Morgunblaðið - 06.02.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.02.1998, Blaðsíða 4
Mm FOLK ■ OLIVER-Sven Buder kúluvarpari frá Þýskalandi varpaði kúlunni 21,15 m á mótinu í Erfurt í Þýska- landi í fyrrakvöld þar sem Vala Flosadóttír bætti Norðurlanda- og íslandsmet sitt í stangarstökki. Árangur Buders er sá besti náðst hefur í kúluvarpi innanhúss á þessu ári. ■ KASTSERÍAN sem Buder náði á mótinu var mjög góð, eða 21,03 - 21,03 - 21,09 - 21,15 - 20,87 - 21,16. ■ IVAN Pedrodo heimsmeistari í langstökki frá Kúbu náði lengsta stökki ársins á mótinu í Erfurt, 'stökk 8,29. Kvöldið áður hafði James Beckford frá Jamaíku stokkið 8,21 á móti í Madrid, en það var þá lengsta stökk ársins. ■ CHRISTINE Arron spretthlaup- ari frá Frakklandi náði þriðja besta tíma sögunnar í 100 m hlaupi kvenna innanhúss á móti Tampere í Finnlandi á miðvikudagskvöldið. Arron hljóp á 11,18 sek. ■ INNAN mánaðar skýrist hvort breytingar verði gerðar á leikbanni .Latrells Sprewells, körfuknatt- leiksmanns í bandarísku NBA- deildinni, en hann var dæmdur í ársbann og samningi hans við Golden State Warriors var rift eftir að hann réðst tvívegis á þjálfara sinn, P.J. Carlesimo, á æfíngu. HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Ásdís Baríst um bikarana á morgun ÚRSLITALEIKIR bikarkeppni Handknattleikssam- bands íslands fara fram á morgun í Laugardaishöll. I kvennaflokki mætast Stjarnan og Vfltíngur og hefst viðureign þeirra kl. 13.30 og að honum loknum mæt- ast Valur og Fram á sama stað. Karlaleikurinn hefst kl. 16.30. Á myndinni eru fyrirliðar liðanna íjögurra sem verða í eldlfnunni á rnorgun. Frá vinstri: Halla María Helgadóttír frá Vfltíngi, Herdís Sigurbergsdótt- ir Stjörnunni, Guðmundur Hrafnkelsson Val og Þór Jónsson Fram. Utah með taká Chicago UTAH Jazz er fyrsta liðið í þrjú ár, sem tekst að leika hefðbundið leik- tímabil [82 leiki] án þess að tapa fyrir Chicago Bulls, en liðið hefíir nú sigrað meistarana tvívegis í vet- ur og liðin mætast ekki aftur á tímabilinu - nema ef bæði komast í úrslitaleikina í júní. í fyrrinótt léku liðin í Salt Lake City í Utah og lokatölur urðu, 101:93, fyrir heima- menn. Fyrri leikur liðanna fór fram í Chicago í síðasta mánuði, en þá varð Utah fyrsta Vesturdeildar- liðið sem sigrar í Chicago síðan Jordan hóf aftur að leika í NBA- deildinni snemma árs 1995. Karl Malone skoraði þrjátíu stig fyrir Utah í fyrrinótt, sem lenti snemma undir og gestirnir náðu 24 stiga forskoti í fyrri hálfleik, en leikmenn Utah tóku forystuna seint í þriðja leikhluta og leikm- Chicago hrundi í kjölfarið. „Við héldum einbeitingunni allan tím- ann, nema hugsanlega í byrjun leiks, en þetta var mjög góður sig- ur,“ sagði John Stockton, leik- stjórnandi Utah, sem gerði sautján stig og gaf átján stoðsendingar. Michael Jordan gerði fjörutíu stig fyrir Chicago. Hann hitti þó aðeins úr sautján af 37 skotum ut- an af velli og fékk mjög litla hjálp frá félögum sínum. Scottie Pippen skoraði aðeins níu stig, Dennis Rodman tók fjögur fráköst og Króatinn Toni Kukoc lék ekkert vegna bakmeiðsla. Ferðalagi Chicago Bulls um heimavelli Vest- urdeildarliða er nú lokið, en liðið vann fjóra af sex leikjum þess. „Við komum venjulega mjög ákveðnir til svona stórleikja," sagði Jordan. „Við lékum ekki af ákveðni allan tímann. Við héldum að okkur höndum um leið og þeir tóku við sér,“ sagði hann. KÖRFUKNATTLEIKUR „Stórsýriing“ NBA loks sett upp á Broadway „STÓRSÝNING" NBA deildarinnar verður nú loks sett upp á Broadway í New York-borg að nýju eftir 30 ára fjarveru. Hinn ár- legi stjörnuleikur deildarinnar fer sem sagt fram þar um helgina. Flestir bestu leikmenn deildarinnar mæta á sviðið í Madison Square Garden og forráðamenn NBA gætu vart hugsað sér betri tíma til að mæta með sýninguna í höfuðborg fjölmiðlanna. Gunnar Valgeirsson skrifar frá Bandaríkjunum Fjölmiðlar í New York eru marg- ir og áhrifamiklir og hafa óspart velt fyrir sér á undanfómum árum hvort deildin sé nú loks að missa flugið eftir fimmtán ára velgengni. í fyrra veltu íþróttaf- réttamenn því fyrir sér hvort of mikil harka væri komin í leikina, eftir slagsmál í nokkrum þeirra, og í ár eru það lögbrot leikmanna utan vallar sem hafa verið mikið í sviðs- ljósinu. Nokkrir leikmenn hafa ver- ið handteknir fyrir óstýrilæti á skemmtistöðum og notkun sumra leikmanna á marijuana hefur vakið athygli. Þá hefur árás Latrells Sprewells hjá Golden State á þjálf- ara liðsins mildð verið í fréttum. Forseti NBA-deildarinnar, David Stem, sagði í viðtali við CNN í vik- unni að þrátt fyrir einstök slík dæmi, væm vandamál leikmanna í deildinni ekki meiri en gengur og gerist hjá almenningi og hefur hann sjálfsagt rétt fyrir sér. Af þeim sök- um er leikurinn í ár mikilvægur fyr- ir deildina. Hann er fjölskyldu- skemmtun og leikmenn sýna venju- lega sínar bestu hliðar í honum. Byrjunarlið em valin af áhorf- endum á leikjum deildarinnar í sér- stakri kosningu, en varamenn em valdir af þjálfuram. Val áhorfenda hefur oft verið sérkennilegt. í ár er Penny Hardaway t.d. valinn í byrj- unarlið Austurdeildar, þrátt fyrir að hann hafí verið meiddur meirihlut- ann af keppnistímabilinu. Það sama má segja um Shaquille O’Neal í liði Vesturdeildar. Liðin verða annars skipuð eftirtöldum leikmönnum. Lið vesturdeildar: Kobe Bryant, Los Angeles Lakers, Gary Payton, Seattle SuperSonics, Kevin Gar- nett, Minnesota Timbervolwes, Karl Ma- lone, Utah Jazz, og Shaquille O’Neal, Los Angeles Lakers, eru í byrjunarliði. Vara- menn eru: Vin Baker, Seattle SuperSonics, Tim Duncan, San Antonio Spurs (nýliði), Eddie Jones, Los Angeles Lakers, Jason Kidd, Phoenix Suns, Mitch Richmond, Sacramento Kings, David Robinson, San Antonio Spurs, og Nick Van Exel, Los Ang- eles Lakers. Lið Austurdeildar: Penny Hardaway, Orlando Magic, Michael Jordan, Chicago Bulls, Grant Hill, Detroit Pistons, Shawn Kemp, Cleveland Cavaliers, og Dikembe Mutombo, Atlanta Hawks, eru í byrjunarliðinu en varamann eru: Tim Har- daway, Miami Heat, Reggie Miller, Indiana Pacers, Glen Rice, Charlotte Homets, Steve Smith, Atlanta Hawks, Rik Smits, Indiana Pacers, Antoine Walker, Boston Celtics, og Jayson Williams, New Jersey Nets, Að venju hefur valið verið gagn- rýnt, en þó meira í ár en venjulega. Sérstaklega er erfítt að sjá hvemig hægt var að ganga fram hjá Rod Strickland, bakverði Washington Wizards. Hann hefur verið frábær og hefur átt flestar stoðsendingar í vetur. Dennis Rodman hefur einnig átt besta keppnistímabil sitt í lang- an tíma og hefur haldið Chicago á floti með fjölda frákasta það sem af er. Þá á Scottie Pippen jafn mikinn rétt á vali eins og O’Neal og Penny Hardaway. Þess má geta að Kobe Bryant, sem er aðeins 19 ára, verð- ur yngsti leikmaðurinn til að taka þátt í stjömuleiknum. George Karl frá Seattle, þjálfar lið Vesturdeildar, og Larry Bird lið Austurdeildar. Karl hefur tvívegis áður þjálfað í stjörnuleiknum, en Bird þreytir nú frumraun sína. Hann tók tólf sinnum þátt í stjömu- leik sem leikmaður en hafði aldrei veralegan áhuga á þeim. „Það hafði ekkert að gera með leikina sjálfa. Eg var einu sinni valinn í slíkan leik í gagnfræðaskóla í Indiana og sú reynsla var ekld góð. Það hafði áhrif á mig allan minn feril. Það var ekltí fyrr en þriggja stiga skotkeppnin [sem hann vann 1986-88] kom að ég fór að hafa gaman af leikjunum," sagði Bird nýlega. GLIMA / ÞORRAMOTIÐ SIGURVEGARAR í þremur flokkum. F.v. Arngeir Friðriksson, Ólaf- ur Kristjánsson og Andrl Leó Egllsson. Sveinn Guðmundsson, gefandi verðlauna, er lengst tll hægri. Andri hreppti hnossið ANDRI Leó Egilsson, ungur glímu- kappi úr Ásahreppi í Rangárþingi, sigraði á Þorramóti glímumanna um síðustu helgi. Um er að ræða stigaglímu, en í henni fá glímumenn fleiri stig eftir því hversu fljótir þeir era að leggja andstæðinginn. Fimm keppendur kepptu í karla- flokki. Þar voru hinir knáu kappar Helgi Kjartansson, HSK, og Arn- geir Friðriksson fremstir í flokki - áþekkir glímumenn, lágvaxnir, sterkir og brögðóttir. Þegar þeir mættust seint í mótinu var ljóst að um úrslitaglímu væri að ræða. Am- geir tókst fljótlega að ná Helga í öfl- ugt klofbragð og lagði hann hreinni byltu. Arngeir sigraði því í flokkn- um og hlaut níu stig að meðaltali úr viðureignum sínum - sannarlega góður árangur. í unglingaflokki, 17 til 20 ára, sigraði Ólafur Kristjánsson nokkuð öragglega. Fyrrverandi félagi hans, Pétur Eyþórsson, sem keppir nú fyrir Víkverja, var honum þó óþæg- ur ljár í þúfu. Endaði glíma þeirra með jafntefli, sem gefur ekkert stig. Þar með var Ólafur úr leik í keppni um aðalverðlaun mótsins, en það er veglegur farandbikar sem veitist þeim sem fær hæstu meðaleinkunn úr sínum viðureignum. í flokki yngstu keppendanna, 14 til 16 ára, voru hópar keppenda frá bæði HSK og KR. Sigurvegari varð ungur piltur úr Rangárvallasýslu, Andri Leó Egilsson. Hann sýndi mesta fjölhæfni og féll því sigurinn honum í skaut. Næstur kom Jón Hrafn Baldvinsson, KR, sem er öfl- ugur drengur, og Benjamín Hall- dórsson varð þriðji - ágætur klof- bragðsmaður. í mótslok voru þeir Andri og Arngeir jafnir að stigum, en þeim fyrmefnda var dæmdur sigur eftir að reglugerðir höfðu verið lesnar í þaula. Kom í ljós að báðir höfðu þeir fengið hæstu einkunn tvisvar, en Andri fékk oftar næsthæstu ein- kunn og fagnaði því sigri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.