Morgunblaðið - 20.01.1998, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUND
ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 B 3
Orn Arnarson segist hafa lært mikið
í heimsmeistarakeppninni í Perth
Reuters
ÖRN Arnarson hefur keppni
(stóra myndin) i 200 metra
baksundi í heimsmeistara-
keppninni í Perth. Á mynd-
inni fyrir ofan er hann kom-
inn í mark.
Ánægður
með
sætið
en ekki
tímann
ORN Arnarson var nokkuð frá
sínu besta í 200 metra baksundi
í heimsmeistarakeppninni í
sundi í Perth í Astralíu í fyrra-
dag. Hann synti á 2.05,61, sem
var 20. besti tími keppninnar,
en á best 2.03,43 frá því á Evr-
ópumótinu í Sevilla á Spáni á
liðnu sumri.
„Eg er ánægður með sætið en
ekki tímann,“ sagði Örn við
Morgunblaðið. „Hins vegar er
mótið í heild mikil reynsla fyrir
framtíðina og ég vejt frekar við
hveiju má búast á Olympíuleik-
unum í Sydney 2000.“
Hafþór Guðmundsson, lands-
liðsþjálfari í sundi, sagði við
Morgunblaðið að fyrri 100 metr-
arnir hefðu verið góðir. „Hann
synti þá eins og um hafði verið
rætt, var á 29,46 eftir 50 metra
og 1.00,76 eftir 100 metra. Við
höfðum rætt sérstaklega um
þriðju 50 metrana - að hann
yrði að halda hraðanum - en
hann missti flugið og náði sér
ekki upp aftur. En ekki þýðir að
grenja. Hann á nóg eftir. Eg
held að veikindin um jólin hafí
setið í honum og eins er erfítt
að halda einbeitingunni í svona
marga daga, en hann setur
þetta allt inn á reynslubankann.
Mótið var gott og í heildina var
þetta ómetanleg reynsla."
Örn sagði svekkjandi að hafa
verið þó nokkuð frá sínu besta.
„Eg missti 6 kíló í veikindunum
og þetta hefúr verið streð síðan.
Annað sem ég hef Iært er að á
mótum á ég það til að vera ekk-
ert taugaóstyrkur en greinilega
þarf að byggja upp ákveðið
stress. En það verður að taka
þessu eins og hverju öðru. Nú
fæ ég góðan tima til að einbeita
mér að æfingum heima og ég
ætti að verða mjög sterkur á
Evrópumóti unglinga í Belgíu í
ágúst.“
Hafþór sagði að reynslan
væri aðalatriðið. „Örn hefur
stöðugt verið að bæta sig. Hann
var frábær á Evrópumótinu í
ágúst sem leið og bætti sig aftur
í október, en hann getur ekki
endalaust bætt sig. Ég sagði áð-
ur en við fórum að stefnan væri
ekki sett á stórafrek heldur
fyrst og fremst á það að læra að
vera innan um þessar stór-
stjörnur, kynnast umhverfinu.
Það tókst vel og ég er mjög
ánægður.“
Bandaríski ólympíumeístarinn Amy Van Dyken sigraði í 50 m skriðsundi kvenna
Við spyvjum ekki um
tíma heldur verðlaun
ÁHORFENDUR á síðasta degi
heimsmeistarakeppninnar í
sundi í Perth í Ástralíu fóru
ánægðir heim enda ástæða til
að gleðjast - sundmenn
Ástralíu þökkuðu fyrir sig og
sigruðu í þremur greinum á
sunnudag, þar á meðal í 4x100
metra fjórsundi sem Banda-
ríkjamenn hafa einokað síðan
HM hófst 1973.
Iichael Klim, sem hafði sigrað í
þremur greinum, gerði
gæfumuninn í fjórsundinu en hann
synti þriðja sprett og náði forystu
fyrir Ástralíu í fyrsta sinn. Eftir
flugsundið tók Chris Fydler við og
kom fyrstur á skriðsundinu í mark.
„Þetta var ætlunin - ég ætlaði að
ná forystunni og hann átti síðan að
tryggja okkur sigurinn," sagði Klim
um úrslitasundið. „Áhorfendur
studdu okkur vel og andrúmsloftið
var frábært."
Susie O’Neill gaf heimamönnum
tóninn þegar hún sigraði í 200 metra
flugsundi, en Petria Thomas, landa
hennar, var í öðru sæti á eftir henni
rétt eins og á Ólympíuleikunum í
Atlanta.
Bandaríska stúlkan Misty Hym-
an, sem var með besta tímann í und-
anrásum, byrjaði eins og venjulega,
synti í kafi liðlega hálfa laugina.
Hún var fyrst eftir 100 metra,
Thomas var þá önnur og O’Neill
þriðja. Sú síðastnefnda var fyrst eft-
ir síðasta snúninginn og endasprett-
ur hennar var ótrúlegur en tíminn
var 2.7,93 mín. Thomas var á 2.09,08
og Hyman á 2.09,98.
Grant Hackett missti naumlega af
gullverðlaununum í 400 metra skrið-
sundi þegar Ian Thorpe, sem er 15
ára, fór fram úr honum á síðustu
stundu en Ástralinn hélt sínu striki í
1.500 metra skriðsundi og sigraði
með glæsibrag. Þessi 17 ára strákur
synti undir 15 mínútum í fyrsta sinn
og bætti persónulegt met sitt um 10
sekúndur. Tíminn var 14.61,70, sem
er þriðji besti tími sem náðst hefur í
greininni. „í 400 metra sundinu lét
ég Ian Thorpe hafa mig og ég hafði
það í huga - reyndi það sem ég gat
án þess að ofkeyra mig,“ sagði sig-
urvegarinn. ítalski Evrópumeistar-
inn Emiliano Brembilla var í öðru
sæti á 15.00,59 og Ástralinn Daniel
Kowalski, sem var í öðru sæti á HM
1994 og Ólympíuleikunum 1996,
fékk bronsið, synti á 15.03,94.
Bandaríkjamenn náðu besta ár-
angri sínum síðan á HM í Berlín
1978, sigruðu í 14 sundgreinum og
þar af tveimur á sunnudag, en alls
sigruðu þeir í 17 greinum í Perth.
Lenny Krayzelburg fylgdi sigrin-
um eftir í 100 metra baksundi og
fagnaði líka sigri í 200 metra sund-
inu, synti á 1.58,84. Hann náði for-
ystunni á síðustu 50 metrunum eftir
að Þjóðverjinn Ralf Braun hafði far-
ið fyrir köppunum á góðum hraða.
Ólympíumeistarinn Amy Van Dy-
ken virtist eiga í erfiðleikum með að
ná rétta taktinum í 50 metra skrið-
sundinu en rétti úr kútnum síðustu
25 metrana og sigraði á 25,15. Þýska
stúlkan Sandra Völker var í öðru
sæti á 25,32 og Shan Ying frá Kina
synti á 25,36. „Ég vissi ekki að þetta
yrði mitt sund en á miðri leið fór ég
að hugsa í þá veru og sagði við mig
sjálfa, ég á þetta, ég á þetta, ég á
þetta,“ sagði stúlkan sem er 24 ára
en hún fékk bronsverðlaunin á HM
1994. „Tíminn var ekki frábær en á
þessum mótum spyrjum við ekki um
tíma heldur verðlaun og ég fékk
gull.“
Klim maður mótsins
Astralinn Michael Klim var kjör-
inn besti sundmaður heims-
meistarakeppninnar í Perth og fékk
sérstök verðlaun frá Alþjóðasund-
sambandinu fyrir afrekið. Þessi tví-
tugi piltur vann til fernra gullverð-
launa, tvennra silfui-verðlauna og
bronsverðlauna. ,A-ð synda svona
alla vikuna er eins og að draumur
verði að veruleika,“ sagði krúnurak-
aði pilturinn. „Hefði einhver sagt
mér í vikubyrjun að svona yrði
þetta hefði ég hlegið að viðkom-
andi.“
Kínverska liðið vann til sjö verð-
launa eins og Klim en aðeins lið
Bandaiíkjanna og lið Ástralíu
fengu fleiri verðlaun en strákurinn,
sem æfir með Alexander Popov í
Canberra undir stjórn Gennadis
Touretskys. „Ég veit ekki hvað
þetta þýðir en ég lít ekki á mig sem
einn af þeim bestu og mun aldrei
gera.“ Hann sigraði í 200 metra
skriðsundi og 100 metra flugsundi
og var í sigursveitum í tveimur
greinum. Hann fékk líka silfur í
boðsundi eins og í 100 metra skrið-
sundinu en brons í 50 metra skriði
- grein sem hann æfir ekki. „Þetta
er toppurinn á ferlinum og ég vildi
að þetta væri ekki búið. Það var
frábært að sigra í 200 metra skriði
því það var fyrsti sigur minn í
heimsmeistarakeppni en flugið var
líka skemmtilegt vegna þess að ég
setti heimsmet í greininni í fyrra og
vildi sýna að það hefði ekld verið
tilviljun. Ég elska boðsundið því
þar réð árangur liðsheildarinnar
úrslitum."
Don Talbot, landsliðsþjálfari
Ástralíu, sagði að Klim væri besti
sundmaður heims en hann ætti eftir
að verða betri. „Ég dái Michael
Klim mikið. Hann er fullkominn
sundmaður. Hann gerir það sem
honum er sagt að gera, hræðist ekki
erfiði og er tilbúinn að gera allt sem
þarf til að hjálpa liðinu. Hann er sá
besti en hefur enn ekki sýnt sitt
besta.“
Klim var efstur á styrkleikalist-
anum í 200 metra skriðsundi fyrir
Ólympíuleikana í Atlanta en stóð
ekki undir væntingum og komst
ekki í úrslit. Nú er ljóst að miklar
væntingar eru gerðar til hans fyrir
Ólympíuleikana í Sydney árið 2000.
„Ég veit að líf mitt á eftir að breyt-
ast. Almenningur ætlast til þess að
ég geri þetta [sigri] í hvert sinn sem
ég keppi. Markmiðið hjá mér er að
sigra í Sydney en ég á ekki von á að
geta endurtekið það sem ég gerði
hérna."