Morgunblaðið - 13.02.1998, Page 1
■ HJÁTRÚIN ER SYSTIR EFANS/2 ■ HÁRGREIÐSLUFOLK LEGGUR
LÍNURNAR/3 ■ ÞRJÁR í BOLTANUM/4 ■ AÐ PANSA Á RÉTTUM
STÖÐUM/6 ■ NÁTTGRÆÐGI/7 ■ ÍSLENSKA Á FJARLÆGUM SLÓÐUM/8
POPPKORN
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ - SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ
Morgunblaðið/Halldór
NEMENDUR Austurbæjarskóla með húfur í hjdlabrettastílnum.
Húfur
ofan í augu og yfir eyru
í SÓL og sumaryl, vetri og
kulda bera krakkar á ýms-
um aldri svokallaðar rapp-
eða hjólabrettahúfur, jafn-
vel þótt þau hafi aldrei á
hjólabretti stigið og hlusti
yfirleitt ekki á rapptónlist.
Tískan kallar einfaldlega á
þetta enda hefur orðið algjör
sprenging í húfusölu í þeim
verslunum höfuðborgarinnar
sem selja hjólabrettafatnað.
Svo segir í það minnsta sölu-
maður Smash-tískuverslunar-
innar í Kringlunni og nemend-
ur Austurbæjarskóla eru
talandi dæmi. Þau tilheyra
mörg hver húfugenginu stóra
sem sjá má víða á strætum og
torgum.
Allt árið um kring er húfan
höfð á hausnum, meira að segja
í flugferðum til útlanda, í veisl-
um og í kennslustofunni en
kennarar Austurbæjarskóla
eru að sögn húfugengisins
óánægðir, vilja að nemendur
taki ofan, annað sé óvii'ðulegt.
Það finnst þeim allra hörðustu
súrt í broti. Þeir vilja bera húf-
una alltaf, nema kannski rétt
yfir blánóttina.
Unglingarnir fyrst og
sfðan yngri aldurshópar
Húfumar fást í alls kyns út-
gáfum, meðal annars einlitar
svartar, gular og grænar en
aðrar eru marglitar. Sumar era
með deri og aðrar hafa tísku-
merki framan á. Oftast eru þær
úr ullar- eða akrílefni - það
skiptir raunar ekki máli. Aðal-
málið er að draga húfuna sem
lengst ofan í augu og niður fyr-
ir eyi’u. Þá ertu svalur.
Fyrirmyndina má rekja til
helstu rapp- og hjólabretta-
kónga í Ameríku, þeir riðu á
vaðið en svo vora það unglingar
útum allan heim sem fengu sér
höfuðföt í sama stíl og yngri
bömin sigldu í kjölfarið. Marg-
ir í húfugenginu era einnig í
stórum og víðum hettupeysum
eða skokkpeysum og með bux-
urnar á hælunum, því víð fót
eru í tísku og þykja afar viðeig-
andi þegar húfan er á höfðinu.
Foreldrar ættu að kætast
ógurlega því afkvæmunum
verður varla kalt á meðan húf-
an er á hvirflinum og kannski
að eyrnabólgu og kvefpestar-
tilfellum muni fækka í
framtíðinni. Hér áður
fyrr þótti ungling-
unum nefnilega afar
hallærislegt að bera
húfur.
Sölumaðurinn í
Smash-búðinni sem
sjálfur á sjö húfur seg- .
ir að hjólabrettatísk- ■
an muni öragglega
haldast um ókomin ár. í það
minnsta ætlar hann ekki að
taka ofan í bráð.
L
Oskirnar
koma upp
um þig
GÆTTU þess hvers þú óskar þér, það
gæti varpað ljósi á hver þú ert,“ segir
Laura King doktor í sálfræði við
Southern Methodist-háskólann í des-
emberhefti Psyehology Today. Dr.
King lagði persónuleikapróf fyrir 450
háskólastúdenta og spurði hvers við-
komandi myndi óska sér ætti hann
þrjár óskir.
Margir óskuðu sér heilsu og langlífis
sem nærri má geta, aðrh' vildu njóta
ásta með Marilyn Monroe eða borða
kínverskan mat í öll mál daglega og
ævina á enda. King komst að því að
flestir óskuðu sér vina, hamingju,
góðrar heilsu, hjónabands, fjármuna,
velgengni og að verða betri og hjálp-
samari.
Þótt óskir kynjanna væru að mörgu
leyti líkar vildu fleiri karlmenn
kynlíf og völd en konumar
óskuðu frekar hamingju,
að líta betur út og að vera
við betri heilsu. Opinskáir
óskuðu oftar eftir ham-
ingju og hinir tauga-
veiklaðri vildu
gjarnan vera fé-
lagslyndari og
stöðugri til-
finninga-
lega.
!*3i.
IÉ\S&