en samt sem áður var aldrei nein hætta á því að Chelsea kæmist ekki áfram. „Fjölþjóðaher" Ruuds Gullits, þjálfara Chelsea, lék mjög vel, leikmenn voru hreyfanlegir og knötturinn gekk mjög vel á milli þeirra enda sigruðu þeir samanlagt 9:4. Rúmenski bakvörðurinn Dan Petrescu gerði fyrsta markið og það síðasta, Vialli þijú sem fyrr segir, landi hans Gianfranco Zola eitt og franski varnarmaðurinn Frank Leboeuf eitt, úr vítaspyrnu. Staðan í hálfleik var 3:1. Varnar- maðurinn Jonny Hansen hjá Tromsö fékk áminningu þegar dæmd var vítaspyrna á hann, fyrir að handleika knöttinn innan teigs, og síðan aðra áminningu og rautt spjald fyrir að mótmæla fyrri dómnum heldur hraustlega. Þetta gerðist á 55. mín. Öruggt „Þegar staðan var orðin 4:1 vissi ég að þetta var öruggt," sagði Gullit. „Við þurftum að sanna okk- ur,“ sagði hann, en Hollendingur- inn gagnrýndi harðlega að fyrri leikurinn skyldi fara fram við þær aðstæður sem boðið var upp á. Sagði að knattspyrna væri leikur sem fara ætti fram á grænu grasi, og hann ítrekaði þá skoðun sína í gær. „Fyrri leikurinn var eiginlega ekki leikur - en nú sáuð þið Chelsea spila eins og liðið á að sér.“ Stuttgart tapafli heima VfB Stuttgart tapaði á heima- velli, 2:4, fyrir Germinal Ekeren frá Belgíu en komst áfram því liðið sigraði 4:0 í Belgíu í fyrri leiknum. Stuttgart komst í 2:0 í gær með mörkum Verlaats fyrirliða og Ger- hards Poschners, en síðan snérist leikurinn við, þó svo að gestirnir hafi aldrei átt raunhæfa möguleika á að komast áfram 5 keppninni. En segja má að leikmenn Ékeren hafi dottið út með sæmd, því þeir voru mun betri í gær en Þjóðver- jarnir. Svissneski miðvallarleik- maðurinn Murat Yakin hjá Stuttg- art var rekinn út af á síðustu min- útu fyrri hálfleiks fyrir ljótt brot og yfirburðir belgíska liðsins voru miklir eftir hlé. Real Betis áfram Juan Urena gulltryggði Real Betis frá Spáni farseðilinn í átta liða úrslit, þegar hann gerði glæsi- legt mark með skalla undir lok leiksins gegn FC Kaupmannahöfn í höfuðborg Danaveldis. Leiknum lauk 1:1 en Betis sigraði 2:0 í fyrri viðureigninni. Peter Nielsen skoraði fyrir Kaup- mannahafnarliðið úr vítaspyrnu á 61. mín. í gær. Sestan fékk gullið tækifæri til að koma danska liðinu í 2:0 eftir að Bjarne Goldbæk sendi á hann í dauðafæri en hann vipp- aði hárfínt framhjá markinu. Danir fylltust bjartsýni en Urena skoraði á 79. mín. og réttlætinu var þar með fullnægt því Betis var ekki síðri aðilinn í gær. Þrir Tipparar fengu 11,8 milllgnir um siðustu helgi 11.792.880,- ...og potturinn er stærri um næstu helgi 11.792.880,- ef þú spilar til að vinna!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.