Morgunblaðið - 06.01.1998, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.01.1998, Qupperneq 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Kendall óttaðist lan Rush HOWARD Kendall, knatt- spyrnustjóri Everton, var óánægður með að mark frá Ian Rush hefði slegið Everton úr bikarkeppninni en New- castle vann 1:0 og gerði Rush 43. mark sitt í bikarnum, sem er met. „Fyrir leikinn ræddum við um hvað Rushie gæti gert,“ sagði Kendall. „Eg gat þess að áhangendur Everton vildu helst að hann yrði ekki með miðað við það sem hann hefði gert félaginu á liðnum árum. Við vissum ekki hvaða hlut- verki hann læfði að gegna og ég vonaði að hann yrði alls ekki með. Því miður spilaði hann og ég var hvorki ánægð- ur með markið né manninn sem gerði það.“ Rush fékk óblíðar móttökur hjá áhangendum Everton þeg- ar honum var skipt inn á en _ hann lét þær ekki á sig fá. „Ég heyrði púið en það hefur aldr- ei truflað mig,“ sagði hann. Þrátt fyrir tapið hrósaði Kendall sínum mönnum sem sumir væru ekki í góðri leik- æfingu. „Ég hefði verið ánægður með að fá annað tækifæri því sjálfstraustið verður betra þegar mann- skapurinn styrkist." Sem kunnugt er lék Rusli með Liverpool um árabil en þegar hann var gutti hélt hann með Everton! Veðjað á Man. United MANCHESTER United er sig- urstranglegast í Ensku bikar- keppninni, samkvæmt veð- bönkum í gær, en möguleikar meistaranna eru taldir vera 3-1. Newcastle er næst með 6-1 en síðan koma Blackburn 8-1, Arsenal 9-1, Leeds 10-1, Aston Villa 11-1 og Coventry 20-1. Stevenage sem fær Newcastle í heimsókn í fjórðu umferð á minnsta möguleika á að verða bikarmeistari, 5.000-1. Nígeríu- maður til Arsenal? ARSENAL hefur í hyggju að yngja upp vörnina með því að kaupa Nigeríumanninn Uche Okechukwu frá Fen- erbahce í Tyrklandi og greiða uppsett verð, 7,5 millj. punda. Fyrir tveimur mánuðum bauð Arsene Wenger, knatt- spyrnusljóri Arsenal, 5,6 millj. punda í varnarmanninn frá Nígeríu en AIi Sen, for- seti Fenerbahce hafnaði boð- inu, sagði að Okechukwu, sem hefur leikið meira en 30 landsleiki fyrir Nígeríu, væri helsta eign félagsins. Wenger hefur áhyggjur af bakmeiðslum Tonys Adams og vörninni í heild og er því tilbúinn að mæta kröfum tyrkneska félagsins. Talið er að gengið verði frá samning- um í næsta mánuði en þá hættir Sen í stjórninni. Stevenage og Coventry héldu vid hefðinni STEVENAGE og Coventry komu mest á óvart í 3. umferð ensku bikarkeppninnar um helgina. Utandeildaliðið sló út 1. deildar lið Swtndon - vann 2:1 á útivelli - og Coventry, sem sigraði Man- chester United um fyrri helgi í úrvalsdeildinni, hélt áfram að koma á óvart og vann Liverpool, 3:1, á Anfield. West Ham átti í erfiðleikum með áhugamannalið Emley en tryggði sér 2:1 sigur undir lokin. Aston Villa var heppið að fá aukaleik við neðsta lið 1. deildar, jafnaði 2:1 í Portsmouth skömmu fyrir leikslok, og Arsenal gerði markalaust jafntefli heima við Port Vale, sem hef- ur tapað síðustu sex leikjum í 1. deild. Leikir umferðarinnar fóru fram á laugardag og sunnudag en vegna veðurs varð að fresta nokkr- um viðureignum. Veðrið, rok og rigning, hafði líka áhrif á nokkrum leikvöngum. Vindurinn skemmdi ekki fyrir Mark Walters sem skor- aði af 25 metra færi fyrir Swindon í byijun leiks á móti Stevenage en Jason Soloman jafnaði og eftir það var vindurinn í bakið á gestunum, óx eftir því sem á leið, sem ýtti heimamönnum æ aftarþartil Grazi- oli gerði sigurmark utandeildarliðs- ins um miðjan seinni hálfleik. Huckerby hetja Coventry Darren Huckerby tætti vörn Manchester United í sundur fyrir skömmu og varnarmenn Liverpool fengu að finna fyrir miðheijanum á Anfield. Jamie Redknapp skoraði fyrir heimamenn en Huckerby jafn- aði fyrir hlé. Gestirnir héldu stífum sóknarleik áfram í seinni hálfleik og Dion Dublin skoraði eftir að David James hafði ekki náð að halda boltanum eftir skot frá Huck- erby. Paul Telfer innsiglaði sann- gjarnan og öruggan sigur þremur mínútum fyrir leikslok. „Ég er ekki sáttur við frammi- stöðuna - Coventry vann vel fyrir sigrinum,“ sagði Roy Evans, knatt- spyrnustjóri Liverpool. „Ég hafði áhyggjur af varnarleiknum enda lá í loftinu að mótheijarnir myndu skora.“ Gordon Strachan, stjóri Coventry, tók í sama streng. „Ég veit að allir vilja tala um Huckerby en frábær frammistaða liðsins skóp árangurinn. Stundum koma menn hingað og hugsa aðeins um að veij- ast en sigra samt en þetta var ekki heppnissigur. Við lékum mjög vel og áttum þetta skilið.“ Strachan sagði að Coventry væri ekki metið að verðleikum. „Við fáum ekki þá viðurkenningu sem okkur ber. Aldrei er sagt að Cov- entry hafí leikið vel heldur að Manc- hester United, Liverpool eða hver sem mótheijinn er hveiju sinni hafi leikið illa.“ Hvað sem því líður er Coventry komið áfram í 4. umferð bikarkeppninnar en er þremur stig- um frá fallsæti í úrvalsdeildinni. Heppnin með Villa Portsmouth komst í 2:0 á móti Aston Villa með tveimur mörkum frá Ástralanum Craig Foster en Steve Staunton minnkaði muninn, þegar hann skoraði af harðfylgni skömmu fyrir hlé, og Simon Gray- son jafnaði eftir varnarmistök undir lokin. Emley sem sumir stuðningsmenn kölluðu Wembley á borðum sínum komst vel frá viðureigninni við West Ham á Upton Park. Frank Lampard skoraði fyrir heimamenn í byijun en Paul David jafnaði er 10 mínútur voru af seinni hálfleik og átti áhugamannaliðið það skilið. Hins vegar gleymdist John Hartson eitt augnablik undir lokin og það nægði atvinnumannaliðinu til sig- urs. „Þeir stóðu sig mjög vel og áttu skilið að fá eitthvað út úr þess- um leik,“ sagði David Unsworth, fyrirliði West Ham. „Við verðum að sýna ámóta áhuga og byggja á þeim grunni.“ Michael Thompson, fyrirliði Emley, var yfir sig kátur en áhorfendur risu úr sætum í leiks- lok og klöppuðu liðinu lof. í lófa. „Móttökurnar hjá áhangendum West Ham voru stórkostlegar. Dag- urinn var frábær.“ Slagsmál Leeds vann Oxford 4:0 og Lei- cester tók Northampton með sömu markatölu. Blackburn átti ekki í erfiðleikum með Wigan og vann 4:2 en Derby hafði Southampton 2:0. Barnsley fékk Guðna Bergsson, Arnar Gunnlaugsson og samheija í Bolton í heimsókn og vann 1:0. Slagsmál brutust út rétt áður en flautað var til leiksloka og varð lög- regla að skerast í leikinn áður en David Elleray flautaði af, en 90 sekúndur voru eftir þegar lætin byijuðu. Guðni sagði við Morgun- blaðið að hann hefði ekki tekið þátt í látunum og taldi ólíklegt að þau hefðu eftirmála fyrir félögin. „Ann- ars var mikill vindur, bleyta og haglél og knattspyrnan því stór- karlaleg en jafntefli hefði gefið rétt- ari mynd af gangi mála.“ Arnar lék með Bolton allan leikinn. Hermann Hreiðarsson og sam- heijar í Crystal Palace, hafa enn ekki fagnað sigri á heimavelli í úr- valsdeildinni en glöddu áhangendur með 2:0 sigri á Scunthorpe. Neil Emblen gerði bæði mörk Palace. Sheffield Wednesday náði aðeins jafntefli, 1:1, við Watford á útivelli en Sunderland gerði góða ferð til Rotherham og vann, 5:1. Kevin Phillips gerði fjögur mörk fyrir gestina. lan Rush með sigurmarkið Leikur Everton og Newcastle á Goodison Park var ekki sérstakur, en lengi vel virtist sem heimamenn ætluðu að skora. Það átti samt ekki fyrir þeim að liggja og enn einu sinni var það Ian Rush sem gerði vonir þeirra að engu. Rush lagði áherslu á að fá að leika á móti Everton. „Mér hefur alltaf þótt gaman að skora á móti Everton," sagði hann fyrir leikinn en áður en að honum kom hafði miðhetjinn gert 25 mörk fyrir Liv- erpool í 36 leikjum á móti Everton sem er met. Hann hafði líka gert 42 mörk í bikarkeppninni, sem er met, og á metið með Geoff Hurst í deildabikarkeppninni, 49 mörk. Rush var ekki í byijunarliðinu eins og hann vildi en skipti við Faustino Asprilla snemma í seinni hálfleik og gerði sigurmarkið um miðjan hálfleikinn. Fyrirgjöf frá hægri á fjærstöng, John Barnes sendi fyrir markið og Rush renndi sér á boltann við marklínuna. Dæmigert mark fyrir kappann sem er 36 ára og hefur verið orðaður við stjórastarf hjá Preston. Wrexham náði markalausu jafn- tefli við Wimbledon. Karl Connolly skaut í slá hjá Wimbledon þegar á fyrstu mínútu en Marcus Gayle hjá Wimbledon skoraði í lokin eftir hornspyrnu. Dómarinn Steve Dunn dæmdi markið ekki gilt, sagði að tíminn hefði verið útrunninn. Joe Kinnear, knattspyrnustjóri Wimble- don, lét Dunn heyra það, sagði að hann hefði sagt að tvær mínútur væru eftir þegar hornið var tekið. „Þetta eru stystu tvær mínútur sem IAN Rush 1 um getur - hann valdi tímann til að flauta af!“ Brian Flynn, stjóri Wrexham, sagðist hafa heyrt flaut- ið þegar boltinn var í loftinu og eins sínir menn. „Þeir hættu samt ekki því þeir vildu ekki standa eins og þvörur. Þetta var heppni en á öllu þarf að halda þegar leikið er á velli úrvalsdeildarliðs." Atvikið minnti á HM-leik Brasilíu og Svíþjóðar 1978 en þá flautaði Clive Thomas leikinn af rétt áður en Zico sendi boltann í net Svía og úrslit urðu 1:1 - ekki 2:1 eins og Brasilíumenn vildu. Bikarmeistarar Chelsea úr leik á Stamford Bridge Manchester United með kennslustund Manchester United fór á kostum á Stamford Bridge á sunnudag og vann bikarmeist- ara Chelsea 5:3. Staðan var 5:0 þegar 12 mínútur voru til leiks- loka og höfðu gestimir mikla yfír- burði en slökuðu á undir lokin. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1913 sem Chelsea fær fímm mörk á sig í Ensku bikarkeppninni. „Við lékum mjög vel þar til kæruleysið varð ailsráðandi undir lokin," sagði Alex Ferguson, knattspyrnustjóri United. Hann sagði að tapið á móti Coventry í deildinni á dögunum hefði í raun gert liðinu gott. „Við vorum óhræddir og ætluðum ekki að vera næstbestir. Við vildum ekki jafntefli og fyrir leikinn sagði ég við Peter Schmeichel að væri jafnt 10 mínútum fyrir leiksiok yrði hann að fara í framlínuna." Ruud Gullit setti sjálfan sig í bytjunarlið Chelsea - á miðjuna með Mark Hughes í staðinn fyrir fyrirliðann Dennis Wise sem var í banni - en hvorki hann né sam- heijarnir sáu til sólar. „Við eyði- lögðum tækifærið sjálfír,“ sagði hann. „Við fengum á okkur „ódýr“ mörk og gerðum þeim líf- ið létt en getum verið stoltir af síðustu mínútunum. Ég óska að ég hefði byijað með liðinu sem lauk leiknum." Ekkert gekk hjá Chelsea og Gianfranco Zola og Tore Andre Flo fengu lítið sem ekkert til að moða úr frammi. Ryan Giggs, Paul Scholes og Nicky Butt áttu miðjuna og mörk- in voru glæsiieg. Fyrst tvö frá David Beckham - það seinna beint úr aukaspyrnu sem skrifast á varnarvegginn eða Sheringham sem virtist toga ysta mann veggs- ins frá - og svo tvö frá Andy Cole, en Teddy Sheringham gerði fímmta markið - frábært skalla- mark. Graeme Le Saux var snöggur að hugsa þegar hann lyfti yfír Schmeichel og minnkaði muninn og varamaðurinn Gianluca Viaili sýndi hvemig á að fara að því - gerði tvö mörk undir lokin. „Hefði ég vitað hvað Gianluca spilaði vel hefði ég hugs- anlega haft hann í byijunarliðinu en ég átti ekki margra kosta völ,“ sagði Gullit. „Leikmenn voru ýmist ekki í leikæfingu eða í banni.“ Þetta er í þriðja sinn sem Un- ited fagnar sigri á Chelsea 1 bik- arnum á síðastliðnum fimm árum. Árið 1994 hafði United betur í úrslitaleiknum og 1996 i und- anúrslitum. Sigurinn nú gerir það að verkum að United færist nær því að verða tvöfaldur meistari - sigurvegari í deild og bikar - í þriðja sinn á fimm árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.