Morgunblaðið - 25.11.1997, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 25.11.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997 C 5 _____________________________________SKÍÐI_____________________________________ Kristinn Björnsson stal senunni á heimsbikarmótinu í svigi í Park City í Bandaríkjunum Eins og stomnsveip- ur fram í sviðsljósið KRISTINN Björnsson frá Ólafs- firði stal heldur betur senunni á heimsbikarmótinu í svigi í Park City í Bandaríkjunum á laugardaginn. Hann náði öðru sæti þrátt fyrir að hafa haft rásnúmer 49 og fékk alla at- hyglina - kom eins og storm- sveipur fram í sviðsljósið. Árangur hans þótti mun merki- legri en að ólympíumeistarinn Thomas Stangassinger frá Austurríki hafi unnið, enda sjötti sigur hans á heimsbikar- móti og annar sigur hans í Park City. Kristinn vann þarna eitt mesta íþróttaafrek íslend- ings og er með þessum ár- angri kominn á stall með bestu skíðamönnum heims. Enginn annar íþróttamaður hefur fengið eins mikla athygli hjá erlendum fjölmiðlum og hann. Austurríkismaðurinn Thomas Sykora var með besta tímann í fyrri umferð svigsins og Kjetil ■■^■■■H Andre Aamodt frá ValurB. Noregi annar. Sieg- Jónatansson fried Voglreiter, Aust- skrifar urríki þriðji, Svíinn Martin Hansson fjórði og Sebastien Amiez frá Frakklandi fimmti. ítalinn Alberto Tomba féll í efri hluta brautarinar og var úr leik. Sykora og Hansen, féllu úr keppni í síðari umferð og Austurríkismaður- inn Thomas Stangassinger sigraði eins og hann gerði einnig 1994. „Eg átti satt að segja ekki von á sigri því ég var í töluverðum vandræðum í fyrri umferðinni og náði þá aðeins áttunda tímanum. Ég fann ekki al- veg taktinn. En það gekk vel í síðari umferðinni," sagði Stangassinger. Kristinn var með 17. besta tímann eftir fyrri umferðina ásamt Slóven- anum Jure Kosir og fáir áttu von á því að hann blandaði sér í baráttuna um verðlaun. 30 bestu skíðamenn- irnir eftir fyrri umferðina fá að fara niður í síðari umferð og er rásröð- inni snúið við, þannig að sá besti eft- ir fyrri umferð fer síðastur niður í síðari umferð - til að hafa spenn- una sem mesta. Fullkomin Kristinn fór fjórtándi af stað í síð- ari umferð, næstur á eftir Slóvenan- um Kosir. Þegar Kristinn fór niður var Tomas Grandi frá Kanada, sem varð þriðji í stórsviginu á sama stað á fimmtudag, með besta tímann. Það var Ijóst um leið og Ólafsfirð- ingurinn kom út úr rásmarkinu eins og stormsveipur - slíkur var kraft- urinn. Hann náði strax góðum takti við brautina, kantamir á skíðunum bitu vel í glerharðan snjóinn og hraðinn var gríðarlegur. Hann fór í gegnum hverja einustu beygju án þess að gera mistök. Ferðin var fullkomin. Tæknin sem þessi hæfi- leikaríki skíðamaður ræður yfir kom berlega í ljós. Hann virtist ekk- ert hafa neitt fyrir þessu og nánast dansaði niður brekkuna. Enginn keppandi gat ógnað tíma hans, 49,13 sekúndur, í seinni um- ferðinni. Það var aðeins spuming um það hvort einhver næði að slá honum við f samanlögðum tíma. Sextán keppendur áttu eftir að fara niður þegar Kristinn var kominn í markið með forskot upp á 1,11 sek- úndur á næsta mann. Spennandi bið Spennan magnaðist. Austurríkis- maðurinn Christian Mayer, sem V. Reuter KRISTINN Bjömsson sló öllum bestu skíðamönnum heims við í síðari umferð svigsins á heims- bikarmótinu í Park City. Hér er hann í fyrri umferðinni þar sem hann náði 17. besta tfmanum. hefur verið með í heimsbikarnum í fimm ár, kom næstur og var rúm- lega þremur sekúndum á eftir Kristni. Þetta gaf vísbendingu um hversu tími Kristins var í raun frá- bær. Þá var komið að heimsmeist- aranum í svigi, Tom Stianesn frá Noregi. Hann fór brautina vel og kom í mark á rúmlega sekúndu lak- ari tíma en okkar maður. Svona gekk þetta þar til kom að Thomasi Stangassinger, sem fór áttundi síð- astur niður. Hann var fyrstur til að slá út millitíma Kristins, en hafði reyndar 0,69 sekúndur í forskot eft- ir fyrri umferðina. Samanlagður tími hans reyndist 0,10 sekúndum betri og Kristinn var orðinn annar. Spennan hélt áfram. Þegar Finn Christian Jagge, ólympíumeistari í svigi frá 1992, fór niður voru fimm eftir. Jagge var búinn að missa nið- ur forskotið sem hann hafði á Krist- in þegar kom að millitímanum og kom í mark á þriðja besta tímanum. Meistaramir áttu ekkert svar Enn áttu fimm bestu skíðamenn- irnir frá því í fyrri umferð eftir að fara niður. Heimsmeistarinn í stór- svigi, Von Griinigen, kom næstur og var í töluverðu basli efst í brautinni, en náði sér ágætlega neðri hlutann, en ógnaði ekld tíma Kristins og var rúmlega sekúndu á eftir. Svíinn Martin Hansson datt og var úr leik og þá voru aðeins þrír sterkustu eft- ir; Sigfred Voglreiter, Austurríki, komst ekki nálgæt besta tímanum og varð að sætta sig við 7. sæti. Kjetil Andre Aamodt, heims- og ólympíumeistai-i, var næstsíðastur af stað. Hann keyrði nokkuð greitt og það fór um Kristin sem beið við endamarkið. Millitími hans lofaði góðu, en tíminn nægði aðeins í fjórða sæti. Enn var Kristinn annar og aðeins einn eftir að fara niður, Thomas Sykora, sjálfur heimsbikar- hafinn í svigi. Hann fór vel af stað, vissi að hann þurfti að gefa allt sem hann átti til að halda efsta sætinu. Hann fór sér um of, réð ekki við ferðina og keyrði út úr og hætti. Kristinn fagnaði silfurverðlaunun- um og um leið var hann kominn í hóp þeirra bestu. Einstakt afrek Það er einstakt að skíðamaður með rásnúmer 49, eins og Kristinn, nái að komast á verðlaunapall á heimsbikarmóti. Það hefur reyndar nokkrum sinnum gerst í bruni eða stórsvigi, en þá er það vegna þess að rennslið í brautinni lagast þegar á líður. En bað er allt annað í svig- inu þar sem skíðafærið versnar með hverjum keppandanum sem rennir sér niður. Með þessum árangin hef- ur hann skráð nafn sitt í sögu skíða- íþróttarinnar, ekki bara hér heima heldur á alþjóða vettvangi. Sigurvegarinn Stangassinger sagðist eftir keppnina ekki hafa þekkt til Kristins áður og bætti við; „en eitt er víst, að óvænt afrek af þessu tagi glæða skíðaíþróttina nýju lífi,“ sagði hann. Flugelda- sýning á Ólafsfirði SKOTIÐ var upp flugeldum í garðinum yið hús foreldra Kristins á Ólafsfirði klukkan tvö aðfaranótt sunnudags. Það var Tómas Leifsson, fyrrum skíðakappi frá Akureyri, sem keyrði út á Ólafsfjörð og skaut um flugeldunum til heiðurs ár- angri Kristins. Hann kom reyndar við á lögreglustöðinni áður en hann skaut þeim upp til að fá leyfi, sein var auðfeng- ið. Fjöldi fólks kom saman í Tjarnarborg á laugardags- kvöldið til að horfa á beina út- sendingu frá Park City. Fögn- uður Ólafsfirðinga vai- mikill. Leitner þjálfar Kristin ÞJÁLFARI Kristins og finnska landsliðsins er Austurríkis- maðurinn Christian Leitner. Hann er giftur þýsku konunni Michaclu Gerg, sem var ein fremsta skíðadrottning Þýska- lands. Hann er mjög virtur þjálfari og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Hann fékk mikla athygli út á árang- ur Kristins í Park City enda fréttamenn forvitnir að vita hver þjálfar þessa nýju svig- stjörnu. Að sögn Benedikts Geirsson- ar, formanns SKÍ, hefur Leitner mjög góð sambönd í skíðahreyfingunni, sem skiptir miklu máli. „Eftir að við uáð- uin samninguiu við Finnana fyrir tveiinur árum um að Kristinn fengi að æfa með þeim fór árangurinn að koma í ijós. Ég hitti Leitner á heims- meistaramótinu í Sierra Nevada fyrir tveimur árum og þá strax sýndi hann mikinn áhuga á Kristni. Leitner sagði þá að hann gæti náð laugt, gæti verið einn af tíu til fimm- tán bestu svigmönnum heims,“ sagði formaðurinn. Hvað er heimsbikarmót? HEIMSBIKARMÓT eru skipulögð af Aiþjóða skíðasambandinu. í þvi taka þátt allir bestu skíðamenn heims. Keppt er um svokölluð heims- bikarstig. Sá sem hlýtur flest stig yf- ir veturinn er krýndur heimsbikar- meistaii. Þrjátíu fyrstu keppendur í hverju móti fá stig, 100 stig fyrir fyrsta sætið, 80 fyrir annað sætið, 60 fyrir þriðja og 50 stig fyrir fjórða og svo framvegis. Peningaverðlaun eru veitt fyrir efstu sætin. Styrkleiki mótanna er sambærilegur við Heimsmeistaramót og Ólympíuleika. Reyndar má segja að heimsbikar- mótin séu enn sterkari þvi kvóti er á þátttöku þjóða í hverri grein á ÓL og HM. Sem dæmi um það mega Aust- urríkismenn aðeins senda fjóra keppendur í svigkeppni ÓL, á meðan þeir eru með tíu í heimsbikarmótun- um og allir innan við 30 á heimslista. Rásröð keppenda fer eftir fyrri ár- angri í heimsbikarmótum. Sá sem er með flest heimsbikarstig, fær að ráða rásnúmeri sínu í fyrsta ráshópi, sem telur 15 stigahæstu keppendur. Þeir sem koma á eftir raðast ein- göngu eftir stöðu þeirra á heimsbik- arstiga listanum hverju sinni. Þeir sem ekki hafa heimsbikarstig, eins og Kristinn fyrir mótið í Park City, raðast síðan þar á eftir og þar ræður staða keppenda á FlS-listanum, styrkleikalista Alþjóða skíðasam- bandsins, röðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.