Morgunblaðið - 20.01.1998, Qupperneq 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 B 7
SKÍÐI SKÍÐI
ftSSÉÉÉ
íéááÉ$$É
mm
Árangur Kristins Björnssonar í vetur
hann á staðnum og báðu um viðtöl
í Kitzbiihel. Pulltrúi FILA-fatnað-
arfyrirtækisins festi á hann
stærra og betra auglýsingarmerki
og fulltrúi Rossignol passaði að
ekkert skyggði á skíðamerkið
hans. Kristinn sagði að fjöl-
miðlaumstang ætti ekki sérstak-
lega vel við sig. „En það er þó í
lagi á meðan vel gengur. Það verð-
ur verra þegar fjölmiðlarnir verða
neikvæðir."
HM = Heimsbikarmót
EM = Evrópubikarmót
HM
Dagur Keppnisstaður, land
22. nóv. 97 Park City, Utah, Bandaríkjunum
Sæti
2
FlS-stig
0,56
Lauk ekki
EM 13. des.97 Obereggen, Austurríki 3 8,28
HM 15. des.97 Sestriere, Ítalíu - Hætti í fyrri umferð
EM 21.des.97 Kreischberg, Austurríki - Hætti í fyrri umferð
HM 4. jan. 98 Kranjska Gora, Slóveníu - Dæmdur úr leik í seinni umferð
EM 6. jan. 98 Kranjska Gora, Slóveníu 4 5,95
HM 8. jan. 98 Schladming, Austurriki - Dæmdur úr leik i fyrri umferð
EM 9. jan. 98 Donnersbachwald-Riesneralm, Austurríki 1 2,67
EM 10. jan. 98 Donnersbachwald-Riesneralm, Austurríki - Hætti í fyrri umferð
HM 18. jan. 98 Veysonnaz, Sviss 2 0,51
KRISTINN Bjömsson á fullri ferð í brautinnl í Veysonnaz í Sviss á sunnudaginn.
Reuters
Kristinn Björnsson endurtók leikinn frá Park City og tryggði sér silfur í Veysonnaz í Sviss
Þetta er harður heimur og það
keyrðu margir góðir út úr
brautinni í fyrri umferð," sagði
Kristinn Bjömsson skíðakappi
þegar hann var spurður hvernig
honum leið þegar Alberto Tomba
keyrði út úr seinni umferð í heims-
bikarakeppninni Veysonnaz í Sviss
á sunnudag. Kristinn var í þriðja
sæti áður en Tomba keyrði út. Það
var fræðilegur möguleiki að hann
myndi sigra keppnina ef Austur-
ríkismaðurinn Thomas Stangassin-
ger, sem var með besta
tímann eftir fyrri umferð,
færi sömu leið og Tomba.
En svo fór ekki. Kristinn
endurtók leikinn frá í
Park City og varð annar í
heimsbikarkeppninni í
svigi í Veysonnaz á sunnu-
dag með tímann 1:38.91.
Stangassinger sigraði með
tímann 1:38.12
Hver reyndur skíða-
kappinn á fætur öðrum
keyrði út úr snarbrattri
brautinni í fyrri umferð.
Stangassinger sagðist
hafa farið varlegar í neðri
hlutanum af því að svo
mörgum varð á í messunni
þar. Kristinn kom í mark
/
„Eg var rólegri fyrir síðari umferðina.
Vissi þá að ég gæti þetta. Pað er líklega
st.yrkleikamerki,“ sag;ði Kristinn Björnsson
••
m.a. í viðtali við Onnu Bjarnadóttur sem
fylgdist með svigkeppninni frá endamark-
inu í Veysonnaz á sunnudag.
með 5. besta tímann, eða 48.99 sek-
úndur. „Brautin er mjög erfið,“
sagði hann. „Hún er brött, sérstak-
lega uppi, glerhörð, ójöfn og hliðin
eru lögð mjög þétt. Ég keyri best á
svona brautum svo hún átti mjög
vel við mig.“
Kristinn sagðist hafa verið dálít-
ið kvíðinn fyrir fyrri umferð. Hann
var með rásnúmer 29. „Ég var ró-
legri fyrir þá seinni. Ég vissi þá að
ég gæti þetta. Ég keyri yfirleitt út í
fyrri umferð ef ég kemst ekki í
mark. Það er líklega styrkleika-
merki.“ Það voru fleiri beygjur í
seinni ferðinni en brautin var jafn
brött og ójöfn sem áður. Svisslend-
ingamir sprautuðu vatni á hana á
laugardagskvöld svo að hún var
eins og hrjúfur klaki. „Hristingur-
inn í brautinni var svo mikill að það
var hálfgert basl að komast niður
hana,“ sagði Kristinn. „Ég gat til
dæmis ekki dæmt um það í fyrri
umferð hvort ég væri á góðri ferð
eða ekki. En ég vissi að ég væri
það þegar ég heyrði hróp áhorf-
endanna þegar millitíminn kom í
ljós. Seinni ferðin var ekki fullkom-
in ferð, ég keyrði þá betur uppi
eins og í fyrri ferðinni. Það var
snjóblinda niðri. Ég stefndi á að ná
einu af efstu 10 sætunum og er
auðvitað mjög ánægður með enn
betri árangur."
Fjölmiðlaumstang á ekki
vel við Kristin
Frábær frammistaða Kristins
var ekki fyrr komin í ljós en
ítalska sjónvarpið og World Ski
Report höfðu við hann viðtöl.
Norskir fréttamenn töluðu við
Tilbúinn í
slag þeirra
bestu
KRISTINN var mikið í sviðljósinu eftir svigið í Veysonnaz á
sunnudag. „Það voru margir erlendir fréttamenn sem vildu ná
tali af mér. Ég fékk þó öðruvísi spurningar en eftir mótið í Park
City í nóvember. Nú var ekki verið að spyrja mig svo mikið út í
uppruna minn og ísland eins og í Park City. Ég er orðinn nafn í
heimsbikarnum. Flestir vildu fá að vita hvaða væntingar ég gerði
um árangur á Ólympíuleikunum í Nagano. Ég sagði þeim að ég
væri ekki farinn að hugsa um Ólympíuleikana enn. Það væru
fyrst og fremst heimsbikarmótin sem ég væri að einbeita mér að
um þessar mundir,“ sagði Kristinn.
Hann sagði slæmt að ekki skyldi
hafa verið hægt að keppa í
sviginu í Veysonnaz í gær vegna
þess að hann hefði
Vaiur B. verið svo vel ein-
Jónatansson beittur fyrir það.
skrifar „Ég finn að ég er til-
búinn í slag þeirra
bestu. Á góðum degi er allt hægt.
Það þarf oft heppni til að ná góðum
árangri og eins er það líka oft
óheppni að sleppa hliði eða krækja.
Ég er í mjög góðri æfingu og hlakka
mikið til mótsins í Kitzbiihel um
næstu helgi - get varla beðið. Von-
andi verður svigið, sem aflýst var í
Veysonnaz, flutt til Kitzbiihel svo að
ég fái tvö mót fyrir ÓL. Það er mik-
ilvægt að ég standi mig vel í Kitz-
buhel því það getur skipt miklu máli
varðandi rásnúmer á Ólympíuleik-
unum. Ef mér tekst vel upp ætti ég
að eiga mögleika á því að komast í
fyrsta ráshóp í Nagano og að því
stefni ég.“
Kristinn fór í morgun frá Vey-
sonnaz í Sviss til Kitzbuhel í Austur-
ríld. Þar ætlar hann að æfa fram að
sviginu á sunnudag. „Ég keppi lík-
lega í einu fis-móti á fimmtudag til
að hita upp íyrir sunnudaginn. I því
móti keppa flestir sem taka þátt í
sviginu á sunnudag. Þetta mót fer
fram nokkra kílómetra frá Kitzb'hel
og hefur alltaf verið mjög sterkt. Ég
hef keppt áður í Kitzbtihel og ég
held að brekkan þar
henti mér vel. Það
er ávallt mikil
stemmning í kring-
um mótin þar, enda
keppt í bruni og
svigi. Svo verða
þetta líka síðustu
mótin fyrir Ólymp-
íuleika og það er
viss spenna sem
fylgir þeim.“
- Hver er þáttur
þjálfarans Christi-
ans Leitners í ár-
angri þínurn?
„Hann á mikinn
þátt í velgengni
minni, það er eng-
inn spurning. Hann
hefur lagað nokkur
smáatriði hjá mér í
vetur enda vel að
sér í fræðunum. Þó
held ég að þær góðu
aðstæður sem við
æfðum við í haust hafi skilað mestu.
Leitner hefur mjög góð sambönd í
Austurríki og fær alltaf toppað-
stæður til æfinga. Hann var kannski
ekki þekktur þjálfari, en nú er litið
upp til hans. Áusturrískir fjölmiðla-
menn hafa mikið rætt við hann um
árangur minn og vilja eigna sér
hann að hluta.“
- Er ekki mikilvægt að þú fáir
áfram að vera undir handleiðslu
Leitners?
„Jú, það hlýtur að vera. Ég vona
svo sannarlega að hann verði áfram.
Samningur hans við SKÍ rennur út í
vor en Skíðasambandsmenn ætla að
ræða við hann um áframhaldið
strax eftir Ólympíuleikana. Ég held
að það sé vilji beggja að halda þessu
samstarfi áfram með Finnum. Það
hefur gengið mjög vel.“
- Hvemig verður æfingum þínum
háttað fram að keppni á Ólympíu-
leikum?
„Ég reikna með að fara með ís-
lenska Ólympíuliðinu til Nagano 4.
febrúar, en hefði þó viljað vera hér í
Evrópu lengur til að æfa, enda
keppi ég ekki fyrr en í kringum 20.
febrúar í Nagano og veit ekki
hvemig aðstæður er þar til æfinga.
Finnamir og Leitner þjálfari fara
sama dag og íslenska liðið til Naga-
no þannig að ég æfi með þeim þar
eins og hingað til. Leitner er þjálf-
arinn minn.“
Morgunblaðið/V alur B. Jónatansson
CHRISTIAN Leitner þjálfari ásamt Kristni
Björnssyni. Leitner hefur lagfært ýmis smá-
atriði í tækni Kristins með góðum árangri.
Æfði með Kjetil-Andre Ámodt
FOLK
■ THOMAS Stangassinger vann
sjöunda heimsbikarmótið á ferlin-
um í Veysonnaz á sunnudaginn.
Þetta var jafnframt annar sigur
hans í svigi í vetur. Hann er 32 ára
og hefur verið keppandi í heimsbik-
amum í 12 ár. Hann á Ólympíu-
meistaratitilinn í svigi að verja í
Nagano. „Ég er íþróttamaður sem
vill annaðhvort allt eða ekkert,"
sagði Stangassinger eftir sigurinn
á sunnudag. Hann vildi ekki tjá sig
um möguleikana á að verja titilinn í
Nagano. Sagðist ætla að einbeita
sér að heimsbikarmótunum fram að
ÓL.
■ ALBERTO Tomba náði ekki að
vinna í heimsbikarnum í 50. sinn
eins og hann stefhdi að í Veysonnaz
á sunnudaginn. Það leit reyndar vel
út hjá honum eftir fyrri umferðina
því þá var hann með næst besta
brautartímann. Hann fór síðan út
úr eftir nokkur hlið í síðari umferð.
■ TOMBA var óánægður með
gengi sitt og vildi kenna lélegri
braut um það. „Brautin var slæm. í
henni var mikið af svellbungum og
það var eins og bestu skíðamenn-
imir gætu hreinlega ekki staðið á
skíðunum."
■ HERMANN Maier, sem hefur
afgerandi forystu í heildarstiga-
keppni heimsbikarsins, sigraði í tví-
keppni, þ.e.a.s. samanlögðum ár-
angri úr bmninu á fóstudag og
sviginu á sunnudag. Þetta var í
fyrsta sinn sem hann keppir í svigi
heimsbikarsins og sýndi að hann er
einnig vel liðtækur þar eins og í
hraðagreinunum. Hann endaði f 10.
sæti í sviginu.
■ KIMINOBU Kimura frá Japan
náði þriðja sætinu í sviginu á
sunnudag og var það í fyrsta sinn
sem hann kemst á verðlaunapall í
heimsbikarnum. Hann er helsta
von Japana á Ólympfuleikunum í
Nagano og þessi árangur ætti að
auka vonir þeirra um góðan árang-
ur.
■ KATJA Seizinger frá Þýska-
landi, sem hefur haft mikla yfir-
burði í bmni og risasvigi í vetur,
varð að játa sig sigraða í báðum
greinum í Altenmarkt í Austurríki
á sunnudaginn. Landa hennar,
Renate Götschl, sigraði í bruninu
og Martina Ertl í risasvigi. Þrátt
fyrir það hefur Seizinger ömgga
forystu í stigakeppninni.
■ HAUKUR Arnórsson úr Ár-
manni varð í 7. sæti á hollenska
meistaramótinu í svigi sem fram
fór í Flachau sl. þriðjudag. Hann
fékk fyrir árangur sinn 22,13 fis-
stig, sem er besti árangur hans í
greininni.
■ ARNÓR Gunnarsson frá Ísafírði
keppti einnig á hollenska meistara-
mótinu en sleppti hliði og var dæm-
ur úr leik. Hann keppti í fis-móti f
Adelboden f Sviss á föstudag og
náði 10. sæti og fékk fyrir það 29
fis-stig.
■ BJÖRGVIN Björgvinsson frá
Dalvík keppti í stórsvigi í Funesda-
len í Svíþjóð á sunnudaginn. Hann
varð í 8. sæti og fékk fyrir það 31
fis-stig, sem er besti árangur hans.
Á sunnudag keppti hann á öðra
móti í sömu grein og varð í 16. sæti
og hlaut 34 fis-stig. Sveinn Brynj-
ólfsson, ólympíufari frá Dalvfk,
varð í 16. sæti í sama móti á sunnu-
dag og hlaut 43 fis-stig.
Hvers
vegna er
Krístinn
svona góð-
ur í hörðu
skíðafæri?
Kristinn Bjömsson hefur sýnt
og sannað að hann er bestur
þegar skíðafæri í svigbrautunum er
sem harðast, nánast
0j;r eins og svell. Hvers
Vai B. vegna er hann svona
Jónatansson góður við slíkar að-
stæður?
Hann ræður yfir mikill tækni við
að beita skíðunum rétt við slíkar að-
stæður. Eins og segir á skíðamáli:
hann er með „gott hné“ og „góða
mjöðm“. Það er að segja hann nær
að beita þyngdaraflinu rétt þannig
að pressan á skíðin verður mikil og
því nær hann mjög góðum skurði á
innri kant skíðanna - sker snjóinn
vel. Tímasetningar hans í hverri
beygju em góðar. Hann er alltaf til-
búinn þegar kemur að næstu
beygju vegna þess hve snöggur
hann er. Þess vegna nær hann góð-
um hraða í miklum bratta. Hann er
léttari og liprari en flestir þeir sem
hann er að etja kappi við og það hef-
ur hann nýtt sér.
Kristinn er með rétta hugarfarið
og það skiptir miklu máli. Hann hef-
ur mikið keppnisskap og keyrir
alltaf eins hratt og hann getur.
Hann hefur oft sagt: .Annaðhvort
allt eða ekkert." Það á vel við og
lýsir honum best. Hann er jákvæð-
ur og þó svo að það gangi ekki alltaf
upp hjá honum er hann ekki að
kenna ytri aðstæðum um, heldur
fyrst og fremst sjálfum sér. Hann
veit hvað þarf til að vera á meðal
þeirra bestu, enda er hann kominn
á þann stall og þar ætlar hans sér
að vera.
Austurríski þjálfarinn Christian
Leitner á einnig mikinn þátt í vel-
gengni Kristins. Hann hefur lag-
fært ýmis tæknileg smáatriði og er
mjög skipulagður í allri sinni vinnu.
Hann er vel kynntur í austurrísku
Ölpunum og hefur Kristinn og
finnska landsliðið notið góðs af því.
Þjálfarinn hefur kappkostað að æfa
alltaf við bestu aðstæður hverju
sinni. Eins spilar það inn í að Krist-
inn hefur ekki þurft að hafa áhyggj-
ur af undirbúningi skíðanna fyrir
æfingar eða keppni. Finninn Samu-
el, aðstoðarmaður finnska landsliðs-
ins, hefur alfarið séð um skíðin
hans, brýnt þau og smurt. Þetta
þurfti Kristinn að gera sjálfur fyrir
einu ári síðan. í vetur hefur hann
því betur getað einbeitt sér að æf-
ingunum en áður.
KRISTINN æfði með Norðmanninum
Kjetil-Andre Ámodt milli jóla og nýárs.
Kristinn var þá við æfingar í Geilo í
Noregi og þar var Ámodt einnig að
æfa. Þjálfari Ámodts kom að máli við
Kristin og bauð honum að vera með.
„Þjálfarinn hefði líklega ekki boðið
mér að vera með fyrir ári,“ sagði Krist-
inn og hló. Hann sagði að eftir að hann
náði öðm sæti í Park City hefði viðmót
norsku skíðamannanna gagnvart sér
breyst. „Þeir eru viðkunnanlegri en áð-
ur og ávallt fyrstir til að óska mér til
hamingju þegar vel gengur."
Srautin hentaði mér vel
Aftur saman á palli
KRISTINN Björnsson var í ann-
að sinn á verðlaunapalli heims-
bikarsins í Veysonnaz í Sviss á
sunnudaginn. í fyrra skiptið, i
lok nóvember í Park City, var
hann einnig með Austurríkis-
manninum Thomasi Stangassin-
ger ólympíumeistara á verð-
launapallinum eins og á sunnu-
dag. Stangassinger hefur unnið
tvö heimsbikarmót í vetur og
hefur Kristinn verið í öðru sæti í
þeim báðum. Þriðji skíðamaður-
inn á verðlaunapallinum á
sunnudag var Kiminobu Kimura,
sem Japanir binda miklar vonir
við á ÓL í Nagano.
1,5 milljónir
í verðlaun
PENINGAVERÐLAUN em veitt
fyrir þrjú efstu sætin í heimsbikam-
um. Fyrir annað sætið í Park City
fékk Kristinn 750 þúsund krónur og
svipaða upphæð fyrir annað sætið á
sunnudag. Hann hefur því fengið 1,5
milljónir í vasann fyrir þessi tvö mót.
Auk þess fær hann ýmsar bónus-
greiðslur, þar á meðal frá framleið-
anda Rosignoll-skíðanna, sem hann
notar.
Svigkeppni
aflýst í gær
ÞAÐ byrjaði að snjóa í Veysonnaz á
sunnudagskvöld og í gærmorgun var
allt á kafi í snjó. Mótshaldarar heims-
bikarmótsins í svigi urðu því að aflýsa
keppninni. Kristinn Björnsson, sem
var með rásnúmer 29 í sviginu á
sunnudag, átti að vera með rásnúmer
20 í gær og liafði því færst fram um
níu sæti vegna frammistöðu sinnar á
sunnudag. Þetta er í annað sinn sem
fresta þarf mótinu því þetta svig átti
upphaflega að vera í Madonna di
Campiglio fyrir jólin.
Stirður í baki
KRISTINN var kominn upp í íjall um
áttaleytið í gærmorgun. „Við áttum í
erfiðleikum með að komast upp eftir,
það var svo mikill snjór,“ sagði hann.
Keppninni var aflýst klukkan níu og
Kristinn fór þá aftur á hótelið. Hann
tók það rólega fyrir framan sjónvarp-
ið og gerði nokkrar teygjuæfingar.
„Ég er stirður í baki og það er ágætt
að fá smátfma til að jafna sig,“ sagði
hann.
Næsta mót
í Kitzbuhel
NÆSTA heimsbikarmót í svigi verður
í Kitzbúhel í Austurríki næsta sunnu-
dag og verður Kristinn þar á meðal
keppenda. Það er sfðasta mótið fyrir
Ólympíuleikana í Nagano. Kristinn
sagði að hann hefði stefnt að því í
haust að ná einu af efstu rásnúmerun-
um fyrir ólympíuleika og það hefur
honum tekist.
Vill fresta för
til Nagano
ÍSLENSKA landsliðið á skíðum fer til
Japans 4. febrúar frá Kaupmanna-
höfn. Kristinn vildi helst fá að fara
eitthvað seinna. „Maður veit ekki
hvernig æfingaaðstaðan er þama. Mér
skilst að það sé frekar lítill snjór,“
sagði hann. „Helst vildi ég fá að fara
rúmri viku fyrir keppni og nota tím-
ann til að æfa hér í Olpunum eða í
Noregi þangað til.“ Finnarnir, sem
Kristinn æfír með, fara jafn snemma
til Japan og íslendingarnir. „Ég þyrfti
að fínna einhverja aðra til að æfa með
ef ég fæ leyfi til að fara seinna," sagði
hann. Þess má geta að svigið á Ólymp-
íuleikunum er ekki á dagskrá fyrr en
21. febrúar.
Arnór út úr
í fyrri umferð
ARNÓR Gunnarsson frá ísafirði átti
að vera með rásnúmer 65 í heimsbik-
arnum í svigi í Veysonnaz í gær. Hann
var með rásnúmer 71 á sunnudag en
keyrði út úr í fyrri umferð. „Ég fór
illa af stað en var kominn með góðan
takt þegar ég krækti,“ sagði hann.
„Brautin var enn góð þegar ég fór nið-
ur, það sá ekki á henni. Það er auðvit-
að Ieiðinlegt að geta ekki keppt í dag
[í gær] en það er svo hrikalega mikill
snjór að það væri vonlaust að reyna að
halda keppnina."
Arnór og
Haukur keppa
í Schönried
ARNÓR og Haukur Arnórsson úr Ár-
manni taka þátt í Evrópubikarmóti í
svigi í Schönried í Sviss í dag, þriðju-
dag. Þeir halda þaðan til Kitzbuehl á
morgun. Haukur verður með í heims-
bikarmótinu í svigi á sunnudaginn.