Morgunblaðið - 27.02.1998, Síða 4

Morgunblaðið - 27.02.1998, Síða 4
GOLF / ÁRSÞING GSÍ Landsmótið á þremur völlum á Suðurnesjum Golfsamband íslands var rekið með 2,7 milljóna króna halla á síðasta ári að því er fram kom á Golfþingi um síðustu helgi. Forseti GSÍ, Hannes Guðmundsson, sem var endurkjörinn á þinginu, sagði að slíkt væri óviðunandi og í fjár- hagsáætlun er gert ráð fyrir að fjár- hagsvandinn verði leystur strax á þessu ári. GSI er nú næstfjölmenn- asta sérsambandið innan ISI með 6:800 félagsmenn í 52 klúbbum og gjöld þess á síðasta ári voru 26 milljónir. Miklar breytingar verða á tekjum sambandsins í þá veru að afnuminn verður skattur þess af opnum mót- um en gjald fyrir hvem félagsmann hækkað á móti. í fyrra fékk GSÍ 400 krónur fyrir hvem keppanda á opnum mótum og helming af þátt- tökugjaldi á landsmóti. Nú verður þetta fellt niður þannig að þeir sem halda viðkomandi mót fá allt þátt- tökugjaldið en fastur skattur fyrir hvem skráðan félagsmann hækkar úr 1.000 krónum í 1.750 fyrir full- orðna en úr 100 krónum í 175 fyrir 16 ára og yngri. Vegna þessa og tapsins í fyrra var ákveðið að draga nokkuð saman seglin og þá helst hjá afrekskylfmg- um og í ár verða verkefnin fyrir þá erlendis mjög skorin niður. Tapið á rekstrinum rekja menn meðal ann- ars til aukins skrifstofukostnaðar þar sem bætt var við manni af óvið- ráðanlegum orsökum. Hannes endurkjörinn Hannes Guðmundsson var endur- kjörinn forseti GSÍ og sagði við það tækifæri að þetta væri síðasta árið sem hann gæfi kost á sér í embætt- ið. Nokkrar breytingar urðu á stjórn GSÍ. Júlíus Jónsson var end- urkjörinn til tveggja ára og þau Björgvin Þorsteinsson og Rósa M. Sigursteinsdóttir koma í aðalstjóm úr varastjóm. Samúel Smári Hreggviðsson og Olafur Jónsson sitja báðir eitt ár í viðbót og Mar- grét Geirsdóttir úr GR var kjörin í stað Jóns Emils Ámasonar, sem hætti eftir eins árs setu. í vara- stjóm voru kjömir Hálfdán Karls- son úr Keili, Gunnar Bragason úr GHR og Guðmundur Ólafsson úr GKG og koma þeir í stað Gunnars Þórðarsonar og Rósmundar Jóns- sonar, sem sátu í aðalstjóm, og Guðbrands Sigurbergssonar, en þessir gáfu ekki kost á sér. Landsmótið í golfi verður haldið á Suðurnesjum 6. til 9. ágúst og leikið á þremur völlum. Ljóst er að meist- araflokkamir og 1. flokkur karla og kvenna leika í Leirunni en hinir flokkamir, 2. flokkur karla og kvenna og 3. flokkur karla, munu leika í Sandgerði og í Grindavík. Eftir þrjá hringi, 54 holur, verður keppendum fækkað þannig að tólf verði eftir, nema í meistaraflokkun- um, þar verða 24 efstu, og munu þeir keppendur leika síðasta daginn og allir flokkar leika þá í Leirunni. Jón Karlsson golfkennari hefur verið ráðinn til Golfsambandsins og mun hann sinna námskeiðum fyrir unglinga og aðstoða smærri klúbba við kennslu, en mikill skortur hefur verð á golfkennurum, sérstaklega hjá smærri klúbbunum. PÍLUKAST Þorgeir og Óli stóðu sig vel í Hollandi Þorgeir Guðmundsson og Óli Sigurðsson, landsliðsmenn í pílukasti, tóku þátt í opna hol- lenska meistaramótinu, sem fór fram í Delden í austurhluta Hollands á dögunum. Þeir voru á meðal 1.300 keppenda og var leikið í 64 riðlum. Flestallir bestu pílu- kastarar heims tóku þátt í mótinu. Sigurvegarinn var Englendingur- inn Alan Warriner, sem vann landa sinn Peter Evison í úrslita- leik. Þorgeir og Óli léku báðir til úr- slita í sínum riðlum. Óli varð sigur- vegari í sínum riðli, en tapaði síðan fyrir Englendingnum Shayne Burgess - hafnaði í 33. sæti. Þor- geir tapaði fyrir Englendingnum Dave Askew og hafnaði í 65. sæti. Arangur þeirra félaga er einn sá besti sem íslendingar hafa náð á alþjóðlegu móti. Þeir kepptu einnig í tvímenningi og náðu góðum árangri, en urðu að sætta sig við tap fyrir hollenskum landsliðsmanni, Bravlio Roncero, Meistarinn byvjaði með sigri Fyrsta bikarmót Karatesam- bands íslands var haldið í Laug- ardalshöll sl. helgi, en bikarmótin verða fjögur í vetur. Keppt var í tveimur þyngdarflokkum karla og opnum flokki kvenna og var hörð keppni í öllum flokkum. Núverandi bikarmeistari, Ingólf- ur Snorrason frá Selfossi, sigraði í +74 kílóa flokki og hlaut fimm stig fyrir. Annar varð Olafur Nielsen úr Þórshamri og Daði Ástþórsson úr Haukum varð í þriðja sæti. Jón Ingi Þorvaldsson úr Þórshamri sigraði í -74 kílóa flokki og hefur hann því einnig fengið fimm stig í baráttunni um bikarmeistaratitilinn. Annar varð Gunnlaugur Sigurðsson úr Haukum og hlýtur hann þrjú stig eins og Ólafur í þyngri flokknum, og í þriðja sæti varð Bjarki Birgisson úr KFR. Sólveig K. Einarsdóttir úr Þórs- hamri sigraði í kvennaflokki og önn- ur varð Sólveig Nielsen, einnig úr Þórshamri. Bikarmeistarinn, Edda Blöndal, keppti eldd þar sem hún er í æfingaferð í Danmörku. Um helgina fara þeir Ingólfur Snorrason og landsliðsþjálfarinn Halldór Svavarsson til Danmerkur þar sem þeir keppa á Opna danska meistaramótinu. og félaga hans, í undanúrslitum í sínum riðli. Á morgun verður opið mót í pílukasti í Smiðsbúið 9 í Garðabæ kl. 13. Þorgeir hefur fagnað sigri í tveimur síðustu opnu mótunum. Reykjavíkurmótið fer fram í lok mars. Þorgeir á titil að verja, hann vann Óla í úrslitaleik í fyrra. ÞORGEIR Guðmundsson og Óll Sigurðsson eftlr úrslitaleik f Reykjavíkurmótinu f fyrra. KARATE / BIKARMÓT FOLK ■ BRODDI Krisljánsson, lands- liðsþjálfari í badminton, sigraði í einliðaleiksmóti KR sem fram fór sl. miðvikudag. Hann vann Tryggva Nielsen í úrslitum, 14-17, 15-7 og 15-12. Brynja Pétursdóttir sigraði Söru Jónsdóttur í úrslitum í einliðaleik kvenna, 10-12, 11-3 og 11-5. ■ VICTOR Piturca verður næsti landsliðsþjálfari Rúmena í knatt- spymu. Hann tekur við af Anghel Iordanescu eftir HM í Frakklandi í sumar og er samningur hans til tveggja ára. Piturca, sem er 43 ára, er þjálfari U-21 árs liðs Rúm- ena og hefur einnig þjálfað Steaua Búkarest og Universitatea Craiova. Hann lék á sínum tíma 13 landsleiki fyrir Rúmeníu. ■ DENNIS Bergkamp lék á miðj- unni hjá Arsenal þegar liðið sótti Crystal Palace heim í fyrrakvöld og vann 2:1 i 16 liða úrshtum Ensku bikarkeppninar. ■ I DAILY MAIL á netinu kom fram að Hermann Hreiðarsson, sem hefði haldið Bergkamp niðri í fyrri leikjum, hefði verið úti að aka í vöminni fyrir vikið en Bergkamp blómstrað og stjómað leiknum. ÚRSLIT Körfuknattleikur NBA-deildin Leikir aðfaranótt fímmtudags: Boston - Sacramento ..111:94 Cleveland - Vancouver .106:101 Detroit - Charlotte .. .88:98 Orlando - Dallas . .100:79 Indiana - La Lakers .. .89:96 Chicago - Portland .101:106 Denver - Atlanta . .88:112 La Clippers - Philadelphia .... .117:108 í kvöld Handknattleikur 2. deild karla: Isafjörður: Hörður - ÍH ...20 Selfoss: Selfoss - Fjölnir ...20 Akureyri: Þór - Grótta/KR ... .20.30 Körfuknattleikur 1. deild karla: Austurberg: Leiknir - Þór Þorl. ..20 Borgarnes: Stafholtst. - Selfoss .. .20 Badminoton Norðurlandamót unglinga (19 ára og yngri) hefst í TBR-húsinu í dag. Is- land leikur við Noreg kl. 12.30 og við Finnland kl. 15.00. Einstaklings- keppnin fer síðan fram á morgun og sunnudag. Sund Sundmót Ármanns hefst í Sundhöll Reykjavíkur í kvöld kl. 19.00. Mótinu verður síðan framhaldið á morgun og sunnudag. SUND Ekki met hjá Eydísi EYDÍS Konráðsdóttir setti íslands- met í 400 metra fjórsundi, eins og kom fram á þriðjudagin. Tíminn Eydísar var 5.01,83 mín., en ekki 5.01,38 mín. eins og var gefið upp í fyrstu. Lára Hrund Bjargardóttir á því enn íslandsmetið í greininni, sem er 5.01,53 mín.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.