Morgunblaðið - 25.11.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.11.1997, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Landsliðsmenn í handkn flavíki A, ikáferð og flugi liðsliðið í handknattleik óslavíu á fimmtudaginn m mánudaginn 1. des. ■ ARNÓR _ Gunnarsson, skíða- maður frá ísafirði, hafnaði í 5. sæti á stigamóti í svigi sem fram fór í Aurdal í Noregi á sunnudag. Hann hlaut 26 stig fyrir árangur sinn, en hann átti áður best 28 stig þannig að hann hefur bætt sig um tvö alþjóðleg styrkstig. ■ ÍTALSKA skíðadrottningin De- borah Compagnoni hafði fádæma yfirburði í stórsvigi heimsbikarsins í Park City í Bandarikjunum á föstudag. Hún var tæpum fjórum sekúndum á undan næstu stúlku, sem var Alexandra Meissnitzer frá Austurríki. ■ ÞETTA er þriðji mesti munur á keppendum í fyrsta og öðru sæti í heimsbikarkeppni kvenna frá upp- hafi. Mestur var munurinn árið 1979 er svissneska stúlkan Marie Ther- ese Nading sigraði í stórsvigi í Jap- an með 5,20 sekúndna mun. ■ BJÖRN Dæhlie sigraði með yfir- burðum á fyrsta skíðagöngumóti vetrarins í Beitostolen í Noregi á laugardag; hann kom í mark 10 sek. á undan helsta andstæðingi sínum, Vladimir Smirnov frá Kazakhstan, í 10 km göngu með fijálsri aðferð. Dæhlie gekk á 23 mín., 27,6 sek. ■ DÆHLIE hefur nú sigrað á 38 heimsbikarmótum - fleiri en nokkur annar. Gunde Svan frá Sviþjóð kemur næstur í röðinni; hefur sigrað á 30 heimsbikarmótum. ■ NORÐMENN sigruðu svo í 4x10 km boðgöngu á sama stað á sunnu- dag. Dæhlie gekk síðastur Norð- manna og tryggði sigurinn með frá- bærri frammistöðu. Finnar, sem hafa verið nær ósigrandi síðustu ár, urðu í öðru sæti en Norðmenn áttu líka sveitirnar í þriðja og fjórða sæti. ■ LARISA Lasutina frá Rúss- Iandi sigraði í fyrsta heimsbikar- móti kvenna; gekk 5 km með frjálsri aðferð á 12 mín., 52,0 sek. Þetta var níundi sigur hennar á heimsbik- armóti. ■ JANA Novotna frá Tékklandi sigraði Mary Pierce frá Frakk- landi 7:6, 6:2, 6:3 í úrslitaleik síð- asta kvennamóts ársins í tennis, Chase meistaramótsins, í New York um helgina. ■ ÍRAR urðu heimsmeistarar í golfi um helgina í annað skipti. Padraig Harrington og Paul McGinley skipuðu írska liðið og léku samtals á 545 höggum, 31 undir pari á Oce- an vellinum í Kiawah Island í Bandaríkjunum. ■ SKOTLAND varð í öðru á HM í golfi; Colin Montgomerie og Ray- mond Russell léku á 550, 26 undir pari, voru einu höggi á undan Davis Love og Justin Leonard, sem skip- uðu lið Bandaríkjanna. ■ ZALI Steggall frá Ástralíu sigr- aði óvænt í svigi kvenna á heimsbik- armóti í Park City á sunnudag. Þetta er fyrsti sigur hennar í heims- bikarkeppninni og annar dagurinn í röð sem nær óþekktur skíðamaður steiur senunni; Kristinn Björnsson gerði það á sama dag daginn áður. Steggall var 0,78 sek. á undan Ylva Nowen frá Sviþjóð og Claudia Riegler frá Nýja-Sjálandi varð þriðja, 1.05 sek. á eftir. ■ ANNIKA Sörenstam frá Sví- þjóð er besti kylfingur heims í kvennaflokki. Hún sigrað á síðasta móti ársins um helgina í Las Veg- as, og er kven-kylfingur ársins í annað skipti á þremur árum. Þetta var sjötti sigur hennar á móti í ár. KRISTINN Kristinn Björnsson, skíða- um Thomasi Stangassinger, sem kappi frá Ólafsfirði, sló sigraði. Á eftir honum komu heldur betur í gegn á fyrsta ekki ómerkari skíðakappar en heimsbikarmóti vetrarins f svigi Norðmennirnir Finn Christian sem fram fór í Park City í Jagge og Kjetil Andre Amodt. Bandaríkjunum á sunnudaginn. Þrír af fyrstu jjórum voru því Hann náði þar öðru sæti sem Norðurlandabúar og Islending- er einn besti árangur sem ís- urinn þeirra fremstur. lenskur íþróttamaður ________________________________ hefur náð í keppni meðal bestu íþróttamanna heims. Þessi hæverski íþróttamaður frá Ólafs- fírði hefur ekki verið að státa sig af afrekum sín- um en lætur þess í stað verkin taia. Margir sem þekkja ekki til í heimi skíða- Fyrir keppnina í Park City, íþróttanna hafa blásið á þá stað- þar sem Vetrarólympíuleikamir reynd sem ég hef lengi haldið fara fram árið 2002, hafði Krist- fram að hann væri einn fremsti inn tekið þátt í sex svigmótum íþróttamaður þjóðarinnar. Nú heimsbikarsins (’96 og ’97) en hefur hann sannað sig svo eftir aldrei náð að skila sér í mark. því er tekið um allan heim. Hann hefur ávallt haft það að Kristinn hafði rásnúmer 49 leiðarljósi að keyra á fullu - allt og fáir áttu því von á að hann eða ekkert. Hann hefur nú skráð myndi blanda sér í baráttuna um nafh íslands í sögu heimsbikars- verðlaunasæti, enda fékk var ins. Hann er fyrstur íslendinga brautin ekki góð þegar hann fór til að hljóta stig í heimsbikar- niður í fyrri umferðinni. Hann keppninni og um leið fyrstur til náði þó 18. besta brautartíman- að komast á verðlaunapall. um. Í síðari umferðinni fékk Kristinn hefur helgað sig hann jafn góða braut og þeir skíðaíþróttinni undanfarin sex bestu og þá kom styrkur hans í ár, æft meira og minna erlendis ljós. Hann náði langbesta braut- með það að markmiði að ná á artímanum - svo góðum að þul- efsta þrep. Nú hefur þetta tek- urinn í beinu útsendingunni á ist. Hann er alit í einu stórt nafn Eurosport trúði því varla. „Þessi í heimi íþróttanna. Þessi árangur óþekkti íslendingur hefur stolið hefur mikla þýðingu fyrir hann, senunni hér S Park City. Hver bæði fjárhagslega og ekki síst er þessi skíðamaður?" sagði andlega. Hann veit nú hvar hann hann og átti varla orð til að lýsa stendur á meðal þeirra bestu og hrifningu sinni á frammistöðu sjálfstraustið er til staðar fyrir íslendingsins. komandi verkefni. Þetta var Allir bestu skíðamenn heims fyrsta mót hans í vetur og það voru meðal keppenda og árangur er ekki hægt að bytja betur á Kristins því frábær. Hann var Ólympíuvetri. aðeins 0,10 sekúndum saman- Valur Benedikt lagt á eftir austurríska kappan- Jónatansson Árangur sem vekur verðskuldada athygli í íþróttaheiminum Hvernig umfjöllun fékk KRISTINN BJÖRIMSSOIM erlendis eftirafrekið íPark City? Braustfram eins og eldgos FRAMMISTAÐA Kristins Björnssonar ísviginu íheimsbikar- keppninni á skíðum í Park City vakti athygli fjölmiðla víða um heim, ekki síst í Noregi þar sem talsvert var um hann fjallað i blöðum og sjónvarpi. Freistast Norðmenn til að eigna sér hlut í honum og minna allir norsku fjölmiðlarnir á að hann hafi stund- að þar nám og unnustan búi í Lillehammer. Helsta blað Noregs, Aftenpost- en, sagði frá afreki Kristins í löngu máli undir fyrirsögninni „Mesti stórviðburður sögueyjunn- ar“ en þar segir m.a.: „Án þess að vita mikið um íslenskar vetrar- íþróttir fullyrðum við hiklaust að annað sæti Kristins Björnssonar er mesti stórviðburður sögueyjunn- ar. Og hann býr í Lillehammer." Blaðið rekur síðan hvernig Kristinn þaut niður brekkuna í fyrri umferð eftir að hafa fengið slakt rásnúmer, 49, og komist í úrslitin með því að ná 17. sæti í fyrri umferð. ,jHann hélt síðan forystu þar til Ólympíumeistarinn Thomas Stangassinger skaut hon- um ref fyrir rass um tíunda hluta úr sekúndu. En hvað vinnst á svo litlum tíma fyrir utan að tapa svig- keppni? Frá þessu var allt nýtt fyrir íslendingnum. Fólk sem hann hafði tæpast séð nema á sjónvarps- skjánum kom til hans og rétti hon- um höndina. Heimsmeistarinn Tom Stiansen og félagar hans í norska liðinu voru fljótir til og fögnuðu honum fölskvalaust. Og eitt tók við af öðru: Fyrst fjölmiðla- viðtöl á fleiri tungumálum en norsku og íslensku. Því næst varð hann að drífa sig upp á verðlauna- pallinn til að taka við blómvendi og 10.250 dollara ávísun og þaðan lá leiðin inn á blaðamannafund með hinum reyndu kempum Stangassinger og Jagge.“ Því næst segir blaðið að Kristinn hafi fyrst stigið á skíði fjögurra ára gamall í heimabæ sínum á klettóttri norðurströnd sögueyj- unnar. Rekur einnig að hann hafi dvalist við Geilo-skíðamenntaskól- ann í Noregi 1990-94 og búi í Lillehammer. „Þetta er maðurinn sem setur allt á annan endann á íslandi: Kristinn Björnsson, 25 ára, valtaði yfir alla bestu skíðamenn heims í Park City. Og hann þakkar Noregi fyrir,“ sagði útbreiddasta blað Noregs, Verdens Gang, undir fyrir- sögninni „Kristinn sigraði Aamodt og Jagge". Við hlið fyrirsagnarinn- ar er stór mynd af Kristni nýkomn- um í mark. Á forsíðu íþróttakálfs- ins var vísað inn á frásögnina af Reuters KRISTINN Björnsson brosti breltt eftlr aö Ijóst varð að hann yrði í öðru sæti heimsbikarmótsins í Park City. sviginu í Park City undir fyrirsögn- inni: Islensk sprengja í alpagrein- um. „Eins og eldgos braust Krist- inn Björnsson fram úr buskanum og renndi sér niður í annað sætið með fágætum hætti,“ stóð undir myndinni. „Aðeins Thomas Stang- assinger tókst að tukta íslenska eldfjallið sem var nemandi við skíðamenntaskólann í Geilo 1990-94.“ Verdens Gang sagði að flestir sterkustu skíðamenn heims hefðu verið eins og í auka- hlutverki eftir að Kristinn náði besta tíma dagsins í úrslitunum. „Ég stend í þakkarskuld við Noreg, án þeirrar leiðsagnar sem ég fékk þar hefði verið erfitt að ná svo langt,“ hefur Verdens Gang eftir Kristni. Og blaðið átti samtál við þjálfara hans í Geilo, Svein Bye, sem fylgdist með keppninni í sjónvarpi. „Mjög ánægjulegt, ég veðjaði á að hann yrði í 14.-17. sæti. Sálræni styrkurinn er hans sterkasta vopn,“ sagði Bye. „Ég þekki hann ekki,“ hefur svissneska blaðið Tages-Anzeiger eftir sigurvegaranum Stangass- inger um Kristin, „en eitt er víst, að óvænt afrek af þessu tagi glæða skíðaíþróttina nýju lífi,“ bætti hann við. Stærsta fréttastofa heims, Associated Press, sendi út langa sérfrétt um frammistöðu Kristins. Þar segir að allt þar til á laugar- dag hafi ísland tæpast sett mark sitt á skíðaíþróttina á æðsta stigi en nú sé öldin önnur. Hafði AP viðtal við Kristin og fjallar um uppruna hans á Ólafsfirði og ára- langa baráttu til að ná hátindi íþróttarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.