Morgunblaðið - 07.01.1998, Síða 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
1997
fWtrgtttiMaMI)
■ MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
BLAÐ
Beit þjálfara
mótherjanna
KNATTSPYRNUÍÞRÓTTIN hefui- eignast sinn Mike
Tyson, sagði norska dagblaðið Verdens Gang í gær
er það greindi frá knattspymumanni hjá áhuga-
mannaféiagi á Spáni sem réðst á þjálfara andstæð-
inganna og beit hann með þeim afleiðingum að það
vantaði nokkuð á neðri vör þjálfarans.
Leikmaðurinn, sem heitir Sergio Caceres og er
miðvörður hjá Cardedeu í Katalðmu, var í heimsökn
hjá félaginu Martineucs á dögunum. Á leið út af vell-
inum í ieikslok hófúst orðaskipti á milli Caceres og
þjálfara andstæðinganna, Vicene Juqu. Þeim orða-
skiptum lauk með því að Caeeres rauk á þjálfarann,
beit hami í neðri vörina með þeim afleiðingum að eft-
ir vantaði um 3,5 sm stykki í vörina. Caceres þver-
tekur hins vegar fyrir að hafa bitið þjálfarann, en
viðurkennir að hafa skailað hann. Þjálfarinn segist
hins vegar hafa verið bitinn og segist aidrei hafa vit-
að tii þess að menn misstu svo stórt stykki úr vörinni
eftir skalia.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Dómarar
funda á
leiktíma
SVO gæti farið að körfuknattleiks-
dómarar yrðu á fundi annað kvöld
þegar 12. umferð DHL-deildarinn-
ar á að fara fram. Dómarar eru
ósáttir við þá greiðslu sem þeir fá
fyrir dómarastörfin og vilja leggja
áherslu á orð sín og áhugaleysi
forráðamanna körfuknattleiks-
deilda félaganna með væntanleg-
um fundi. Formannafundur var í
gærkvöldi hjá KKÍ og þar var lögð
fram tillaga til lausnar deilunni og
því er hugsanlegt að dómarar
fresti boðuðum fundi.
Körfuknattleiksdómarar fá
3.900 krónur fyrir hvern leik í úr-
valsdeildinni og hafa talið að það
séu nettó-laun en nú vill skattur-
inn fá sitt og því vilja dómarar fá
hækkun. Þeir lögðu reyndar fram
tillögu fyrir þremur árum, þegar
umræðan um skattgreiðslur innan
íþróttahreyfingarinnar var hvað
háværust. Þá stungu þeir uppá að
hækkuninni yrði mætt á þremur
árum en félögin féllust ekki á það.
Til samanburðar má benda á að
handknattleiksdómari fær 5.200
krónur fyrir hvem leik og 9.000
krónur í úrslitakeppninni og í
knattspymunni fær dómari 5.500
krónur fyrir leikinn og aðstoðar-
dómarar 4.400. Þessar tölur eru
miðaðar við efstu deildir.
Svo haldið sé áfram að leika sér
að tölum þá þyrftu dómarar í körf-
unni að fá 6.500 krónur á hvern
leik til að halda 3.900 krónum eftir
að greiddur hefur verið skattur af
laununum. Dómarar munu samt
ekki fara fram á að laun þeirra
hækki svo mikið.
Kristinn varð
fjórði í svigi
KRISTINN Björnsson varð í
fjórða sæti á Evrópubikarmóti
í svigi sem fram fór í Kranjska
Gora í Slóveníu í gær. Hann
var með besta tíma allra kepp-
enda í síðari ferðinni. Þetta er
þriðji besti árangur Kristins
frá upphafi, þegar tillit er tek-
ið til styrkleika mótsins.
■ Kristinn / C2
Morgunblaðið/Þorkell
Kanada-
maður til
KRístað
Smiths
LIÐ KR mætir til leiks í úrvals-
deildinni í körfuknattleik að loknu
jólafríi með nýjan erlendan leik-
mann, Keith Vassel frá Kanada.
Hann mun vera um 190 sentimetra
hár og leika stöðu skotbakvarðar,
en getur þó leikið fleiri stöðiu-.
Hann var í sigurliði háskóla síns í
Kanada árið 1996 og lék í fyrra á
Spáni. Vassel kom til landsins í
gær og mætti á fyrstu æfingu með
KR í gærkvöldi. Hann verður til í
slaginn annaðkvöld er KR-ingar
heimsækja Skagamenn.
Vassel er þriðji erlendi leikmað-
urinn sem leikur í KR-búningnum í
DHL-deildinni í vetur. Fyrst var
það Kevin Tuckson sem lék átta
leiki áður en hann var látinn fara
og þá kom Jermaine Smith sem lék
þrjá leiki.
Vassel er á myndinni hér til hlið-
ar, á fyrstu æfingu sinni með KR-
liðinu í íþróttahúsi Hagaskóla í
gærkvöldi. Til varnar er Osvaldur
Knudsen, sem skartar sömu
„greiðslu“ og nýji leikmaðurinn
eins og sjá má.
BANDARÍKIN
Stúlkur stórauka
neyslu ólöglegra lyfja
Notkun á ólöglegum lyfjum hjá
unglingsstúlkum í Bandaríkj-
unum hefur stóraukist á sl. sex ár-
um samkvæmt könnun sem gerð
hefur verið þar í landi og birt var
nýlega. Meðal ástæðna sem nefnd-
ar eru fyrir aukningunni er þrýst-
ingur frá foreldrum á stúlkur
þeirra um að ná betri árangri í
íþróttum.
Samkvæmt rannsóknum hjá
Penn State háskólanum viður-
kenna 175.000 unglingsstúlkur að
nota ólögleg lyf með von um að þau
verði sér til framdráttar m.a. í
íþróttum og hefur þessi tala tvö-
faldast frá árinu 1991 er íyrri
könnun var gerð. Auk þrýstings
frá foreldrum um betri árangur er
á meðal ástæðna sem taldar eru
upp, einnig að sífellt fleiri skólar
bjóða afburða íþróttamönnum
skólastyrki, alltaf er þeim tækifær-
um að fjölga sem konum bjóðast í
keppni atvinnumanna þar sem
miklir peningar eru í húfi. Einnig
nefna stúlkumar að löngunin til
þess að komast í hóp eftirsóttustu
fyrirsæta heims ráði miklu. Afar
fáar stúlkur gera sér grein fyrir
þeim hættum sem notkun á ólög-
legum lyfjum getur haft á heilsu
þeirra og flestar segjast kæra sig
kollóttar um afleiðingamar. Meðal
þeirra afleiðinga sem notkun ólög-
legra hormónalyfja getur haft er
aukinn hárvöxtur og dýpri rödd en
það sem er enn alvarlegra er að
efnin hafa einnig mjög slæm áhrif á
hjarta og æðakerfi líkamans sem
leiða til alvarlegra sjúkdóma og
geta einnig haft skaðleg áhrif á
starfsemi lifrarinnar.
Annað virðist upp á teningnum
hjá piltum í sama aldursflokki.
Hjá þeim hefur neysla haldist
stöðug frá því að síðasta könnun
var gerð. Charles Yesalis, sem
stóð fyrir könnuninni, sagði, er
niðurstöðumar vom birtar, að
hann teldi að ástæðan fyrir því að
lyfjanotkunin hefði aukist stórlega
hjá stúlkum á sama tíma og hún
stæði í stað hjá piltunum væri sú
m.a. að áróður gegn notkun efn-
anna væri einlitur og honum væri
nær eingóngu beint að piltum.
James Puffer prófessor í heimil-
islækningum við Kaliforníuhá-
skóla segir þessa þróun vera mikið
áhyggjuefni. „Niðurstaðan segir
okkur að við gemm alltof miklar
kröfur til bama og unglinga, ekki
einungis hvernig þau skuli haga
sér og hvernig þau eigi að líta út,
heldur einnig og ekki hvað síst
hversu mikilvæg keppni og sigur
er.“
ARSENAL OG MIDDLESBROUGH í UNDANÚRSLIT DEILDARBIKARKEPPNINNAR / C3