Morgunblaðið - 25.11.1997, Side 1
1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1997
■ ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997 BLAÐ
Heimir
til liðs við
Skaga-
menn
HEIMIR Guðjónsson mætti á
fyrstu æfingu sína með
Skagamönnum í gærkvöldi en
í fyrrakvöld gekk hann frá
samningi til tveggja ára við
ÍA. „Egiítáþettasemskref
(n upp á við,“ sagði Heimir við
c, Morgunblaðið en hann hefur
alla tíð leikið með KR. „Ég
i er kominn í sigursælt félag,
æfi við toppaðstæður hjá
If; þjálfara sem hefur unnið titla
og líst mjög vel á framhaldið.
(K f A er ekki aðeins í Evrópu-
keppni á næsta ári heldur er
þetta félag sem getur kennt
mér að verða íslandsmeist-
ari.“
Heimir var lengi meiddur á
Uðnu tímabili en sagðist vera
orðinn góður. „Ég hef tekið
því rólega í einn og hálfan
mánuð en næsta skref er að
komast í góða æfingu og
standa mig síðan á næsta ári
- vera tilbúinn i bátana."
Lilja Rós sigursæl
Morgunblaðið/Þorkell
LIUA Rós Jóhannesdóttir var slgursæl á 25 ára afmælismótl Sorðtennissambands íslands.
Lllja Rós varð slgurvegari í landskeppnlnni ásamt vinkonu sinni Eva Jóstelnsdóttir - þær
unnu keppinauta sína frá Skotlandi og Færeyjum. Þá varð hún elnnig slgurvegari i einstaklings-
keppni kvenna. Nánar verður sagt frá mótinu á morgun.
SKÍÐI
Norðmaðurinn Finn Christian Jagge, fyrrverandi Ólympíumeistari í svigi
Kristinn getur orðid
skelf ilega góður
KRISTINN Björnsson, skíðakappi frá Ólafsfirði,
varð í öðru sæti á fyrsta heimsbikarmóti vetrar-
ins í svigi, í Park City í Utah-ríki í Bandaríkjun-
um á laugardagskvöld. Eftir að hafa náð 17.
sæti í fyrri umferð keppninnar fékk hann lang
besta tímann í þeirri síðari, skaut flestum þekkt-
ustu skíðamönnum heims ref fyrir rass og fékk
silfurverðlaun.
Mikið er fjallað um afrek Kristins í ijölmiðlum
víða erlendis, ekki síst í Noregi, þar sem hann
er búsettur. Utbreiddasta blað landsins, Verdens
Gang segir m.a. að besti Norðmaðurinn í keppn-
inni, Finn Christian Jagge, þekki Kristinn lítils-
háttar: „Hann er mjög yfirvegaður og alvörugef-
inn íþróttamaður. Hann getur orðið skelfilega
góður, það hefur okkur lengi verið ljóst,“ sagði
Jagge, sem er einn besti skíðamaður heims og
varð ólympíumeistari í svigi í Albertville 1992.
Hann varð í þriðja sæti á mótinu í Park City á
laugardag.
Peningaverðlaun
Peningaverðlaun eru veitt fyrir efstu sætin í
öllum heimsbikarmótum á skíðum. Kristinn fékk
750 þúsund krónur fyrir annað sætið í Park
City og sigurvegarinn helmingi meira. Það mun-
aði því aðeins 10 hundraðshlutum úr sekúndu
að Kristinn fengi 1,5 milljónir í sinn hlut.
Það eru ekki eingöngu peningar frá mótshöld-
urum sem verðlaunahafar fá. Skíða- og skófram-
leiðendur greiða t.d. þeim, sem ná efstu sætum
á stórmótum sem þessum, sérstaklega fyrir þann
árangur.
Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
sendi Kristni Björnssyni, svohljóðandi heilla-
skeyti á sunnudaginn:
„Við Guðrún Katrín óskum þér til hamingju
með glæsilegt afrek.
Nú er stór dagur í íþróttasögu íslendinga og
öll þjóðin fagnar með þér.“ Forsetinn óskaði einn-
ig fjölskyldu Kristins, Ólafsfirðingum og Skíða-
sambandi íslands til hamingju með árangur
hans í Utah, að því er segir í fréttatilkynningu
frá skrifstofu forseta íslands.
■ KRISTINN/C2
■ Viðbrögð fjölmiðla / C2
■ Eins og stormsveipur / C5
■ Hélt að þetta væri draumur / C6
VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN
22.11.1997
VINNINGSTÖLUR MIÐVIKUDAGINN
19.11.1997
Bónusvinningarnir sl.
laugardag komu á
lottómiða sem seldir
voru f Happahúsinu í
Kringlunni og Sölu-
turninum Pólís við
Skipholt í Reykjavík.
Munið að kaupa lottó-
miða í Víkingalottóinu
fyrir 3. desember
vegna aukaútdráttar-
ins sem þá verður.
SfMAR:
UPPLÝSINGAR í SÍMA: 568-1511
GRÆNTNÚMER: 800-6511
TEXTAVARP: 451 OG 453
AÐALTÖLUR
I BÓNUSTÖLUR • íð i # :
PHH
1| Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö
W 1 • 6 af 6 1 52.250.000
5 af 6 4l. + bónus 0 1.557.426
1 3. 5a,s 6 43.940
i 4. ■*■<» 186 2.250
l J c 3 af 6 P,S| 0.+ bónus 491 360
g[ Samtals: 684 54.666.326
H HEILDARVINNINGSUPPHÆÐ: 1
.1 54.666.326 |:
1“ Á ISLANDI:
1 2.416.326
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
1.5rt5 0 2.027.395
2. X5 c' 152.160
3.4*15 37 12.780
4. 3af 5 1.730 630
Samtals: 1.7® 3.894.475 ||