Morgunblaðið - 06.01.1998, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 B 3
HANDKNATTLEIKUR
Spiluðu í
sextán
klukkustundir
LEIKMENN KA-liðsins ferð-
uðust í sextán klukkustundir i
langferðabifreið frá Trieste til
Lúxemborgar, eftir
Evrópuleik þeirra gegn Gen-
eral Triester, en það tók þá
átján klukkustundir í lang-
ferðabifreið að fara fá Amst-
erdam til Trieste. KA-menn,
sem komu til Lúxemborgar kl.
sex í gærmorgun, lentu í
slæmu veðri á leið sinni þang-
að - roki og rigningu. Fjórir
leikmenn KA spiluðu Kana all-
an timann í rútunni - þeir
Sævar Árnason, Hilmar
Bjamason, Leó Öm Þorleifs-
son og Þorvaldur Þorvaldsson,
alls 421 spil.
íslenskur bflstjóri, Grétar
Grétarsson, sá um að aka
KA-liðinu.
Yala fékk ekki
vegabréfs-
áritun
Morgunblaðið/Kristinn
NJÖRÐUR Árnason skoraði sjö mörk gegn Túnis. Hér er hann í leik með Fram, að sækja að fétaga sínum í landsliðinu, Vals-
manninum Davíð Ólafssyni í leik í 1. deildarkeppninni.
Þorbjöm Jensson ánægður eftirfjögurra þjóða mótið í Svíþjóð
ALSÍRBÚINN Karim Yala lék
ekki með KAI Trieste, þar sem
hann fékk ekki vegabréfsárit-
un til Ítalíu. Yala var í jólafríi
í Alsír og átti hann sjálfur að
sjá um að koma sér til Trieste.
KA fékk að vita kl. 16 þriðju-
daginn 30. desember að Yala
ætti í erfíðleikum með að fá
vegabréfsáritun, þannig að
KA-menn gátu ekkert gert til
að ganga í málið þar sem frí-
dagar voru framundan.
KA-menn
Við græddum mikið
á þessari keppni
ISLENDINGAR urðu íöðru sæti á fjögurra þjóða móti í handknatt-
leik sem fór fram í Svíþjóð um heigina. íslendingar sigruðu Túnis-
menn örugglega f síðustu umferð en byrjuðu á þvi að valta yfir
Egypta. Á laugardag töpuðu þeir fyrir Svíum sem gerðu jaf n-
tefli við Egypta á sunnudag og tryggðu sér þar með fyrsta sætið.
Þorbjöm Jensson, landsliðsþjálf-
ari, gaf atvinnumönnunum,
að undanskildum Róberti Sighvats-
syni, frí frá þessu verkefni og var
því með menn, sem flokkast flestir
undir að vera nýliðar í landsliðinu.
En þeir stóðu sig vel og Þorbjörn
var ánægður í mótslok. „Við grædd-
um mikið á þessu,“ sagði hann við
Mbk
FOI_K
■ DORMAGEN hefur fengið til
liðs við sig hinn fjölhæfa Andreas
Kotwitz, sem lék með Rheinhaus-
en. Hann er 26 ára og skrifaði
undir eins árs samning.
■ FINNUR Jóhannsson skoraði
tvö mörk í sínum fyrsta leik með
Hameln, sem mátti þola tap í
Magdeburg, 33:29.
■ RÓBERT Julian Duranona
skoraði fimm mörk þegar Eisenach
vann Wuppertal 28:26. Ólafur
Stefánsson skoraði fimm mörk fyr-
ir Wuppertal og Geir Sveinsson
tvö.
■ PATREKUR Jóhannesson
skoraði fimm mörk þegar Essen
mætti Massenheim, 23:23.
Morgunblaðið. „Þetta var kærkomið
tækifæri til að sjá fleiri leikmenn
reyna það sem við erum að gera.“
Túnis ekki fyrirstaða
íslendingar áttu ekki í vandræð-
um með Túnismenn og unnu 25:17
eftir að hafa verið þremur mörkum
yfir í hléi, 10:7. „Baráttan var rosa-
leg í fyrri hálfleik," sagði Þorbjörn.
„Þá lékum við 3-2-1 vöm þó ég
vissi að hún hentaði ekki vel. Við
brutum mikið á mótherjunum sem
héldu boltanum en við vomm alltaf
yfir. í seinni hálfleik skipti ég í 6-0
vörn sem gekk mun betur. Leikur-
inn varð hraðari hjá Túnismönnum
og þeir skutu grimmt en við náðum
oftar en ekki hraðaupphlaupum í
kjölfarið og náðum fljótlega sjö til
átta marka forystu sem við héldum
til loka.“
Góð sókn á móti Svíum
íslendingar stóðu í Svíum á laug-
ardag eftir að hafa sigrað Egypta
í fyrsta leik en töpuðu 28:25.
„Þetta var mikill baráttuleikur,"
sagði Þorbjöm. „Leikurinn var jafn
allan fyrri hálfleik en Svíamir höfðu
tvö mörk yfir í hléi, 15:13. Um miðj-
an seinni hálfleik náðu þeir fimm
marka forystu en okkur tókst að
klóra í bakkann áður en yfir lauk.“
Strákamir iéku 3-2-1 vöm lengst
af í fyrri hálfleik og gekk hún ekki
vel en 6-0 vömin eftir hlé skilaði
mun betri árangri. „Það voru marg-
ir ljósir punktar í þessu,“ sagði
Þorbjörn. „í fyrsta lagi gáfust menn
aldrei upp þó á móti blési. í öðru
lagi er ég ánægður með hvað strák-
amir gerðu mörg mörk. Það er
ekki slæmt að skora 25 gegn Svíum
sem eru með góða vörn og mark-
vörslu."
Þorbjörn sagði að samt sem áður
hefði verið mikið um mistök. „Tvö
vítaköst heppnuðust ekki og menn
vom að missa boltann en við því
má búast af svona nýju liði. Eg er
ekki óánægður."
Jonas Emelind, örvhent skytta
frá Savehof, var atkvæðamestur
Svía með 7 mörk en homamaðurinn
Martin Frándesjö, sem stóð sig vel
á HM í Kumamoto, var með 4
mörk. Markvörðurinn Andres
Lindqvist hjá Drammen kom gagn-
gert í þennan leik en annars var
Peter Gensel, annar markvörður
Svía í Kumamoto, í markinu. Aðrir
HM-leikmenn vom ma. Stefan Löv-
gren, Ljubomir Wranjes og línu-
maðurinn Tomas Sivertsson.
Svíar í vandræðum
Túnis kom á óvart á laugardag
og sigraði Egyptaland með 12
marka mun, 27:15, en Egyptar
stóðu í Svíum í síðasta leik keppn-
innar. Þeir vom yfir í hálfleik,
11:10, en Iiðin gerðu jafntefli,
21:21, og það nægði Svíum til sig-
urs í mótinu. Þeir fengu fimm stig,
íslendingar fjögur, Túnismenn tvö
og Egyptar eitt stig.
óhressir með
frestun
ÞEGAR KA-menn voru á Ítalíu
fengu þeir að vita að búið væri
að fresta deildarleik þeirra
gegn Breiðabliki, sem áttí að
fara fram á morgun á Akur-
eyri. Leikurinn fer fram á
fimmtudaginn. „Okkur kom
þetta á óvart því ekki fórum
við fram á frestun vegna erf-
iðar ferðar tíl og frá Italíu.
Okkur var tjáð að Breiðablik
hafi farið fram á frestum
vegna þess að markvörður liðs-
ins, Elvar Guðmundsson, var
varamarkvörður landsliðsins
sem lék á mótí í Svíþjóð," sagði
Atli Hilmarsson, þjálfari KA.
Stórieikur á
Akureyri
KA-liðið leikur tvo leiki á Ak-
ureyri á fjórum dögum. Liðið
mætir Breiðablik i 1. deildar
keppninni á fimmtudag og síð-
an hinu sterka liði Badel
Zagreb í Evrópukeppninni á
sunnudaginn. Badel er eitt
sterkasta Iið Evrópu.
Atli Hilmarsson, þjálfari KA, eftir Evrópuleik á Ítalíu
Lékum undir getu
Atli Hilmarsson, þjálfari íslands-
meistara KA, var ekki
ánægður með leik sinna manna
gegn ítalska liðinu General Trieste
í Meistaradeild Evrópu, sem fór
fram í Trieste á sunnudagsmorgun.
KA-liðið varð að sætta sig við sex
marka ósigur, 30:24, eftir að hafa
mest verið tólf mörkum undir.
„Við lékum langt undir getu,
vorum afspymuslakir í fyrri hálf-
leik. Þegar Trieste var yfir 4:2 kom
hræðilegur leikkafli hjá okkur, þar
sem við færðum ítölum knöttinn
hvað eftir annað á silfurfati - þeir
þökkuðu fyrir sig og skoruðu mörg
mörk eftir hraðaupphlaup. Þegar
við röknuðum við, var staðan orðin
12:2,“ sagði Atli.
KA-liðið svaraði þá með fjórum
mörkum, en leikmenn Trieste skor-
uðu þrjú síðustu mörk fyrri hálf-
leiksins, 15:6. Þeir náðu mest tólf
marka forskoti, 21:9. Eftir það fóru
leikmenn KA að bíta frá sér og
þegar upp var staðið var munurinn
orðinn sex mörk, 30:24. „Við vorum
skömminni skárri í seinni hálfleik,"
sagði Atli, sem vildi ekki kenna
strangi-i ferð til Ítalíu um hvað sín-
ir menn hefðu leikið illa. „Leikmenn
ítalska liðsins bytjuðu leikinn með
látum og fóru vel út á móti mínum
mönnum, sem urðu spenntir og
sóknarleikurinn þess vegna afar
dapur,“ sagði Atli.