Morgunblaðið - 03.12.1997, Blaðsíða 4
ÍHSmR
metjg«#fafoit>
Um 50 millj.
kr. fyrir
leikáHM
Landsliðið
til Lúxem-
borgar
ÍSLENSKA landsliðið í körfu-
knattleik tekur þátt í móti i
Lúxemborg á milli jóla og
nýárs. í fyrra keppti liðið á
móti í Danmörku á sama tíma
en nú verður haldið tíl Lúx-
emborgar og þar att kappi
við Austurríkismenn, Lúxem-
borgara og landslið Póllands,
skipað leikmönnum 22 ára og
yngri.
ALÞJÓÐA knattspymusam-
bandið, FIFA, greiðir hverju
landsliði sem samsvarar um
50 miiy. kr. fyrir hvem leik
í úrslitakeppni Heimsmeist-
arakeppninna r, sem verður i
Frakklandi næsta sumar. Að
auki fær hvert knattspymu-
samband, sem á lið í keppn-
inni, um 38 miHj. kr. vegna
undirbúningskostnaðar.
FIFA greindi frá þessu í
gær og Lennart Johansson,
forseti Knattspyrausam-
bands Evrópu og formaður
undirbúningsnefndar HM,
sagði að sömu reglur giltu
varðandi spjöld og vom við
líði á HM í Bandaríkjunum
1994. Það þýðir að Ieikmenn,
sem em nú með tvö gul spjöld
á bakinu eftir riðlakeppnina,
byrja með hreinan skjöld í
úrslitakeppninni, nema um sé
að ræða tvö gul spjöld í sama
leiknum og þar af leiðandi
brottvikningu.
faóm
FOLK
íslendingar mæta einu
sterkasta lidi Evrópu
ÍSLENDINGAR leika þriðja leik
sinn í Evrópukeppni landsliða
í körf uknattleik í kvöld og hefst
hann klukkan 20 f Laugardals-
höll. Að þessu sinni eru það
Króatar sem koma í heimsókn,
en þeir urðu í þriðja sæti á
Ólympíuleikunum íAtlanta
1996. Herbert Arnarsson, einn
( besti leikmaður liðsins á móti
* Hollendingum ísíðustu viku,
meiddist á æfingu í gærkvöldi
og verður ekki með í kvöld. í
hans stað valdi Jón Kr. Gísla-
son, landsliðsþjálfari, Nökkva
Má Jónsson úr KR í liðið.
Jón Kr. Gíslason, landsliðsþjálfari,
gerði engar breytingar á lands-
liðinu frá tveimur síðustu leikjum
enda segist hann nokkuð sáttur við
hvernig strákarnir hafí leikið þótt
ekki hafi tekist að sigra. „Ég er
sáttur við hvemig menn hafa unnið
þetta. Við höfum leikið nokkuð stöð-
ugt og hefðum með smá heppni
getað sigrað í báðum leikjunum. Við
erum með 45% nýtingu í þriggja
stiga skotum og það er mjög gott,“
sagði landsliðsþjálfarinn.
Það má því reikna með að Falur
Harðarson verði leikstjórnandi, Teit-
ur Örlygsson verður í stöðu hins
bakvarðarins, Sigfús Gizurarson og
Hermann Hauksson verða framheij-
ar óg Guðmundur Bragason mið-
heiji. Þá byija á bekknum þeir Jón
Arnar Ingvarsson, Guðjón Skúlason,
Helgi Jónas Guðfmnsson, Sigfús
Gizurarson og Friðrik Stefánsson.
íslenska landsliðið er varla öf-
undsvert af hlutverki sínu í kvöld
því Króatar eru með gríðarlega
sterkt lið og þó að það hafí tapað
um helgina í Bosníu fyrir Bonsíu-
Hersegóvínu, þá er það án efa sterk-
asta liðið í riðlinum. Króatar koma
ekki með sitt allra sterkasta lið því
það vantar þá þijá sem leika í NBA
í Bandaríkjunum; bakvörðinn Toni
Kukoc hjá Chicago Bulls, Zan Tabak
hjá Toronto og Stojko Vrankovic
sem leikur með LA Clippers. Þessir
heiðursmenn eru allir mjög hávaxn-
ir, Kukoc 210 sentimetrar, Tabak
211 og Vrankovic sýnu stærstur en
hann er 216 sentimetrar.
saman er Ijóst að það verður við
rámman reip að draga því meðalhæð
króatísku Ieikmannanna er 202
sentimetrar en meðalhæð íslenska
liðsins er 11 sentimetrum lægri.
Til gamans má geta þess að í ís-
lenska liðinu eru tveir leikmenn
sléttir tveir metrar, Guðmundur
Bragason og Hermann Hauksson,
og Friðrik Stefánsson er 203 senti-
metrar. Fjórði stærsti maður liðsins
er Sigfús Gizurarson, 194 sentimetr-
ar, en lágvaxnasti leikmaður Króata
er 195 sentimetrar. Sá stærsti er
hins vegar 210 sm.
Leikurinn hefst eins og áður sagði
klukkan 20 í LaugardalshÖll og
þurfa fullorðnir að greiða eitt þúsund
krónur til að sjá leikinn en börn 400
krónur.
Morgunblaðið/Golli
HERBERT Arnarsson, sem var elnn besti leikmaður íslenska liðslns á móti Hollendingum,
verður fjarri góðu gamni er ísland mætir Króatíu f undankeppnl EM i Laugardalshöll í kvöld.
Hann melddist á æfingu í gærkvöldi og talið að hann hafi rlfið liðþófa í hné.
Hinn stórskemmtilegi miðheiji
Dino Radja verður heldur ekki með,
en hann meiddist í leiknum um helg-
ina og varð því að sitja heima. Hann
lék í fjöldamörg ár með Boston
Celtics í NBA en flutti sig til Panat-
hinaikos í Grikklandi. Þrátt fyrir að
þessa menn vanti í lið Króata eru
þeir ekki á flæðiskeri staddir með
mannskap því mikil og löng hefð er
fyrir körfuknattleik á þessu svæði
og mikið til af sterkum leikmönnum.
Vert er að benda fólki á að fylgjast
með leikstjórnandanum Damir
Mulaomerovic og bakvörðunum Sla-
ven Rimac og Josip Sesar, en þessir
þrír þykja með betri körfuknattleiks-
mönnum álfunnar um þessar mundir.
„Ég held við höfum sýnt í þessum
tveimur leikjum að við eigum fullt
erindi í keppnina. Núna eru það
Króatar og auðvitað vitum við að
það verður gríðarlega erfitt, en þetta
er kærkomið tækifæri fyrir körfu-
knattleiksáhugafólk til að sjá eitt-
hvert besta landslið Evrópu leika.
Ef fólk mætir ekki á svona leiki þá
spyr maður sjálfan sig: Hvað þarf
til að fólk mæti?,“ sagði Ólafur
Rafnsson, formaður Körfuknatt-
leikssambandsins, í gær.
Króatar mun hávaxnari
Það sakar ekki að vera hávaxinn
í körfuknattleik, sérstaklega ef
menn kunna einnig að fara með
knött og eru skýrir í hugsun í þokka-
bót. Séu lið íslands og Króatíu borin
■ ATLI Rúnarsson, markvörður
Þórs frá Akureyri, hefur ákveðið
að leika með Dalvíkingum 5 2.
deildinni í knattspymu næsta sum-
ar. Atli hefur leikið tvö síðustu
tímabil með Þór en var áður í
marki Dalvikinga. Hann leikur
hins vegar áfram með handboltaliði
Þórs í 2. deildinni.
■ MICK McCarthy skrifaði í gær
undir nýjan tveggja ára samning
sem þjálfari írska landsliðsins í
knattspymu. Hann verður með liðið
fram yífír undankeppni EM árið
2000. McCarthy tók við landsliðinu
af Jack Charlton fyrir tveimur
árum, en liðið náði ekki að komast
í úrslitakeppni HM eftir að hafa
tapað 3:2 í aukaleikjum um sæti
við Belgíu.
■ RENE Vandereycken, þjálfari
Anderlecht, var í gær sagt upp
störfum hjá félaginu. Nýr þjálfari
verður ráðinn á næstu dögum.
Anderlecht, sem er eitt ríkasta og
þekktasta félag Belgíu, er nú neðan
við miðja deild og er úr leik í UEFA-
keppninni. Fyrrum þjálfari Feyeno-
ord, Arie Haan og annar Hollend-
ingur, Henk Houwaart, hafa verið
nefndir sem eftirmenn
Vandereyckens.
Latrell Sprewell sekt-
aður um 65 milljónir
Forráðamenn Golden State
Warriors ákváðu í gær að
sekta bakvörðinn Latrell Sprewell
um rúmlega 65 milljónir króna og
tóku hann um leið af launaskrá
um óákveðinn tíma; líklega eitt-
hvað fram yfír áramót. Astæðan
er að á mánudagsæfíngu liðsins
réðst Sprewell að P.J. Carlesimo
þjálfara sínum. „Við viljum sýna
leikmönnum að svona hegðun er
ekki liðin hjá okkur,“ sagði tals-
maður félagsins í gær. „Sættist
menn getur verið að refsingin verði
milduð, en svo er vel hugsanlegt
að við lengjum hana,“ bætti hann
við.
Að sögn Carlesimos rifust þeir
Sprewell á æfíngu og endaði það
með handalögmálum. Sprewell
rauk út en kom stundarfjórðungi
síðar og þá urðu aðstoðarþjálfarar
og aðrir viðstaddir að halda honum
því hann ætlaði aftur í Carlesimo.
Sprewell, sem er 27 ára og hef-
ur þrívegis leikið Stjörnuleik, er
stigahæstur í hinu lánlausa liði
Golden State með 21,4 stig að
meðaltali í leik. Hann hefur átt við
einhveija erfiðleika að stríða utan
vallar og missti til dæmis af flugi
með liðinu til Utah á föstudaginn.
Þjálfarinn tók hann útaf í leik við
LA Lakers hinn 9. nóvember en
þá voru Sprewell og O’Neal í
hrókasamræðum í miðjum leik
þegar Lakers var 35 stigum yfir
og fannst þjálfaranum það ekki
viðeigandi. Sprewell kom ekki
meira við sögu í þeim leik og var
ekki í byijunarliðinu í næsta leik
á eftir.
Einn leikur var í fyrrinótt í
NBA. Utah Jazz vann New Jersey,
100:95.
KORFUKNATTLEIKUR