Morgunblaðið - 25.11.1997, Side 8

Morgunblaðið - 25.11.1997, Side 8
8 C ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ SUND Sundfélag Hafnarfjarðar sigraði þriðja árið í röð og sló sex ára gamalt stigamet SFS » Þau reyna við lágmörk- infyrirHMí Astralíu FIMM íslenskir sundmenn taka þátt í móti í Örebro í Svíþjóð um næstu helgi til að freista þess að ná lágmörkum fyrir heimsmei8taramótið í Ástralíu nk. janóar. Það eru SH-ingamir Öm Amarson, sem hefur reynd- ar náð tilsettum lágmörkum, Hjalti Guðmundsson, sem þarf að bæta tíma sinn í 100 m bringusundi um fjóra tíundu- hiuta úr sek., Lára Hrund Bjarg- ardóttir, en hún verður að bæta sig um u.þ.b. þijár sekúndur í 200 m íjórsundi, og Halldóra Þorgeirsdóttir, sem stefnir á að taka þátt á Ölympíuleikunum í Sidney árið 2000 og öðlast því dýrmæta reynslu með þátttöku í móti sem þessu. Auk þeirra verður Kolbrún Ýr Kristjáns- dóttir, ÍA, með í för, en hún freistar þess að ná HM-lágmarki í í 100 m baksundi og 50 m skriðsundi. í fyrrnefndu grein- inni þarf hún að bæta sig um rúmlega sekúndu, en um þijá tíunduhluta i þeirri síðarnefndu. Kátt í höllinni STEMMNINGIN í Sundhöll Reylq'avíkur var engri lík og hávaðinn var á köflum ærandi. Nokkrir starfsmenn mótsins dóu þó ekki ráðalausir og voru með tappa í eynmum til að gera vist- ina bærilegri. Hvatningaróp stuðningsmanna sveitanna setja óneitanlega skemmtilegan svip á fjölmenn sundmót, sem eru að þvi leyti á meðal skemmtileg- ustu íþróttaviðburða hér á landi. Gunnar meiddist GUNNAR Steinþórsson, 13 ára sundmaður úr Aftureldiugu, meiddist á ökkla er hann stakk sér til sunds i 100 m skriðsundi á sunnudag. Hann fór strax upp úr lauginni og fékk aðstoð. Gunnar missteig sig á mánudag- inn fyrir rúmri viku og var við- kvæmur i ökkla fyrir vikið. Veitum þeim von- andi harð- ari keppni næst Keflvíkingar bættu árangur sinn frá því í fyrra um 819 stig, en þá höfnuðu þeir í þriðja sæti. „Ég er mjög ánægður með bæting- una, sérstaklega vegna þess að okkar besti sundmaður, Eydís Kon- ráðsdóttir, var ekki með. Hún var með í fyrra, eins og tveir aðrir sem syntu mjög vel í fyrra en voru ekki með okkur núna. Þetta sýnir bara hversu góð framgangan er hjá ungu sundmönnunum okkar. Það er nokkuð sem við ætlum að byggja tá. Vonandi verður framhald á þeirri þróun hjá okkur. Þetta er ungt og efnilegt lið og við stefnum vita- skuld að því að geta velgt Hafnfirð- ingunum undir uggum bráðlega, annars værum við ekki í þessu. Við erum baráttujaxlar. Við veitum þeim vonandi harðari keppni næst,“ sagði Eðvarð Þór. Morgunblaðið/Jón Svavarsson SVEIT Sundfélags HafnarfjarAar fagnar slgri sínum í Blkarkeppnl SSÍ í Sundhöll Reykjavíkur. Við emm besta liðid... og því fær enginn breytt SVEIT Sundfélags Hafnarfjarð- ar undirstrikaði^firburði sína í Bikarkeppni SSI, sem fram fór í Sundhöll Reykjavíkur um helg- ina. SH sigraði í keppninni þriðja árið í röð, hlaut 29.915 stig og sló stigamet SFS frá 1991,29.029 stig. Fjögur ís- landsmet voru slegin - öll af liðsmönnum SH. Örn Arnarson setti þrjú íslandsmet og Lára Hrund Bjargardóttir eitt. Engum tókst að ógna sigursælli sveit Hafnfirðinga að þessu sinni, en það kom fáum á óvart. fgggfggggggf SH hefur á að skipa Edwin flestum færustu Rögnvaldsson sundmönnum lands- skrifar ins um þessar mundir. Sveitin vann nú með meiri mun en áður, eða 3.369 stigum. Keflvíkingar höfnuðu í öðru sæti með 26.546 stig og höfðu þannig sætaskipti við sveit Ægis frá því í fyrra, en síðar- nefnda sveitin varð þriðja, hlaut 24.640 stig. Á sunnudag, sem var síðasti keppnisdagur af þremur, var tilraun Hafnfírðinga við að slá stigamet SFS mest spennandi. Er nýtt og glæsilegt met SH var stað- fest á verðlaunaafhendingunni í mótslok ætlaði allt um koll að keyra í Sundhöllinni - markmiðinu var náð. í tilefni dagsins sungu Hafn- fírðingar: „Við erum besta liðið ... og því fær enginn breytt!" Órn Arnarson fór fyrir Hafnfírð- ingum með glæsilegri frammistöðu - stakk sér fímm sinnum til sunds og sló því íslandsmet oftar en ekki. „Menn verða bara að leggja eitt- hvað á sig. Maður bara uppsker eins og maður sáir. Ég átti alveg eins von á því að setja met núna. Ég vissi að ég var í mjög góðri æfingu, að ég ætti möguleika á að setja tvö eða þijú Islandsmet," sagði Öm. Hann og flestir félaga hans í SH hafa nú verið á sigur- braut í Bikarkeppninni í þijú ár og verða það líklega áfram í nokkur ár til viðbótar. „Ef liðsheildin og samstaðan verður eins og hún er núna, þá höldum við áfram á sigur- braut,“ sagði hann. Metaregn og mlkil stemmning Stemmningin í Sundhöllinni var gífurleg alla helgina. Stuðnings- menn sveitanna fjölmenntu á laug- arbakkann og hvöttu fulltrúa sína til dáða. Það hefur eflaust átt þátt í þeim fjölda meta sem féllu, en þau voru alls sautján - fjögur ís- landmet, þijú íslandsmet þroska- heftra og tíu aldursflokkamet. Örn, sem er aðeins 16 ára, setti eins og áður segir tvö íslandsmet, í 100 m baksundi og 200 m fjór- sundi. Baksundsmetið sló hann raunar í tvígang. í fyrra skiptið kom hann í mark á 55,92 sek. og bætti þar með met Loga Jes Krist- jánssonar úr ÍBV, 56,23 sek., sem sett var á Meistaramóti íslands í Vestmannaeyjum í mars sl. Örn stakk sér fljótlega aftur til sunds og bætti metið enn frekar, synti á 55,71 sek. Öm setti annað íslandsmet í fyrstu grein sunnudagsins, 200 m fjórsundi, og gaf félögum sínum í SH tóninn á lokasprettinum. Synti hann vegalengdina á 2.04,27 mín. og bætti met Eðvarðs Þórs Eð- varðssonar, sem fylgdist með af bakkanum sem þjálfari Keflvík- inga, um tæpa sekúndu, en gamla metið setti Eðvarð í Éyjum árið 1991. Bæði met Amar em vita- skuld piltamet. Lára Hrund Bjargardóttir, sem gekk til liðs við SH fyrir yfírstand- andi tímabil, setti einnig íslandsmet í 200 m fjórsundi, bætti átta ára gamalt met Ragnheiðar Runólfs- dóttur um tæpa hálfa sekúndu er hún kom í mark á 2.20,28 sek. Lára Hrund er 16 ára og keppir því í stúlknaflokki, en hún setti tvö stúlknamet. Annað þeirra samhliða íslandsmetinu og hitt í 200 m skrið- sundi. Hún var vitaskuld hæstánægð með sigurinn, en hún er nýliði í SH-hópnum. „Þetta er alveg meiri- háttar tilfínning. Það er svo rosalega góður andi í hópnum og allir standa svo vel saman. Við vorum alveg ákveðin í að ná stigametinu. Við hefðum jafnvel viljað komast yfír þijátíu þúsund stig, en það kemur bara næst. Þetta gekk vel og það var lítið um mistök," sagði Lára. „Ég ætlaði mér að setja íslandsmet og ég er auðvitað ánægð með að það skuli hafa tekist," sagði hún. Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, ÍA, setti þijú telpnamet - öll á laugar- dag. Raunar sló hún metið í 100 m baksundi í tvígang. Hitt metið setti hún í 200 m fjórsundi. Hjörtur Már Reynisson, 14 ára Ægismaður, setti tvö drengjamet, í 200 m flug- sundi á laugardag og í 100 m flug- sundi á sunnudag. íris Edda Heim- isdóttir, 13 ára sundkona úr Kefla- vík, setti telpnamet í 200 m bringu- sundi á laugardag. Frábær stemmning ENGLENDINGURINN Brian Mars- hall hóf að þjálfa hjá Sundfélagi Hafnarfjarðar I fyrra og vann því Bikarmeistaratitil í annað sinn um helgina. „Þetta er mjög notaleg til- fínning. Við vorum talin sigur- stranglegust fyrir keppnina, en við urðum þrátt fyrir það að stíga skref- ið til fulls. Við vildum líka slá stiga- metið og náðum því báðum mark- miðunum, sem við höfðum sett okk- ur í upphafi - að halda bikarnum og að slá metið. Við ákváðum það í sameiningu, þegar við settumst niður og bárum saman bækur okkar varðandi markmið okkar í þessari keppni. Það tókst og það er mikill léttir að þetta er allt í höfn,“ sagði Marshall. Hveiju þakkar sá enski þann árangur, sem félagið hefur náð und- anfarið? „Stemmningin innan hóps- ins er frábær, allir vita hvað þeir vilja og stefna að því að verða best- ir. Að baki liggur þrotlaus undirbún- ingur og við eigum bænum, foreldr- unum og stjórn félagsins mikið að þakka fyrir góðan stuðning," sagði þjálfarinn. Hjalti Guðmundsson átti dijúgan þátt í glæstum sigri SH-sveitarinnar um helgina, var nærri því að setja íslandsmet í 100 m bringusundi. „Ég ætlaði mér að slá metið,“ sagði hann, en hann átti þó þátt í því að slá annað met - stigamet SFS. „Við ákváðum í byijun tímabilsins að reyna að slá þetta met.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.