Morgunblaðið - 25.11.1997, Qupperneq 12
I
KNATTSPYRNA
Sigurður Jónsson á miðj-
unni hjá Dundee United
SIGURÐUR Jónsson kom inná
um miðjan seinni hálfleik og
lék á miðjunni hjá Dundee
United á móti Celtic f skosku
úrvalsdeildinni um helgina,
fór í læknisskoðun og skrifaði
síðan undir samning, sem
gildir til vors 2000.
'ijetta gerðist allt mjög snöggt,
Örebro og Dundee náðu sam-
komulagi á föstudagskvöld, ég
flaug hingað morguninn eftir, fór
beint út á völl, í galla og var skipt
inná þegar staðan var 3:0,“ sagði
Sigurður við Morgunblaðið eftir
að hafa skrifað undir samninginn.
Celtic vann 4:0 en liðin mætast
í úrslitum Coca-Col- deildabikar-
keppninnar á sunnudag og sagði
Tommy McLean, þjálfari Dundee
Utd., í gær að vel gæti verið að
Sigurður yrði þá í byrjunarliðinu.
„Það fer eftir því hvernig honum
gengur á æfingum í vikunni," sagði
hann en Sigurður áréttaði að hann
hefði ekki leikið knattspyrnu í
mánuð og væri því ekki í leikæf-
ingu. „Vissulega tekur tíma að
komast í gang á ný en það yrði
ekki leiðinlegt að byija í bikarúr-
slitaleik að viðstöddum 60.000
áhorfendum."
Endurtekiö efni hjá Hibs
Hibernian byijaði mjög vel í
Skotlandi og var í fyrsta sæti eftir
fimm umferðir en tapaði 1:0 fyrir
St. Johnstone um helgina - sjö-
yndi tapleikur liðsins í röð - og
falldraugurinn vofir yfir því. Hibs
hefur ekki sigrað á útivelli og byij-
unin á líðandi tímabili er sú versta
í 122 ára sögu félagsins.
„Það er leiðinlegt að uppskera
ekki neitt,“ sagði Ólafur Gott-
skálksson við Morgunblaðið, en
hann hefur yfirleitt fengið góða
dóma fyrir markvörsluna og ekki
verið sakaður um mörkin.
Bjamólfur Lárusson kom inná
hjá Hibs þegar um 20 mínútur
voru til leiksloka.
Arnar ánægöur hjá Bolton
Amar Gunnlaugsson kom inná
sem varamaður á 79. mínútu þeg-
ár Bolton gerði markalaust jafn-
tefli í Leicester um helgina. Arnar,
sem hefur komið inná í nokkrum
leikjum hjá Bolton og leikið einn
heilan leik, er ánægður með gang
mála hjá sér en óánægður með
stöðu liðsins.
„Mér hefur gengið mjög vel,
þegar ég hef fengið tækifæri, og
hef fallið fyrr inní hópinn en ég
þorði að vona,“ sagði Arnar við
Morgunblaðið. „Colin Todd, stjóri
liðsins, hefur sagt mér að hann sé
ánægður með mig og ég hef engar
ahyggjur. Tímabilið hérna er langt
og strangt og það tekur tíma að
festa sig í sessi. Dýrir leikmenn
hafa verið keyptir og því er eðli-
legt að þeir hafi forgang en ég
held mínu striki.“
Guðni Bergsson, fyrirliði Bolton,
xtiun
ÞÓRÐUR Guðjónsson (t.h.) skoraði fyrir Genk gegn RWD Molenbeek.
Þórður skoradi fyrir Genk
órður Guðjónsson og félagar í
Genk unnu RWD Molenbeek
3:0 um helgina og eru í þriðja sæti
í belgísku deildinni. Þórður gerði
annað mark Genk og sagði að sigur-
inn hefði verið síst of stór.
„Þetta voru miklir yfirburðir, við
vorum betri allan tímann og hefðum
þess vegna getað unnið sex eða sjö
núll,“ sagði Þórður við Morgunblað-
ið. Hann missti af einum leik á dög-
unum vegna eymsla í nára en lék
tvo leiki í liðinni viku. „Þetta voru
álagsmeiðsl en ég er að mestu leyti
búinn að ná mér og geri það endan-
lega í jólafríinu,“ sagði hann. Síð-
asta umferð fyrir jól verður leikin
20. desember en þráðurinn verður
tekinn upp á ný í bikarkeppninni 14.
janúar og svo deildinni þremur dög-
um síðar.
FC Brúgge gerði 2:2 jafntefli við
Ekeren og hefur ekki tapað leik, er
með 26 stig eftir 11 leiki en næstu
lið hafa leikið 13 leiki. Harelbeke
gerði 3:3 jafntefli við Charleroi og
er með 24 stig en Genk er með 23
stig eins og Lommel og Ekeren. „Það
er ágætt að vera í þriðja sæti og
vonandi höldum við því,“ sagði Þórð-
ur. „Við byijuðum vel og síðan komu
nokkrir slakir leikir en við virðumst
vera að ná okkur á strik á ný.“
var kátur eftir jafnteflið við Lei-
cester. „Það er léttara yfir mönn-
um nú en eftir leikinn í Sheffield,"
sagði Guðni, „en auðvitað vildum
við frekar sigra í þessum leik en
gera jafntefli. Að þessu sinni náð-
um við að veijast vel, sérstaklega
föstu leikaðferðunum sem hafa
verið aðal Leicester. Við þurftum
að bæta okkur og gerðum það.“
Andri meiddist með Zwickau
Andri Sigþórsson lék með FSV
Zwickau um helgina en var borinn
meiddur af velli skömmu fyrir hlé
og fluttur í skyndi í sjúkrabíl á
sjúkrahús þar sem óttast var að
hann hefði beinbrotnað eftir sam-
stuð. „Sem betur fer var þetta
ekki alvarlegt,“ sagði Andri við
Morgunblaðið. „Ég fór upp í skalla-
bolta og mótheiji rak hnéð í bakið
á mér með þeim afleiðingum að
ég missti andann og lá eins og
slytti á vellinum. Menn héldu að
ég væri illa brotinn en í ljós kom
að vöðvar í baki höfðu tognað og
rifnað. Hugsanlega get ég ekki
spilað í tvær vikur en læknirinn
sagði ekki útilokað að ég gæti
verið með um næstu helgi og ég
stefni að því.“
Zwickau hefur gengið illa í 2.
deild í Þýskalandi og hafði aðeins
fagnað einum sigri þegar Andri
kom til liðs við það í liðinni viku
en hann er samningsbundinn KR
og var lánaður til þýska liðsins í
vetur. „Við byijuðum hræðilega á
sunnudaginn, misstum mann út
af með rautt eftir 20 mínútur og
svo var ég borinn af velli tveimur
mínútum fyrir hlé. Einn hjá Leipz-
ig fékk rauða spjaldið í byijun
seinni hálfleiks, í kjölfarið skoruð-
um við og strákarnir héldu fengn-
um hlut. Þetta var fyrsti sigur
Zwickau í Leipzig í 42 ár og gleð-
in að vonum mikil en liðið er enn
í fallsæti. Eigi að síður er létt yfir
mannskapnum enda rétti liðið úr
kútnum og eins og staðan er nú
þarf aðeins fimm stig til að kom-
ast af hættusvæðinu.“
Kristinn R.
til Eyja
KRISTINN R. Jónsson, fyrr-
um leikmaður Fram og ís-
lenska landsliðsins í knatt-
spymu, hefur verið ráðinn
aðstoðarþjálfari íslandsmeist-
ara ÍB V til næstu tveggja ára
frá og með næstu áramótum.
Auk þess mun hann sjá um
þjálfun 2. og 4. flokks karla
hjá félaginu. Kristinn hefur
umsjón með vetraræfingum
íslandsmeistaranna i Eyjum
frá áramótum.
Jóhannes B.
komst í úrslit
JÓHANNES B. Jóhannesson
komst um helgina í úrslit á
Heimsmeistaramótinu í snóker
sem fram fer i Zimbabwe, en
Kristján Helgason komst ekki
upp úr sínum riðli. Krislján lék
•njög vel um helgina og i gær
vann hann Bandaríkjamenn
4-0 á 46 minútum og gerði þá
meðal annars 112 í einu stuði.
Þrátt fyrir að vinna I síðustu
þremur leikjum sínum dugði
það honum ekki til að komast
áfram.
Jóhannes lenti í kröppum
dansi á laugardaginn og tapaði
þá fyrir Belgíumeistaranum
3-4 í æsispennandi leik þar sem
Belginn lagði tvo snókera á
Jóhannes undir lok siðasta
ramma og vann 75:74. Jóhann-
es lagði siðan Skota 4-3 og loks
heimamann 4-1 og komst þar
með áfram í úrslit.
faém
FOLX
■ BJARKI Sigurðsson var
markahæstur hjá Drammen með
8 mörk er félagið félagið tapaði
27:22 fyrir Heimdal á útivelli um
liðna helgi. Bjarki og félagar áttu
undir högg að sækja lengst af og
voru 14:11 undir í hálfleik. Þeim
tókst þó að minnka muninn í 19:18
þegar 18 mínútur voru til leiks-
loka, en misstu þá dampinn og
heimamenn tryggðu sér öruggan
sigur.
■ DRAMMEN heldur 4. sæti
norsku deildarinnar þrátt fyrir tap-
ið, er með 12 stig að loknum 10
umferðum. Runar og Viking eru
í efstu sætum með 18 stig en
Sandefjord er með 16 stig eftir
tap í nágrannaslagnum við Runar,
30:27. Viking vann stórsigur á
Elverum á heimavelli, 36:23.
■ BJARKI er í öðru sæti í stjörnu-
gjöf Verdens Gang eftir 10 umferð-
ir, hefur fengið 14 stjörnur. Efstur
er Simen Muffetangen leikmaður
Kragero með 18 stjörnur. Bjarki
fékk eina stjörnu fyrir framgöngu
sína í leiknum við Heimdal.
■ ESLÖV félagiðs sem Helga
Torfadóttir og Svava Sigurðar-
dóttir handknattleiksmenn leika
með í sænsku úrvalsdeildinni tap-
aði um helgina 31:22 fyrir Skuru
á útivelli. Eslöv er í 9. sæti af 12
liðum með 9 stig.
■ VALUR Ingimundnrson gerði
14 stig þegar lærisveinar hans í
körfuknattleiksliði Óðinsvéa sigr-
uðu Klostrup 89:80 um helgina.
Kristinn Friðriksson sem leikur
einnig með Óðinsvéum gerði 27
stig, Henning Henningsson 19_og
Pétur Vopni Sigurðsson 5. Óð-
insvé eru í 3. til 5. sæti efstu deild
danska körfuknattleiksins.
ENGLAND: 211 2X1 111 2X21
ITALIA: X X 1 X21 1X1 1111X