Morgunblaðið - 25.11.1997, Side 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HAIMDKNATTLEIKUR
Barátta
skóp sigur
Stjörnunnar
Borgar Þór
Einarsson
skrifar
STJARIMAN gerði góða ferð til
Hafnarfjarðar þegar liðið vann
sannfærandi sigur á FH í mikl-
um baráttuleik, 20:23. Stjarnan
virðist á mikilli siglingu og hef-
ur liðið nú unnið fimm leiki í
röð.
Stjörnumenn mættu mjög
ákveðnir til leiks og greinilegt
að barátta var dagskipunin. Feikn-
arlega sterk vörn
Stjörnunnar virtist
slá FH-inga út af
laginu strax á upp-
hafsmínútunum og
voru sóknaraðgerðir heimamanna
mjög fumkenndar. Á meðan gekk
allt upp í sókninni hjá Stjörnunni
og varla stóð steinn yfir steini í
vörn FH. Forysta Stjörnunnar var
sex mörk í leikhléi, 8:14.
Á fyrstu mínútum síðari hálfleiks
virtist allt stefna í háðulega útreið
FH-inga. En þegar staðan var 9:19
var Einari Baldvin Árnasyni, sem
átt hafði mjög góðan leik í vörn
Stjörnunnar, vikið af leikvelli í
þriðja sinn. FH-ingar skoruðu þá
fimm mörk í röð og á sama tíma
varði Suk Hyung Lee eins og ber-
serkur í markinu. En Stjörnumenn
stóðust álagið og héldu forystunni.
Lokasprettur FH-inga kom einfald-
lega of seint til breyta nokkru um
úrslit leiksins.
Sigur Stjörnunnar var verðskuld-
aður og var það fyrst og fremst
barátta liðsheildarinnar sem skóp
hann. Hilmar Þórlindsson átti stór-
leik í sókninni, Einar Baldvin var
sem klettur í vörninni og Ingvar
Ragnarsson varði mjög vel í mark-
inu. Hjá FH var Guðjón Árnason
atkvæðamestur en flestir leikmenn
liðsins léku undir getu lengst af
þótt liðið hafi átt ágætan kafla
undir lokin.
Afturelding efst á ný
Eftir að hafa misst efsta sæti 1.
deildar karla að loknum ósigri
fyrir FH í Hafnarfirði á miðviku-
gm dagskvöldið endur-
ivar heimtu leikmenn
Benediktsson Aftureldingar efsta
skrifar sætið með því að
leggja Hauka að
velli, 25:23, í miklum baráttuleik
að Varmá. Segja má að fyrstu 10
mínútur leiksins hafi leikð stórt
hlutverk að þessu sinni en þá skor-
uðu heimamenn sjö mörk gegn
engu. Þrátt fyrir að Haukum tækist
með gífurlegri seiglu og einbeitingu
að komast inn í leikinn kostaði það
mikla orku og var líklega er upp
var staðið það sem vó þyngst að
liðinu tókst ekki að sigra.
Níu fyrstu upphlaup Hauka fóru
í súginn og útlitið var ekki gott.
Þeir tóku leikhlé í stöðunni 5:0 og
freistaði Sigurður Gunnarsson,
þjálfari, þess að vekja lærisveina
sína. í fyrstu virtist sem það hefði
ekki tekist því Mosfellingar gerðu
tvö næstu mörk. En þar kom að
Petr Baumruk braut ísinn fyrir
Hauka, sem heldur betur rönkuðu
við sér. Haukar léku 6-0 vörn og
náðu sér vel á strik. Leikmönnum
Aftureldingar gekk illa að finna
leiðir framhjá henni auk þess sem
kæruleysi gerði vart við sig, þetta
tvennt ásamt einbeittum leik gest-
anna varð þess valdandi að þrátt
fyrir slæma stöðu tókst þeim að
minnka forskot UMFA í 3 mörk
fyrir hlé, 12:9.
Rúnar Sigtryggsson minnkaði
muninn umsvifalaust niður í tvö
mörk eftir 15 sekúndna leik í síðari
hálfleik og þar með hafði heldur
betur ijarað undan góðri forystu
heimamanna. En Haukar voru ekki
hættir, þeir léku sem grenjandi ljón
góða vörn áfram sem Afturelding
átti í mesta basli með að ráða við.
Hefði ekki komið til úrvalsleiks Sig-
urðar Sveinssonar hefði forskot
heimamanna horfið strax á fyrstu
5 mínútunum, en svo varð ekki.
Loks þegar 12.30 mínútur voru af
síðari hálfleik jafnaði Sigurður
Þórðarson fyrir Hauka.
Eftir það var jafnt á öllum tölum
upp í 21:21 og fóru bæði lið illa
með góð færi, s.s. hraðaupphlaup
og vítaköst. Gríðarleg barátta var
í leiknum og höfðu dómararnir í
mörg horn að líta og virtust ekki
alltaf hafa góð tök. Nokkuð var um
ljót brot, einkum hjá heimamönnum
s.s. þegar Þorkell Guðbrandsson fór
með hönd í andlit Petrs Baumruks
þegar 5.30 mínútur voru eftir, en
Þorkell slapp þá en fékk nokkrum
andartökum síðar brottvísun. Þá
höfðu heimamenn náð tveggja
marka forskoti, 23:21. Haukar
nýttu sér liðsmuninn og jöfnuðu
áður en jafnt varð í fylkingum.
Um leið og bæði lið voru full-
mönnuð á ný kom Einar Einarsson
Mosfellingum marki yfir, 24:23.
Haukar lögðu af stað í sókn en hún
tók skjótan endi er einum leik-
manna þeirra, Þorkeli Magnússyni,
hljóp kapp í kinn og lét reka sig
út af og um leið misstu þeir knött-
inn og Gunnar Andrésson skoraði
sigurmarkið þegar 1.40 mín. var
eftir. Haukar reyndu að klóra í
bakkann en tókst ekki. Bottrekstur
Þorkels vó afar þungt enda ekki
nema 2.10 mínútur eftir.
Haukar geta engum nema sjálf-
um sér um kennt að þessu sinni.
Einhveijir þeirra vilja að dómarar
leiksins taki hluta af ósigrinum á
sig, en víst er að dómararnir komu
ekki sofandi til leiks að þessu sinni.
Lið sem Iendir 7:0 undir á móti
UMFA að Varmá í slíkri stemmn-
ingu sem var á laugardaginn verður
Morgunblaðið/Þorkell
VALDIMAR Grímsson, þjálfari og leikmaður Stjörnunnar, skorar eitt af fjórum mörkum sínum.
að teljast gott að ná þó að jafna.
Haukarnir sýndu styrk þegar þeir
vöknuðu og hann var mikill.
Get ekki orða bundist
„Við virtumst ekki vera tilbúnir í
leikinn í upphafi en sýndum mikinn
baráttuvilja eftir að við vöknuðum
að komast inn í leikinn, en það tók
sinn toll að vinna upp þetta forskot
sem Afturelding hafði náð,“ sagði
Sigurður Gunnarsson, þjálfari
Hauka, að leikslokum að Varmá.
„Það má segja að það hafi verið
helmingi erfiðara að vinna upp for-
skotið þegar dómgæslan er eins og
raun varð á nú og erfitt fyrir okkur
að beijast á tvennum vígstöðvum.
Ég get ekki orða bundist yfir þess-
ari dómgæslu, hún var afleit og ég
er mjög ósáttur. Eflaust hljóma ég
eins og ég sé tapsár, en ég er ekki
vanur að fetta fingur út í dómgæsl-
una en ég get ekki látið það hjá
líða nú.“
Guðmundur frábær í markinu
Valsmenn unnu öruggan sigur á
slöku liði HK 30:24, á sunnu-
dagskvöldið í Valsheimilinu. Frá-
bær markvarsla
Guðmundar Hrafn-
kelssonar í Vals-
markinu lagði
grunninn að sigrin-
um. Hann varði 19 skot, mörg hver
mjög glæsilega. Valsmenn þurftu
ekki að sýna neinn stórleik til að
leggja HK að velli. Það var aðeins
Sigurður Sveinsson sem náði að
stríða þeim. Hann skoraði fimm af
sjö fyrstu mörkum liðsins og HK
leiddi 5:7. Valsmenn brugðu á það
ráð að taka hann úr umferð og sú
aðgerð gekk upp. Þeir náðu að síga
framúr og höfðu forystu í leikhléi,
14:11. Heimamenn gerðu síðan út-
um leikinn í síðari hálfleik með
góðum mörkum frá Jóni Kristjáns-
syni og Valgarði Thoroddsen sem
er kominn á fullt á ný eftir erfið
meiðsli.
Annars var leikurinn ekki í háum
gæðaflokki, fáir áhorfendur og lítil
Stefán
Stefánsson
skrifar
Hörður
Magnússon
skrifar
stemmning í húsinu. HK sem tapar
vanalega leikjum með einu marki
voru baráttulausir og virkuðu
áhugalausir. Kannski að þessi eilífu
töp liðsins með einu marki séu far-
in að hafa áhrif á sálartetrið. Það
býr a.m.k. meira í liðinu en það
sýndi í þessum leik.
Eins og áður sagði þurftu heima-
menn ekki að sýna neinn stórleik.
Auk Guðmundar í markinu var Jón
Kristjánsson í miklum ham sérstak-
lega í síðari hálfleik og Valgarð
Thoroddsen gerði góða hluti í síðari
hálfleik. Þá barðist Ingi Rafn Jóns-
son vel að vanda og gerði fimm góð
mörk.
Hæstánægður með stigið
Við höfum ekki verið að spila vel
að undanförnu og verðum að
vinna okkur út úr þeim vanda. Þessi
leikur var liður í því
og ég er hæst-
ánægður með að
hafa fengið hér eitt
stig, sérstaklega
miðað við hvernig leikurinn þróað-
ist,“ sagði Matthías Matthíasson
þjálfari IR eftir 24:24 jafntefli gegn
Víkingum í Víkinni á sunnudaginn.
Breiðhyltingar geta vel við jafntefli
unað og Víkingar sjálfum sér um
kennt fyrir að glutra niður tveggja
marka forystu á síðustu mínútun-
um.
Fyrri hálfleikur einkenndist af
miklum barningi hjá báðum liðum.
Víkingar höfðu naumt forskot en
ÍR-ingar náðu í skottið á þeim þeg-
ar Hrafn Margeirsson, markvörður
ÍR, varði tvívegis línuskot Birgis
Sigurðssonar, sem skilaði ÍR tveim-
ur mörkum úr hraðaupphlaupum
og stöðunni 8:8. Snemma í síðari
hálfleik hrukku heimamenn síðan í
gang, Birkir Guðmundsson í marki
Víkinga fór að veija grimmt og
Rögnvaldi Johnsen héldu enginn
bönd svo að Víkingar náðu þægi-
legu fjögurra marka forskoti. En
Víkingsvélin hökti, hrökk í gang á
ný en hökti aftur og í þetta sinnið
komst hún ekki í gang, sem Breið-
FH-stúlkur að ná sér á strik
Lykillinn að sigrinum var að
vörnin small saman og send-
ingar fram völlinn í hraðaupphlaup-
um gengu upp,“
sagði Hildur Erl-
ingsdóttir, fyrirliði
FH, eftir 19:16 sig-
ur á Víkingum í Vík-
inni á sunnudaginn. Víkingar byij-
uðu betur en var refsað fyrir
minnstu mistök, til dæmis skoruðu
FH-ingar fimm af fyrstu sex mörk-
um sínum eftir hraðaupphlaup og
höfðu yfir 11:8 í leikhléi. Eftir skín-
Stefán
Stefánsson
skrifar
andi byijun í síðari hálfleik náðu
Víkingar að jafna á 12. mínútu en
þá náðu FH-stúlkur áttum á ný,
Vaiva Drilingaite í marki þeirra
varði án afláts og eftir fimm mörk
í röð, sem setti stöðuna í 18:13, var
bilið orðið of breitt.
Vona að það verði ekki fleiri
svona lélegir
„Ég ætla að vona að við eigum
ekki fleiri jafn lélega leiki í vetur
án þess að ég sé nokkuð að setja
út á lið Fram,“ sagði Andrés Gunn-
laugsson þjálfari Gróttu/KR eftir
15:12 sigur á Fram í 1. deild
kvenna á Seltjarnarnesi á laugar-
daginn.
„Við komumst yfir 4:0 og það
þarf hugrekki til að klára sigur í
slíkri stöðu og stelpurnar eiga eftir
að læra það. Annars var ég aldrei
í vafa með sigur, með fullri virðingu
fyrir Fram.“
Leikurinn hófst með snörpum
kafla heimastúlkna, sem komust
í 5:1 áður en 5 mínútur voru liðn-
ar af leiknum en þá komu 15 mín-
útur án marks og Fram jafnaði
eina skiptið í leiknum, 5:5.
Grótta/KR hrökk þá aftur í gang,
náði forystunni og hélt örugglega
til leiksloka.
Valsstúlkur léku góðan varnar-
leik og tóku sér góðan tíma í sókn-
irnar gegn Stjörnunni á Hlíðarenda
á laugardaginn svo að efsta liði
deildarinnar tókst aldrei að taka
leikinn fyllilega í sínar hendur -
það var ekki fyrr í lokin að Garðbæ-
ingar gerðu út um leikinn með fjór-
um síðustu mörkunum, 25:20.
hyltingar nýttu sér til hins ýtrasta
og náðu að jafna þegar mínúta var
til leiksloka.
„Við höfum haldið fund á fund
ofan um stöðu mála hjá okkur og
ætluðum að beija í gegn sigur. Það
gekk vel og stuðningur áhorfenda
var mikill en síðan kom bakslag,"
sagði Rögnvaldur Johnsen, sem átti
góðan leik og skoraði tíu mörk fyr-
ir Víkinga. „Það var langþráður
sigur innan seilingar og súrt að sjá
hann hverfa,“ sagði Rögnvaldur,
en hann, Davor Kovacevic og Hjalti
Gylfason áttu góðan leik. Birkir í
markinu varði oft vel og Birgir Sig-
urðsson lét að venju hafa fyrir sér
á línunni en tókst ekki vel upp við
skotin að þessu sinni.
IR-ingar geta vel við eitt stig
unað því þeir áttu lengi í vök að
veijast og heppnin var þeim einnig
hliðholl. Liðið uppskar vel í lokin
þegar leikmenn neituðu að gefast
upp og náðu að jafna. Ragnar Ósk-
arsson var langatkvæðamestur í lið-
inu og skoraði auk þess tíu mörk.
Framarar ekki í erfiðleikum
Framarar áttu ekki í miklum erf-
iðleikum með slakt lið Breiða-
bliks er liðin mættust í Smáranum
á sunnudagskvöldið.
Þrátt fyrir að
Éíðsson Breiðablik hafi byij-
skrifar að vel og haldið 1
Fram fyrstu 20 mín-
úturnar áttu þeir engan möguleika
í Safamýrarstrákana, og endaði
leikurinn með öruggum sigri Fram
20:29.
Breiðablik byijaði leikinn ágæt-
lega, spilaði góða vörn og átti góða
spretti í sókn. Þeir héldu í við Fram-
arana fyrstu 25 mínúturnar, og
höfðu m.a. 6:7 yfir um miðjan fyrri
hálfleik. Framararnir sem virtust
þungir og áhugalausir rönkuðu við
sér og með nokkrum vel útfærðum
hraðaupphlaupum og góðri mar-
kvörslu Reynis Reynissonar í mark-
inu tókst þeim að komast tveimur
mörkum yfir fyrir leikhlé, 11:13.
Framarar byijuðu seinni hálfleik-
inn eins og þeir höfðu endað þann
fyrri, með áhuga og áræðni. Eftir
það eygðu Blikar aldrei möguleika
á sigri. Fram jók muninn jafnt og
þétt í síðari hálfleik og komst mest
í 11 marka mun 17:28. Blikunum
tókst þó að minnka muninn í 9
mörk fyrir leikslok í 20:29.
Framarar voru slakir framanaf
en tóku við sér þegar á leið. Oleg
Titov var góður á línunni og Reyn-
ir Reynisson varði vel í markinu.
Einnig átti Daði Hafþórsson góða
spretti. í liði Breiðabliks átti Elvar
Guðmundsson góða spretti í mark-
inu, og Darrick Heat, annar Kaninn
í liðinu, sýndi skemmtilega takta.
Urslit / C10
Staðan / C10