Morgunblaðið - 06.01.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 06.01.1998, Síða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR erðin mikla hjá~KA nnirnir/voru á ferð í rútu í tals hátt í 35 klukkustundir ið sinni um Holland, þýska- Austurríki og Lúxemborg til og frá Trieste á Ítalíu Lagt upp frá Akureyri föstudaginn 2. janúar um kl. 6.00 ai morgni. Fiogib til Keflavíkur og áfram til Amsterdam Aætlaður komutími til Akureyrar aftur umkl. 18.00 þann 5. janúar 1998 Amsterdam - Salzburg um 975 Salzburg - Trieste um 365 Trieste - Lúxemborg um 1.080 km km km SAMTALS um 2.420 km Komið til Salzbprg um kl. eitt að nóttu. Lagt af stað til Italíu um kl. níu 3. janúar —^\ Haldið heimleiðis frá Trieste > j\ Komið til Trieste um kl. 14.00 um kl. 14.00 þann 4. janúar. I , feun bann 3. janúar eftir 5 tíma rútuferð; Leikið í Trieste kl. 11.00 4. janúar I ■ GUÐNI Bergsson, fyrirliði Bolton, er kominn með fimm gul spjöld og fer í tveggja leikja bann eftir helgi. ■ ANDY Thompson, samherji hans, er nýkominn úr þriggja leikja banni og er á leiðinni í tveggja leikja bann vegna fimm gulra spjalda. ■ BOLTON hefur fengið flest spjöld í ensku úrvalsdeildinni og er Colin Todd, knattspyrnustjóri, allt annað en ánægður með gang mála. „Eg er ekki ánægður með þetta - þessum bókunum verður að linna.“ ■ BRAD Friedel verður væntan- lega í marki Liverpool þegar liðið sækir Newcastle heim á morgun í átta liða úrslitum deildabikarkeppn- innar. ■ PAUL Ince, fyrirliði Liverpool, sagði ekki rétt að fórna David James eftir einn tapleik en varnar- mennirnir Jason McAteer, Björn Tore Kvarme, Dominic Matteo og Steve Ilarkness eiga allir einnig á hættu að missa stöðu sína. ■ ANDY Hinchcliffe, varnarmað- ur hjá Everton, hefur verið í við- ræðum við Tottenham en talið er að hann kosti ekki undir þremur millj. punda. Hinchcliffe skrifaði um mitt liðið ár undir samning til fjögurra “ **» .**w**®' FOLK ára en Everton fékk hann frá Manchester City fyrir sjö árum og greiddi þá 900.000 pund. ■ ALEX Ferguson, stjóri Manchester United, var spurður hvenær hann hefði verið viss um sigur á Chelsea í bikarnum um helgina. „Þegar ég sá leikskýrsl- una,“ svaraði hann að bragði. ■ PHILIPPE Troussier hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Suð- ur- Afríku í knattspyrnu og tekur hann við stöðunni í mars. ■ TROUSSIER er þjálfari Burk- ina Faso en hefur áður þjálfað landslið Nígeríu og Fílabeins- strandarinnar. ■ DARRYL Sydor var fyrsti vain- armaðurinn í NHL-íshokkídeildinni í vetur til að gera þrennu en það gerði hann um helgina í 6:1 sigri Dallas á Carolina. ■ BAYERN Miinchen hefur greitt 7.500 mörk sem Uli Höness, fram- kvæmdastjóra félagsins var gert að greiða vegna ósæmilegra ummmæla um dómara en sagðist ekki ætla að borga. ■ REAL Zaragoza sektaði Ar- gentínumennina Gustavo Lopez og Kily Gonzalez fyrir að koma fimm dögum of seint til félagsins úr jóla- fríi. Hvorum landsliðsmanni var gert að greiða um 500.000 kr. og þeir voru ekki í byrjunarliðinum á móti Bilbao í spænsku deildinni í fyrrakvöld. ■ VLADISLAV Radimov, miðju- maður hjá Zaragoza, sem var sett- ur í 10 daga æfingabann fyrir að móðga þjálfara liðsins fyrir jól var varamaður á sunnudag. ■ GILBERT Gress, þjálfari Neuchatel Xamax undanfarin 15 ár, verður væntanlega næsti landsliðs- þjálfari Sviss í knattspyrnu. ■ CHRISTLAN Gross, knatt- spymustjóri Tottenham hefur einnig verið orðaður við starfið og sérstaklega eftir að aðstoðarþjálfari hans varð að fara frá Englandi þar sem hann hefur ekki fengið atvinnu- leyfi en Gross segist halda samning sinn við Spurs. FJÖTRAR að er mikilvægt fyrir þá sem vilja ná langt í íþróttum að keppa við jafningja sína frá öðr- um löndum. Þannig öðlast menn dýrmæta reynslu sem nýtast mun félagi eða landsliði um ókomin ár. En það er dýrt fyiir íslensk félagslið að taka þátt í al- þjóðlegum mótum og það svo að lið veigra sér við að vera með. Þetta er auð- vitað mjög slæmt því deildir flestra félaga berjast í bökkum. Þess má geta að það kostar félög sjaldnast undir einni milljón ki'óna að taka þátt í Evrópukeppni, fyiir hverja umferð. Já, það er dýrt að vera fátækur, sérstaklega á eyju í miðju Atlantshafi. Knattspyrnan er raunar sér á báti í þessu því Knattspynusam- band Evrópu (UEFA) greiðir öll- um liðum sem taka þátt í Evrópu- keppninni fyrir þannig að þau eiga ekki að líða fjárhagslegt tjón af. Nái lið langt í keppninni fá þau enn meira greitt þannig að velgengni íslenskra knattspyrnu- liða í Evrópukeppni er hvalreki fyrir gjaldkera viðkomandi liðs. Handknattleiks- og köifuknatt- leiksmenn eru því miður ekki eins lánssamir því Evrópusam- bönd þessara íþróttagreina (EHF í handknattleiknum og FIBA í körfuknattleiknum) virð- ast ekki vera eins fjáð og knatt- spyrnusambandið. Reyndar telja margir að FIBA standi vel en einhverra hluta vegna hefur ekki tekist að fá forráðamenn þess til að losa sjóði sína og greiða liðum fyrir þátttöku svipað og UEFA gerir. Ekkert lið tekur þátt í Evrópu- keppninni í körfuknattleik og ein- hver ár eru liðin síðan íslenskt lið var þar á meðal keppenda. Tvö lið, KA og Afturelding, taka þátt í Evrópukeppninni í handknattleik og það síðarnefnda vegna þess að leikmenn félagsins ák\'áðu að vera með upp á eigin reikning, eftir að stjórnin hafði ák\reðið að taka ekki þátt - sökum mikils kostnaðar. Menn leggja mikið á sig til að öðlast þá reynslu sem fæst með þátttöku í slíkum mótum. Hér til hliðar má til dæmis sjá að leik- menn KA sátu í ríflega 30 klukkustundir í langferðabíl til að komast til og frá leikstað á Ítalíu um helgina. Slíkt getur varla talist góður undirbúningur fyrir leik í Ewópukeppni, en þetta gerðu Akureyringar til að spara og ber að virða þá fyrir það. Þegar svo er komið að þátttaka í Evrópukeppni er ekkert nema kostnaðm- þá verða menn að staldra aðeins við og íhuga málið vandlega. Forráðamaður íjjrótta- mála orðaði það svo: „Til hvers að vera með ef góður árangur gefur ekkert nema emi meira tap?“ Spyr sá er ekki veit. En hvað er til ráða? Er skyn- samlegt íyrir framgang íþróttar- innar að íslensk félög hætti þátt- töku í alþjóðlegum mótum? Varla. Hvar geta félögin fengið aukið fé til að þau geti verið með í alþjóðlegum mótum? Eiga stjórn: völd eða Afreksmannasjóður ÍSÍ að hlaupa undir bagga og aðstoða íslenska íþróttamenn við að losna undan ættjarðai-fjötrum? Skúli Unnar Sveinsson íslenskir íþróttamenn finna að það er dýrt að vera fátækur Ætlaði handknattleil^maðurínn GÚSTAF B JARNASON að byrja árið með stæl? Sérstakar aðstæður GÚSTAF Bjarnason var í sviðsljósinu á fjögurra þjóða mót- inu í handknattleik sem fram fór í Svíþjóð um helgina. Gústaf, sem hefur spilað flesta landsleiki af leikmönnum ís- lenska liðsins, var í hópi markahæstu manna mótsins, en hann var líka aldursforseti íslenska liðsins og fyrirliði þess í fyrsta sinn. „Sérstakar aðstæður gerðu það að verkum að ég var elsti maðurinn í hópnum, aðeins 27 ára, og jafnframt með flesta landsleiki en atvinnumennirnir, að einum undan- skildum, fengu frí að þessu sinni sem er vel skiljanlegt vegna verkefna þeirra með félagsliðum sínum á sama tíma,“ sagði Gústav við Morgunblaðið. Hann er í sambúð með Hildi Loftsdóttur og eiga þau soninn Daníel ísak, sem verður tveggja ára 20. mars nk. Gústaf gekkst undir aðgerð á hægra hné í byrjun nóvem- ber og hafði því lítið sem ekkert leikið í tæpa tvo mánuði fyrir keppnina í Sviþjóð. Eftir „Ég var reyndar Steinþór með á öðrum fæti í Guðbjartsson bikarleiknum á móti Stjömunni í byrjun desember og Þorbjöm Jensson landsliðsþjálfari tók tillit til að- stæðna hjá mér - lagði áherslu á æfingar fyrir mig sem hentuðu mér mjög vel. Eins og gefur að skilja var ég ekki tilbúinn í hvað sem var en hef byggt mig upp hægt og rólega. Aðgerðin virðist hafa tekist vel en ég fann samt að- eins til í hnénu í þessum leikjum. Það kemur ekki á óvart því ég hef misst mikinn styrk í fætinum." En það kom á óvart að vera elstur í hópnum? „Já, sérstaklega þar sem ég er ekki nema 27 ára. Þetta var und- arleg tilfínning en um leið skemmtileg - gaman að vera fyr- irliði landsliðsins.“ Hafði það sérstök áhríf á þig? „Nei. Ég er þannig að eðlisfari að ég held að ég hafi sýnt gott fordæmi án þess að vera fyrirliði en ef til vill fann ég fyrir meiri ábyrgð en venjulega." Kom árangur liðsins þér á óvart? Morgunblaðið/Ásdís GÚSTAF Bjarnason með soninn Daníel ísak heima í Hafnarfirði skömmu eftir komuna frá Svíþjóð í gær. „Já og nei. Þetta er samstæður hópur og margir góðir leikmenn en þegar við fórum af stað hafði ég á tilfmningunni að annaðhvort stæðum við okkur mjög vel eða allt færi í hund og kött. Við höf- um ekki verið mikið saman og okkur gekk brösuglega í fyrstu æfingaleikjunum heima - vorum „brothættir". Hins vegar náðum við mjög vel saman þegar á reyndi og spiluðum vel í keppn- inni.“ Hvað með þigsjálfan? „Ég legg mig alltaf fram eins og ég get. Stundum á ég góða daga og stundum ekki en þetta gekk vel hérna. Ég var í herbergi með Frammaranum Nirði Árna- syni, en næsta skref er einmitt bikarleikur Hauka við Fram á sunnudag. Við eigum titil að verja en Frammarar enj hungi'aðir og baráttan er um allt eða ekkert.“ Hefurðu eitthvað gælt við að komast íatvinnumennsku? „Ég er leiðbeinandi í félags- miðstöðinni Vitanum í Hafnar- firði og kann ágætlega við það, en auðvitað er draumur allra að geta haft atvinnu af og lifað á því sem skemmtilegast er að gera. Hins vegar fá ekki allir tækifærið og það er ekki ekki lífsspursmál hjá mér að komast í atvinnumennsku. Engu að síður hef ég hugsað um þetta og neita því ekki að ef skemmtilegt og spennandi tilboð bærist væri ég hugsanlega tilbú- inn að hoppa á það. En það yrði að vera eitthvað sérstakt því ég er í góðu félagi.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.