Morgunblaðið - 11.03.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.03.1998, Blaðsíða 8
SOÐNINGIN Á TROLLI MEÐ DRANGAVÍK VE Kristinn Pétursson í Fishing News • í NÝJASTA tölublaði breska sjávarútvegsblaðsins Fishing News, er viðtal við Kristinn Pétursson, fyrrum alþingis- mann og fiskverkanda á Bakkafirði, þar sem hann held- ur því fram að reiknilíkön fiski- fræðinga virki ekki þegar mælt er með tonnafjölda í þorskveiði ár hvert. „Vísindamennimir fá hæstu einkunn íyrir viðleitni sína, en falleinkunn fyrir með- mæli sín varðandi þorskveið- ar,“ segir Kristinn í viðtalinu. Kristinn kemur víða við í viðtalinu í Fishing News og segir m.a.: „Þegar fiskifræð- ingar mæla með einhverri til- tekinni þorskveiði byggja þeir mat sitt á rannsóknum, en það hefur lengi verið skoðun mín að halda eigi þessum tveimur þátt- um aðskild- um á sama hátt og rann- sóknarþáttum og dómsvaldi er haldið aðskildu í réttarkerf- inu.“ Inntakið í gagnrýni Kristins byggist á niðurstöðum athug- ana sem hann hefur unnið sjálf- stætt að, ekki einungis á Is- landi, heldur einnig í ýmsum nágrannalöndum. I aðalatriðum snýst málið um að reiknilíkön sérfræðinganna virki ekki vegna þess að ekki sé tekið nægilegt tillit til umhverfis- þátta sem hafi miklum mun meiri áhrif á stofnstæðrir nytjafiska en veiðar. Kristinn segir: „I flestum kennslubókum í sjávarlíffræði stendur að fari stofnar minnk- andi á sama tíma og dregur úr veiðiálagi sé ofveiði varla um að kenna heldur mun fremur breytingum í umhverfisþáttum. Knstinn Pétursson MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998 Það versta sem menn geta gert við slíkar kringumstæður er að draga úr veiðiálagi ef marka má reynslu Kanadamanna. Eg vitna þar m.a. í viðtal sem birt- ist við Jakob Jakobsson, fram- kvæmdastjóra Hafrannsókna- stofnunar, í Fiskifréttum í nóv- ember 1989. Þar var tafla sem sýndi hrun fiskistofna í Barentshafi. I viðtalinu hældi Jakob „ábyrgri“ fiskveiðistefnu Kanadamanna þar sem veiðiá- lag á þorskstofninn er helmingi minna en á íslandi. Um ári eft- ir þessi ummæli fór þorskveiði síðan að aukast verulega í Barentshafi og kom það fiski- fræðingunum í opna skjöldu. Á sama tíma kom varla bein úr sjó í Kanada. Þremur árum síðar mældi norska hafrannsóknastofnunin stofnstærð þorsksins eftir gagnrýni smábátaeigenda. Þá kom í ljós að stofninn var helm- ingi stæi-ri en hann „átti að vera“ samkvæmt reiknilíkan- inu. Þetta fór hljótt fyrst í stað, eða þar til að norskur blaða- maður við sjávarútvegsblaðið „Fiskaren" komst yfir upplýs- ingarnar og birti þær ...“ Og síðan heldur Kristinn áfram: „Norskir sérfræðingar neyddust til að viðurkenna mis- tökin og þorskveiðikvótar voru auknir verulega. Rreppan í Norður-Noregi hjaðnaði og all- ir höfðu nóg að bíta og brenna. En hér á íslandi hefur skoðun- um veiðimanna sjálfra og ann- arra verið lýst sem „óábyrg- um“. En hvað þá með reynslu manna í Noregi? Hægt er að sjá að vöxtur þorskstofnsins nær aftur há- marki árið 1992, en hefur síðan verið að dragast saman aftur. Á bilinu 1992 til 1995 dró úr vaxtarhraða 6 ára þorsks sem nam 45%. Miðað við fyrri reynslu hefðu fiskifræðingarnir átt að geta séð það fyrir. Eg hef oft bent á það. Þeir eru til sem hagnast á svona vafasömum vinnubrögð- um vísindamanna. Á íslandi er fólk sem er hlynnt lágum þorskkvótum. Þá lækkar kvóta- verð síður og minni spámönn- um í greininni fækkar. Og óheiðarleg vinnubrögð geta sprottið af þessu,“ segir Krist- inn Pétursson. Morgunblaðið/Birgir Þðrbjamarson SÉRBLAD UM SJÁVARÚTVEG Jákvæð viðbrögð við spá um nýliðun þorskstofna SERFRÆÐINGAR segja spá Sveinbjörns Jónssonar sjómanns um nýliðun þorskstofna kunna að vera gagnlega og henni beri að gefa gaum, þrátt fyrir óvissuþætti. Nýliðunarspá ► Sveinbjöms, sem birtist í Verinu 4. mars sl., byggist í aðalatriðum á að eldri hluti þorskstofnsins sé einkum í hrognaframleiðslu og þar af leiðandi undirstaða nýliðunar. Hins vegar sé yngri hlutinn ekkert að framleiða og geti því aðeins haft neikvæð áhrif á væntanlegan fjölda nýliða. Vísindamenn segja hugmyndir Sveinbjörns Jónssonar skynsamlegar Gunnar Stefánsson, deildarstjóri reiknideildar Hafrannsóknastofnunar, segir þessa aðferð í sjálfu sér ekki nýja af nálinni. Stofnunin hafi stuðst við hana í aflaspám, auk þess sem Einar Júlíus- son hafi sett fram áþekkar hugmyndir. Þá sé Guðrún Marteinsdóttir að kanna mismunandi framlag mismunandi ald- urshópa í nýliðun. Gunnar segir þessari aðferð sjaldan beitt við ráðgjöf en þó hafi þessi hugsun verið ríkjandi þegar könnuð voru áhrif nýtingarstefnu sem byggðist á aflareglu, reyndar með annarri útfærslu. Of margir stuðlar miðað við árganga Gunnar segir vandann í nýliðunarspá Sveinbjöms þann að hann reyni að meta 15 stuðla á 14 þorskárgöngum í dæmi sínu um þorskstofninn í Barentshafi. „Hann er því að meta fleiri stuðla miðað við árganga. Þegar gögnin eru notuð jafn rækilega og hann gerir getur maður átt von á því að spágildið verði lítið. En í grundvallaratriðum sýnist mér þessi hugmynd Sveinbjörns vera skynsamleg en það þarf ansi mikið af gögnum til að } sýna fram á að annað en tilviljun ein geri það að verkum að aðferðin gangi upp. En það er samt sem áður sjálfsagt að reyna þessa hugmynd Sveinbjörns.“ Gunnar segir það vissulega nýtt í kenningu Sveinbjöms að byggt sé á stofnsamsetningunni við að spá um ný- liðun þrjú ár fram í tímann. Hann segir Hafrannsóknastofnunina ekki ganga y.lengra en að nota seiðavísitölu við spá vum nýliðun þorskstofnsins. „Við yrðum að styðjast við einhverja mælingu á framleiðslunni áður en við færam að spá. Það verður einnig að segjast eins og er að við treystum varlega á seiða- vísitölu og notum hana yfirleitt ekki.“ Hefur nokkuð til síns máis Odd Nakken, forstjóri Hafrannsókna- stofnunarinnar í Bergen, hefur verið Sveinbirni innan handar við skrif á blaðagrein sem að öllum líkindum mun birtast í sjávarútvegsblaðinu Fiskaren í Noregi á næstu vikum. Þá hefur Svein- björn fengið upplýsingar um þorsk- stofninn í Barentshafi hjá stofnuninni í Noregi. Nakken segir kenningu Svein- björns í mörgum veigamiklum atriðum byggjast á sömu grandvallarhugmynd- um og kenningar sem fiskifræðingar vinni með við rannsóknir á þorskstofn- um. Einkum þeim að þorskur hafí sjálf- ur mikil áhrif á fjölda einstaklinga í eig- in stofni með sjálfsáti og samkeppni. Einnig að hrygningarstofninn sé mikil- vægur í nýliðun. Þetta séu þau jákvæðu og neikvæðu áhrif sem Sveinbjörn fjalli um. Nakken segir Sveinbjörn hafa nokkuð til síns máls. Hve gagnleg kenn- ing hans sé við nýliðunarspár eigi tím- inn hins vegar eftir að leiða í ljós. „Ef aðstæður í Barentshafi verða í framtíð- inhi eins og þær hafa verið síðustu 14 árin þá mun aðferð Sveinbjörns virka vel. Ef hins vegar verða gagnger frávik á ytri áhrifaþáttum, svo sem sveiflur í síldar- og loðnustofnum og á umhverfi, tel ég að aðferð hans gagni ekki eins vel.“ Ekki sammála um smáfiskaveiðar Nakken segir Sveinbjöm greinilega búa yfir mikilli þekkingu á lífríki sjávar og vinna hans sé aðdáunarverð. Hann segist hafa fylgst með skrifum Svein- björns gegnum tíðina. Nakken segist vera ósammála Sveinbirni þegar hann héldi þvi fram að veiðar á smáþorski gætu verið hagkvæmar. „Sé fræðunum fylgt í hvívetna er mögulegt að komast að þessari niðurstöðu. En þá þyrfti stofnstærðarmat að vera mjög ná- kvæmt. Þá þyrfti einnig að vera mögu- legt að stjórna fiskveiðum þannig að að- eins væri veiddur ákveðinn stærðarhóp- ur. Ég efa stórlega að það sé mögulegt. Með veiðum á smáþorski yrðu höggvin skörð í hrygningarstofn framtíðarinnar og valdið þannig alvarlegum skaða á ný- liðun. Þyngd aflans myndi sömuleiðis verða mun minni. Ég mundi því hvergi mæla með slíkri fiskveiðistjómun," seg- ir Odd Nakken. Túnflskur með spaghetti EINS OG nýverið hefur verið greint frá í fréttum hyggjast fslendingar reyna túnfiskveiðar í Norður-Atlantshafi á næstunni en þar hefur Japaninn veitt túnfisk með ágætum árangri slðustu ár. Við verðum líklega að bíða enn um sinn eftir ferskum túnfiski í borðið hjá fisksalanum. Hins vegar má notast við dósirnar og æfa sig á þessari uppskrift sem fengin er af heimasíðu Rannsóknastofnunar Fiskiðnaðar- ins á slóðinni www.vfísk.is/w/uppskrif UPPSKRIFTIN 125 g soðið spaghetti 1 dós sellerysúpa (300 g) 'h bolli mjólk 200 g túnfiskur 1 lítil dós sveppir með soði(100 g) % bolli saxaður laukur '/< bolli óiífur í sneiðum 250 g rifinn Mariboostur (2 bollar) AÐFERÐIN Öllu blandað saman, nema 'h bolla af rifnum osti. Sett í eldfast mót. Bakað í 45 mín. við 175 °C. Stráið því sem eftir er af ostinum yfir og bakið þar til osturinn hefur bráðnað. Rétturiun er fyrir 6-8. Meðlæti getyur hver einn kosið eft- ir smekk, en lfklega er mjög gott að liafa heitt brauð með, til dæmis hvítlauksbrauð. ■ ■ vorur flök, humar og bolfisk Margar -framleiddar undir ströngu gædaeftirliti úr hráeffnum sem eru alþjóðlega viður- kennd til nota í matvælaiðnaði. Línubalar meé nlösterkum ’ handföngum. Endurvinnanleg plastvörubrotti, sem falla aö alþjóölegum flutningastöðlum og eru sérhönnuö til nota I matvælaiönaöi. WA afymsum stæröum; heföbundin eöa endurvinnanleg ofurker. BORGARPLASThf ' m mxm «8

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.