Morgunblaðið - 07.01.1998, Blaðsíða 3
2 C MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1998 C 3
ÚRSLIT
SKÍÐI
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna
England
Deildabikarinn, 8-liðaúrslit:
Reading - Middlesbrough........0:1
- Hignett (89.). 13.072.
WestHam - Arsenal..............1:2
Abou (75.) - Wright (25.), Overmas (52.).
24.770.
Ítalía
Bikarkeppni, fyrri leikur í 8-liða úrslitum:
Lazio - ÁS Ronia....................4:1
Alen Boksic (2.), Vladimir Jugovic (32. -
vítasp.), Roberto Mancini (58.), Diego Fuser
(74.) - Abel Balbo (38. - vítasp.). Rautt
spjald: Balbo, Roma (76.). 60.000.
• Á morgun leika Fiorentina - Juventus
og Parma - Atalanta. Á fimmtudaginn leika
AC Milan - Inter.
Spánn
Bikarkeppnin 3. umferð, síðari umferð:
Compostela - Alaves (II)..........2:2
■ Alaves vann samanlagt 3:2.
Erakkland
Deildabikarinn, 2. umferð:
Paris St Germain - Lyon...........1:0
Skíði
Heimsbikarinn
Hinterglemm, Austurríki:
Stórsvig karla:
1. Hermann Maier (Austurr.)......2:37.96
(1:19.94/1:18.02)
2. Alberto Tomba (Ítalíu)........2:40.40
(1:21.48/1:18.92)
3. Rainer Salzgeber (Austurr.)...2:40.65
(1:20.56/1:20.09)
4. Hans Knauss (Austurr.)........2:40.89
(1:21.12/1:19.77)
5. Steve Locher (Sviss)..........2:40.98
(1:21.15/1:19.83)
Staðan í stórsviginu:
1. Maier.............................400
2. Von Grúnigen......................340
3. Mayer.............................299
4. Eberharter........................256
5. Knauss............................245
Heildarstigakeppnin:
1. HermannMaier(Austurr.)............819
2. Stefan Eberharter (Austurr.)......508
3. Michael Von Gruenigen (Sviss).....456
4. Andreas Schifferer (Austurr.).....446
5. Kjetil Andre Ámodt (Noregi).......371
Bormio, Ítalíu:
Stórsvig kvenna:
1. Deborah Compagnoni (Ítalíu).2:20.38
(1:11.56/1:08.82)
2. Martina Ertl (Þýskal.)........2:21.02
(1:11.83/1:09.19)
3. Alexandra Meissnitzer (Aust.) ....2:21.96
(1:12.14/1:09.82)
4. Katja Seizinger (Þýskal.).....2:22.57
(1:12.69/1:09.88)
5. Anita Wachter (Austurr.)......2:22.63
(1:12.03/1:10.60)
Staðan í stórsviginu:
1. Deborah Compagnoni (Ital(u).......400
2. Alexandra Meissnitzer (Austurr.)..236
3. Martina Ertl (Þýskal.)............221
4. Andrine Flemmen (Noregi)..........164
5. Sonja Nef (Sviss).................148
Heildarstigakeppnin:
1. Seizinger.........................981
2. Gerg..............................770
3. Compagnoni........................685
4. Nowen.............................633
5. Ertl..............................615
Skíðastökk
Bischofshofen, Austurríki:
Fjögurra palla keppnin:
Lokakeppnin (120 m pallur):
1. Sven Hannawald (Þýskal.).....247.6
(124.0/123.0)
2. Hansjörg Jaekle (Þýskal.)....235.2
(119.5/122.0)
3. Janne Ahonen (Finni.)........232.7
(118.0/121.0)
Lokastaðan i fjögurra palla keppninni:
1. Funaki......................944.0
2. Hannawald...................912.8
3. Ahonen......................907.0
Staðan í heimsbikarkeppninni:
1. Harada........................629
2. Thoma.........................582
3. Soininen......................533
Körfuknattleikur
NBA-deildin
New York - Washington......
Toronto - Houston..........
Orlando - San Antonio......
Portland - Milwaukee.......
Íshokkí
NHL-deildin
Carolina - Ottawa..........
New Jersey - Dallas........
■ Eftir framlengingu.
Chicago - Calgary..........
Vancouver - Los Angeles....
106:113
..96:120
....69:74
....92:98
.4:1
.3:4
.1:1
.3:2
íkvöld
Handknattleikur
1. deild kvenna
Kaplakriki: FH - Fram.........20
Strandgata: Haukar - Grótta-KR....20
Víkin: Víkingur-Valur.........20
Vestm. ÍBV - Stjarnan..........20
■ 12. umferð 1. deildar karla sem
fara átti fram í kvöld verður 28. jan-
úar.
8-Iiða úrslit bikarkeppni karla
Fylkishöll: Fylkir-HK.......20
Körfuknattleikur
1. deild kvenna
Hagaskóli: KR-ÍS............20
Evrópubikarmót í Kranjska Gora
Kristinn í
fjórða sæti
Kristinn Björnsson, skíða-
kappi frá Ólafsfirði, keppti
í Evrópubikarmóti í svigi í
Kranjska Gora í Slóveníu í gær.
Hann hafnaði í fjórða sæti og
náði besta brautartímanum í síð-
ari umferð. Þetta er þriðji besti
árangur hans frá upphafi. Það
er aðeins annað sætið í heimsbik-
arnum í Park City sem stendur
upp úr og síðan þriðja sætið í
Evrópubikarmótinu í Obereggen
í Austurríki í desember. Fyrir
mótið í gær fékk hann 40 Evr-
ópubikarstig og hefur hann því
100 Evrópubikarstig eftir þrjú
svigmót og er með efstu mönnum
í stigakeppninni í svigi.
Sigurvegari í mótinu í gær var
Frakkinn Richard Gravier, sem
var í 47. sæti á heimslistanum
í svigi fyrir tímabilið, en þá var
Kristinn í 53. sæti. Slóveninn
Andrej Miklavc, sem varð fímmti
í svigi heimsbikarsins á sama
stað á sunnudaginn og er í 14.
sæti á heimslistanum, var annar
og Benjamin Raich frá Austur-
ríki þriðji, en hann er heims-
meistari unglinga bæði í svigi
og stórsvigi og sigraði í mótinu
í Obereggen þar sem Kristinn
varð þriðji í desember. Finninn
Mika Marila varð fimmti.
Kristinn var með fjórða besta
tímann eftir fyrri umferð, en þá
var Miklavc með besta tímann.
Fjórir fyrstu keppendurnir voru
mjög jafnir og munaði aðeins
70/100 úr sekúndu á Kristni og
Frakkanum Gravier, sem sigr-
aði. Marila var síðan 80/100 á
eftir Kristni.
Arnór Gunnarsson frá ísafirði
og Haukur Arnórsson úr Ára-
manni kepptu einnig á mótinu í
gær en fóru báðir út úr í fyrri
umferð. Keppendur voru 90 og
margir þeirra hafa verið að
keppa í heimsbikarnum. Næsta
mót Kristins verður annað kvöld
en þá keppir hann í heimsbikar-
mótinu i svigi sem fram fer í
Schladming í Austurríki.
Compagnoni ósigr-
andi í meira en ár
Reuter
Hefur sigrað níu sinnum í röð í
stórsvigi sem er hennar sérgrein
af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi,
vegna þess að hér hefur mér aldr-
ei tekist að sigra og í öðru lagi
vegna þess að mér gekk mjög illa
í sviginu hér í gær [mánudag],“
sagði Compagnoni, sem síðasttap-
aði stórsvigskeppni 3. janúar á
síðasta ári - var þá önnur á eftir
löndu sinni, Sabinu Panzanini.
Compagnoni hafði 0,27 sek. í
forskot á næsta keppanda, Mart-
inu Ertl, eftir fyrri umferðina. „Ég
keyrði af 90 prósent styrk í fyrri
umferðinni og gerði nokkur mi-
stök. Ég vissi því að ég gat gert
betur í síðari umferðinni. Mér gekk
betur, en urðu á mistök en ég
fann að ég fór hraðar,“ sagði
stórsvigsmeistarinn.
Martina Ertl frá Þýskalandi
varð önnur og komst þar með í
fyrsta sinn á verðlaunapall í
heimsbikarmóti á Ítalíu eftir sjö
ára keppnisferil. „Ég hef trú á því
að ég geti meira og kannski kem-
ur að því að ég nái að vinna hana
í vetur,“ sagði Ertl. Austurríska
stúlkan Alexandra Meissnitzer,
sem hefur tvívegis verið önnur á
eftir Compagnoni í vetur, var
þriðja. „Ég held að Compagnoni
sé ósigrandi um þessar mundir.
Hún þarf að gera meiriháttar
mistök til að við getum unnið
hana,“ sagði Meissnitzer.
Katja Seizinger frá Þýskalandi
náði fjórða sæti og heidur enn
efsta sætinu í samanlagðri stiga-
keppni. Sænska stúlkan Ylva
Nowen, sem hefur slegið svo eftir-
minnilega í gegn í sviginu í vetur,
keyrði út úr í fyrri umferð.
DEBORAH Compagnoni frá Ítalíu hefur
haft ótrúlega yfirburði í sérgrein sinni,
stórsvigi. I gær sigraði hún í níunda
stórsvigsmótinu f röð.
Basile Boli verð-
ur að hætta
MIÐVÖRÐURINN Basile Boli, sem lék
45 landsleiki fyrir Frakkland, hefur
neyðst til að leggja knattspyrnuskóna
á hilluna vegna höfuðmeiðsla. Fyrir
tveimur árum lenti hann í samstuði við
eigin markmann í Evrópuleik Mónakó
og Leeds og hefur nánast verið með
höfuðverk síðan.
Eftir að hafa leikið með Mónakó fór
Boli til Urawa Reds í Japan 1996 en
höfuðverkurinn gerði honum lífið leitt.
»Ég hef verið með höfuðverk á hverj-
um degi. Þegar ég vakna á morgnana
er eins og ég hafi verið þakinn blýi.“
Boli, sem er 31 árs, hóf ferilinn hjá
Auxerre. Þaðan lá leiðin til Marseille
þar sem hann gerði garðinn frægan
en hann gerði m.a. sigurmarkið með
skalla í leik liðsins og AC Milan í Evr-
ópukeppni meistaraliða 1993. Eftir að
hafa fagnað tveimur frönskum meist-
aratitlum með liðinu fór hann til Ran-
gers og varð Skotlandsmeistari 1995.
Maier í sérflokki
ÍÞRÖmR
FOLX
■ SVISSNESKI landsliðsmaður-
inn í handknattleik, Marc Baum-
gartner, mun gerast leikmaður með
Winterthur í Sviss næsta keppnis-
tímabil. Hann hefur undanfarin ár
leikið með þýska liðinu Lemgo.
■ MICHELLE de Bruin sund-
kona frá írlandi sem áður bar eftir-
nafnið Smith og sló eftirminnilega
í gegn á Ólympíuleikunum í Atl-
anta 1996 keppir ekki á_ heims-
meistaramótinu í Pert í Ástralíu
sem hefst á fimmtudaginn.
■ DE Bruin segist ekki vera í
nægilega góðri æfíngu til þess að
taka þátt í HM. Nú hafí hún sett
stefnuna á að vera í sem bestri
æfingu á Ólympíuleikunum í Sydn-
ey eftir hálft þriðja ár.
■ ALÞJÓÐA sundsambandið hef-
ur ákveðið að draga til baka þátt-
tökutilkynningu liðsstjóra þýska
landsliðsins á HM. Liðsstjórinn
heitir Winfried Leopold og þjálf-
aði á árum áður sundfólk gamla
Austur-Þýskalands. í gögnum
sem fram hafa komið í Þýskalandi
er fullyrt að Leopold hafi tekið
þátt í að gefa sundmönnum ólögleg
lyf í A-Þýskalandi. Hefur hann ját-
að og vill Alþjóða sundsambandið
ekki sjá hann á vettvangi í Perth.
■ ÞYSKA sundsambandið hefur
ákaft mótmælt ákvörðun þessari í
máli Leopolds en harla ólíklegt er
talið að henni verði breytt.
■ FANNEY Rúnarsdóttir og fé-
lagar hennar í norska úrvalsdeild-
arliðinu Tertnes unnu sinni fyrsta
leik eftir langt jólaleyfi, er keppni
hófst um sl. helgi. Tertnes lagði
Junkeren á útivelli 29:26. Fanney
lék í markinu og fékk ágæta dóma
í Verdens Gang. Með sigrinum
komst Tertnes upp í 5. sæti
deildarinnar, er með 12 stig eftir
10 leiki.__
■ ESLÖV liðið sem Helga Torfa-
dóttir og Svava Sigurðardóttir
leika með í sænsku úrvalsdeildinni
í handknattleik tapaði um helgina
29:22 á heimavelli fyrir Savsjö.
Eslöw er í 8. sæti en Savsjö er í því
þriðja.
Italska skíðadrottningin Deborah
Compagnoni vann heimsbikar-
mót í stórsvigi í Bormio á ítah'u í
gær. Hún hefur nú verið ósigrandi
í sérgrein sinni níu mót í röð eða
í meira en heilt ár. Hún hafði aldr-
ei áður náð að sigra í Bormio, en
heimabær hennar, Santa Caterina,
er þar skammt frá.
„Það er alltaf stórkostlegt að
sigra en þessi sigur er sérstakur
Arnór
keppir í
heimsbik-
arnum
ÍSFIRÐINGURINN Arnór
Gunnarsson keppir í svigi
heimsbikarsins í Schlad-
ming I Austurríki annað
kvöld. Kristinn Björnsson
verður að sjálfsögðu einnig
á meðal keppenda þar.
Þetta er í fyrsta sinn sem
íslendingar eiga tvo kepp-
endur í heimsbikarnum.
Reglurnar eru þær að hver
þjóð má senda einn kepp-
anda án tillits til stöðu á
heimslista, en þar sem
Kristinn er meðal fjörutíu
efstu í heimsbikarnum fær
ísland auka sæti.
Kristinn, Arnór og
Haukur Arnórsson úr Ár-
manni munu allir keppa á
tveimur Evrópubikarmót-
um í svigi í Donnersbach-
wald í Austurríki á föstu-
dag og laugardag.
Austurríski skíðakappinn Her-
mann Maier hafði mikla yfírburði
í stórsvigi heimsbikarsins sem fram
fór í Hinterglemm í Austurríki í gær.
Hann var rúmum tveimur sekúndum
á undan Alberto Tomba sem varð
annar. Þetta var íjórði sigur Maiers
í vetur.
Þetta var fyrsta heimsbikarmótið
sem fram fer í Austurríki í vetur og
það kom ekki á óvart að heimamenn
næðu að stela senunni eins og þeir
hafa gert í 11 af 15 mótum á tímabil-
inu. „Það er góð tilfinning að standa
á hærra þrepi en Tomba á verðlauna-
pallinum. En ég tel þó að Tomba
verði erfiður við að eiga á Ólympíu-
leikunum í Nagano," sagði hinn 25
ára gamli sigurvegari sem hefur enn
aukið forskot sitt í efsta sæti stiga-
keppninnar. Árangur hans í vetur
hefur verið glæsilegur, sérstaklega
ef tekið er tillit til þess að þetta er
aðeins annað tímabilið sem hann
keppir í heimsbikarnum. „Það er allt-
af ánægjulegt að vinna á heimavelli.“
Tomba getur verið sáttur við annað
sætið því hann hafði rásnúmer 19 og
komst því ekki í fyrsta ráshóp. Hann
var með níunda besta tímann eftir
fyrri umferð og náði síðan í silfrið
og er það besti árangur hans í vetur.
Þessi árangur þýðir að hann er í 16.
sæti á heimsbikarlistanum í svigi og
ætti því að vera nokkuð öruggur með
að vera í fyrsta ráshóp (15 bestu) í
Naganó því níu Austurríkismenn eru
fyrir framan hann og þeir mega að-
eins senda fjóra í svigið á ÓL. Heima-
maðurinn Rainer Salzgeber varð
þriðji.
„Það er frábært að vera kominn
aftur á verðlaunapall í stórsviginu
eftir svo langan tíma,“ sagði Tomba.
„Það verður erfítt að vinna Maier í
Nagano. Hann er fullur sjálfstrausts
og getur tekið alla þá hættu sem
hann þarf. Hann hefur frábæra tækni
í stórsviginu. Hann minnir mig á sjálf-
an mig þegar ég var upp á mitt besta
þegar ég var ungur,“ sagði Tomba.
Heimsbikarhafinn í stórsvigi,
Svisslendingurinn Michael Von
Grúnigen, náði sér ekki á strik og
náði ekki á meðal þrjátíu bestu eftir
fyrri umferð og fékk því ekki að fara
síðari umferðina.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Afreksskrám
verður ekki breytt
Alþjóða fijálsíþróttasamband-
ið, IAAF, ætlar ekki að
breyta afreksskrám sínum þrátt
fyrir að skjöl sem komið hafa fram
í dagsljósið sýni að austur-þýskir
íþróttamenn hafí notað ólögleg lyf
á skipulegan hátt til þess að bæta
árangur sinn og til að vinna til
verðlauna á stórmótum. Mörg
heims- og Evrópumet sem sett
voru af fijálsíþróttamönnum
Austur-Þjóðveija á áttunda og
níunda áratugnum, einkum í
kvennaflokki, voru sett af íþrótta-
mönnum sem árum saman voru
aldir á ólöglegum lyfjum og í
mörgum tilfellum frá unglings-
aldri. Langflest þessara meta
standa enn þann dag í dag og
flestir telja ekki miklar líkur á að
þau verði slegin á næstu árum.
Sem dæmi má nefna heimsmet
Maritu Koch í 400 m hlaupi,
47,60, sem sett var í Canberra
1985 og engin kona í dag gerir
sér vonir um að slá nema þá með
því að hafa rangt við.
Breskir íþróttamenn, með
Sharron Davies sundkonu og Rog-
er Black, silfurhafa í 400 m hlaupi
í síðustu Ólympíuleikum í broddi
fýlkingar, hafa barist fyrir því í
nokkurn tíma að árangur sund-
manna og fijálsíþróttamanna
Austur-Þýskalands verði strikað-
ur út úr afreksskrám og verð-
launapeningar sem þeir unnu sér
inn á stórmótum verði af þeim
teknir. Við þessari kröfu ætla for-
ráðamenn Alþjóða fijálsíþrótta-
sambandsins ekki að verða en
forkólfar Alþjóða sundsambands-
ins hafa enn ekki sagt hvaða pól
þeir hyggist taka í hæðina.
í tilkynningu sem IAAF sendi
frá sér í vikunni segir að reglurn-
ar væru skýrar og samkvæmt
þeim væri ómögulegt að strika
út árangur austur-þýskra íþrótta-
manna þrátt fyrir að nú væri í
ljós komið að þeir hefðu í mörgum
tilfellum haft rangt við. „Áfrýjun-
artíminn er sex ár. Að honum
loknum er ekkert hægt að gera,“
sagði Georgio Reineri talsmaður
IAAF. „Nú er það orðið um seinan
og við höfum ekki í hyggju að
breyta þeim reglum sem við vinn-
um eftir. Þeim verður í fyrsta lagi
hægt að breyta eftir rúmt ár á
næsta þingi IAAF.“
Ekki er talið líklegt að Alþjóða
Ólympíusambandið breyti sínum
skrám yfír úrslit á Ólympíuleikun-
um 1976, 1980 og 1988 og striki
Austur-Þjóðveija út af þeim. Al-
mennt er talið að það sé ekki
gerlegt þar sem einnig megi setja
spurningarmerki við afrek margra
Vestur-Evrópubúa og Bandaríkja-
manna á þessum árum þótt ekk-
ert hafi sannast um lyfjaneyslu
hjá þeim. Hins vegar segir árang-
ur þeirra, líkt og Austur-Þjóð-
veija, meira en mörg orð.
KNATTSPYRNA
Vrtaspyma Hartsons
West Ham dýrkeypt
ARSEIMAL og „bikarliðið"
Middlesbrough tryggðu sér í
gær sæti í undanúrslitum
ensku deildarbikarkeppninn-
ar, Arsenal með því að leggja
West Ham 2:1 og Middlesbro-
ugh með naumum 1:0 sigri á
Reading. Hinir tveir leikirnir í
átta liða úrslitum deildarbik-
arsins verða í kvöld og þá
mætast annars vegar Liver-
pool og Newcastle og hins
vegar Ipswich og Chelsea.
Arsenal var í raun heppið að
komast áfram því þó liðið
léki betur en West Ham voru það
heimamenn sem fengu hættulegri
færi. Fyrst fengu þeir ódýra víta-
spyrnu sem John Hartson, fyrrum
leikmaður Arsenal, tók og Seaman
gerði sér lítið fyrir og varði slaka
spyrnu sóknarmannsins skæða.
Þetta hleypti fjöri í leik Arsenal
sem sótti stíft og skoraði um miðj-
an hálfleikinn. Eftir snaggaralega
sókn þeirra Ian Wrights og Denn-
is Bergkamps skoraði sá fyrr-
nefndi og snemma í síðari hálfleik
bætti Marc Overmars við marki
eftir hræðileg mistök varnar-
manna West Ham.
Frakkinn Samassi Abou minnk-
aði muninn fyrir heimaliðið er 20
mínútur voru til leiksloka og var
þetta fyrsta mark kappans fyrir
West Ham. „Okkur tókst að halda
fengnum hlut,“ sagði Arsene
Wenger, knattspyrnustjóri Ars-
enal, eftir sigurinn.
Það var enginn glæsibragur yfir
leik Middlesbrough er liðið lagði
Reading 1:0 í hinum leiknum í
gærkvöldi. Craig Hignett gerði
eina mark leiksins á 89. mínútu.
Middlesbrough er því komið í und-
anúrslit en Iiðið lék í fyrra til úr-
slita við Leicester og þurti tvo leiki
til áður en Leicester hampaði bik-
arnum. Leikmenn Middlesbrough
léku einnig til úrslita í bikarkeppn-
inni í fyrra og féllu auk þess um
deild.
Reuters
IAN Wright og Dennis Bergkamp höfðu ástæðu til að fagna
þegar Wright kom Arsenal yfir í leik liðsins við West Ham.
McCoist meiddist á hné
ALLY McCoist, sóknarmaður
Glasgow Rangers og skoska
landsliðsins, meiddist á hné í
gær og verður frá keppni í tvo
mánuði. McCoist, sem er 35
ára gamall, hafði vonast eftir
að komast í skoska landsiiðið
á HM í sumar en líkurnar
minnka verulega við þetta.
Rangers var tilbúið að lána
hann til Englands og var ætl-
unin að hann færi þangað í
vikunni, en það er allt breytt.
En læknar Rangers standa
í ströngu þessa dagana því
hinn 21 árs gamli Chilebúi,
Sebastian Rozental, meiddist á
mánudaginn og verður varla
leikfær á þessari leiktíð.
Rangers keypti hann fyrir
ári, en drengurinn hefur að-
eins leikið í 58 mínútur í treyju
Rangers. Hann meiddist nefni-
lega á hné fljótiega eftir að
hann kom til Skotlands og var
skorinn tvívegis, fyrst í Los
Angeles og síðan í Santiago.
Hugmyndin var að Rozental
næði að leika með Rangers
síðar í þessum mánuði en nú
hefur félagið óskað eftir að
læknirinn sem skar hann upp
komi til Skotlands og skoði
drenginn.
Sex Islend-
ingar á EM
unglinga í
Finnlandi ^,
EVRÓPUKEPPNI unglinga-
landsliða í badminton hefst í
Helsinki í Finnlandi í dag og
lýkur um helgina. ísland er í
riðli með Austurríki og Spáni
og mætir keppinautunum á
morguu. Milliriðlar fara fram
á föstudag og laugardag en ,
úrslit á sunnudag.
í íslenska liðinu eru Katrín
Atladóttir, Sara Jónsdóttir,
Ragna Ingólfsdóttir, Ingólfur
Ingólfsson, Helgi Jóhannes-
son og Magnús Ingi Helgason.
Keppnin er fyrir unglinga 19
ára og yngri en þó íslensku
keppendurnir séu á aldrinum
15 til 17 ára eigaþeir allgóða
möguleika á sigri í riðlinum,
að sögn Péturs H(jálmtýsson-
ar, framkvæmdastjóra Bad-
mintonsambandsins. Liðið
hefur æft stíft undanfarnar
vikur undir handleiðslu
Brodda Kristjánssonar lands-
liðsþjálfara.
■ JÓHANN Birnir Guðmunds-
son knattspymumaður úr Keflavík ,
er þessa dagana í Tyrklandi þar J
sem hann er í æfingabúðum með
belgíska félaginu Genk, sama liði
og Þórður Guðjónsson leikur með.
Belgíska félagið hefur hug á að fá
Jóhann til liðs við sig og bauð hon-
um því til Tyrklands til að sjá hann
í leik. Jóhann kemur heim 12. jan-
úar og þá mun skýrast hvort Kefl-
víkingar og forráðamenn Ghenk
hafi náð samkomulagi.
■ LARVIK lið sem Kristján Hall-
dórsson þjálfar í norsku úrvals-
deildinni vann í gær 10. sigur sinn
í vetur er liðið lagði Sjetne 32:12
á heimavelli. Larvik er taplaust. .
■ JOSE Luis Nunez, forseti og '
eigandi Barcelona, sagði á mánu-
daginn að búið væri að gera heiðurs- :
mannasamkomulag við Ottmar
Hitzfeld, fyrmm þjálfara Dort-
mund, um að hann komi til starfa
hjá liðinu 1. júlí sem tæknilegur
ráðgjafi. Tæki hann við starfi
Bobby Robsons.
■ HITZFELD sagði í gær að það
væri ekki rétt. „Ég er enn starfs-
maður hjá Dortmund."
Hitzfeld sagði starfí sínu lausu sem
þjálfari Dortmund, eftir að liðið
varð Evrópumeistari í fyrra og gerð-
ist tæknilegur ráðgjafí liðsins.
■ PETER Reid, knattspymustjóri
Sunderland, var útnefndur „stjóri"
desember í 1. deild. Sunderland
hefur leikið fimmtán leiki í röð án
taps. __
■ RÚMENSKI landsliðsmaðurinn
Viorel Moldovan, sem Coventry
keypti á dögunum frá Grasshopper
á 3,3 millj. punda, hefur fengið at-
vinnuleyfí í Englandi og mun leika
með liðinu gegn Chelsea á laukar-
daginn.
■ SÆNSKI Iandsliðsmaðurinn,
Tomas Brolin, sem Leeds keypti '
á 4,5 millj. um árið, byijaði að æfa
með Crystal Palace á mánudaginn.
Steve Coppel, knattspymustjóri
liðsins ætlar að gefa Brolin tvær
vikur til að sýna hvað hann getur.,
■ ÁSTRALSKI landsliðsmaðurinn
Ned Zelic, sem hefur leikið með
franska liðinu Auxerre, er á leið-
inni til þýska liðsins 1860
Miinchen.
■ ZELIC þekkir vel til knattspym-
unnar í Þýskalandi, þar sem hann
hefur leikið áður með Dortmund og
Frankfurt. {