Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.12.1997, Blaðsíða 2
2 C LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 + MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 C 3 URSLIT Eddie Jo- nes leik- maður mánaðarins EDDIE Jones, leikmaður Los Angeles Lakei’s, var í gær út- nefndur leikmaður nóvem- bermánaðar í NBA-deildinni. Hann gerði 21,1 stig að með- altali í leik í síðasta mánuði og tók 3,6 fráköst, átti 3,5 stoðsendingar og náði boltan- um 2,4 sinnum að meðaltali í leik. Skotnýting hans var 57% - liann hitti úr 113 skotum af 199. LA Lakers hefur leikið best allra liða og unnið 13 leiki og tapað aðeins tveimur á tíma- bilinu. Þetta er besta byijun liðsins síðan 1961. URSLIT Körfuknattleikur NBA-deildin Washington - Sacramento...118:96 Milwaukee - Charlotte.....102:92 Dallas - New York.........105:91 Houston - Atlanta..........94:87 LA Clippers - San Antonio.100:96 ■ Eftir framlengdan leik. Íshokkí NHL-deildin Pittsburgh - New Jersey......0:4 Ottawa - Los Angeles.........3:2 Chicago - Colorado...........1:2 St Louis - Toronto...........4:3 Vancouver - San Jose.........2:3 Amerfski fótboltinn NFL-deildín: Cincinnati - Tennessee.....41:14 UM HELGINA Handknattleikur Laugardagur: Bikarkeppni karla 16-liða úrslit: ísafjörður: Hörður - ÍBV........16.30 Neskaupstu Valur/Austri - HK....14.00 Seljaskóli: ÍR - Valur..........16.00 Fjölnishús: Fjölnir - Fylkir....17.00 1. deild kvenna: Vestm.: ÍBV - Grótta-KR.........14.00 Sunnudagur: Bikarkeppni karla 16-liða úrslit: Seltjamarn.: Grótta-KR - Víkingur ....20.00 Asgarður: Stjarnan - Haukar.....20.00 Körfuknattleikur Laugardagur: 1. deild karia: Egilsstaðir: Höttur - Hamar.....16.00 Þorlákshöfn: Þór - Leiknir......16.00 1. deild kvenna: Keflavík: Keflavík-UMFG.........16.00 Seljaskóli: ÍR-ÍS...............14.00 Sunnudagur: DHL-deildin: Akranes: ÍA - UMFN..............20.00 Borgames: Skallagrímur - IR.....20.00 Grindavík: UMFG - KR............16.00 Akureyri: Þór - Keflavík........20.00 Strandgata: Haukar-KFÍ..........20.00 Valsheimili: Valur - Tindastóll.20.00 1. deild karla: Stykkishólmur: Snæfell - Breiðabl.20.00 Borðtennis Jón Bakan-mótið í borðtennis fer fram i TBR-húsinu á morgun, sunnudag. Keppt verður í sex flokkum. Blak Laugardagur: 1. deild karla: KA-heimili: KA - Þróttur N....kl. 13.30 Leiðrétting RANGT var farið með fóðumafn Astu Sölvadóttur, leikmanns Stjömunnar í handbolta, í blaðinu í gær. Hún var sögð Pétursdóttir. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. HANDKNATTLEIKUR HANDKNATTLEIKUR Astin á sinn þátt í að einn besti handknattleiksmarkvörður heims leikur með FH hér á landi Suður-Kóreumaðurinn Suik Hyung Lee hefur vakið mikla at- hygli í vetur fyrir framúrskarandi markvörslu með liði FH og hefur að meðaltali varið flest skot allra mark- varða í 1. deildinni að loknum ellefu umferðum. Hann kom til landsins sumarið 1996 í þeim tilgangi að leika handknattleik _ og gekk til liðs við Hafnfirðinga. í fyrra átti hann erfitt uppdráttar eins og flestir leikmenn liðsins, en f vetur hefur hann blómstrað. Lee var þó ekki með öllu ókunnugur handknattleik hér á landi því hann lék með landsliði S-Kóreu hér á landi á heimsmeistaramótinu í handknattleik vorið 1995. Stóð hann sig einstaklega vel og vakti frammi- staða hans verðskuldaða athygli. M.a. átti hann stórleik gegn íslend- ingum í Laugardalshöllinni fyrir framan rámlega 5.000 áhorfendur átti öðrum fremur þátt í því að ís- lenska liðið beið lægri hlut, 26:23. Varði hann 19 skot í leiknum og flest þeirra úr opnum færum, af línu, eftir gegnumbrot og úr hraðupphlaupum. Eftir leikinn sagði Valdimar Grímsson landsliðsmaður í samtali við Morgunblaðið um frammistöðu Lee. „Ég held að skot yfir og undir hann séu þau skot sem hafa hingað til dugað best gegn honum, en í dag varði hann allt. Við gátum varla skorað." Nú, hálfu þriðja ári síðar, þegar leikurinn er rifjaður upp segir Lee með bros á vör. „Ég var hræddur um að komast ekki lifandi úr Laug- ardalshöllinni að leik loknum," sagði Lee með bros á vör þegar Morgun- blaðið hitti hann á matsölustaðnum Café Kim sem væntanlegir tengda- fyrir foreldrar hans eiga og reka við Rauðarárstíg. „íslensku áhorfend- urnir studdu vel við bakið á liði sínu og við vorum með alla áhorfendur gegn okkur sem skiljanlegt er. Við hins vegar sigruðum og lögðum stein í götu íslenska liðsins í keppn- inni. En um leið og leiknum lauk voi-u allir orðnir rólegir og ég hafði ekkert að óttast,“ bætir Lee við. Ást við fyrstu sýn Heimsmeistarakeppnin var e.t.v. ástæðan fyrir því hann kom aftur til Suik Hyung Lee landsliðsmarkvörður S-Kóreu hefur staðið sig frábærlega með FH í vetur. I samtali við ívar Benedikts- son segist hann líta á veru sína hér á landi sem nám í evrópskum handknattleik í þeim tilgangi að gera landslið þjóðar sinnar enn sterkara en það er í dag og betur búið und- ir að mæta handknattleiksliðum Evrópu í framtíðinni. HANDKNATTLEIKUR - MFL - KARLA SELJASKÓLI KL. 16.00 í DAG Bikarkeppni — 16-liða úrslit w \ R-VAI L U R Stuðningsmenn lióanna, fjölmennið! íslands, landsins sem hann vissi nær ekkert um þegar lagt var af stað á HM. Á meðan hann dvaldi hér á HM komst hann í kynni við Oskar Kim og fjölskyldu hans og Lee féll fyrir dóttur þeirra hjóna, Klöru Jenný Kim. „Það var ást við fyrstu sýn, ekkert flóknara," segir Lee. Seinna þegar hann sýndi því áhuga að koma til Evrópu og leika handknattleik var Óskar honum innan handar við að komast í sam- band við félög. Úr varð að FH fékk að njóta krafta þessa frábæra markvarðar, sem að margra mati er sá besti í Asíu og einn allra fremsti í heiminum. „Þegar ég kom hingað með lands- liðinu 1995 vissi ég lítið um land og þjóð og það litla sem ég vissi var rangt. „Ég hélt að hér væri snjór yfir mestöllu landinu og aðeins væri búið á litlu svæði syðst þar sem íbú- amir byggju við fornfálegan kost í miklum kulda.“ Suik Hyung Lee er fæddur í Dae Gu borg í suðurhluta S-Kóreu 13. janúar 1971 og verður hann því 27 ára eftir rúman mánuð samkvæmt þeim hefðum sem ríkja víðast hvar. Hann segist hins vegar vera orðinn 27 ára því í hans heimalandi er með- göngutíminn talinn með. Lee er því farinn að slaga upp í 28. árið. „Ég á bróður og systur sem bæði eru yngri. Móðir mín býr í Dae Gu en faðir minn er látinn. Grunnur úr Tae-kwon do „Ég byrjaði ekki að æfa hand- knattleik fýrr en fjórtán ára, en líkt og margir aðrir landar mínir var fyrsta íþróttagreinin sem ég komst í kynni við, þjóðaríþróttin Tae-Kwon do sem er sjálfsvarnaríþrótt. Hana fór ég að æfa átta ára gamall. í Tae- kwon do lærist m.a. einbeiting og það er eitt grunnatriðanna ásamt sjálfsaga. Þá þarf mikla líkamlega mýkt, og allar hreyfingar eru mjög snöggar," segir Lee og leggur áherslu á að þessi grunnur sem hann hefur úr þjóðaríþróttinni hafi svo sannarlega skilað sér í hand- knattleiknum. Snerpa, mýkt og góð einbeiting sé nauðsynleg öllum markvörðum. Að þessum orðum sögðum lá bein- ast við að spyrja hvort ekki væri rétt að senda íslenska markverði í Tae- Kwon do og Lee var ekki lengi að svara. „Þeir sem eru í 1. deild eru orðnir of gamlir. Til þess að Tae- kwon do komi að gagni í öðrum íþróttagreinum þarf að byrja æfing- ar á bamsaldri líkt og gert er í mínu heimalandi. Það hjálpar lítið að byrja eftir að líkaminn er hættur að vaxa, en auðvitað geta allir stundað íþrótt- ina sér til heilsubótar og ánægju, en grunninn þurfa menn helst að fá á unga aldri.“ Einnig segir Lee að þjálfarar í S-Kóreu, einkum við há- skólana stundi mikið rannsóknir og leiti leiða til þess að bæta íþrótta- mennina bæði líkamlega og andlega. Þess hafi hann fengið að njóta á síð- ari stigum. Þegar hann hóf að æfa handknatt- leik lagði hann Tae-kwon do að mestu á hilluna, enda tók handknatt- leikurinn huga hans allan. Enginn tími var heldur til þess að æfa af full- um krafti tvær íþróttagreinar með námi, einkum eftir að grunnskóla sleppti. Hvað varð þess valdandi að hann fór að æfa handknattleik? Skipað í markið „íþróttir hafa verið mitt áhuga- mál frá því ég man fyrst eftir mér og því hef ég íylgst með mörgum íþróttagreinum. Eitt sinn sá ég kappleik í handknattleik og þá hugsaði ég með mér, þetta er mín íþrótt. Eftir það varð ekki aftur snúið og ég sneri mér alfarið að því að æfa handknattleik. Á þessum ár- um var ég lítill og reyndi fyrst íyrir mér sem sóknarleikmaður, en gekk illa. Einn daginn skipaði þjálfarinn mér að fara í markið því ég væri svo slakur sóknarmaður. Ég lét tilleið- ast, fór í markið og náði fljótlega góðum árangri og tók framfórum hröðum skrefum." Morgunblaðið/Ásdís Segullinn SUIK Hyung Lee ásamt kærustu sinni, Klöru Jennýju Kim, stúlkunni sem öðru fremur dró athygli hans að íslandi. Klara er 19 ára nemandi við tannlæknadeild Háskóla íslands og hefur bú- ið alla sína ævi hér á landi. leikana í Barcelona sem haldnir voru 1992. Landsliðið byrjaði að æfa ári fyrir leikana. Lee segir það vera reglu að íyrir stórmót í handknattleik s.s. heims- meistaramót og Ólympíuleika að valinn sé 30 til 40 manna landsliðs- hópur til æfinga og kemur hópurinn saman með reglulegu millibili og æfir mikið, allt upp í átta tíma á dag. Þegar nær dregur keppninni er fækkað í hópnum niður í 16 til 18 og er þá hópurinn saman í tvo mán- uði fyrir átökin. „Handknattleiks- menn í Kóreu æfa mun meira en þeir íslensku og aginn er mun meiri. Einkum eru það landsliðsmennirnir sem æfa meira. Hér á Islandi vildi ég gjarnan að menn æfðu lengur í hvert skipti því oft er líkaminn rétt að mýkjast þegar æfingunni er lok- ið. Sérstaklega þykir mér að þeir sem yngri eru og komnir í meistara- flokk og stefna á landsliðið þyrftu að æfa lengur í hvert sinn og jafnvel einbeita sér að sérstökum hlutum í hvert sinn, s.s. skotæfingum og ýmsum tegundum tækniæfinga.“ Ekki valinn vegna mótmæla Samkeppnin um að komast í landsliðið er mikil en í það er valið úr háskólaliðunum. „Allt frá því að ég var í menntaskóla var landsliðið draumurinn, að komast inn í góðan háskóla og inn í landsliðið, það var aðalatriðið. Háskólinn skipti miklu máli því leikmenn bestu háskólanna fá meiri athygli og því eru mögu- leikarnir meiri. Strax á íyrsta ári rættist draumurinn.“ Með landsliðinu lék hann á Asíu- leikunum og á Friðarleikunum 1994 auk fjölda æfingaferða til Evrópu. En þrátt fyrir mikla alúð við æfing- ar fyrir Olympíuleikana 1992 var hann ekki valinn. Babb kom í bátinn og Lee sat heima þrátt fyrir að hann segist hafa verðskuldað sæti í lands- liðinu. ,Á öðru ári í háskólanum tók ég þátt í mótmælum gegn stjórn- völdum og fyrir það varð ég að gjalda með því að vera ekki valinn. Þjálfarinn vildi fá mig með en íþróttayfirvöld strikuðu nafn mitt út og þar við sat. Seinna var ég tekinn í sátt og komst í landsliðið á ný eftir leikana. Fjórum árum síðar þegar Ólympíuleikar voru haldnir náði landsliðið ekki að vinna sér keppnis- rétt. Virðist mér sem mér sé ekki ætlað að keppa á Ólympíuleikum, en ég vona að mér og landsliðinu auðn- ist að vera með í Sydney árið 2000.“ Þanning hefur Lee varið í h . deildinni handknattleik - , Gegn Gegn HK , Gegn KA, Gegn IR Haukum Lék ekki Imeð gegn Vlkingi v. meiðsla Gegn Gegn Gegn Gegn Gegn Gegn IBV , Val .BreiðabL Aft.eld., Stjöm. , Fram , 20 I Sigmar Þröstur Oskarsson ÍBV 175/11 11 15,9 1. umf. BErgsveimi Bergsveinsson Aftureld. 159/10 10 15,9 Guomundm Hrafnkelsson Valur 173/7 11 15,7 Hlynut Jóhannesson HK 167/3 11 15,2 2. umf. 3. umf. 4. umf. 5. umf. 15 10 , ... Þessir hafaWgfr varið mest 6. umf. 7. umf. 8. umf. 9. umf. 10. umf.11. umf. Almennur áhugi er fyrir íþróttum í S-Kóreu, að sögn Lee. Vinsælasta íþróttagreinin er blak en einnig er áhugi mikill fyrir hafnabolta, knatt- spyrnu og körfuknattleik auk þjóðaríþróttarinnar sem áður hefur verið getið um og þjóðin stundar frá barnsaldri fram á efri ár eða svo lengi sem heilsan leyfir. Um fyrsta árið sitt hér á landi segir Lee. „Fyrsta keppnistímabil- ið mitt hér á landi var erfitt, bæði við að aðlagast aðstæðum og leik félaganna hér á landi. Þá tók tíma að kynnast leikmönnum FH og leikaðferðum liðsins og ekki hvað síst andstæðingunum. Handknatt- leikur í Evrópu er ólíkur þeim handknattleik sem ég er vanur. Takturinn er annar en í Kóreu þar sem hraðinn er meiri og leikmenn sneggri. Nú hef ég vanist hand- knattleiknum betur hér á landi og kynnst félögunum. Eins þekki ég veðráttuna og þetta mikla myrkur sem hér er yfir háveturinn. Oft og tíðum var ég dapur yfir því hversu slakur ég var, en það skánaði þeg- ar frá leið. Undir mótslok í fyrra leið mér orðið skár og um leið fór ég að leika betur.“ Markvisst hjá Kristjáni Lee segir að FH-liðið í vetur sé ekkert líkt því sem var í fyrra þó það sé skipað sömu leikmönnum. „Við leikum betur og vörnin er mun betri, þá er áhuginn einnig ólíkt meiri. Ég hef enn meiri stuðning frá félögum mínum og vonandi get ég einnig hjálpað þeim meira.“ Þá seg- ir hann tungumálaerfiðleika hafa sett sitt strik í reikninginn. Hann hafi ekkert kunnað nema sitt móð- urmál, en nú sé hann farinn að geta gert sig skiljanlegan á ensku og geti um leið betur skilið aðra. „Kristján Arason þjálfari er réttur maður á réttum stað og hefur breytt miklu. Æfingar hans eru markvissar og allt er í föstum skorðum." Eitt af því sem vakið hefur at- hygli þeirra sem fylgst hafa með FH-liðinu er hvemig Lee býr sig undir leiki, hann di'egur sig í hlé þegar aðrir hita upp og fer sínar eigin leiðir. Síðan kemur hann til leiks gífurlega einbeittur og lætur ekkert raska ró sinni á meðan leik- urinn stendur yfir. Hvernig undir- býr hann sig fyrir leiki? „Einbeitingin lærðist í Tae-kwon do en síðari ár hef ég mikið notað tölvur og tölvuleiki til þess að slaka á fyrir mikilvæga leiki,“ segir Lee og hlær og byijar að segja hvað hann gerir alltaf eftir leiki og flest kvöld áður en farið er að sofa. Þá horfir hann á upptökur af leikjum með FH af myndbandi. „Þannig sé ég hvað ég gerði rangt og hvað rétt, hvernig ég get gert hlutina betm’. Ég eyði mikl- um tíma í að hugsa um og skoða leiki og eftir á fara yfir þá í huganum. Dag hvem nota ég einhvem tíma til þessara athuguna. Á leikdegi borða ég lítið og ekkert síðustu fjóra til fimm klukkutímana fyrir leik. Ork- una fæ ég með því að borða vel flesta daga, ekki hvað síst daginn fyrir leik. Leikdagurinn fer meira og minna í að hugleiða í einrúmi og hugsa um verkefnið sem framundan er. Þegar út í leikinn er komið sé ég ekkert annað en boltann og leikmennina sem á vellinum eru.“ Þótt honum sé farið að líka lífið hér á landi betur en áður segir hann það ekki koma til greina að festa rætur á íslandi. „Nei, það kemur ekki til greina," sagði Lee ákveðinn. En þrátt fyrir að hann vilji ekki búa hér á landi viðurkennir hann að ástin hafi dregið sig hingað og átt stærstan þátt í að hann er að leika handknattleik með FH en ekki í Þýskalandi eða Sviss þar sem nokkrir landar hans spila. „Ég vissi að á íslandi væri leikinn ágætur handknattleikur. Þá spillti ekki fyr- ir að ég þekkti fjölskyldu hér á landi, en það er nógu erfitt að flytja til ókunnugs lands og enn erfiðara er það þegar maður þekkir engan. Þess vegna valdi ég Island.“ Verður þú íslandsmeistari með FHívor? „Vonandi, við stefnum að því, en það eru fleiri sem hafa áhuga á titl- inum.“ Nám í handknattleik Ein meginástæðan fyrir því að Lee ákvað að hleypa heimdraganum var samt sú að hann vildi kynnast evrópskum handknattleik, sem er að 1 mörgu leyti ólíkur þeim sem leikinn er í Asíu. „Við erum fjórir S-Kóreu- menn sem leikum með félagsliðum í Evrópu og tilgangur okkar með að leika í Evrópu er að kynnast hand- knattleiknum hér og geta síðan miðl- að af þessum kynnum okkar til landa okkar þannig að við verðum betur í stakk búnir til að mæta Evrópuþjóð- um er fram líða stundir. Landslið okkar á vonandi eftir að verða enn sterkara en það er í dag vegna þessa.“ Lee lítur á veru sína hér sem nám 1 evrópskum handknattleik og seg- ist vel geta hugsað sér að eyða tíu árum við þessa iðju sem hann telur að komi handknattleik í heimalandi sínu vel. Þess má geta að Lee hefur próf í íþróttafræðum frá háskólan- um í Seoul. Hvað þýðir nafnið? Öll mannanöfn í S-Kóreu hafa sína merkingu og því lék blaða- manni forvitni á því, undir lok sam- talsins, að vita hvað nafn hans, Suik Hyung Lee þýddi. „Lee er nafn fjöl- skyldu minnar, en Suik þýðir stór og Hyung bjartur," segir hann og hlær við. Eg er stór miðað við marga landa mína en bjartur get ég vart kallast eins dökkhærður og ég er. Líklega stend ég ekki að fullu undir nafni fyrr en ég verð sköllótt- ur, hvenær sem það verður." Mótherjar Islands í sama riðli á EM á Ítalíu JÚGÓSLAVÍA og Litháen, sem voru med íslandi í riðli í Evrópu- keppni landsliða í handknattleik, eru í A-riðli úrslitakeppninnar, en hún fer fram á Italíu 29. maí til 7. júní. í A-riðli eru að auki gestgjafar ítahu, Sviþjóð, Frakkland og Þýskaland. í B-riðli eni Evrópu- og heimsmeistarar Rússlands, ólympíumeistarar Króatíu, Spánn, Ungi'eijaland, Tékkland og Makedóma. Sex efstu liðin tryggja sér sæti í úrslitakeppni HM í Egyptalandi 1999 en verði Rússar f einu af þessum sætum fer liðið í sjöunda sæti líka til Eg- yptalands. Önnur lið verða að fara í aukakeppni um sæti næsta haust. Morgunblaðið/Einar Falur LEE stóð sig frábærlega í marki Suður- Kórumanna á HM f Kumamoto. Lee fór í háskóla í Seoul, höfuðborg lands- ins, og um leið gekk hann til liðs við Doo San Kyung Wol sem rekið er af fyrirtæki. Félagið eða fyrirtækið sá síðan um að greiða skóla- gjöldin fyrir hann gegg því að hann léki með því. Handknattleikur í S-Kóreu er ekki fjöl- menn íþróttagrein og aðallega stunduð í há- skólum landsins. Strax á fyrsta ári vakti Lee athygli og var valinn í landsliðið árið 1990. Þá var byrjað að huga að hópnum fyrir Ólympíu- + Ef upphæðin 200 kemur þrisvar á skafmiðann færð þú 200 kr. afslátt næst þegar þú kaupir geisladisk í Japis. CT JAPISS BRAUTAROLT N G L U N N LAUGAVEG S I M I 5 6 2 5 2 0 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.