Morgunblaðið - 07.03.1998, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1998
Goldin
kemur
aftur til
LAUGARDAGUR 7. MARZ
KNATTSPYRNA
BLAÐ
Jordan efstur
alls staðar
Víkingar unnu einvígið
Sannur vináttuleikur
Egyptar sigruðu ísraelsmenn
28:21 í fyrsta leik OLÍS-mótsins í
gærkvöldi. Þeir sem óttuðust að eitt-
hvað alvarlegt myndi gerast þegar
landslið þjóðanna mættust gátu and-
að léttar þegar flautað var til
leiksloka. Leikurinn var einstaklega
prúðmannlega leikinn og ekki að sjá
að fjandskapur væri með leikmönn-
um þótt andi nyög köldu á milli þjóð-
anna. „Ég er að sjálfsögðu óánægður
með að tapa, en ég er mjög ánægður
með að leikmenn liðanna hugsuðu um
það eitt að leika handknattleik. Við
lékum síðast við Egypta í nóvember
1996 og þá unnum við, en það þurfti
að flytja fimm leikmenn okkar á
sjúkrahús. Núna einbeittu menn sér
að því að leika heiðarlega og ég er
ánægður með það. Egyptar voru
betri og verðskulduðu sigurinn enda
lékum við mjög illa í síðari hálfleik,"
sagði Shlomo Bar-Sela, þjálfari ísra-
ela eftir leikinn.
ísraelar komu nokkuð á óvart með
því að halda spennu í leiknum fram í
miðjan síðari hálfleik, en þeir náðu
aðeins að gera þrjú mörk í síðustu 20
sóknunum og í síðari hálfleiknum
gerði liðið aðeins 7 mörk.
Spánverjinn Javier Cuesta, þjálfari
Egypta, tók í sama streng og þjálfari
ísraela. „Leikurinn fyrir rúmu ári var
hræðilega Ijótur og ég er ánægður
með að bæði lið léku heiðarlega í
kvöld. Skömmu áður en við komum
hingað meiddist aðalvarnarmaðurinn
og ég var með nýjan mann á miðj-
unni. Vömin var því ekki góð nema á
kafla í síðari hálfleik. Ég held líka að
leikmenn mínú hafi verið dálítið
trekktir vegna þess að þeir voru að
leika við ísrael. Það er alltaf mjög
sérstakt fyrir Egypta," sagði Cuesta.
Michael Jordan er ekki aðeins stigahæsti leikmað-
urinn í deildinni og besti leikmaður deildarinnar,
hann er einnig sá launahæsti. Hann hefur 33,14 millj-
■mm ónir dala í grunnlaun á ári, þremur millj-
GunnarVal- ónum meira en í fyrra. Laun hans eru
geirsson skríf- hærri en heildarlaun hjá 17 af 29 liðum í
arfrá Banda- deildinni! Chicago hefur að sjálfsögðu
ríkjunum langhæstu heildarlaun af öllum liðum,
61,7 milljónir dala.
Svokallað „launaþak" er í gildi, en samkvæmt samn-
ingi stéttarfélags leikmanna og deildarinnar mega liðin
í deildinni ekki borga leikmannahópi sínum meira en
26,9 milljónir dala. Hins vegar eru ýmsar undanþágur
sem leyfa liðum að fara yfir þetta þak. Sérstaklega
svokölluð Larry Bird regla sem leyfir liðunum að end-
ursemja við eigin leikmenn um hækkun án þess að sú
hækkun sé tekin með í heildarlaunin. Þannig „kostar“
Jordan lið Chicago aðeins 3 milljónir dala af launaþaki
Chicago þótt raunveruleg laun hans séu tíu sinnum
hærri.
Meðallaun leikmanna í deildinni eru 2,24 milljónir
dala en 36 af 411 leikmönn-
um sem eru á launaskrá lið-
anna fá meir en 6 milijónir
dala í laun. A meðan er um
fímmtungur leikmanna á lág-
markslaunum sem eru 272
þúsund dalir (242 þúsund
fyrir nýliða).
Launahæstu leikmenn
deOdarinnar eru annars (í
milljónum dala):
Michael Jordan Chicago
33,1. Patric Ewing, New
York 20,6. Horace Grant, Or-
lando, 14,3. Shaquille O’Neal,
L.A. Lakers 14,9. David
Robinson, San Antonio, 12,4.
Alonzo Mourning, Miami, JORDAN
11,3. Juwan Howard, Was-
hington, 11.3, Hakeem Olajuwon, Houston, 11,1. Gary
Payton, Seattle, 10,5. Dikembe Mutombo, Atlanta 9,8.
Þess má geta að framkvæmdastjóri NBA-deildar-
innar, David Stern, hefur 7 milljónir dala í laun, sem er
meira en hjá 95% leikmanna. Launahæsti þjálfarinn er
Pat Riley hjá Miami, en hann er með 8 milljónir dala í
laun. Rick Pitino hjá Boston kemur næstur með um 7
milljónir.
Dennis Rodman hjá Chicago hefur einn sérkennileg-
asta samninginn. Hann hefur um 4,5 milljónir dala í
grunnlaun, en gæti fengið um 6 milljónir í viðbót í bón-
us. Hann fær 185 þúsund dali fyrir hvem leik sem
hann leikur í yfir 59 leiki. Hann fær hálfa milljón fyrir
að vinna frákaststitilinn (sem hann sennilega gerir). Ef
hann leikur í öllum leikjum Chicago í úrslitakeppninni,
fær hann eina milljón dala í bónus, o.s.frv.
Af liðum er Chicago með hæstu samanlögð laun,
61,7 milljónir dala. Næst kemur New York með 56,5
milljónir, þá Orlandi með 45,8 milljónir og San Antonio
með 42,9 milljónir.
Jordan til
Grindavíkur
GRINDVÍKINGAR fá í dag nýj-
an, bandarískan leikmann f stað
Darrels Wilsons sem var látinn
taka poka sinn fyrr í vikunni.
Sá heitir Wallsh Jordan og er
25 ára gamall og 184 cm hár
bakvörður. Jordan var í vetur í
15 manna æfingahópi Dailas-
liðsins í NBA-deildinn en komst
aidrei f 10 manna leikmannahóp
liðsins. Hann úrskrifaðist frá
Mississippi-háskólanum 1995 og
var með 16 stig og 5 stoðsend-
ingar að meðaltali f leik sfðasta
keppnistímbilið í háskóla.
„Eg hef spurt Don Nelson,
þjáifara Dallas, eftir Jordan og
hann talar vel um hann og vill
fá hann aftur til sín á næstu
leiktíð," sagði Benedikt Guð-
mundsson, þjálfari Grindavfkur,
í gær. „Úr því að lið f NBA sýn-
ir honum áhuga ættum við að
geta nýtt krafta hans.“ Jordan
leikur sinn fyrsta leik með
Grindvíkingum á morgun er
þeir taka á móti Tindastóli.
Vladimir Goldin, handknattleiks-
maður frá Hvíta-Rússlandi,
sem lék með KA um tíma í haust en
varð að fara skyndilega heim til sín
fyrir jólin til að sinna herskyldu, er
væntanlegur á ný í herbúðir KA-
manna eftir helgi. Þetta staðfesti
Atli Hilmarsson, þjálfari KA, í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi.
„Goldin hefur verið í sambandi við
okkur síðan hann fór og hefur unn-
ið að því að fá sig lausan undan her-
þjónustu um tíma. Nú hefur það
tekist og hann fær sex vikna leyfi
og við ákváðum að nýta okkur það.
Hann kemur á mánudaginn og ég
fagna því að fá liðsstyrk í
lokabaráttunni," sagði Atli.
Ovíst hvenær Þorvaldur Þor-
valdsson getur leikið með KA, en
hann meiddist í leik við Hauka á
mánudagskvöldið. Hann fékk högg
á hálsinn með þeim afleiðingum að
það blæddi inn á hálsliði.
Ásthildur
til KR
jr
Asthildur Helgadóttir, sem leik-
ið hefur með Breiðabliki í
knattspyrnu, gekk í gærkvöldi til
liðs við KR. Ásthildur var valin
besti leikmaður íslandsmótsins ár-
ið 1996 og eru forráðamenn KR
mjög ánægðir með að fá hana til fé-
lagsins og segja hana styrkja liðið
mikið, enda sé hún ein besta knatt-
spymukona landsins.
VÍKINGAR fögnuðu sigri f einvígi við
KR-inga í úrslitaleik 1. deildar f
borðtennis, eftir hörkukeppni 6:3.
íslandsmeistarinn Guðmundur
Stephensen, á myndinni til hliðar,
lék stórt hlutverk hjá Víkingum eins
og oft áður.
■ Sjá B4
Morgunblaðið/Kristinn
HANDKNATTLEIKUR
GLÍMA: INGIBERGUR SIGURÐSSON VAR ÖRYGGIÐ UPPMÁLAÐ / B4