Morgunblaðið - 20.01.1998, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 1998 B 9
KNATTSPYRNA
Landsliðsþjálfari Frakklands segir riðilinn erfiðan
Verðum að sýna
stöðugleika í
hveijum leik
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Þorkell
LINDA Stefánsdóttir og Kristín Blöndal berjast um knöttinn,
Tara Williams og Erla Þorsteinsdóttir eru við öllu búnar.
Williams sá
um Keflavík
KR hefur fjögurra stiga for-
ystu í 1. deild kvenna í
körfuknattleik eftir þrettán
umferðir. KR lagði Keflavík
69:64 í uppgjöri efstu liðanna
í Hagaskólanum á sunnudags-
kvöldið í skemmtilegum og
spennandi leik. Nýr erlendur
leikmaður KR, Tara Williams,
fór á kostum í sókninni og
gerði 33 stig.
KR hóf leikinn mun betur og
komst í 6:0 áður en Keflvíking-
um tókst að skora stig, en það
tókst eftir tvær og
Skúli U. hálfa mínútu. Strax
Svemsson skrifar { upphafi var ljóst
að Tara Wilhams er
snjall körfuknatt-
leiksmaður því hún skoraði 12 af
fyrstu 16 stigum KR og þó svo hún
sé augljóslega ekki í mikilli æfingu
er hún gríðarlega sterk undir körf-
unni, þar sem hún hefur aldrei leik-
ið áður! Hún leikur nefnilega
venjulega bakvörð eða framherja,
alls ekki miðherja, en nýttist svo
sannarlega vel þar.
Barátta miðherjanna
Það má eiginlega segja að fyrri
hálfleikur hafi verið barátta mið-
herjanna, Williams hjá KR og Erlu
Þorsteinsdóttur hjá Keflavík, og
stóð sú síðarnefnda þeirri fyrr-
nefndu ekkert að baki.
Keflavík komst yfir um miðjan
hálfleikinn en KR náði forystunni á
ný og hélt henni allt þar til rétt áð-
ur en klukka tímavarðar gall því þá
gerði Kristín Blöndal þriggja stiga
körfu og gestirnir voru einu stigi
yfir í leikhléi.
Lið Keflavíkur var ekki eins
lengi í gang eftir hlé og það var í
upphafi leiks og eftir fimm mínútna
leik var staðan orðin 38:47, Kefla-
vík hafði gert tíu stig gegn tveimur
stigum heimamanna. En þrjár af
lykilmanneskjum liðsins vom í
villuvandræðum; Erla fékk fjórðu
villuna eftii- þriggja mínútna leik í
síðari hálfleik og þær Jenny
Boucek og Anna María Sveinsdótt-
ir eftir átta mínútna leik, eins og
reyndar Guðbjörg Norðfjörð hjá
KR.
Þegar staðan var 55:46 fyrir
Keflavík tóku heimamenn hlé og
réðu ráðum sínum og gafst það vel.
KR beitti pressuvörn með þeim ár-
angi-i að liðið gerði 21 stig, Willi-
ams þar af 15, á meðan gestirnir
náðu aðeins að gera fjögur. Staðan
orðin 63:59 fyrir KR og þijár mín-
útur til leiksloka. Lokasekúndurn-
ar voru æsispennandi, en staðan
var 67:64 er 40 sekúndur voru eft-
ir. Tilraunir Keflavíkurstúlkna til
að skora þriggja stiga körfu
mistókust og KR fór með sigur af
hólmi.
Eins og áður segir var Tara
Williams gríðarlega sterk og verð-
ur gaman að sjá til hennar þegar
hún er komin í æfingu þannig að
hún geti leikið á fullu allan leikinn.
A sunnudaginn einbeitti hún sér að
sóknarleiknum og hafði sig lítið í
frammi í vöminni. KR, sem lék án
Kristínar Magnúsdóttur sem er
meidd, barðist vel allan tímann.
Kristín Jónsdóttir var mjög dugleg
eins og Linda Stefánsdóttir. Helga
Þoi-valdsdóttir átti einnig góðan
leik, en hefði mátt hitta betur. Guð-
björg skaut varla að körfunni og er
það óvenjuleg sjón. Sigrún Skarp-
héðinsdóttir og Sóley Sigurþórs-
dóttir stóðu fyrir sínu þegar þær
komu inn á.
Misstu niður gott forskot
Það er ekki á hvexjum degi sem
stúlkurnar úr Keflavík missa nið-
ur níu stiga forystu í síðai'i hálf-
leik, en einhvei’n tíma verður allt
fyrst. Keflavík hefur leikið betur
en á sunnudaginn. Erla Þorsteins-
dóttir var frábær í fyrri hálfleik,
Boucek lék vel svo og Anna María,
og Kristín Blöndal átti ágæta
spretti.
FRAKKAR, gestgjafar Heims—
meistarakeppninnar í knatt-
spyrnu, eru í riðli með Rúss-
landi, Úkraínu, íslandi, Armen-
íu og Andorra í riðlakeppni
Evrópukeppninnar en dregið
var í Ghent í Belgíu í fyrradag.
Keppni hefst í haust en úrslit-
in verða í Hollandi og Belgíu
10. júní til 2. júlí 2000.
Aime Jacquet, landsliðsþjálfari
Fi-akka, sem hættir væntan-
lega með liðið eftir HM, sagði að
riðillinn væri strembinn og erfitt
yrði fyrir Frakka að komast áfram.
„Rússland er að koma upp aftur
með miklum krafti og Ukraína rétt
missti af Heimsmeistai'akeppninni.
Þetta er erfiður riðill fyrir okkur og
til að komast áfram verðum við að
vera sterkir og sýna stöðugleika í
hverjum leik.
Létt hjá Þjóðverjum
Evrópumeistarar Þjóðverja eru í
riðli með Tyrkjum, Finnum, Norð-
ur-írum og Moldóvum og virðast
eiga frekar greiða leið í úrslitin.
„Ég er mjög ánægður með riðil-
inn og ég er sannfærður um að
þýskh' áhangendur eru líka ánægðir
með di'áttinn. Auðvitað er ekkert
öi'uggt en ég er kátur með þetta.“
Wolfgang Niersbach, talsmaður
þýska knattspyrnusambandsins,
tók í sama streng. „Þetta er eins og
að vei'a heima að heiman," sagði
hann um Noi'ður-Ix-a en Þjóðverjar
voru í æfingabúðum í Norður-ír-
landi fyrir EM á Englandi og vora í
í-iðli með Noi’ður-íram í und-
ankeppni HM, gei'ðu 1:1 jafntefli í
Numberg og unnu 3:1 í Belfast. „Þó
Vestur-Þýskaland hafi tapað tvisvar
íyrir Norðui'-írlandi í riðlakeppn-
inni 1984 erum við bjartsýnh'.“
Richard Möller Nielsen, lands-
liðsþjálfari Finnlands, sagði að þeg-
ar Finnar mættu Þjóðverjum gætu
þeir síðarnefndu verið heimsmeist-
arai'. „Auðvitað eru þeir sigur-
stranglegastir í í'iðlinum en sagan
sýnir að þeir sigurstranglegustu
sigra ekki alltaf."
Fastir liðir eins
og venjulega
England og Pólland era saman í
riðli í sjötta sinn á liðnum 24 áram
- undankeppni HM 1974, 1990,
1994 og 1998 og undankeppni EM
1992 - en þjóðimar eru í 5. í'iðli
ásamt Lúxemborg, Svíþjóð og
Búlgaríu. „Við rötum vissulega til
Póllands," sagði Glenn Hoddle,
landsliðsþjálfai-i Englands, „en Pól-
land er eitt þiiggja landa sem við
vildum ekki mæta. Hin era Portú-
gal og Frakkland. Þetta er einn erf-
iðasti riðillinn og ég held að Búlgar-
ía verði erfiðasti mótherjinn."
Janusz Wojcik, landsliðsþjálfari
Póllands, sagðist ekki óttast Eng-
lendinga. „Ég er ekki hræddur við
Englendinga. Þegar ég þjálfaði
ungmennaliðið sigruðum við Eng-
land og margir leikmennii’nir era
nú í a-liðinu.“
Balkaniöndin
saman
Júgóslavía, Króatía og Makedón-
ía eru saman í í-iðli en landslið þjóð-
anna hafa ekki mæst síðan stríðið í
fyiTum Júgóslavíu hófst en leik-
menn frá þessum þjóðum vora
uppistaðan í landsliði Júgóslavíu á
—
Riðlarnir
Riðill 1
Ítalía, Hvíta Rússland, Wal-
es, Swiss, Danmörk.
Riðill 2
Noregur, Slóvenía, Lettland,
Georgía, Grikkland, Albanía.
Riðill 3
Þýskaland, Moldóva, N-ír-
land, Finnland, Tyrkland.
Riðill 4
Rússland, Armenía, fsland,
Úkraína, Frakkland, And-
orra.
Riðill 5
England, Lúxemboi'g, Pól-
land, Svíþjóð, Búlgaría.
Riðill 6
Spánn, San Marínó, Kýpur,
Israel, Austurríki.
Riðill 7
Rúmenía, Liechtenstein,
Ungverjaland, Slóvakía,
Portúgal, Azerbaijan.
Riðill 8
Júgóslavía, Malta, Makedón-
ía, Irland, Króatía.
Riðill 9
Skotland, Færeyjar, Bosnía,
Litháen, Tékkland, Eistland.
árum áður. „Gott er að vera á með-
al vina,“ sagði Miroslav Blazevic,
þjálfari Króatíu. „Ég held að við
eigum góða möguleika á að komast
áfi-am og að sjálfsögðu munu leik-
irnir einkennast af nágrannaslag.“
Malta og írland era með þeim í
riðli.
Slobodan Santi-ac, þjálfari Jú-
góslavíu, sagði dráttinn ekki vanda-
mál. „Leikmenn þjóðanna koma all-
ir úr sama knattspyrnuskólanum
og þekkjast mjög vel, betur en
nokkrir aðrir leikmenn í heiminum.
Króatar og Júgóslavar spila með
stórliðum á Italíu og Spáni og þar
er ekkert vandamál, leikmennii’nir
eru vinh' og ég er sannfærður um
að leikirnir verða baráttumiklir og
skemmtilegir."
Cesare Maldini, landsliðsþjálfari
Ítalíu, var varkár en Italía er í riðli
með Danmörku, Sviss, Wales og
Hvíta-Rússlandi. „Liðin í riðlinum
era jöfn og ég held að þau eigi öll
eftir að tapa stigum. Það verður
ekki auðvelt að komast áfram.“
September 1998
til október 1999
Keppnin hefst í september í
haust og lýkur í október 1999. Sig-
urvegarar riðlanna og liðið með'
besta árangur í öðra sæti fara í úr-
slitakeppnina með Belgíu og
Hollandi en hin átta liðin í öðru
sæti leika um fjögur sæti.
Veðbankar telja möguleika
Hollendinga mesta á titlinum, 5-1,
en síðan koma Þjóðverjar (6-1) og
Englendingar (7-1).
Aðallega
leikið
um helgar
TALSMENN liðanna í 4. riðli
hittast á fundi í París 16. febr-
úar til að í-eyna að semja um
leikdaga en þjóðimar hafa 60
daga fi'á og ineð drættinum í
fyrradag til að komast, að nið-
ux-stöðu. Náist ekki samkomu-
lag innan tímamarkanna sker
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, á hnútinn.
Leikdagamir í keppninni
verða 5./6. september, 10./11.
október og 13./14. okt. í ár en
á næsta ári 27./28.3.,
30./31.3., 5./6.6., 8./9,6.,
4./5.9., 7.Z8.9., 9./10.10.,
13./14.11. og 17.11.
Roberto Baggio
fór í fússi
RENZO Ulivieri, þjálfari Bol-
ogna, tilkynnti Roberto Baggio á
laugardag að hann yrði ekki í
byrjunarliðinu á móti Juventus
daginn eftir en kæmi inná sem
varamaður í seinni hálfleik.
Baggio sætti sig ekki við þetta,
fór í fússi og lét ekki sjá sig á
leiknum sem Juve vann 3:1.
Giuseppe Gazzoni, forseti
Bologna, sagði að stjói-n félagsins
tæki ákvörðun um fi-amhald
málsins í dag. „Hann er 30 ára,
hann er fullorðinn, hann hefur
verið bólusettur," sagði Gazzoni
um Baggio. „Hann veit hvað þessi
framkoma þýðir. Ég skil sárindi
hans vegna valsins en ekki ft-arn-
komu hans. Hann er ekki í ung-
lingaliðinu heldur Roberto
Baggio. Ekkert í samningi hans
segir að hann geti ekki verið
varamaður."
Baggio gekk til liðs við Bologna
í fyrrasumar eftir að Fabio Ca-
pello, þjálfari AC Milan, neitaði
að lofa honum öruggu sæti í liði
sínu. Fyrir liðlega viku fékk hann
gullmerki fyrir að hafa leikið 300
leiki í deildinni en hann sætti sig
ekki við að fá ekki að spila á móti
liðinu sem hann lék 141 leik fyrir.
Baggio lifir í voninni um að vera
valinn í ítalska landsliðshópinn
fyrir HM í Frakklandi og litið var
á umrædda viðureign sem mögu-
leika hans á að sanna sig á móti
Alessandro Del Piero. Ulivieri
sagði að Baggio hefði verið sagt
að hann kæmi inná í seinni hálf-
leik „og hann gpkk í burtu. Þetta
vai’ val hans. Ég gat ekkert við
þessu gert. Ekki gat ég farið
heim til hans og náð í hann.“
Gazzoni sagðist vona að vonbrigði
hefðu valdið fi-amkomunni, en
„þegar hann nær í launin sín eru
engin vonbrigði."