Morgunblaðið - 13.02.1998, Side 8

Morgunblaðið - 13.02.1998, Side 8
8 B FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF RUTH Pacheco segir þá staðreynd að íslensk tunga hafi varðveist nánast óbreytt í aldir, hafi verið hvatning fyrir sig til að læra málið. KENNSLUSTUND í íslensku. BRIAN Hartford ákvað að nota tækifærið og hefja íslenskunám undir leiðsögn konu sinnar. / Islenska á fjarlægum slóðum TED og Carrol Mech hafa komið nokkrum sinnumtil íslands, og vilja gjarnan geta talað þar íslensku. „PÁLL er snjall," tvöfalda ell- hljóðið vakti mikla kátínu í salnum. „Það er afskaplega erfitt að bera þetta fram,“ sagði áhugasamur nemandi. I höfuðstöðvum Flugleiða í Col- umbia, Maryland, hittist viku- lega hópur Bandaríkjamanna í þeim tilgangi að læra ástkæra ylhýra málið okkar. Þessir nemendur stunda íslensku- námið undir leiðsögn Dóru Sturludóttur Hartford, sem starfar hjá Flugleiðum jafn- framt íslenskukennslunni. Aðspurð hvað hefði orðið til þess að hún réðst í þessa kennslu, sagðist hún hafa frétt hjá Islendingafélaginu að verið væri að leita að íslenskukenn- ara. „Ég ákvað að slá til. Flug- leiðir voru síðan svo elskulegir að lána okkur aðstöðu hér.“ „Við höfðum verið að leita í hartnær tvö ár að kennslu í íslensku," sagði Ted Mech, starfandi tölvufræðingur. „Það var meðal annars haft samband við sendiráð- ið í Washington DC og íslendingafélagið. En þar sem ekki var um neina sldpulagða kennslu að ræða hér á svæðinu, ákvað ég, ásamt Mike Handley, sem er mikill áhuga- maður um Island og er í stjóm íslendingafé- lagsins, að reyna að koma saman nægilega stórum hópi fólks sem áhuga hefði á að læra íslensku.“ Hljóðsnæidumar uppseldar Ted segir viðbrögðin hafa orðið framar öllum vonum og því hafi verið hafin leit að kennara. „Útkoman var síðan tveir hópar, annar hér í Maryland og hinn í Virginíu. Reyndar höfðum við hjónin fyrir nokkrum árum keypt íslenskukennslu á hljóðsnæld- um, en þetta var sennilega síðasta eintakið í Washington á þeim tíma, því skömmu áður hafði fundur Reagans og Gorbatsjovs átt sér stað í Reykjavík, og höfðu fjölmiðla- menn í Washington keypt upp allar birgð- irnar. Snældumar hafa komið sér vel við námið, en það jafnast ekkert á við að fá inn- fæddan Islending til þess að kenna og svara þeim spumingum sem upp kunna að koma. Við höfum ekki einungis verið að læra málið heldur höfum við lært margt um Island og íslenska menningu." Carrol, eiginkona Teds, hafði gert tilraun til þess að læra íslensku í bréfaskóla, en það Af hverju skyldu Banda- ríkjamenn læra íslensku? ■ ■ —— — —-------- Margrét Agústsdóttir, fréttaritari Morgunblaðsins í Washington, frétti af fólki sem mætti vikulega í ís- lenskutíma og slóst í hópinn eina kvöldstund. gekk heldur brösuglega. Fékk hún síðan bréf frá skólanum í fyrra þar sem sagði að íslenskukennslan hefði verið lögð niður. Blaðamaður var forvitinn um hvers vegna þessir Bandaríkjamenn réðust í að læra ís- lensku, sem margir telja strembið tungu- mál. Ted varð fyrstur fyrir svörum: ,Árið 1978 millilentum við hjónin á Islandi á leið okkar til Lúxemborgar og heilluðumst af landinu. Ég hafði alltaf verið áhugamaður um víkinga- og íslendingasögur. Mér leið bókstaflega eins og ég hefði verið á Islandi í fyrra lífi. Það kom því ekki annað til greina en að heimsækja landið aftur.“ Síðan hafa Ted og Carrol komið þrisvar sinnum til Islands, og vilja gjaman geta talað íslensku. „Þegar við erum á íslandi, reynum við að fara fáfamar slóðir og skoða annað en það sem venjulegum ferða- mönnum er boðið uppá. Við vor- um á Islandi í nóvember sl., þá fannst okkur, þrátt fyrir að hafa einungis sótt þrjár kennslu- stundir í íslensku, að við hefðum betri tilfinningu fyrir málinu, þ.e. þetta rann ekki allt saman út í eitt. Við gátum jafnvel skilið orð og orð á stangli, en áttum í erfiðleikum með að skilja heilar setningar. A fyrri ferðum okkar til Is- lands voram við hálfhrædd við að tala við fólk, vissum ekki hvaða viðbrögð við fengjum. Núna hefur okkur vaxið ás- megin, og við emm óhrædd að brydda uppá samræðum. Þeg- ar við komum til dæmis inn í verslun og bjóðum góðan dag- inn á íslensku, fáum við frábær viðbrögð. Fólk svarar okkur þá gjaman á íslensku, en það get- ur þó verið svolítið vandræðalegt þar sem við erum enn ekki komin það langt að skilja heilar setningar." Einhvers konar sjálfsvörn Brian Hartford, eiginmaður Dóru, ákvað að nota tækifærið og hefja íslenskunám undir leiðsögn konu sinnar. „Ég var orðinn þreyttur á að koma með konunni minni til Islands og vera alltaf svona utanveltu. Ég þurfti sífellt að hnippa í hana og spyrja hvað þessi eða hinn hefði verið að segja“. Brian sagði námið sækjast nokkuð vel, hann hlustaði t.d. mikið á íslenska tónlist sem hjálpaði mikið. Hann sagðist einnig verða var við undrun hjá Islendingum þegar þeir fréttu að hann væri að læra íslensku. „En það mætti kannski segja að þetta sé nokk- urs konar sjálfsvörn af minni hálfu.“ Ruth Pacheco er tölvufræðingur, hún kom til Islands sl. sumar ásamt eiginmanni sínum í þeim erindum að skoða íslenska náttúra og fuglalíf. „Við ferðuðumst til af- skekktra staða þar sem fólk talaði ekki ensku, og við viljum ekki vera alveg bjarg- arlaus næst þegar við fóram. Ég hef reynd- ar alltaf haft mikinn áhuga á tungumálum, lærði m.a. þýsku í háskóla." Ruth sagði einnig að sú staðreynd að íslensk tunga hefði varðveist nánast óbreytt í aldir, hefði verið sér hvatning til að læra málið. Carrole Burr, háskólanemi og rithöfund- ur, var ein þeirra sem lengi höfðu leitað að íslenskukennslu. Hún stefnir á að taka sum- amámskeið í íslensku við Háskóla Islands næsta sumar og taldi sig fá góðan undirbún- ing hjá Dóra. „Ég er með bók í smíðum sem á að gerast á Islandi og þess vegna finnst mér ég verða að fá innsýn í íslenska tungu. Ég hafði talað við alþjóðadeildina í háskól- anum þar sem ég stunda nám, og spurst fyr- ir um kennslu í íslensku, en enginn vissi hvert ég ætti að snúa mér. Það var ekki fyrr en ég rakst á auglýsingu frá Islendingafé- laginu að skriður komst á málið og ég komst í samband við þennan hóp.“ Hugað fólk Dóra segir að það hafi komið sér mest á óvart við íslenskukennsluna að til væri fólk sem væri nógu hugað til að leggja út í slíkt nám. „Ég hafði ekki gert mér grein fyi-ir því hversu erfitt tungumál íslenskan er í raun og veru fyrr en ég fór sjálf að kenna. í upphafi voru sextán nemendur í hópnum, en nokkrir heltust úr lestinni og era níu eftir. Ég legg áherslu á að koma upp orðaforða hjá nem- endunum áður en við ráðumst í málfræðilega þáttinn. Við höfum m.a. verið að lesa mat- seðla, læra tölustafina, litina, framburð og einfalda hluti eins og að bjóða góðan daginn." Þetta kvöld sem blaðamað- ur var í heimsókn var verið að fara yfir íslenskun erlendra borgamafna og tekið sem dæmi Lundúnir og Nýja Jór- vík. Þessi lenska vakti undran nemenda og spunnust um þetta umræður um málvernd á Islandi, svo og önnur sér- kenni íslenskunnar s.s. beygingar á manna- nöfnum, sem oft vilja vefjast fyrir útlend- ingum. Islenskunemendunum kom öllum saman um að íslenskan væri mun erfiðari en þeir höfðu átt von á. „Það er erfitt að finna tíma til þess að læra og æfa sig, þ.e. að ná raun- veralegum tökum á málinu. Þetta er tíunda kennslustundin okkar og á þessum tíma hef- ur mér tekist að ná betri tökum á að bera fram það sem ég les, þrátt fyrir að ég skilji ekki innihaldið," sagði Ted. Dóra stefnir á að hefja annað tíu vikna námskeið með vorinu, og ef áhugi er fyrir hendi munu þau halda áfram næsta haust. Þegar við komum til dæmis inn í verslun og bjóðum góðan daginn ó ís- lensku, fóum við fróbær viðbrögð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.