Morgunblaðið - 06.12.1997, Page 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
Fer ekki til
Skotlands
án hunds-
ins Teds
1997
KNATTSPYRNA
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
BLAD
C
Stefán til C. Palace
Skagamaðurinn Stefán Þórðar-
son, sem leikur með Öster í
Svíþjóð, heldur til Englands á
sunnudag þar sem hann mun æfa
með Crystal Palace í vikutíma.
„Þeir hjá Palace vildu endilega fá
mig til æfínga og ég er auðvitað
ánægður með það. Það gekk þó
ekki þrautalaust að fá að fara því
Þorvaldur Makan æfir með Öste
þjálfarinn neitaði mér um farar-
leyfi, en stjómin tók af skarið og
gaf mér leyfi. Ég fékk boð um að
koma tii Englands sl. mánudag en
fékk ekki grænt ljós frá Öster fyrr
en í gær,“ sagði Stefán við Morgun-
blaðið.
Hann er samningsbundinn Öster
fram yfír næsta tímabil og gat því
ekki farið til æfinga hjá Crystal
Palace nema með leyfi sænska fé-
lagsins. „Þetta er spennandi og það
verður svo bara að koma í Ijós
hvert framhaldið verður."
Þorvaldur Makan Sigbjömsson,
sem lék með Leiftri síðasta tímabil
og var m.a. þriðji markahæsti leik-
maður deildarinnar, hefur æft með
Öster síðan á mánudag. Stefán
Þórðarson sagði að þjálfaranum lit-
ist vel á Þorvald og bjóst fastlega
með að honum yrði boðinn samn-
ingur.
SÆNSKI miðheijinn Lars-Gunnar Caiisti-and
hjá Vastra Frölunda hefur fengið tilboð frá St.
Johnstone í Skotlandi en fer hvergi nema heim-
ilishundurinn fái að fara með.
Samkvæmt breskum lögum verða öli dýr að
vera í ákveðinn tíma í sóttkví áður en þau fá að
fara inn í landið og í umræddu tilfelli þyrfti
hundurinn að vera í einangr-
un í sex mánuði. „Eg fer
ekki frá Svíþjóð án Teds,“
sagði miöheijinn sem er 24
ára og laus allra mála hjá
Vástra. Ekkert stendur mér
nær en liundurinn og hann
á ekki að h'ða fyrir að ég er
atvinnumaður. Fái hann
ekki að fara með mér verður
ekkert úr samningum."
Ted, sem er 10 mánaða,
hefur mætt á allar æfingar
með Carlstrand. „Hann er
kóngurinn í félagsheimil-
inu,“ sagði Svfinn. „Hann er
allra yndi hvort sem hann er
úti á velli eða inni í búnings-
herbergi að líta eftir fotun-
um mmum.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Sprewell
í árs bann
hjáNBA
Bandaríska körfuknattleiks-
deildin NBA setti LatreU
Sprewell í árs bann vegna hegðun-
ar hans, en Golden State Warriors
hafði áður rift samningi sínum við
Sprewell í kjölfar framkomu leik-
mannsins á æfingu í vikubyrjun,
þegar hann réðst á P. J. Carlesimo,
þjálfara liðsins, og hótaði honum
lífláti. Þetta er í fyrsta sinn sem fé-
lag í NBA riftir samningi við leik-
mann vegna svona máls.
Sprewell og Carlesimo hafa ekki
átt skap saman og upp úr sauð á
fyrmefndri æfingu. Þjálfarinn
gagnrýndi leikmanninn, þeir skipt-
ust á ókvæðisorðum og síðan kom
til handalögmála. Sprewell var
fleygt út af æfingunni en kom aftur
stundarfjórðungi síðar og sló þjálf-
arann. David Stem, framkvæmda-
stjóri NBA, sagði að framkoma
leikmannsins væri óafsakanleg
enda hefði seinni atlagan verið
ásetningur. „Iþróttadeild á ekki að
þurfa að viðurkenna eða láta fram-
komu viðgangast, sem er ekki þol-
uð annars staðar í þjóðfélaginu,“
sagði hann um ákvörðun NBA.
Sprewell gerði samning við
Warriors til fjöguma ára og átti að
fá 32 millj. dollara á samningstím-
anum. Hann hefur fengið 7,7 millj.
dollara af upphæðinni og fær ekki
meira, að sögn félagsins, en lög-
fræðingur hans sagði að réttur
leikmannsins yrði ekki fyrir borð
borinn. Garry St. Jean, fram-
kvæmdastjóri Warriors, sagði að
ákvörðun félagsins og NBA væri
rétt. „Smánarleg framkoma at-
vinnumanna hefur verið liðin allt of
lengi. Við setjum ákveðin mörk -
sumt er mikilvægara en sigur eða
tap.“
Eftir atvikið sagðist Sprewell
hafa gert mistök með þvi að ráðast
á þjálfarann. „Ég h't ekki framhjá
því en þetta gerðist og það voru
mistök," sagði hann og bað áhan-
gendur, fjölskyldu og vini afsökun-
ar en hvorki þjálfara né samheija
sína.
Árásin átti sér stað fjórum dög-
um eftir að Sprewell missti af flugi
til Salt Lake City vegna leiks við
Utah Jazz en á ýmsu hefúr gengið
hjá honum sem hefur ekki fallið í
kramið hjá þjálfaranum.
Sprewell fær ekki laun meðan
hann tekur út bannið. Hann hefur
leikið í fimm ár í deildinni og líð-
andi tímabil er hans besta til þessa
en kappinn hefur þrisvar verið val-
inn í stjörnuleik NBA. Þegar bann-
ið tók gildi var hann 10. stigahæsti
leikmaður deildarinnar með 21,4
stig að meðaltali í leik.
Reuters
Seizinger á sigurferð
ÞÝSKA stúlkan Katja Seizinger varð sigurvegari i bruni kvenna í Lake Louise f Bandaríkjunum f gær,
er hún fór brautina á 1.38,86 mín., en önnur var franska stúlkan Melanie Suchet á 1.39,05 mín. og
f þriðja sæti Isolde Kostner frá ítalfu á 1.39,38. Hér á myndinni fyrir ofan er Seizinger f brautinni.
Austurríkismaðurinn Andreas Schifferer varð sigurvegari í bruni karla f Beaver Creek í Colorado.
ÁSTIN Á SINN ÞÁTT í AÐ SUIK HYUNG LEE KOM TIL ÍSLANDS / B2,B3