Morgunblaðið - 06.02.1998, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.02.1998, Blaðsíða 3
2 B FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998 + MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998 B 3 URSLIT Island - Slóvenía 2:3 Yermasoyia leikvangurinn í Limassol á Kýpur. Kýpurmótið í knattspyrnu, fimmtu- daginn 5. febrýar 1998. Aðstæður: Um 15 stiga hiti, skýjað og gola. Gott veður en ömurlegur vöilur, óslétt- ur. Mörk Islands: Ríkharður Daðason 38., Þórður Guðjónsson 88. Mörk Slóveníu: Zlatko Zahovie 33. vsp., 64. vsp., Andrej Poljsak 67. Gult spjald: Þórður Guðjónsson 25. fyrir mótmæli, Brynjar Gunnarsson 39. fyrir brot, Helgi Kolviðsson 64. fyrir brot, Sigurð- ur Jónsson 64. fyrir mótmæli, Mladen Rud- onja 70. fyrir brot, Amir Karic 89. fyrir brot. Rautt spjald: Arnar Gunnlaugsson 82. fyr- ir að segja nokkur vel valin orð við dómar- ann. ísland: Kristján Finnbogason - Pétur Mar- teinsson, Sigurður Jónsson, Eyjólfur Sverr- isson (Lárus Orri Sigurðsson 63.) - Helgi Kolviðsson, Brynjar Gunnarsson (Steinar Adolfsson 71.), Amar Grétarsson (Bjarki Gunnlaugsson 55.), Hermann Hreiðarsson - Amar Gunnlaugsson, Ríkharður Daðason (Bjami Guðjónsson 71.), Þórður Guðjóns- son. Slóvenía: M. Simeunovic - A. Jermanis (A. Poijsak 46.), M. Galic, A. Krizan, I. Benedejcic (A. Karic 71.) - R. Istenic (A. Ceh 46.), Z. Zahovic, M. Pavlin - A. Jerman- is, M. Rudonja (A. Sivko 87.), E. Siljak. Kýpur - Finnland 1:1 Valur-ÍR 81:86 Hlíðarendi; íslandsmótið í körfkuknattleik, úrvals- og DHL-deildin (efsta deild í karla- fiokki), fimmtudaginn 5. febrúar 1998. Gangur ieiksins: 0:10, 3:10, 10:16, 14:24, 19:28, 24:28, 26:35, 29:44, 31:50, 45:60, 57:78, 67:78, 69:83, 79:83, 81:84, 81:86. Stig Vals: Warren Peebles 37, Guðmundur Björnsson 16, Bergur Emilsson 14, Brynjar Karl Sigurðsson 10, Óskar Pétursson 4. Fráköst: 23 vöm - 10 sókn. Stig ÍR: Kevin Grandberg 29, Eiríkur Ön- undarson 25, Ásgeir Hlöðversson 16, Guðni Einarsson 8, Atli Sigurþórsson 6, Daði Sig- urþórsson 2. Fráköst: 18 í vörn - 7 í sókn. Dómarar: Einar Skarphéðinsson og Jón Halldór Eðvaldsson. Villur: Valur 16 - ÍR 13. Áhorfendur: Liðlega 70. Haukar - Keflavík 68:67 íþróttahúsið við Strandgötu: Gangur leiksins: 2:0, 6:5, 13:8, 21:13, 29:20, 36:26, 41:36, 45:41, 51:49, 55:58, 60:58, 64:65, 68:67. Stig Hauka: Sherrick Simpson 28, Pétur Ingvarsson 15, Sigfús Gizurarson 10, Bald- vin Johnsen 8, Ingvar Guðjónsson 5, Björg- vin Jónsson 2. Fráköst: 25 í vörn - 9 í sókn. Stig Keflavíkur: Falur Harðarson 28, Guð- jón Skúlason 17, Kristján Elvar Guðlaugs- son 9, Gunnar Einarsson 8, Fannnar Ólafs- son 4, Halldór Karlsson 1. Fráköst: 17 í vörn - 4 í sókn. Dómarar: Helgi Bragason og Kristján Möller. Þeir komust ágætlega frá erfiðum leik. Villur: Haukar 18 - Keflavík 21. Áhorfendur: Um 200. Grindavík-UMFIM 83:80 íþróttahúsið í Grindavík: Gangur leiksins: 10:6, 19:14, 35:27, 44:32, 55:43, 57:55, 57:65, 67:68, 75:74 83:80. Stig Grindavíkur: Darryl J. Wilson 26, Konstantionos Tsartsaris 25, Helgi Jónas Guðfmnsson 16, Bergur Hinriksson 8, Pétur Guðmundsson 6, Guðlaugur Eyjólfsson 2. Fráköst: 25 í vöm - 12 í sókn. Stig UMFN: Petey Sessoms 36, Teitur Örlygsson 15, Friðrik Ragnarsson 12, Páll Kristinsson 6, Örlygur Sturluson 5, Kristinn Einarsson 4, Logi Gunnarsson 2. Fráköst: 25 í vörn - 8 í sókn. Villur: Grindavík 12 - UMFN 16. Dómarar: Leifur Garðarsson og Jón Bend- er. Áhorfendur: Um 600. Skallagrímur - KFÍ 71:94 íþróttahúsið í Borgamesi: Gangur leiksins: 2:0, 17:14, 28:30, 34:32 39:38, 43:42, 52:52, 66:73, 69:87,71:94. Stig Skallagríms: Bragi Magnússon 20, Páll Axel Vilbergsson 18, Bernard Garner 8, Tómas Holton 8, Finnur Jónsson 7, Ari Gunnarsson 6, Sigmar Páll Egilsson 4. Fráköst:_19 í vörn - 8 í sókn. Stig KFÍ: David Bevis 29, Marcos Salas 19, Ólafur Ormsson 16, Guðni Guðnason 12, Baldur Jónsson 11, Friðrik Stefánsson 7. Fráköst: 22 f vöm - 6 í sókn. Dómarar: Sigmundur Herbertsson, Einar Einarsson slakir. yillur: Skallagrímur 17 - KFÍ 13. Áhorfendur: 270. Þór-ÍA 90:74 íþróttahöUin á Akureyri: Gangur leiksins: 0:4, 6:4, 19:8, 21:15, 41:21, 46:32, 57:38, 63:47, 82:60, 80:70, 90:74. Stig Þórs: Jesse Ratliff 33, Sigurður Sig- urðsson 28, Hafsteinn Lúðvíksson 13, Böð- var Kristjánsson 8 og Davíð Hreiðasson 8. Fráköst: 24 í vöm - 9 í sókn. Stig f A: Damon Johnson 37, Dagur Þóris- son 14, Alexander Ermolinski 13, Sigurður Þórólfsson 6, Brynjar Sigurðsson 2, Alex- ander Ermolinski 2. Fráköst: 20 i vöm - 10 ! sókn. Dómarar: Kristinn Albertsson og Rögn- valdur Hreiðarsson, áttu þeir þokkalegan leik. Villur: Þór 13 - ÍA 22. Áhorfendur: Ekki gefið upp. NBA-deildin Úrslit leikja í fyrrinótt. Boston - Dallas...................110:99 Washington - Cleveland............104:88 Philadelphia - Miami...............84:98 Minnesota - New York...............95:88 Utah - Chicago....................101:93 Denver - Sacramento...............99:101 Seattle - Indiana.................104:97 L.A. Lakers - Portland...........122:115 Fj. leikja U T Stig Stig GRINDAVÍK 17 15 2 1584: 1412 30 HAUKAR 17 13 4 1437: 1224 26 KFÍ 17 11 6 1493: 1388 22 KEFLAVÍK 17 10 7 1540: 1453 20 UMFN 17 9 8 1482: 1401 18 TINDASTÓLL 16 9 7 1260: 1212 18 ÍA 17 8 9 1324: 1339 16 KR 16 8 8 1294: 1321 16 SKALLAGR. 17 7 10 1398: 1509 14 VALUR 17 5 12 1373: 1478 10 ÞÓR 17 3 14 1327: 1553 6 ÍR 17 3 14 1335: 1557 6 Knattspyrna Spánn Bikarkeppnin Átta liða úrslit, fyrri leikur: Barcelona - Merida................2:0 ■Luis Enrique Martinez gerði fyrra markið snemma í leiknum og Luis Figo það gull- tryggði sigurinn seint í leiknum. ffyrri hálf- leikurinn var í járnum en gestirnir í liði Merida sóttu mun meira í fyrri hluta þess síðari. Heimamenn vörðust hins vegar vel og síðustu 20 mínútur leiksins fengu þeir nokkur mjög góð tækifæri til að bæta við marki. Það tókst undir lokin þegar Figo skallaði í netið úr þröngu færi eftir fyrir- gjöf Sergis. Gullbikarkeppnin Keppnin er haldin á vegum Knattspyrnu- sambands Mið- og Suður-Ameríku. 3. riðill, Oakland, Kaliforníu: Costa Rica - Kúba.................7:2 Austin Berry (3.), Paulo Wanchote 4 (21., 31., 64., 78.), Wilmer Lopez 2 (27., 44t.) - Eduardo Cebranco 2. (50., 90.) 2. riðill, Mexíkó - Trinidag& Tobago.4:2 Ramon Ramirez (37.), Luis Hernandez 2 (63., 82.), Francisco Palencia (65.) - Clint Marcelle (59.), Jerren Nixon 90.) ■Heimsmeistarar Brasilíu gerðu marka- laust jafntefli við Jamaíka í keppninni á þriðjudaginn, á Orange Bowl-leikvanginum i Florida. Áhorfendur, sem voru 43.754, urðu fyrir miklum vonbrigðum með frammi- stöðu heimsmeistaranna. Holland Úrvalsdeildin i gærkvöldi: Fortuna Sittard - Sparta.........2:1 Michael Jeffrey 10.; Ronald Hamming 21. - Nico Jalink 60. Ahorfendur: 5.000. Portúgal Bikarkeppnin, 8-Iiðaúrslit: Gil Vicente (II) - Benfica...........1:1 ■ Eftir framlengingu. Braga - Sporting Lisbon..........3:1 ■ Eftir framlengingu, staðan var jöfn 1:1 að loknum 90 mínútum. Freamunde (III) - Porto...........0:4 Boavista - Uniao Leiria (II)......2:2 ■ Eftir framlengingu. Íshokkí NHL-deildin Úrslit leikja í fyrrinótt. Buffalo - Boston Pittsburgh - Washington 2:2 2:2 Carolina - Tampa Bay 3:3 New Jersey - Ottawa 2:0 N.Y. Islanders - Montreal 4:2 Toronto - St. Louis 3:2 Dallas - Philadelphia 1:0 Edmonton - San Jose 0:3 Anaheim - N.Y. Rangers 3:2 Handknattleikur Þýska bikarkeppnin 8-liða úrslit: Pfullingen - Lemgo 24:30 Niederwiirzbach - Stralsunder 34:19 ■ Konráð Olavson gerði sjö mörk fyrir Nied- erwiirzbach og var markahæstur í sínu liði Schutterwald - Bad Schwartau 26:22 í kvöld Körfuknattleikur Úrvalsdeildin: Sauðárkrókur: Tindastóll - KR.. 20 1. deild karla: Hveragerði: Hamar - Breiðablik 20 Handknattleikur 2. deild karla: Isafjörður: Hörður- HM 20 Selfoss: Selfoss - Þór 20 Blak 1. deild karla: IS - Þróttur N 19.30 Frjálsíþróttir Fyrri keppnisdagur á Meistaramóti íslands fer fram í kvöld í Baldurshaga og Laugardalshöll. Keppni hefst með 60 m grindahlaupi karla og kvenna í Baldurshaga kl. 18.30. KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA Ekki nóg að fá mörg markfærí ÍSLENDINGAR máttu sætta sig við tap, 3:2, á móti Sló- venum í fyrsta leik Kýpur- mótsins í knattspyrnu í Limassol í gær. íslendingar voru betri, fengu sjálfsagt fleiri marktækifæri en nokkru sinni fyrr í landsleik en nýttu ekki möguleikana. Slóvenar fengu tvær vitaspyrnu á silf- urfati og voru með góða skotnýtingu. likið er rætt um mikilvægi Iþess að getað leikið knatt- spymu allt árið og vissulega er gott að fá tækifæri Steinþór Guð- til að leika við að- bjartsson skrifar stæður eins og hér, frá Kýpur í um 15 stiga hita í byrjun febrúar, en völlurinn sem leikið var á í gær er sá lakasti sem sá sem þetta skrifar hefur séð á Kýpur. Svo ósléttur að menn áttu í erfíðleikum með að ná valdi á bolt- anum eða senda skammlaust eftir jörðinni. Petta bitnaði meira á ís- lendingum því þeir voru meira með boltann og í mun fleiri færum. Til dæmis skaut Þórður Guðjónsson hátt yfir, úr dauðafæri. „Eg vissi ekki hvar ég var með boltann þeg- ar ég skaut, hann bara hoppaði allt í einu.“ 50% skotnýting Jafnræði var með liðunum fyrstu mínútumar en fljótlega tóku ís- lensku strákarnir leikinn í sínar hendur. Þeir vörðust mjög vel, vora fljótir fram og sköpuðu sér hvert færið á fætur öðra en gerðu aðeins eitt mark. Ríkharður Daða- son skallaði af öryggi í netið eftir sókn upp vinstri kantinn. Islend- ingar áttu sjö skot á mark mótherj- anna í hálfleiknum en Slóvenar tvö og skoruðu úr öðra. Fyrirliðinn Zlatko Zahovic, sem var allt í öllu á miðjunni hjá liði sínu, skoraði úr vítaspymu eftir liðlega hálftíma leik en markið var algerlega á skjön við gang leiksins. Vítaspyrn- an var líka strangur dómur. „Eg stökk upp með mótherja eftir fyrir- göf eða skot utan af kanti,“ sagði Hermann Hreiðarsson við Morg- unblaðið. „Boltinn fór í arminn á mér og dómarinn dæmdi víti. Þetta var ekkert víti og ég hefði aldrei dæmt svona.“ Verra eftir hlé íslenska liðið lék á móti golunni í seinni hálfleik og var lengi í gang. Rankaði við sér um miðjan hálf- leikinn, tveimur mörkum undir, og reyndi að jafna metin en tókst að- eins að minnka muninn. Þessi hálfleikur var ekki eins góður og sá fyrri. Spilið var ómark- vissara og sumir menn gleymdu stöðum sínum, einkum í vöminni. Aftur fengu Slóvenar ódýra víta- spymu en að þessu sinni var dæmt á Helga Kolviðsson um miðjan hálfleikinn. „Miðherji þeirra var fyrir framan okkur Lárus Orra,“ sagði Helgi. „Við stukkum allir upp og ég skallaði boltann í burtu. Mið- herjinn bakkaði inn í mig, sá mig öragglega ekki og þar sem hann var ekki í jafnvægi datt hann. Hann átti enga möguleika á að ná boltanum og því var dómurinn út í hött.“ Fyrirliðinn skoraði úr vítinu eins og í fyrri hálfleik og þremur mínút- um síðar bætti varamaðurinn Andrej Poljsak þriðja markinu við, var á auðum sjó rétt utan mark- teigs eftir homspyrnu. Strákamir fengu tækifæri til að minnka mun- inn áður en Arnar Gunnlaugsson var rekinn af velli en einum færri í átta mínútur efldist sóknin til muna. Meðal annars skallaði Bjami Guðjónsson í slá úr dauða- færi eftir horspyrnu Þórðar bróður síns en Þórður gerði snyrtilegt mark tveimur mínútum fyrir leiks- lok. Of æstir íslenska liðið gerði margt gott, en ekki er nóg að verjast vel og skapa sér færi ef þau era ekki nýtt. Með eðlilegum leik hefðu strákarn- ir getað tryggt sér öraggan sigur í fyrri hálfleik en þess í stað urðu þeir að sjá á eftir stigunum. Kristján Finnbogason hafði ekki mikið að gera í markinu. Reyndar svo lítið að honum var orðið kalt og hann varð að hlaupa sér til hita í teignum. Hann gerði engin mistök en var einu sinni heppinn, datt ut- an vítateigs en náði samt boltanum þegar hann rúllaði yfir strikið. Oftustu vamarmennimir, Sig- urður Jónsson, Eyjólfur Sverrisson og Pétur Marteinsson vora traust- ir, sterkir strákar, en Pétur átti stundum í vandræðum með send- ingarnar eins og Láras Orri Sig- urðsson sem tók stöðu Eyjólfs þeg- ar 17 mínútur vora af seinni hálf- leik. Helgi Kolviðsson var öflugur hægra megin á miðjunni, varðist vel og gerði varla mistök. Her- mann Hreiðarsson var vinstra ÞÓRÐUR Guðjónsson var einna bestur íslensku leikmannanna. Hann fékk nokkur góð tækifæri til að skora, en nýtti aðeins eitt; minnkaði muninn í eitt mark (2:3) skömmu fyrir leikslok. Hér er Þórður með knöttinn í lands- leik gegn Rúmeníu; í baráttu við þann fræga Gheorghe Hagi. 0:1. Slóvenar sóttu upp vinstri kant og boltinn kom fyrir markið 33. mínútu. Hermann Hreiðarsson og mótherji hans stukku upp, dæmd var hendi á Hermann og Zlatko Zahovic skoraði úr vítinu vinstra megin við Kristján Finnbogason í markinu. 1:1 íslendingar sóttu upp vinstri kantinn á 38. mínútu. Hermann Hreiðarsson sendi á Arnar Gunnlaugsson sem gaf fyrir markið. Þar var Rfkharður Daðason við fjærstöng og hann skallaði af öryggi í netið. 1m gfl Dæmd var vítaspyraa á Helga Kolviðsson sem var í baráttu alum boltann og náði að skalla hann frá marki á 64. mínútu. Zahovic tók vítið sem fyrr en skoraði nú hægra megin við Kristján. 1a dJZahovic tók horn frá hægri á 67. mínutu. Boltinn barst til ■ l#Andrejs Poljsaks sem var einn og óvaldaður við nærstöng og hann átti ekki í erfiðleikum með að skora. 2a 4íJSigurður Jónsson tók aukaspyrnu nálægt miðlínu. Hann ■ Wsendi inn að vítateig, þar sem Hermann Hreiðai-sson skallaði fram til Þórðar Guðjónssonar en hann þramaði í netið með vinstri fæti. Þetta var á 88. mín. megin og hugsaði aðallega um að sækja. Hann gerði laglegt mark á æfíngu í fyrrakvöld og ætlaði sér að endurtaka leikinn en var of æst- ur, hélt stundum boltanum of lengi. Hins vegar geislaði hann af sjálfs- öryggi og gaman var að fylgjast með honum. Arnar Grétarsson sást varla á miðjunni og Bjarki Gunn- laugsson, sem kom í staðinn fyrir hann eftir 10 mínútur í seinni hálf- leik, getur meira. Brynjar Gunn- arsson var ákveðinn sem fyrr en Steinar Adolfsson lék í 19 mínútur og fór lítið fyrir honum. Þórður Guðjónsson var mjög góður frammi, skapaði sér færi og gerði laglegt mark. Amar Gunn- laugsson var lengi í gang en sótti í sig veðrið. Ríkharður Daðason var öflugur og markið hans gott. Bjarni Guðjónsson skipti við hann undir lokin og var óheppinn að skora ekki, skallaði í stöng eins og áður segir. Þegar á heildina er litið var margt gott hjá íslenska liðinu en það var ekki nóg. Menn vora of æstir, fengu óþarfa spjöld fyrir kjaft, og fóra ekki alltaf auðveld- ustu leiðina. Það verður að skora úr færanum ef ekki á illa að fara. En byi’junin er auðvitað að skapa sér færi og sá þáttur var jákvæður. Eins stóð vörnin fyrir sínu nema hvað hún var illa á verði í þriðja markinu. Með tímanum verður leiksins minnst fyrir tvennt. I fyrsta lagi vora þrennir bræður í hópnum, Amar og Bjarki Gunnlaugssynir, Bjami og Þórður Guðjónssynir og Eyjólfur og Sverrir Sverrissynir. Slíkt er eflaust einsdæmi í lands- leik en þeir spiluðu allir nema Sverrir. I öðra lagi var byrjunarlið Islands eingöngu skipað leikmönn- um sem spila með erlendum liðum um þessar mundir. Það hefur ekki gerst fyrr. Eyjólfur og Lárus fara í EYJÓLFUR Sverrisson og LárusDrri Sigurðs- son fara frá Kýpur í dag, Eyjólfur til að spila með Hertha á móti HSV í þýsku deildinni á morgun og Láras Orri í leik Stoke við Ipswich. Eyjólfur og Lárus Orri koma aftur til Kýpur á sunnudag. i Sigurður fyrirliði SIGURÐUR Jónsson er fyrirliði íslenska liðs- ins á Kýpurmótinu. Hann lék 55. landsleik sinn í gær og er með flestas landsleiki að baki í hópnum. Þórður Guðjónsson lék 20. landsleik sinn og Hermann Hreiðarsson 10. leikinn. Landsliðsnefndin á staðnum LANDSLIÐSNEFND KSÍ er með liðinu á Kýp- ur, en Eggert Magnússon, formaður hennar og sambandsins fer reyndar í dag. I nefndinni með honum eru Halldór B. Jónsson og Ásgeir Sigur- vinsson. Sigurjón Sigurðsson er læknir liðsins, Stefán Stefánsson sjúkraþjálfari, Guðmundur R. Jónsson liðsstjóri og Geir Þorsteinsson farar- stjóri með Halldóri. »Gaman að vera aftur í hópnum ARNAR Gunnlaugsson, sem lék síðast með landsliðinu á móti Litháen í sumar, sýndi gamla takta í Limassol í gær. „Það er gaman að vera kominn aftur í lands- liðshópinn," sagði hann við Morgunblaðið. „Und- anfarin misseri hafa meiðsli verið að gera mér lífið leitt en nú er ég heill, í mjög góðri æfingu og hef því gaman af þessu.“ Arnar fékk tækifæri til að skora og lagði upp fyrra mark íslands. „Fyrri hálfleikurinn var mjög góður hjá okkur og við hefðum átt að setja tvö eða þrjú mörk. Vítin, sérstaklega það seinna, voru út í hött en við börðumst vel og gerðum margt gott.“ + FOLK ■ DANA Dingle, hinn bandaríski leikmaður Keflavíkur, lék ekki með gegn Haukum í gær. Hann mun eiga við tognun í hné að glíma og ekkert hafa æft sl. viku. ■ JÚRGEN Klinsmann, þýski knattspyrnumaðurinn hjá Totten- ham í Englandi, sem kjálkabrotnaði í bikarleiknum gegn Barnsley í fyirakvöld, verður líklega tilbúinn í slaginn mun fyrr en fyrst var ætlað. Læknir sem skoðaði Klinsmann í gær telur að hann geti jafnvel leikið á ný eftir þrjár vikur. ■ FRIÐRIK Fríðriksson, fyrrver- andi landsliðsmarkvörður í knatt- spyrnu, hefur tekið fram skóna_ að nýju og verður í leikmannahópi ÍBV í sumar. Friðrik lék síðast með ÍBV sumarið 1996 en hefur svai-að kalli Bjarna Jóhannssonar þjálfara. ■ GISLI Sveinsson, varmarkvörður Islandsmeistaraliðs ÍBV í fyrrasum- ar, er genginn til liðs Þór á Akureyri og Eyjamenn fóru þess því á leit við Friðrik að hann æfði með liðinu í sumar og yrði til taks ef með þyrfti. Gunnar Sigurðsson stóð í marki ÍBV í fyrra og er áfram hjá liðinu. ■ LARRY Bird, þjálfari Indiana og fyrrverandi leikmaður Boston í NBA-deildiimi, var tflnefndur til vals í sérstakan heiðursklúbb körfuknatt- leiksins, svokallað Hall of Fame, sem hefur aðsetur í Springfield í Massachusetts ríki. ■ BIRD átti fyrst möguleika á til- nefningu um áramótin og hlaut hana strax á fyrsta fundi nefndarinnar, sem velur í heiðursklúbbinn. Enginn annar „nýliði“ hlaut tilnefningu að þessu sinni. KORFUKNATTLEIKUR Háspenna lífs- hætta í Röstinni ÞAÐ var Darryl J. Wilson sem tryggði Grindvíkingum sigurinn með þriggja stiga körfu þegar 5,6 sekúndur voru eftir af leiknum við Njarðvíkinga í Gr- indavík í gærkvöldi. Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Njarð- víkinga var vonsvikinn að leikslokum. „Þetta var rosaleg- ur spennuleikur og frábær körfuknattleikur. Við hikstuð- um í fyrri hálfleik en Grindvík- ingar réðu ekkert við vörnina hjá okkur í þeim. Heppnin var með þeim. Það hefði verið sterkt fyrir okkur að vinna þennan leik en okkur vantar stöðugleika til þess. Grindvík- ingar tapa ekki fleiri leikjum í vetur, það er á hreinu.“ Fyrri hálfleikur var eign heima- manna sem náðu frumkvæðinu með Darryl J. Wilson í broddi fylk- ingar. Hann gerði 20 GarðarPáll stig í fyrri hálfleik Vignisson en alls 26 í leiknum. skrifar Gestirnir réðu held- ur ekkert við Grikkjann sterka, Konstantionos Tsartsaris, sem skor- aði 16 af 25 stigum sínum í fyrri hálfleik. Heimamenn vora því með öragga forystu í hálfleik 55:43. Það vora einbeittir Njarðvíking- ar sem komu til leiks í seinni hálf- leik og eftir tæplega sex mínútna leik höfðu þeir náð 8 stiga forskoti og farið var að fara um stuðnings- menn Grindvíkinga. Heimamenn skoruðu mikilvæga þriggja stiga körfu og virtust vera að ná frum- kvæðinu aftur en vörn gestanna var mjög sterk. Áhorfendur voru vel með á nótunum og studdu sín lið dyggilega þannig að þakið ætlaði á köflum hreinlega af Röstinni. Spennan var rosaleg síðustu 10 mínúturnar og liðin skiptust á að hafa forystu. Þegar tæplega fjórar mínútur voru eftir var staðan 80:76 heimamönnum í vil. Petey Sessoms í liði gestanna minnkaði muninn í tvö stig og þegar 1 mínúta og 50 sekúndur voru eftir jafnaði Friðrik Ragnarsson, 80:80. Bæði lið fengu tækifæri til að skora en þegar 35 sekúndur voru til leiksloka fengu heimamenn boltann. Wilson sem hafði verið í strangri gæslu allan seinni hálfleik tók hið örlagaríka skot og hitti. Gestirnir tóku leikhlé og höfðu 5,6 sekúndur til að jafna en allt kom fyrir ekki heimamenn unnu 83:80. Bæði lið áttu mjög góðan leik en í jöfnu liði gestann spilaði Petey Sessoms best og skoraði 36 stig. Af heimamönnum voru Darryl J. Wil- son og Konstantionos Tsartsaris fremstir meðal jafningja. Baráttan í fyrirrúmi HAUKAR báru sigurorð af Keflvíkingum í jöfnum og æsispennandi leik í gærkvöldi. Með sigrunum styrktu Haukar stöðu sína í öðru sæti úrvals- deildarinnar en Keflvíkingar misstu af tækifærinu að ná Haukum að stigum. Leikurinn einkenndist af baráttu enda mikið í húfi fyrir bæði lið. Haukar tryggðu sér sigurinn á lokamínútum leiksins og nið- urstaðan varð 68:67. Haukar byrjuðu leikinn mun bet- ur, náðu fljótlega 12 stiga for- ystu. Lið Hauka virtist hafa öll ráð í hendi sér og leik- Borgar Þór menn liðsins léku af Einarsson mikilli ákveðni. Kefl- skrifar víkingar komust þó smám saman inn í leikinn og var það fyrst og fremst að þakka frammi- stöðu Fals Harðarsonar, sem hélt liði sínu á floti í fyrri hálfleiknum með því að gera 21 stig. Haukar virtust missa móðinn þegar leið á hálfleikinn og áður en flautað var til leikhlés höfðu Keflvíkingar náð að minnka forskot Hauka niður í fjögur stig, 44:41. Síðari hálfleikur var geysilega jafn og greinilegt að lögð hafði verið áhersla á það í hléi að þétta varnirn- ar. Villunum fjölgaði jafnt og þétt og lentu bæði lið í nokkrum vandræð- um af þeim sökum. Sherick Simp- son, sem verið hafði atkvæðamestur í liði Hauka, fékk sína fjórðu villu um miðjan hálfleikinn og þurfti að hvfla sig um stund. Keflvíkingar náðu að jafna leikinn þegar um sjö mínútur vora eftir, 58:58. Eftir það tók baráttan öll völd og lítið var skorað síðustu mínúturnar. Þegar rúm mínúta var eftir náði Simpson forystu fyrir Hauka úr vítakasti og þrátt fyrir ágætar til- raunir náðu Keflíkingar ekki að svara og Haukar fögnuðu innilega hinum mikilvægu stigum. Sigur Hauka verður að teljast sanngjarn þótt hann hafi verið naumur. Liðið kom greinilega með rétt hugarfar í leikinn og þrátt fyrir mótlæti í síðari hálfleik buguðust leikmenn ekki. Simpson var at- kvæðamestur Hauka og átti mörg skemmtileg tilþrif. Pétur Ingvars- son átti góðan leik en gekk þó held- m- illa að hemja Fal Harðarson í vöminni. Keflvíkingar geta í raun sjálfum sér um kennt. Greinilegt var að tölu- verð orka fór í að vinna upp forskot Hauka og gerðu leikmenn sig seka um afdrifarík mistök á lokamínútun- um. Falur Harðarson var mjög góð- ur í fyrri hálfleik en minna fór fyrir honum í þeim síðari. Guðjón Skúla- son náði sér nokkuð á strik er leið á leikinn. Mikilvægur sigur Þórsara Þórsarar unnu sætan sigur á ÍA 90:74 er liðin mættust á Akur- eyri í gærkveldi. Sigurinn var sann- gjarn og er þeim af- Reynir B. ar mikilvægur í bar- Eiríksson áttunni á botni deild- skrifar arinnar, þar sem þeir róa nú lífróður til að halda sér uppi. Baráttan stendur á milli Þórs og ÍR, en liðin eru jöfn að stigum, með 6 stig eftir leiki gærkveldsins. Það voru gestimir sem gerðu fyrstu fjögur stigin í leiknum en þá vöknuðu Þórsarar og á góðum kafla gerðu þeir 19 stig á móti fjórum stig- um ÍA og staðan því orðin 19:8 þegar átta mínútur voru liðnar af leiknum. Þá kom Alexander Ermolinski inná og náði að breyta leik sinna manna til hins betra um hríð og minnkuðu þeir þá muninn niðui’ í sex stig um miðjan hálfleikinn. Þá kom mjög góður kafli hjá Þórsurum þar sem þeir léku við hvern sinn fingur bæði í sókn og vöm, og var leikurinn hin besta skemmtun fyrir áhorfendur. Þórsar- ar juku forystu sína jafnt og þétt og þegar um fimm mínútur lifðu af hálf- leiknum var munurinn orðinn 20 stig og hafði Þór þá lagt granninn að góð- um sigri. Heldur náðu Akurnesingar að rétta úr kútnum fyrir leikhlé, en staðan var 46:32 þegar fyiTÍ hálfleik lauk. Þórsarar héldu uppteknum hætti allan seinni hálfleikinn og þrátt fyrir að Akurnesingar næðu nokkrum sinnum að saxa á forskot heima- manna varð sá munur aldrei minni en 10 stig og spennan því ekki mikil. Undir lok leiksins léku Þórsarar af skynsemi og juku forskot sitt og stóðu uppi sem sigurvegarar, 90:74 og var fögnuður þeirra mikill að leikslokum. Þórsliðið lék mjög vel í þessum leik og sýndi að það getur gert mjög góða hluti þegar sá gállinn er á þeim. Bestir að þessu sinni voru þeir Jesse Ratliff sem skoraði mikið og lék vörnina prýðilega, og hirti mjög mörg fráköst bæði í vörn og sókn. Þá átti Sigurður Sigurðsson mjög góðan leik, stjórnaði leiknum fyrir utan af festu og skoraði grimmt. Hjá ÍA bar mest á Damon Johnson sem Ivar Benediktsson skrifar var þeirra stigahæstur, en hann gerði helming stiga ÍA í leiknum. Einnig lék Alexander Ermolinski ágætlega þær stundir sem hann var inná. Valsmenn of seinir í gang Valsmenn vöknuðu of seint _af Þymirósarsveftii sínum gegn ÍR í gærkvöldi til þess að geta snúið vonlítilli stöðu upp í sigur, en þó munaði litlu. Eftir að hafa verið áhugalitlir frá upphafi tókst þeim að hleypa í sig kjarki á síðustu fimm mínútunum og minnka muninn, sem var orðinn rúm 20 stig, IR í hag, nið- ur í þrjú stig en lengi’a komust Vals- menn ekki. IR vann kærkomin tvö stig í heimsókn sinni að Hlíðarenda, lokatölur 86:81. Greinilegt var að þjálfaraskiptin höfðu jákvæð áhrif á leikmenn ÍR. Strax í upphafi börðust þeir sem ljón og leikgleðin var í fyrirrúmi á meðan allt var í molum hjá heimaliðinu. IR- ingar náðu strax góðri forystu og hefði ekki komið til einstaklingsfram-- tak Warrens Peebles um tíma í fyrri hálfleik hefði munurinn á liðunum verið meiri en raun bar vitni um í hálfleik, en þá stóð 44:29 ÍR í vil. Síðari hálfleikur virtist ætla að verða keimlíkur þeim fyrri allt þar til 5 mínútur voru eftir og Vals- menn vöknuðu. Þeir tóku að leika pressuvörn af miklum krafti sem bar árangur. Valsarar gerðu 10 stig í röð og minnkuðu muninn í 81:84 er rúm hálf mínúta var eftir. Lengra komust þeir ekki þrátt fyr- ir að möguleikar væru fyrir hendi. ísfirðingar á mikilli siglingu ikils taugaóstyrks gætti í upp- hafi í leik Skallagrims og KFÍ. Heimamenn skoruðu fyrstu stigin og höfðu eins stigs forystu í leikhléi, en ísfirðingar tóku öll völd í síðari hálfleik og unnu öruggan sigur. Lokatölur, 71:94. Bernhard Garner í liði Skalla- gríms skoraði fyrstu stigin og fylgdi David Bevis sem skugginn í vörn- inni. Hans naut ekki lengi við. Því hann hvfldi til leikhlés með þrjár villur eftir átta mín leik. Heima- menn reyndu mikið af þriggja stiga- skotum og skoruðu úr sex þeirra í fyrri hálfleik. Skallagrímur komst í 13:7 en gestirnir snéru taflinu við í 13:14. Vörn Skallagríms var þétt og varðist vel, en Marcos Salas raðaði niður körfum fyrir utan og ísfirð- inagar komust 125:30. Ari, Finnur og Tómas áttu allir skemmtileg gegnumbrot, skoruðu og hittu úr vítum sem þeir fengu og jöfnuðu muninn. Tómas skoraði fal- lega þriggja stiga körfu rétt fyrir leikhlé og heimamenn komust yfir 39:38. Liðin skiptust á um að skora í byrjun síðari hálfleiks en KFÍ komst yfir eftir fimm mín. leik 50:52. Létu þeir ekki forystuna af hendi eftir það. Langskot heimamanna- rötuðu ekki rétta leið, en gestimir hittu mun betur og sigldu hægt fram úr. Heimamenn gerðust óör- uggir, ragir og gerðu mörg mistök. Lið Skallagríms byrjaði vel og all- ir leikmenn börðust af krafti, sér- staklega í fyrri hálfleik. En sjálfs- traustið virtist hverfa í síðari hálf- leik og liðið lék þá langt undir getu. „Þeir voru mun betri síðustu tíu mínúturnar," sagði Tómas Holton þjálfari og leikmaður Skallagríms. „Við náðum ekki að sýna í kvöld hvað við getum. Við getum miklu meira en þetta.“ Lið KFÍ er mjög jafnt og sterkt. David Bevis átti góðan leik og Marcos Salas átti skemmtilega spretti. „Ég er mjög sáttur," sagði Guðni Guðnason þjálfari KFÍ. „ Það sem skilaði bestum árangri var vörnin. Þeir skoraðu t.d. ekki nema 31 stig í seinni hálfleik." Ingimundur Ingimundarson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.