Morgunblaðið - 20.01.1998, Side 4

Morgunblaðið - 20.01.1998, Side 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ Fjórtándi sigur Stjörnunnar Stefan Stefansson skrifar STJÖRNUSTÚLKUR, sem tróna á toppi 1. deildar kvenna, slógu hvergi af þegar þær heimsóttu Gróttu/KR-stúlkur á laugardaginn og unnu með tíu mörkum, 33:23, í hröðum og skemmtilegum leik. Stjörnu- stúlkur hafa fagnað sigri í fjórtán leikjum í röð. „Við keyrðum upp hraðann, lékum góða vörn og baráttan var mik- il,“ sagði Inga Fríða Tryggva- dóttir, sem átti góðan leik fyrir lið sitt. Garðbæingar hófu leik af krafti en Gróttu/KR-stúlkur leyfðu þeim samt ekki að stinga sig af þó að markamunurinn væri alltaf þrjú til fímm mörk. Hrað- inn var mikill og varnarleiknum oft lítið sinnt, enda voru skoruð 30 mörk á jafnmörgum mínútum. En á fyrstu mínútum síðari hálfleiks skildi leiðir þegar Lijana Sadzon í marki Stjörnunnar nánast skellti í lás og á næstu 20 mínútum tókst Gróttu/KR aðeins að skora 3 mörk á móti 11 gesta sinna. Það bil var ekki hægt að brúa. „Þær voru einfaldlega miklu betri og okkur vantar alveg sjálfs- traustið sem við höfðum í haust. Nú verðum við að setjast niður, fínna hvar við fórum út af sporinu og koma okkur þangað aftur,“ sagði Andrés Gunnlaugsson, þjálfari Gróttu/KR, eftir leikinn. Anna Steinsen og Harpa Ingólfsdóttir voru atkvæðamestar hjá liðinu. Þáttur Lijönu Sadzon markvarð- ar gerði útslagið í sigrinum. Ragn- heiður Stephensen og Herdís Sig- urbergsdóttir áttu góðán leik.eins og Inga Fríða á línunni, sem vann sér meðal annars inn fímm víta- skot. Inga Björgvinsdóttir sýndi enn á ný frábær tilþrif í langskot- um. Jafnt hjá Val og FH „Það var súrt að sjá á eftir boltan- um í stöngina,“ sagði Hafdís Hin- riksdóttir úr FH eftir 16:16-jafn- tefli gegn Val á Hlíðarenda, en skot hennar í stöngina innanverða á síð- ustu sekúndum leikins hefði tryggt FH sigur. Valsstúlkur sýndu á sér sparihliðarnar í byrjun og höfðu 12:6 í leikhléi en Hafnfírðingar eyddu mestu púðri í innbyrðis rifr- ildi. Eftir hlé tóku þær sig saman í andlitinu, unnu upp forskotið og höfðu möguleika á að hirða öll stig- in í lokin. Kristín í ham í Vfkinni „Þetta var frekar erfitt en ég fann mig mjög vel. Eg hef setið á bekknum og vildi sanna mig og vinna vel fyrir liðið,“ sagði Kristín Guðmundsdóttir Víkingur eftir mikinn spennuleik gegn Haukum í Víkinni á sunnudaginn, sem lauk með dramatískum endi og sigur- marki Víkinga á síðustu sekúndu leiksins. Kristín átti stærstan þátt í 22:21 sigrinum. Haukar hafa ekki sótt gull í greipar Víkingsstúlkna - fengið eitt stig úr þremur leikjum. Eftir þrjú mörk Hauka á innan við þremur mínútum fór um stuðn- ingsmenn Víkinga en þegar stúlk- urnar þeii-ra jöfnuðu, 4:4, léttist á þeim brúnin. Þá var Kristín sett inná og hún setti strax mark sitt á leikinn með hverju þrumumarkinu á fætur öðru, sem skilaði forystu. Eftir hlé varð ljóst að stöðva átti Kristínu með öllum ráðum og Harpa Melsteð fékk væga meðferð hjá dómurum leiksins þegar hún stökk ítrekað á hana með olnbog- ann í undan sér. Það dugði og með mikilli þolinmæði jöfnuðu Hafnfírð- ingar um miðjan síðari hálfleik en Heiða Erlingsdóttir, sem hafði ekki skorað þrátt fyrir sjö skot, skoraði sigurmarkið. Víkingsstúlkur léku sterkan varnarleik og markvarsla Kristínar Maríu Guðjónsdóttir var góð, þá var sóknarleikurinn snarpur. Krist- ín, Kristín María og Halla M. Helgadóttir voru góðar og Stein- unn Þorsteinsdóttir í vörninni. Haukastúlkur voru allan leikinn að elta Víkinga en Auður Her- mannsdóttir, Guðný Agla Jónsdótt- ir markvörður, Judit Esztergal og Hulda Bjarnadóttir voru bestar. „Við áttum á brattann að sækja en sýndum karakter í lokin þótt það hafí ekki dugað til,“ sagði Magnús Teitsson, þjálfari Haukastúlkna. Morgunblaðið/Kristinn EINAR Gunnar Sigurðsson tekur hér hressilega á móti Litháanum Robertas Panzuolis í leik Aftureld- ingar og IBV á sunnudaginn. Rafmögnuð spenna á Varmá Eyjamenn komu grimmir til leiks á ÍBV sótti á sunnudaginn Aftureldingu heim í 13. umferð 1. deild- ar karla í handknattleik, en aðeins er rúm vika síðan þessi lið mættust í í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar og þá höfðu Eyja- menn betur. Á sunnudaginn snerist dæmið hins vegar við og eft- ir hörkuspennandi og bráðskemmtiiegan leik voru það heima- menn sem fögnuðu sigri, 25:23. Afturelding trónir þar með enn á toppi deildarinnar með 20 stig en Eyjamenn sitja hins vegar í 9. sæti með 11 stig. sínum og lék Skúli Gunnsteinsson fyrir framan vörnina 1 því skyni að trufla gestina í sóknarlotum þeirra. Skúli hafði einkum góðar gætur á Litháanum Robertas Panzuolis, sem leikið hafði vel í fyrri hálfleik, og við það riðlaðist sóknarleikur gestanna þó nokkuð. Heimamenn söxuðu jafnt og þétt á forskot ÍBV og þegar 15 mínútur voru til leiksloka tókst þeim loks að jafna metin, 19:19. Á lokamínútum leiksins var loftið í íþróttahúsinu á Varmá hlaðið raf- magnaðri spennu og þegar skammt Sigurgeir Guðlaugsson skrífar á Varmá og greinilegt var að þeir höfðu fullan hug á að endur- taka leikinn frá því í bikarkeppninni helgina áður. Með Zoltán Belányi í broddi fylkingar og Sigmar Þröst Óskarsson sem klett í markinu léku Eyjamenn af miklum krafti og gengu til búningsher- bergja í hálfleik með fimm marka forvstu, 15:10. I síðari hálfleik gripu Mosfelling- ar til þess ráðs að breyta varnarleik Duranona með níu mörk ÍSLENDINGALIÐIN Eisenach og Bayer Dormagen mættust í þýska handboltanum um helgina. Ro- bert Julian Duranona og félagar lians í Eisenach höfðu betur, 23:21, og var Duranona marka- hæstur með níu mörk. Héðinn Gilsson var markahæstur í liði Dormagen með 5 mörk og Róbert Sighvatsson gerði fjögur mörk. Wuppertal mátti sætta sig við tveggja marka tap á útivelli gegn Nettelstedt, 23:21. Ólafur Stef- ánsson og Dimitri Filippow gerðu þrjú mörk fyrir Wuppertal og Geir Sveinsson tvö. Spánverjinn Duishebaew var hins vegar markahæstur í liði Nettelstedt, með 7 mörk. Patrekur Jóhannesson og fé- lagar (Essen sóttu ekki gull í greipar Lemgo og töpuðu á útí- velli með 13 marka mun, 32:19. Patrekur gerði tvö mörk en Alex- andr Tutschkin var markahæstur með 8 mörk. Marosi var marka- hæstur í liði Leingo með 11 mörk og Marc Baumgartner gerði fimm. Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Hameln töpðu fyrir Wallau-Massenheim á útivelli, 28:21. Niederwiirzbach tapaði fyrir Gummersbach, 22:19, á úti- velli. Konráð Olavson var ekki á meðal markaskorara. Magdeburg vann Minden 24:22 og efsta lið deildarinnar, Kiel, burstaði Flens- burg-Handewitt 28:21. var til leiksloka var staðan þannig að hvort lið hafði skorað 23 mörk. Gunnar Andrésson, fyrirliði Aftur- eldingar, var þá rekinn af leikvelli í tvær mínútur og fengu gestimir kjörið tækifæri til þess að taka for- ystuna en Sebastian Alexandersson, sem lék mjög vel í marki heima- manna í síðari hálfleik, gerði sér lít- ið fyrir og varði frá Erlingi Ric- hardssyni. Afturelding brunaði fram en hinum megin varði Sigmar Þröstur Óskarsson í tvígang og aft- ur fengu Eyjamenn tækifæri. Þeir misstu hins vegar boltann eftir heldur ótímabært skot frá Panzuolis og eftir laglega sókn Aft- ureldingar kom Einar Einarsson heimamönnum síðan yfir þegar að- eins þrjátíu sekúndur voru til leiksloka. Eyjamenn misstu svo knöttinn á ný í næstu sókn og það var loks Skúli Gunnsteinsson, leik- maður og þjálfari Aftureldingar, sem gulltryggði sigur Mosfellinga á síðustu sekúndu leiksins. „Við spiluðum illa í tveimur íyrstu leikjunum á þessu ári og í fyrri hálfleik í kvöld [á sunnudags- kvöld] leit allt út fyrir að við mynd- um halda áfram á sömu braut. Við náðum hins vegar að rífa okkur upp í síðari hálfleik, breyttum varnar- leiknum og gengum svo á lagið þeg- ar sóknarleikur þeirra riðlaðist," sagði Einar Einarsson, sem skoraði hið mikilvæga mark heimamanna í stöðunni 23:23. „Ég var ekki búinn að leika vel í þessum leik og fannst ég því skulda strákunum eitt mark. Það kom á hárréttum tíma, en sigurinn hefði svo sem getað lent hvorum megin sem var,“ bætti Einar við. Baráttusig- ur FH-inga FH-ingar kræktu sér á laugardag- inn i tvö mikilvæg stig í toppbar- áttunni í 1. deild karla í handknatt- leik þegar þeir sigi'- Sigurgeir uðu IR-inga í Breið- Guðlaugsson holtinu, 24:22. Leik- skrifar urinn var spennandi og skemmtilegur á að horfa, en þrátt fyrir þó nokkra hörku tókst báðum liðum oft á tíðum að sýna falleg tilþrif. FH-ingar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og voru IR-ingar þá einkum í því hlutverki að elta gest- ina og reyna að koma í veg fyrir að forskot þeiira yrði of mikið. í hálfleik var staðan 12:9 FH-ing- um í vil og á upphafsmínútum síðari hálfleiks var þróunin svo svipuð og hún hafði verið í fýrri hálfleik - FH- ingar voru ávallt skrefi á undan en ÍR-ingar gáfust hins vegar ekki upp og voru aldrei langt á eftir. Þegar rúmar tólf mínútur voru síðan til leiksloka gerðist það atvik að Matth- ías Matthíasson, þjálfari ÍR, fékk að líta rauða spjaldið iyrir að ganga inn á leikvöllinn þegar hann taldi að FH-ingar hefðu beðið um leikhlé. Þetta virtist hleypa illu blóði í heimamenn og skömmu síðar tóku þeir ágætan sprett og jöfnuðu met- in, 18:18. FH-ingar voru hins vegar ekki á þeim buxunum að gefa forskotið eft- ir og þar sem heimamönnum tókst ekki að láta kné fylgja kviði voru það Hafnfirðingar sem fögnuðu dýr- mætum stigum í leikslok. „Það fór e.t.v. heldur mikil orka í það að elta FH-ingana og þegar okkur svo loksins tókst að jafna metin í síðari hálfleik þá náðum við ekki að fylgja því eftir,“ sagði Matthías Matthíasson, þjálfari IR- inga. Bestir FH-inga voru þeir Knútur Sigurðsson og Valur Arnarsson, en einnig reyndist Lárus Long mikil- vægur á lokamínútunum. Hjá ÍR lék Ólafur Sigurjópsson mjög vel, en þeir Jóhann Ásgeirsson og Hall- grímur Jónasson í markinu áttu einnig góða spretti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.