Morgunblaðið - 04.12.1997, Blaðsíða 2
2 C FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1997
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Michael Owen
stjaman
í Liverpool
Michael Owen, miðherjinn ungi hjá Liverpool,
er skærasta stjarna enska félagsins um þessar
mundir. Steinþór Guðbjartsson kynnti sér pilt
og umsagnir um hann.
ótt miðherjinn sé rétt að
byrja ferilinn er þegar farið
að ræða um að pilturinn, sem
verður 18 ára um miðjan desember,
eigi eftir að verða enn betri en Ian
Rush og Robbie Fowler. „Við erum
nú með þrjá góða miðherja og ekki í
neinni sérstakri röð,“ sagði Roy
Evans, knattspyrnustjóri Liverpool,
eftir að Owen hafði gert þrennu í 3:0
sigri á Grimsby í Coca-Cola bikarn-
um á dögunum, en Fowler og Karl-
heinz Riedle hafa fengið óvænta
samkeppni. Riedle, sem á glæstan
feril að baki síðan hann varð heims-
meistari með Þýskalandi 1990, sam-
gleðst samt stráknum. „Hann er frá-
bær og ég hef ekki séð betri mann á
hans aldri. Hann er aðeins 17 ára og
með það í huga er erfitt að gera sér í
hugarlund hvað hann á eftir að verða
góður.“ Glenn Hoddle, landsliðs-
þjálfari Englands, hafði Owen með
hópnum í undirbúningnum fyrh- vin-
áttulandsleikinn við Kamerún fyrir
skömmu og hann á mikla möguleika
á að verða yngsti A-landsliðsmaður
Englands.
Eðlileg framkoma
Þrátt íyrir skyndilega írægð er
pilturinn jarðbundinn. Hann er í um-
sjón manna sem vilja honum vel og
hann tekur vel ráðleggingum þeirra.
Evans verndar hann og vill hlífa
honum með því að láta hann sleppa
leik og leik. Terry, faðir hans og ma.
fyrrverandi leikmaður Everton en
nú útsendari Liverpool, hefur reynst
honum vel. „Hann tók mig afsíðis og
sagði mér hvað væri rétt að gera og
ég vissi að ég gæti treyst því sem
hann sagði,“ sagði Owen við enska
dagblaðið The Times.
Terry kom því til leiðar að sonur-
inn er með einn virtasta umboðs-
mann á Englandi, þann sama og
starfar m.a. fyrir Alan Shearer og
David Platt. Owen er með samning
við íþróttavörufyrirtækið Umbro,
sem gefur sig út fyrir að semja við
heilsteypta menn frekai- en þá sem
eru umdeildir á einhvern hátt.
Shearer er flaggskip fyrirtækisins
en Owen, sem er hreinskilinn og
heldur sig við staðreyndir, ýtir öllum
samanburði við miðherja Newcastle
til hliðar. „Eg hef alltaf verið svona.
Eg hef aldrei verið með neina tilgerð
í viðræðum eða á velli s- framkoman
er mér eðlileg."
Owen þykir ekki síst áhugaverður
vegna þess sem hann segir og hvem-
ig hann segir hlutina. Hann er skýr
og vingjarnlegur piltur, sem er vin-
sæll og virtur í vinahópi, en ákveðni
hans og markviss einbeitni er í engu
samræmi við aldurinn sem veit á
gott varðandi framtíðina í fótboltan-
um. Þessir hæfileikar hans eiga aug-
ljóslega ekki eftir að víkja fyrir
ærslagangi, drykkju eða óþroskaðri
framkomu sem t.d. Paul Gascoigne,
fyrirmynd Owens á leikvelli, hefur
átt í erfiðleikum með.
Enginn getur sagt fyrir um meiðsl
en Owen er ungur maður, sem geisl-
ar af sjálfsöryggi og vh’ðist hafa vald
yfir örlögum sínum. „Eg var sann-
færður um að ég stæði mig þegar ég
var valinn í byrjunarliðið í fyrsta
sinn,“ sagði hann í fyrrnefndu við-
tali. „Ég hef alltaf haft trú á sjálfum
mér. Eg hef ávallt búið mig undir að
verða atvinnumaður og þegar ég
fékk tækifærið var sjálfsöryggið í
lagi. Árangurinn á líðandi tímabili
kemur mér heldur ekki á óvart - ég
átti von á honum. Eg hef fundið fyrir
meiri vmðingu á tímabilinu en áður
en er áfram jarðbundinn. Eg bý í
foreldrahúsum nálægt Chester og
hef í hyggju að halda því áfram, því
ég virði fjölskyldu mína meira en allt
annað. Eg á enn sömu vinina og vil
trúa því að ég hafi ekki breyst of
mikið. Og ég breytist ekki núna. Eg
hef alltaf viljað vera knattspyrnu-
maður og ávallt búið mig undir það.
Margir tala um mikilvægi menntun-
ar en ég virðist ekki hafa séð tilgang-
inn með henni. Næði ég ekki að vera
atvinnumaður í knattspyrnu vildi ég
starfa að knattspyrnumálum. Eg hef
aldrei verið úti á lífinu og ég hugsa
ekki mikið um þá staðreynd að ég
gæti verið á kránni með félögunum.
Eg hef alltaf viljað vera knatt-
spyrnumaður og fylgjandi mynstri
verður ekki breytt. Gott er að vera
stilltur inná aga frá byrjun og það
lærði ég af pabba.“
Sjálfsöruggur
Owen var í knattspymuskóla
Knattspyrnusambands Englands í
Lilleshall í tvö ár. Hann lék síðan
nokkra leiki með varaliði Liverpool,
en fékk fyrsta leik sinn með aðallið-
inu, þegar það sótti Wimbledon heim
í maí sem leið, og skoraði 17 mínút-
um eftir að hafa verið skipt inná.
Markið var til vitnis um að það væri
byrjunin á einhverju sérstöku.
Pilturinn skoraði úr vítaspyrnu í
Reuters
MICHAEL Owen fagnar einu af mörkum sínum fyrir Liverpool.
fyrsta leik tímabilsins og hefur gert
mótherjunum lífið leitt með hraða
sínum og öryggi. Hann hræðist ekk-
ert, ekki einu sinni stærstu viðburð-
ina. Hann skoraði í fyrri leik Liver-
pool á móti Celtic í Evrópukeppni fé-
lagsliða og lék svo vel í fyrstu 10
leikjunum að Evans átti í erfiðleik-
um með að taka hann úr liðinu. Þeg-
ar Fowler var tilbúinn fór Riedle á
bekkinn en ekki Owen. „Menn verða
að einblína á toppinn,“ sagði Owen.
Trúi menn því að þeir séu betri en
hvaða mótherji sem er er hálfur sig-
ur unninn. Þetta er lykilatriði. Eg
fer í leik með því hugarfari að spila
eins vel og ég get. Standi ég mig vel
geri ég ráð fyrir að vera með í næsta
leik. Stjórinn á sér ekki uppáhalds-
leikmenn og standi leikmaður sig er
hann valinn aftur burtséð frá því
hverjir aðrir koma til greina."
Þegar Owen var krakki var hann
áhangandi Everton og heillaðist af
Graeme Sharp og Andy Gray en
Gascoigne varð fyrirmyndin eftir að
hafa sýnt snilldartakta í Heims-
meistarakeppninni 1990. Owen æfði
fyrst með enska landsliðinu fyrir
leikinn við Ítalíu I riðlakeppni HM í
október og viðurkenndi að hann
hefði verið agndofa þegar hann hitti
goðið og æfði með hetjunni. „Michael
var ekki á röngum stað allan tím-
ann,“ sagði Gascoigne.
Nýr kafli
Nýr kafli er tekinn við hjá Owen.
Fyrir tímabilið setti hann sér það
markmið að leika 12 leiki með aðal-
liði Liverpool. Hann hefur þegar náð
því. Næsta takmark er að ná 24
leikjum á tímabilinu og hann hefur
ekki gefið upp vonina um að komast í
landsliðshópinn sem fer í úrslita-
keppni HM,_ sem verður í Frakklandi
í sumar. „Ég vona að ég komist í
hópinn fyrr en síðar. Ég á ekki von á
að verða valinn í byrjunarliðið en
standi ég mig vel með Liverpool og
skori veit enginn hvað landsliðsþjálf-
arinn hugsar.“
Glímdu við spámennina
ENGLAND Árangur á heimavelli frá 1984 Vjjn KR ÍR m Þín spá
6. desember úrslit
1 Newcastle - Arsenal 4 0 5 9:9 1 X 2 X 2 1 X 2
2 Blackburn - Bolton 1 0 0 3:1 1 1 1
3 Tottenham - Chelsea 2 5 5 14:19 X 2 X 2
4 Leeds - Everton 6 1 0 12:2 T 1 1 X
5 Leicester - Crystal Palace 0 3 2 9:11 1 1 X 2 1
6 Derby - West Ham 2 0 2 3:4 1 1 1
7 Aston Villa - Coventry 7 5 0 18:6 1 1 í
8 Bury - Middlesbrough 0 0 0 0:0 2 2 X 2
9 Norwich - Sheffield Utd. 4 3 1 13:5 X 2 X 2 i X^ A
10 Q.P.R. - Sunderland 2 0 0 4:2 1 X 1 1 X
11 Portsmouth - Stoke 3 4 1 13:7 1 X 2 X 2 1
12 Manchester City - Wolves 1 0 1 4:1 X 2 2 1 X
13 Port Vale - Birmingham 1 0 1 4:2 1 1 X 2 i
Úrslití síðustu viku: | STAÐAN l 1 i i 2 i 3 4 5 STIG Fjöldi réttra
1 Fram m \o\ O “cT 12
Keflavík: 9réttir 2 IA 2 m ~2~ 4 16
Fram: 6réttir 3 Kefiavík 2 SB ~Ö~ O 2 27
in: 11réttir 4 KR I 2 m 2 12
5 ÍR ~ö~ l~2~ n BÉ 2 13
I næstu
viku
mætast:
ÍAog
Keflavík
Fiorentina - Parma
Roma - Atalanta
Udinese - Bologna
Brescia - Empoii
Lecce - Vicenza
Piacenza - Napoli
7 AC Milan - Bari
8 Perugia - Cagliari
9 Ravenna - Torino
10 Chievo - Venezia
11 Salernitana - Genoa
12 Treviso - Verona
13 Padova - Foggia
7:6
13:10
3:3
0:0
2:3
2:2
11:3
3:2
0:3
6:3
4:2
0:0
0:0
Urslit í
síðustu viku:
Þróttur: 7 réttir
Valur: 8réttir
m- 9 réttir
STAÐAN 1 i 2 I 3 4 5 STIG Fjöldi réttra
1 Valur m □J 2 3 17
2 Grindavík 1 m 2 3 19
3 Þróttur R. o ■B ~2~ 3 28
4 IBV 0 m O 12
5 Leiftur ~o~ 1 □ BB 1 17
I næstu
viku
mætast:
Grindavík
og Þróttur