Morgunblaðið - 25.11.1997, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997 C 3
KÖRFUKNATTLEIKUR || HANDKNATTLEIKUR
Einn nýliði í landsliðshópi ÞorbjarnarJenssonar
Verðum að leggja
Júgóslava að velli
JENNIFER frá Tennessee f Bandarfkjunum lék með liðl Kefla-
vfkur og átti af bragðsleik, hvort heldur var f vörn eða sókn.
„EF við ætlum okkur í loka-
keppnina á Ítalíu verðum við
að leggja Júgóslava að velli f
Laugardalshöllinni. Það ætlum
við okkur og munum leggja allt
í sölurnar til að tryggja okkur
farseðilinn til Ítalíu hér heima.
Ef við náum því ekki, verður
róðurinn erfiður - það er ekki
hægt að bóka sigur í Júgóslav-
íu,“ sagði Þorbjörn Jensson,
landsliðsþjálfari i handknatt-
leik, þegar hann tilkynnti
landsliðshóp sinn sem leikur
sfðustu leikina riðlakeppni EM
gegn Júgóslavfu - í Laugar-
dalshöllinni á fimmtudaginn og
f Podgorica í Svartfjallalandi á
sunnudaginn kemur.
Það er ljóst að áhorfendur verða
að styðja vel við bakið á okkur
eins og í leiknum gegn Litháen í
Hafnarfirði á dögunum," sagði Þor-
björn og Geir Sveinsson, fyrirliði
landsliðsins, tók í sama streng og
sagði: „Við verðum að leggja Júgó-
slava að velli hér heima til að kom-
ast til Ítalíu. Júgóslavar eru með
mjög sterkt lið og koma hingað án
efa til að hefna ófaranna frá HM
í Kumamoto. Við erum tilbúnir að
taka vel á og ég trúi ekki öðru en
við fáum góðan stuðning áhorf-
enda. Það yrði frábært að leika
fyrir troðfullri höll. Handknattleiks-
unnendur fá nú gullið tækifæri til
að sjá handknattlkeik eins og hann
getur orðið bestur. Það er ekki á
hverjum degi sem eins sterkt lið
og Júgóslavía kemur hingað í heim-
sókn. Það mun ekki skemma að
leikurinn skiptir miklu máli - hann
verður spennuleikur," sagði Geir.
Breytingar eru á landsliðinu
vegna meiðsla Dags Sigurðssonar,
Einstefna hjá
Keflavíkurstúlkum
Keflavíkurliðið átti afbragðsleik
og við réðum einfaldlega ekki
við sterkan varnarleik þeirra," sagði
Chris Armstrong,
Bjöm þjálfari vesturbæj-
Blöndal arliðs KR, eftir að
skrífar liðið hafði tapað með
30 stiga mun fyrir
Keflavíkurstúlkum í Keflavík á
laugardaginn. Lokatölur leiksins
urðu 89:69 eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 42:31. Nýr leikmaður,
Jennifer Boucek frá Tennessee í
Bandaríkjunum lék með liði Kefla-
víkur. Hún átti afbragðsleik hvort
heldur var í vöm eða sókn. Leik-
gleði hennar, kraftur og barátta
virtist smita út frá sér og var lið
Keflavíkur nú óþekkjanlegt frá síð-
ustu leikjum.
Það var rétt á fyrstu mínútunum
sem jafnræði var með liðunum. Þá
sprungu Keflavíkurstúlkur út í
orðsins fyllstu merkingu. Þær tóku
nánast öll völd á vellinum og kom-
ust KR-stúlkumar lítt áleiðis gegn
frábæmm vamarleik Keflavíkur. í
hálfleik munaði 11 stigum á liðun-
um og í upphafi síðari hálfleiks
hrundi leikur KR-stúlkna endanlega
þegar þær náðu aðeins að setja
þrjú stig, öll úr vítaskotum gegn
26 stigum Keflavíkur á fyrstu 9
mínútunum. Eftirleikurinn var því
auðveldur hjá heimaliðinu og þjálf-
ari KR játaði sig sigraðan þegar
nokkrar mínútur vom til leiksloka
og setti þá varaliðið inná.
Jennifer Boucek var án efa besti
leikmaðurinn á vellinum og þar
hefur borið vel í veiði hjá Keflvík-
ingum. Kristín Blöndal, Erla Reyn-
isdóttir og Anna María Sveinsdóttir
vom einnig góðar en í heild átti lið-
ið allt góðan leik. Hanna Kjartans-
dóttir og Kristín Jónsdóttir vom
bestar í liði KR að þessu sinni.
Stórielkur Grindavíkur
Það var ekkert sem gaf til kynna
á upphafsmínútunum hvernig
þessi leikur myndi enda. Mikil spenna
og töluverð tauga-
veiklun í báðum lið-
um. Þrátt fyrir fyrir
það var hittni liðann
mjög góð. Mjög jafn
og spennandi leikur virtist í uppsigl-
ingu. Þegar um 5 mínútur voru til
leikhlés var staðan 33:32 heima-
mönnum í vil, en þá fór að losna um
Grindavíkurstúlkur sem gengu á lag-
Garöar Páll
Vignisson
skrífar
ið og höfðu náð 14 stiga forskoti í
leikhléi. Heimamenn héldu áfram
sömu keyrslu og réðu liðsmenn ÍS
ekkert við Grindavíkurstúlkur í
seinni hálfleik og ömggur 21 stigs
sigur varð staðreynd. Allir leikir í
þessari deild em eins og úrslita-
keppni og liðin em hnífjöfn þannig
að þessi úrslit em dálítið frábmgðin
öðmm leikjum þessara ijögurra efstu
liða í deildinni sérstaklega í ljósi þess
að Stúdínur em nýbúnar að leggja
KR sem vom ósigraðar fyrir þann
leik.
Það vom sárafáir áhorfendur sem
mættu á leik Grindavíkur og ÍS á
laugardag. Þessi leikur varð hin
ágætasta skemmtun og óhætt virðist
að lofa góðri skemmtun næst þegar
Grindavíkurstúlkur spila. Það tók
þær 10 mínútur að ná úr sér hrollin-
um og þá varð ekki aftur snúið.
Allt Grindavíkurliðið spilaði frá-
bæra vöm og þegar allar höfðu fund-
ið taktinn fór leikurinn að snúast
þeim í vil. Anna Dís Sveinbjömsdótt-
ir skoraði 27 stig og Sólveig Gunn-
laugsdóttir skoraði 23 stig. Þær áttu
stórleik og skoraði Sólveig m.a. fimm
þriggja stiga körfur auk þess að
stjóma leik liðsins lengstum. í jöfnu
liði ÍS var Alda Jónsdóttir best.
Hópurínn
Markverðir:
Guðmundur Hrafnkelsson, Val
Bergsveinn Bergsveinsson, UMFA
Reynir Þór Reynisson, Fram
Aðrir leikmenn:
Bjarki Sigurðsson, Drammen
Páll Þórólfsson, UMFA
Róbert Sighvatsson, Dormagen
Geir Sveinsson, Wuppertal
Konráð Ólavson, Niederwiirzbach
Ólafur Stefánsson, Wuppertal
Arnar Pétursson, Stjömunni
Jason Ólafsson, UMFA
Róbert J. Duranona, Eisenach
Patrekur Jóhannesson, Essen
Valdimar Grimsson, Stjömunni
Július Jónasson, St. Ottmar
Björgvins Björgvinssonar og Gúst-
afs Bjarnasonar. Þorbjörn hefur
valið einn nýliða í landsliðshóp sinn
- Arnar Pétursson úr Stjömunni,
sem er einn af framtíðarmönnum
landsliðsins sem leikstjórnandi, að
sögn Þorbjöms. Þá er Páll Þórólfs-
son, Aftureldingu, kominn í hópinn
á ný, en hann hefur leikið vel með
liði sínu að undanförnu. Páll, sem
hefur leikið tíu landsleiki, lék síðast
landsleik gegn Rússum í undan-
keppni EM 1996.
Leikurinn gegn Júgóslövum er
þýðingarmesti landsleikur íslend-
inga síðan leikið var gegn Dönum
á svipuðum tíma í fyrra, er strák-
arnir okkar lögðu Dani á eftirminni-
legan hátt og tryggðu sér rétt til
að leika á HM í Kumamoto.
Gleði og sorg hjá Wuppertal
Viggó Sigurðsson þjálfari
Þurfum að kaupa
mann fyrir Dag
Dagur Sigurðsson átti stórleik
og var besti maður vallarins
þegar nýliðar Wuppertal unnu
Kiel, 31:28, á útivelli í þýska
handboltanum um heigina. Hins
vegar var gleði Viggós Sigurðs-
sonar og lærisveina hans sætsúr
því Dagur braut bátsbein á hægri
hendi undir lok leiksins og verður
frá keppni næstu þijá mánuðina,
sem kemur sér ekki aðeins illa
fyrir Wuppertal heidur einnig ís-
lenska landsliðið.
„Þetta eru gífurleg vonbrigði,"
sagði Dagur við Morgunblaðið.
„Það hefur verið gaman að spila
og liðinu hefur gengið vel en
næstu þijá mánuðina verð ég að
hugsa um að koma mér í lag með
það i huga að Ijúka tímabilinu
með Wuppertal með sóma - og
svo ætla ég með landsiiðinu I úr-
alitakeppni Evrópukeppninnar á
Ítaiíu."
Dagur sagði að um óhapp hefði
verið að ræða. „Sem ég skgraði
sló hornamaðurinn mig í andlitið,
ég gleymdi að hugsa um að detta
og datt illa með þessum afleiðing-
um. Strax var búið um þetta og
ég lauk leiknum en verkimir
ágerðust og rannsókn leiddi í ljós
hvað hafði gerst.“
„Það var frábært að sigra í
Kiel enda hefur liðið aðeins tapað
þrisvar heima í sjö ár og því vöktu
úrslitin mikla athygli," sagði
Viggó við Morgunblaðið. „Dagur
var besti maður vallarins og rosa-
iegt áfall er fyrir okkur að missa
hann. Við erum með tvo menn
meidda fyrir og fámennan hóp
sem þýðir að við þurfum að kaupa
annan mann fyrir Dag enda bend-
ir allt til þess að hann verði frá í
að minnsta kosti þijá mánuði."
Dagur gerði sex mörk en Ólafur
Stefánsson átti einnig stórieik og
var með átta mörk, þar af fimm
úr vítaköstum. Norðmaðurinn Stig
Rasch gerði átta mörk í jafn mörg-
um tilraunum, Filippov fimm og
Geir Sveinsson þijú auk þess sem
fyrirh'ði fslenska landsliðsins var
dijúgur við að fiska víti. Gífurleg
stemmning var í Kiel, 7.260 áhorf-
endur eða uppselt. Lemgo sigraði
Massenheim og hafði sætaskipti
við Kiel á toppnum en Wuppertal
er í 6. til 7. sæti með 11 stig.
GOLF
Birgir Leifur stendur vel
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfing-
ur frá Akranesi, er í 78. sæti
á úrtökumótinu fyrir evrópsku móta-
röðina í golfi. Mótið er haldið á tveim-
ur völlum á Spáni, San Roque og
Guadalmina, og hefur veður sett strik
í reikninginn. Birgir Leifur er á þrem-
ur höggum yfir pari eftir þijá hringi
en eftir upphafshögg hans á fimmtu
braut í gær voru allir kallaðir inn
vegna þrumuveðurs, en þá var hann
einn undir. Reyna á að halda áfram
þar sem frá var horfið í dag.
„Það var ferlega leiðinlegt veður
og miklar þrumur og eldingar og
einn sem var tveimur brautum á
undan mér fékk eldingu í sig og var
fluttur á sjúkrahús," sagði Birgir
Leifur í gær. Birgir Leifur lék á
fimmtudaginn á San Roque og lék á
74 höggum, tveimur yfir pari. Leik
var frestað þar á föstudaginn en á
laugardaginn lék hann á einu yfir
pari og á sunnudaginn lék hann
Guadalmina-völlinn á pari og var
einn undir eftir fjórar brautir þegar
leik var hætt í gær.
Eftir fjóra hringi verður keppend-
um fækkað í 75 og þeir látnir leika
einn eða tvo hringi til viðbótar og 40
úr þeirra hópi fá keppnisrétt í evr-
ópsku mótaröðinni næsta ár. Birgir
Leifur er í 78. sæti sem stendur en
hann sagði að það væru ekki nema
þijú til fjögur högg upp í 30. sætið
þannig að allt væri mörgulegt ennþá.