Morgunblaðið - 14.02.1998, Blaðsíða 2
2 B LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998
+
MORGUNB LAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 B 3
URSLIT
ÖL í Nagano
Brun karla:
1. Jean-Luc Cretier (Frakkl.)...1:50.11
2. Lasse Kjus (Noregi) .........1:50.51
3. Hannes Trinkl (Austurr.) .....1:50.63
4. Juerg Gruenenfelder (Sviss).......1:50.64
5. Ed Podivinsky (Kanada).......1:50.71
6. Kristian Ghedina (Ítalíu).........1:50.76
7. Andreas Schifferer (Austurr.)... .1:50.77
8. Didier Cuche (Sviss) ........1:50.91
9. Kyle Rasmussen (Bandar.)......1:51.09
10. Patrik Jaerbyn (Svíþjóð).....1:51.22
Tvíkeppni
1. Mario Reiter (Austurr.)......3:08.06
(brun l:36.21/svig 1:31.85
2. Lasse Kjus (Noregi) ..........3:08.65
1:34.99 1:33.66
3. Christian Mayer (Austurr.)...3:10.11
1:35.06 1:35.05
4. Giinther Mader (Austurr.) ....3:10.19
1:34.83 1:35.36
5. Andrzej Bachleda (Póllandi).......3:11.53
1:37.04 1:34.49
Sleðakeppni, tveggja manna:
S. Krausss/J. Behrendt (Þýskal.) . .1:41.105
C. Thorpe/G. Sheer (Bandar.)........1:41.127
Grimmette/B. Martin (Bandar.) .. .1:41.217
Isdans
(Staðan eftir skyldudansinn) stig
Pasha Grishuk/Evgeny Platov (Rússi.) . .0.4
A. Krylova/Oleg Ovsyannikov (Rússl.).. 0.8
M. Anissina/G.l Peizerat (Frakkl.)..1.2
íshokkf
C-riðill:
Rússland - Kasakstan.....................9:2
(2-1 5-0 2-1)
Sergei Fedorov (01:30), Alexei Yashin
(08:15, 20:55), Pavel Bure (27:34, 32:01),
Andrei Kovalenko (32:14, 45:09), German
Titov (38:39), Valeri Zelepukin (55:46) -
Erlan Sagymbayev (02:15), Evgeniy
Koreshkov (57:40)
Tékkland - Finnland......................3:0
D-riðill:
Kanada - H-Rússland .....................5:0
(2-0 2-0 1-0)
Theoren Fleury .....................(07:55),
Raymond Bourque (14:34), A1 Maclnnis
(24:38), Eric Lindros (37:44, 52:57).
Sviþjúð - Bandaríkin.....................4:2
(1-2 2-0 1-0)
Daniel Alfredsson (12:26, 31:33), Patric
Kjellberg (21:50), Mats Sundin (57:04) -
Chris Chelios (11:10), Mike Modano (12:50)
Staðan
C-riðiIl:
1. Rússl.....................1 1 0 0 9:2 2
2. Tékkland..................1 1 0 0 3:0 2
3. Finnland..................1 0 0 1 0:3 0
4. Kasakstan.................1 0 0 1 2:9 0
D-riðilI:
1. Kanada...................1 1 0 0 5:0 2
2. Svíþjóð ..................1 1004:22
3. Bandarfldn................1 0 0 1 2:4 0
4. H-Rússl...................1 0 0 1 0:5 0
Körfuknattleikur
NBA-deíldin
Toronto - Cleveland ..................94:103
Phoenix - Portland ..............110:115
Utah - Boston ...................118:100
Vancouver - Houston ............103:112
Sacramento - Denver....................87:84
UM HELGINA
Körfuknattleikur
Bikarúrslikt kvenna:
Laugardalshöil: Keflavík - ÍS.......15
Bikarúrslit karla:
Laugardalshöll: UMFG - KFÍ ..........17
Handknattleikur
Laygardagur:
2. deild karla:
Strandgata: ÍH - Fjölnir ........17.30
Fylldshús: Fylkir - HM ..........16.30
1. deild kvenna:
Vestm. ÍBV - Grótta/KR..............14
Sunnudagur:
1. deild karla:
Asgarður: Stjarnan - Vfldngur........20
Digranes: HK - ÍR...................20
Framhús: Fram - Haukar..............20
Kaplakriki: FH - ÍBV................20
KA-heimili: KA - Afturelding........20
Smárinn: Breiðablik - Valur.........20
2. deild karla:
Höllin á Akureyri: Þór - Hörður...13.30
Frjálsíþróttir
Meistaramót íslands í fjölþraut heldur
áfram í dag. Keppt verður í 60 m grinda-
hlaupi kl. 14 í Baldurshaga og keppt verður í
stangarstökki kl. 16 í Kaplakrika, þar sem
keppni í 1000 m hlaupi hefst kl. 18.
Islandsmót íþróttasambands Fatlaðra
verður í Baldurshaga og Hlíðaskóla í dag.
Mótsetning er kl. 9.30 í Baldurshaga, þar
sem keppni hefst að lokinni mótsetningu.
Keppni í Hlíðaskóla hefst kl. 13.30.
Blak
Laugardagur:
1. deild karla:
Ásgarður: Stjarnan - Þrótttur .......16
KA-heimili: KA - ÍS ..............14.30
1. deild kvenna:
Húsavík: Völsungur - ÍS.............14
Knattspyrna
Fylkir gengst fyrir Blásteinsmótinu í knatt-
spyrnu í Reiðhöllinni í dag. Keppt verður í
tveimur riðlum og hefst keppni ld. 11 árdeg-
is og úrslitaleikurinn hefst kl. 19.54 og síðan
verður verðlaunaafhending. Liðin sex keppa
eru í A-riðli: Fylldr-23, Leiftur, Fram,
Þróttur og Keflavík en í B-riðli eru Fylkir,
Fram-23, Ægir, Víkingur og Leiknir.
Afmæli hjá Fjölni
Grafavogsbúar halda upp á tfu ára afmæli
Ungmennafélagsins Fjölnis í dag. Dagskrá-
in hefst í Fjölnishúsinu kl 14 og stendur til
kl 17.
Glfma
Bikarglíma, Flugleiðamótið, fer fram í dag
kl. 13 að Laugum í Suður-Þingeyjasýslu.
KORFUKNATTLEIKUR
IÞROTTIR
Friðrik Ingi Rúnarsson um bikarúrslitaleik KFÍ og UMFG
Grindvíkingar
með besta
bakvarðaparið
ÍSFIRÐINGAR þreytir frumraun
sína í stórviðureign á sviði
körfuknattleiksins er þeir
mæta Grindvíkingum í bikarúr-
slitaleik karla í Laugardalshöll-
inni kl. 17 í dag, en KFÍ-liðið
er á öðru ári sínu í úrvalsdeild.
Grindavík varð síðast bikar-
meistari 1995. Morgunblaðið
ræddi við Friðrik Inga Rúnars-
son, þjálfara Njarðvíkur, og
bað hann um að spá í spilin
fyrir viðureign liðanna.
Friðrik Ingi var þjálfari Grinda-
víkur, er liðið varð bikarmeistari
fyrir þremur árum. Hann hefur því
reynslu af bikarúrslitaleikjum og
segist sjálfur hafa verið í svipaðri
aðstöðu og KFÍ er í nú - að þurfa að
ná fram sinni bestu frammistöðu til
að knýja fram sigur, en hann telur
að Grindvíkingum nægi að leika
eins og liðið hefur gert að jafnaði í
vetur til að hampa bikarnum.
„Grindavíkurliðið hefur leikið vörn-
ina þannig í vetur, að leikmenn þess
hafa verið mjög ágengir fyrir utan,
vitandi það að þeir hafa stóran og
mikinn Grikkja í teignum, sem er
auðvitað mikil ógn. Andstæðingar
þeirra vilja því ekki fara undir körf-
una í tíma og ótíma. Þess vegna
leyfa Grindvíkingamir sér að reyna
að reka sóknarliðið svolítið langt út
á völlinn. Þetta hefur oft reynst
þeim vel og leiðir til fjölda hraða-
upphlaupa. Þeir era líka með geysi-
lega góða bakverði, besta bakvarða-
parið í deildinni fHelga Jónas Guð-
finnsson og Darryl Wilson]. Þríeyk-
ið [Helgi Jónas, Wilson og Tsartsar-
is] skorar að jafnaði tæplega áttatíu
stig að meðaltali í hverjum leik og
það er auðvitað mjög mikið. Grinda-
vík byggir sóknarleik sinn mikið
upp á stemmningu og þriggja stiga
skotum. Sókn liðsins er ef til vill
ekki sú agaðasta, en hæfileikar
hvers og eins ráða ferðinni. Ef þessi
leikaðferð liðsins gengur upp,
þ.e.a.s. að leikmönnum þess tekst
vel upp, að þeir gefa skyttum liðsins
góð skotfæri og að Grikkinn stend-
ur vaktina - verða þeir illviðráðan-
legir. Það skiptir þá miklu máli að
Grikkinn spili eðlilega, að hann eigi
ekki erfítt uppdráttar gegn hinum
tveimur tröllvöxnu leikmönnum
KFÍ [David Bevis og Friðriki Stef-
ánssyni]. Þetta er lykillinn að vel-
gengni Grindvíkinga. Þeir reyna
væntanlega að ná upp þeim hraða
leik sem þeir eru þekktir fyrir og ef
sá gállinn er á þeim, geta þeir gert
út um leikinn á þremur til fjórum
mínútum. Þá eru úrslitin ráðin.
Þá komum við að ísfirðingunum.
Þeir verða að reyna að hægja á
leiknum og halda svolítið aftur af
Grindvíkingunum. Styrkur þeirra
liggur að mestu leyti í stóru leik-
mönnunum undir körfunum á báð-
um endum vallarins [Friðrik og
Bevis]. KFÍ verður að fá sem mest
úr þeim. Þeir gera það ekki ef þeir
falla í þá gryfju að fara í einhverja
hlaupa- og skotkeppni við Grindvík-
ingana. Isfírðingarair taka gríðar-
lega mörg fráköst, eru með Bevis og
Friðrik, sem eru sannkallaðar frá-
kastavélar. Það er mikill styrkur.
Andstæðingar þeirra eiga ekld
mikla von um að fá annað skotfæri í
sókninni ef fyrsta skottilraunin mis-
tekst, þvf þeir hirða svo mörg vara-
arfráköst. ísfírðingar hafa yfirburði
í vítateigunum, til þess að halda velli
þar þurfa þeir Friðrik og Bevis ein-
VETRAROLYMPIULEIKARNIR I NAGANO
Frakki fyrst-
ur í fýrsta
sinn í 30 ár
Jean-Luc Cretier fagnaði sigri í bruni karla
FRAKKINN Jean-Luc Cretier
fagnaði sigri í bruni karla í
Nagano í gær. Hann er fyrsti
Frakkinn sem verður ólympíu-
meistari í greininni í 30 ár
eða síðan Jean-Claude Killy
hampaði æðstu verðlaunum
alpagreinanna. Austurríkis-
maðurinn Hermann Maier,
sem var sigurstranglegastur,
flaug út úr brautinni eftir 20
sekúndur og meiddist á öxl-
um, höfði og hné, en 13 af 43
keppendum náðu ekki að
komast í mark.
Cretier, sem
verið með
Morgunblaðiú/Ásdís
Hart barist
PÉTUR R. Guðmundsson, fyrirliði Grindavíkur [fjær], kemur Baldri Inga Jónassyni, fyrirliða KFÍ, að óvörum við
höfnina á ísafirði, en þar var haldinn fréttamannafundur f vikunni.
er 31 árs, hefur
heimsbikarnum í
11 ár en aldrei sigrað á heimsbik-
armóti. Hann fór brautina á
1.50,11 sek. en Norðmaðurinn
Lasse Kjus var annar 0,40 sekúnd-
um á eftir og 0,12 sekúndum á eftir
honum kom Austurríkismaðurinn
Hannes Trinkl.
Cretier hringdi þegar heim til
Frakklands og sagði syni sínum að
hann kæmi heim með bestu mögu-
legu verðlaunin, gull. „Sonurinn var
ekki ánægður með það,“ sagði
ungis að leika eins og þeir hafa verið
að gera í vetur. Bakverðir Isfírðing-
anna eru prýðisgóðir leikmenn.
Olafur Ormsson er frábær þriggja
stiga skytta og Salas er mjög góður
og traustur leikmaður. Hann þarf að
eiga góðan leik, helst að skora um
tuttugu stig eða meira og gefa sex til
átta stoðsendingar, til þess að liðið
nái að sigra bestu liðin.
Isfirðingar verða að hægja á
leiknum og ná því besta og mesta út
úr stóru leikmönnunum, því það eru
þeir sem skapa ákveðið jafnvægi í
sókn KFI. Þeir fá boltann inn í teig-
inn og draga fleiri varnarmenn til
sín. Þá gefa þeir boltann út aftur til
bakvarðanna, sem eru mjög lagnir
við að hitta handan þriggja stiga
línunnar úr kyrrstöðu.
Munurinn á þriggja stiga skytt-
um liðanna er sá að Helgi Jónas og
Wilson geta skapað sér færi upp á
eigin spýtur auk þess að geta fengið
sendingu í opnu færi o.s.frv. Hinir
tveir [Salas og Ólafur hjá KFÍ] eru
mun háðari því að fá boltann þegar
þeir eru komnir í skotstöðu. Þess
vegna er svo mikilvægt fyrir KFI
að nota stóru mennina fyrir innan,
en til þess verða þeir að hægja á
leiknum. Þar liggur þeirra mögu-
leiki auk þess sem þeir þurfa að
hafa vinninginn hvað fráköst varð-
ar.
Eg leyfí mér ennfremur að segja
að Guðni Guðnason verður að spila
a.m.k. um 25 mínútur í þessum leik.
KFÍ vinnur ekki þennan leik, nema
að hann sýni hvað hann getur. Mér
er alveg sama þótt hann sé ekki eins
góður og hann var einu sinni, en
hann verður að spila. Það er alveg
hreint og klárt. Eg ber fulla virð-
ingu fyrir öllum leikmönnum liðs-
ins, en Guðni er sá eini í þeirra her-
búðum sem hefur tekið þátt í svona
leik áður og veit því hvemig þetta
er. Hann er einstaklega rólegur og
yfirvegaður leikmaður og lærisvein-
ar hans þurfa á þeim eiginleikum að
halda. Guðni getur ekki haft þau
áhrif í jafnmiklum mæli á leikmenn-
ina með því að stjórna á bekknum
þegar leikurinn er hafmn. Ef hann
leikur aðeins meira en venjulega á
KFÍ meiri möguleika á sigri en
ella,“ segir Friðrik.
Úr Kársnesskóla í Höllina Aðeins eitt tækifæri
„ÞETTA er ínjög langþráð stund,“ sagði Guðjón Þorsteinsson,
framkvæmdarsljóri KFÍ. „Ég var í þessari aðstöðu síðast fyrir
átján árum og héma hef ég komið upp mínu heiinili og baslað
við að byggja upp körfuboltalið í tæp álján ár. Ég hef farið í
fyrstu og aðra deildina til skiptis með sínu hvom byggðarlaginu,
Isafirði og Bolungarvík. Þetta er alveg ólýsanlegt, það er mjög
erfitt að lýsa hvemig rnanni Iíður,“ sagði hann.
„Þegar ég byrjaði l\já KFÍ árið 1980 æfðum við í sal, sem er
aðeins 8x16 m að stærð. Við spiluðum alla heimaleiki okkar í
Kársnesskóla í Kópavogi. Við urðum því að ferðast til
höfuðborgarsvæðisins á hvera heimaleik."
Hvað segja þeir?
Setjum upp sérstaka
vörn á móti KFÍ
lenedikt Guðmundsson, sem tók
^við þjálfun Grindavíkurliðsins
fyrir yfirstandandi tímabil, segist
eiga von á að lið sitt blómstri í bik-
arúrslitaleiknum. „Ég held að leik-
menn mínir séu mjög vel stemmdir
og sumir þeirra hafa tekið þátt í
svona leik áður, þannig að þeir vita
nákvæmlega um hvað þetta snýst.
Við ætlum að bregða út af vananum,
bæði í sókn og vörn - setjum upp
sérstaka vöm á móti ísfirðingunum,
sem við teljum að eigi að geta stöðv-
að þá. Stefnan er að leyfa þeim ekki
að gera meira en sjötíu stig. Ef það
tekst, eigum við sigurinn vísan, því
það er mjög erfítt að stöðva sóknar-
leik okkar.“
Skynsemin ræður
Guðni Ó. Guðnason, leikmaður
og þjálfari KFI, segir skynsemi
ráða úrslitum. „Við þurfum leika
eins og við erum vanir - og af
skynsemi. Það lið sem leikur af
meiri skynsemi ber sigur úr být-
um. Það er mikilvægt að leikmenn
haldi ró sinni, verði ekki of tauga-
spenntir og geri einhverja vit-
leysu,“ sagði Guðni. „Ég er mjög
bjartsýnn og á alveg eins von á því
að sigurinn endi „réttum“ megin.
Grindvíkingarnir eru erfiðir. Ba-
kverðir þeirra eru góðir sóknar-
menn og það verður erfítt að
stöðva þá, en við komum til með að
gera það samt.“
Barátta
Baldur Ingi Jónasson, fyrirliði
KFÍ, er eini Isfirðingurinn í byrjun-
arliði félagins. En hver telur hann
lykilinn að sigra ísfirðinga í dag?
„Bara baráttu. Við verðum að berj-
ast af fullum krafti allan tímann -
gera okkar besta og gott betur en
það. Ég veit að menn verða tilbúnir
í þennan leik. Við höfum beðið lengi
eftir honum.“
Má ekki vanmeta
„Það kemur ekkert annað til
greina en sigur,“ sagði Pétur Guð-
mundsson, fyrirliði Grindavíkur.
„Við ætlum okkur að sigra og til að
það gangi eftir þurfum við vitanlega
að eiga góðan dag - koma virkilega
vel stemmdir til leiks. Helsti and-
stæðingur okkar í þessum leik er
við sjálfir."
TÍMI er kominn til að ÍS og Kefla-
vík eigist við í bikarúrslitaleik
kvenna í körfuknattleik því þó að
hvort lið hafi tíu sinnum leikið til
úrslita hafa þau aldrei mæst á
þessum vettvangi. Það gerist
hins vegar í dag; leikurinn hefst í
Laugardalshöll ki. 15.
Þótt Keflavíkurstúlkur hafi nánast
verið áskrifendur að sæti í bikar-
úrslitaleiknum í rúman áratug - þær
hafa 11 sinnum leikið til
Stefán úrslita á síðustu 12 árum
Stefánsson . kemur það fyrir lítið því
í slíkum leik er allt lagt
undir; leikmenn fá aðeins eitt tæki-
færi.
„Við erum kannski með sterkara lið
á pappíram en það skiptir minnstu
máli í bikarleik,“ sagði Keflvíkingurinn
Erla Reynisdóttir á blaðamannafundi í
vikunni. „Það er mikið talað um þenn-
an leik í Keflavík, ég vil ekkert segja
um hverju skólafélagar mínir spá en í
svona leik fær lið aðeins eitt tækifæri
og það setur hnút í magann."
Tölfræðin er Keflvíkurstúlkum í
hag. Þær hafa hampað bikarnum oft-
ar en aðrar, alls átta sinnum - m.a.
síðustu fimm ár - og. eru Islands-
meistarar, auk þess að hafa unnið IS-
stúlkur í öllum leikjum undanfarin 12
ár, þar af þrívegis þetta tímabil. Þessi
upptalning hugnast eflaust Keflvík-
ingum nær og fjær - er þetta ekki ör-
uggt? - en sama upptalning gæti
einmitt orðið þeim að falli. Undanfar-
in ár hefur IS stöðugt færst nær og
munaði sjö stigum í fyrsta leik lið-
anna í vetur. Meðalhæð leikmanna ÍS
og leikjafjöldi er meiri auk þess sem
Stúdínur hafa tekið 129 fráköstum
meira í vetur, þar af hundrað varnar-
fráköst. Einnig hafa ÍS-stúlkur varið
93 skot á móti 26 KefMkinga og náð
bolta í sókn 30 sinnum oftar, en á
móti kemur að þær hafa tæplega
hundrað sinnum oftar en Keflvíkingar
misst boltann í sókn. Til að slá á
+
þessa upptalningu, sem er Stúdínum í
hag, skal nefnt að Keflavíkurstúlkur
hafa nýtt sín færi mun betur í vetur.
Þessar tölur eru því skilaboð til
beggja liða um að leggja allt í sölurn-
ar í dag og aðeins þegar upp verður
staðið eftir fjörutíu mínútna leik verð-
ur hægt að spyrja að leikslokum -
ekki fyrr. Það eru skilaboðin til
stuðningsfólks og áhorfenda.
Brá í fyrra
„Ég held að eftir bikarúrslitaleikinn
í fyrra, þar sem við komum ekki nógu
vel undirbúnar, hafi stuðningsmenn og
við gert okkur grein fyi-ii- að það þarf
að leggja sig allan fram til að vinna,“
sagði Anna María Sveinsdóttir, leik-
maður og þjálfari Keflavíkur, um leik-
inn. „Fyrstu mínútur leiksins fara ef-
laust í að finna taktinn og það er mikil-
vægt að byrja vel en það verður vam-
arleikurinn sem skiptir sköpum.
Áhorfendur skipta líka máli því
stemmning er hluti af leiknum enda
fær maður bara eitt tækifæri í bikar-
keppni. Það verður ekkert vanmat hjá
okkur - við mætum til að vinna og
verðum að sýna það,“ sagði Anna Mar-
ía.
„Það liggur meiri vinna í að vinna
Islandsmeistaratitil en það er öðru-
vísi stemmning í bikarkeppninni og
einhvern veginn skemmtilegra að
vinna bikarúrslitaleik,“ bætti Anna
María við og hún ætti að vita það -
hefur spilað 44 af 45 bikarleikjum fé-
lagsins.
Þurfa að komast í
gegnum okkur
„Við erum tilbúin og þær þurfa að
komast í gegnum okkur til að vinna.
Ef mínar stelpur koma tilbúnar getur
allt gerst og þá skipta tíu síðustu leikir
ekki máli, því þetta verður ný orusta,"
sagði Pétur Ingvarsson, þjálfari ÍS, og
sagðist engu kvíða.
„Leikurinn leggst vel í mig, ég er
ánægður með stelpurnar mínar og
þær vonandi líka og þá verður þetta
hörkuleikur. Ég held að flestir leik-
menn Keflavíkur geri ráð fyrir að
vinna, sem þýðir vanmat, en við ætlum
að koma þeim í opna skjöldu með mik-
illi baráttu og sjáum til þegar
lokaflautið gellur. Við erum eflaust að
eiga við hærra skrifaða leikmenn, en
baráttugleði spilar mikið inn í. Og það
þarf varla að auka baráttugleði hjá
mínu liði - frekar að þurfi að róa liðið,
því stelpunum finnst flestum merki-
legt að spila bikarúrslitaleik í Höllinni
og munu gera sitt allra besta.“
FOLK
■ GUÐNI Ó. Guðnason, leikmaður og
þjálfari KFÍ, hefur leikið fjóra bikarúr-
slitaleiki sem leikmaður KR. Hann hef-
ur tvívegis staðið uppi sem sigurveg-
ari, en hinum leikjunum tapaði lið hans
með einu og tveimur stigum.
■ FJÓRIR leikmenn Grindavíkur voru
í liðinu þegar það varð bikarmeistari
1995. Það eru þeir Helgi Jónas Guð-
finnsson, Pétur R. Guðmundsson,
Bergur Hinriksson og Unndór Sig-
urðsson. Sá síðastnefndi verður klár í
slaginn í dag, en hann hefur verið frá
vegna meiðsla síðan í upphafi tímabils.
■ KEPPT er um nýjan bikar hjá kven-
fólkinu. Það er fyrirtækið Atlavík, sem
staðsett er á Eskifírði og flytur inn
verðlaunagripi, sem gefur hann.
■ ÍS varð 70 ára í janúar og vonast ÍS-
stúlkurnar til að gefa félaginu titil í af-
mælisgjöf.
■ BJÖRG Hafsteinsdóttir, liðsstjóri
Keflavíkurliðsins, er að taka þátt í sín-
um ellefta bikarúrslitaleik.
Cretier. „Hann vildi silfur. Ég
sagði að mér þætti það miður en ég
hef á tilfinningunni að ég komi ekki
heim með réttu verðlaunin." Hins
vegar eru viðbrögð sonarins skilj-
anleg því faðirinn hefur aldrei unn-
ið neitt. 1994 fékk hann silfur í
bruni í Chamonix en á líðandi tíma-
bili hefur hann tvisvar hafnað í öðru
sæti og einu sinni í þriðja sæti.
Cretier var méð í heimsbikar-
keppni í Hakuba fyi-ir tveimur ár-
um. „Ég þekkti því brautina og
reyndi að líta á þetta sem venju-
lega keppni, heimsbikarmót. Því
hélt ég ró minni hér í fimm daga.“
Hann æfði og keppti með jafnaldra
sínum Luc Alphands sem hætti í
fyrra eftir að hafa tryggt sér
heimsbikarmeistaratitilinn í bruni
í þriðja sinn á ferlinum en hann
varð aldrei ólympíumeistari. Creti-
er sagði að fjarvera Alphands
hefði þýtt það að hinir hefðu þurft
að standa sig. Alphand sagði hins
vegar að vinur sinn hefði sýnt
fram á mikilvægi þess að halda
áfram í íþróttum. „Hann átti verð-
launin skilin og ég er ánægður fyr-
ir hans hönd.“
Bandaríkja-
menn
stöðvuðu
einokun
Evrópu-
manna
landaríkjamenn stöðvu sigur^
fyöngu Evrópumanna þegar
þeir unnu til verðlauna í fyrsta sinn
í tveggja manna sleðakeppni. Fyrst
var keppt í greininni í Innsbruck
1964 og þar til í gær höfðu Þjóðverj-
ar, ítalir, Austurríkismenn og fyrr-
verandi Sovétmenn fengið öll verð-
launin. Að þessu sinni fengu Banda-
ríkjamenn silfur og brons á eftir
sigurvegurunum, Þjóðverjum.
Þrátt fyrir kaflaskiptin voru
bandarísku verðlaunahafarnir jarð-
bundnir. „Við erum ekki á sama
stalli og Albert Tomba eða Michael
Jordan og eigum ekki von á að fólk
snúi sig úr hálsliðnum sjái það okk-
ur á götu en vonum að íþróttin fái
einhverja athygli,“ sagði Gordy
Sheer sem var í öðru sæti ásamt
Chris Thorpe."
Þjóðverjarnir Stefan Rrausse og
Jan Behrendt hafa rennt sér saman
í sama sleða í 16 ár og sigruðu eins
og í Albertville 1992 en Þjóðverjar
sigruðu líka í eins manns sleða-
keppni karla og kvenna. „Við höfum
ekki að meiru að keppa,“ sagði
Krausse. „Það er ótrúlegt að við
höfum keppt saman í 16 ár en þetta
hefur verið frábær tími. Olympíu-
sigrarnir eru frábærir en erfiðar^
var að ná þessum.“
Kristinn Svanbergsson framkvæmdastjóri SKÍ
„Rangt eftir mér haft“
KRISTINN Svanbergsson, fram-
kvæmdastjóri Skíðasambands Is-
lands og flokksstjóri íslensku
keppendanna á Ólympíuleikunum
í Nagano, segir rangt eftir sér
haft í fréttatilkynningu á heima-
síðu Nagano-leikanna, þar sem
fram kemur að hann hafi sagt
Kristin Björnsson besta svig-
mann heims um þessar mundir.
Umrædd ummæli birtust í Morg-
unblaðinu í vikunni.
„Það er ekki minn stfll, eða
okkar hjá Skíðasambandinu, að
vera með svona yfirlýsingar og
mér þykir mjög leitt að ekki
skyldi rétt eftir mér haft. Þegar
við komuna til Nagano kom til
mín japanskur blaðamaður, sem
bað um upplýsingar um Kristin
Björnsson. Auðvitað var ekkert
sjálfsagðara en veita honum þær,
og ég sagði meðal annars við
hann - orðrétt - Kristinn
Björnsson is one of the best slal-
om skiers in world at the
moment; sem sagt að hann sé
einn besti svigmaður heims um
þessar mundir. Hitt er auðvitað
út í hött að fullyrða að hann, sem
hefur tvisvar orðið í öðru sæti á
heimsbikarmóti, sé sá besti.“
Oskabyrjun
Svía í Nagano
Svíar hafa fullan hug á að verja
ólympíumeistaratitilinn í ís-
hokkí og þeir byrjuðu vel, unnu
heimsmeistara Bandaríkjanna 4:2 í
fyrsta leik í Nagano.
„Við getum orðið meistarar,"
sagði Svíinn Mats Sundin, sem hélt
upp á 27 ára afmælisdaginn með því
að skora seint í þriðja leikhluta -
þremur mínútum fyrir leikslok - og
koma þar með í veg fyrir að Banda-
ríkjamenn kæmust inn í leikinn en
skömmu áður hafði Tommy Salo
varið vel og varnað heimsmeistur-
unum að jafna.
Daniel Alfredsson gerði tvö mörk
eftir stoðsendingar frá Peter Fors-
berg og Patric Kjellberg, einn fárra
leikmanna Svía sem ekki leikur í
NHL-deildinni, skoraði í byrjun
annars leikhluta. „Þegar litið er á
mannskap þeirra ættu þeir að vera
sigurstranglegastir," sagði Fors-
berg um Bandaríkjamennina en úr-
slitin benda ekki til þess.
„Ég sá ekki mark Modanos
sagði Salo um annað mark Banda-
ríkjanna en hann lék vel í marki
ólympíumeistaranna og varði 29
skot. „Strákamir voru mjög góðir
fyrir framan mig og mótherjarnir
fengu aldrei aðra skottilraun," sagði
hann.
„Við vöknum við þetta,“ sagði
Chris Chelios, fyrirliði heimsmeist-
aranna, en hann gerði fyrsta mark
leiksins. „Ef við ætlum að fá gullið
verðum við að vinna í vörninni.
Mótherjarnir voru betri í hornunum
og fyrir aftan markið,“ bætti hann
við en bæði mörk Alfredssons komu*
eftir leik Forsbergs fyrir aftan
mark Bandaríkjamanna. Richter
varði aðeins 16 skot og fékk á sig
tvö mörk úr fímm tilraunum í öðr-
um leikhluta. „Það er eins og við
höfum fyrst verið kynntir til leiks í
fyrradag," sagði bandaríski varnar-
maðurinn Leetch. „Við vorum úti að
aka á stundum.“ '