Morgunblaðið - 21.03.1998, Síða 1
L A N D S
MBHBMMBnHHHHHRBMUBBEHHHKHMHHBBHHHBHBHBEHHi
iiBiiW * -, , i
• - ■ ■ æmamsm mmt i •
Kanada og
Finnland í
Laugardal
KNATTSPYRNA
Real Madrid
EVRÓPUMEISTARAR Borussia Dortmund, sem
lögðu Juventus í úrslitaleik í Muneheu sL keppnis-
tímabil, 3:1, eiga möguleika á að leika á ný gegn Ju-
ventus - á Ajax-vellinum í Amsterdam 20. maí. Þeg-
ar dregið var f undanúrslit Evrðpukeppui meistara-
liða í gær var ljóst að Evrópumeistaramir mæta
Real Madrid, sem hefur sex sinnum orðið Evi-ópu-
meistari, siðast 1966. Fyrri leikurinn verður í Ma-
drid. Juventus mætir Mónakó.
Möguleikar eru á að „ítalskur" úrslitaleikur verði
í UEFA-keppninni, þar sem Lazíó og Inter drógust
ekki saman. Inter, sem tapaði úrslitaleik í keppninni
í fyrra, mætir rússneska liðinu Spartak Moskva og
Lazíó leikur við Atletico Madrid í leik þar sem
ítalskir áhorfendur fá að sjá
ítalska landsliðsmanninu Christi-
an Vieri á ný, eu hann er í her-
búðum Atletico.
Cheisea mætir ftalska liðinu
Vicenza í Evrópukeppni bikar-
hafa, þannig að knattspyrnu-
stjórinn Gianluca Vialli stjórnar
liði sínu í heimalandi sínu. Stutt-
gart mætir aftur á móti
Lokoinotiv frá Moskvu.
Evrópudráttur
Evrópukeppni meistaraliða
Juventus (Ítalíu) - Mónakó (Frakklandi)
Real Madrid (Spáni) - Borussia Dortmund
(Þýskalandi)
• Fyrri leikirnir fara fram 1. apríl, þeir seinni
15. apríl.
Evrópukeppni bikarhafa
Vicenza (Ítalíu) - Chelsea (Englandi)
Stuttgart (Þýskalandi) - Lokomotiv Moskva
(Rússlandi)
• Fyrri leikir 2. apríl, seinni 16. apríl.
UEFA-keppnin
Atleticp Madrid (Spáni) - Lazíó (Ítalíu)
Inter (Ítalíu) - Spartak Moskva (Rússlandi)
Fyrri leikir 31. mars, seinni 14. apríl.
Dortmund
mætir
<$■
1998
LAUGARDAGUR 21. MARZ
BLAD
Blóðsýni líklega tekin
á úrvalsmótunum
Líklegt má telja að frjálsíþrótta-
menn sem keppa á hinum nýju
úrvalsdeildarmótum Alþjóða frjálsí-
þróttasambandsins í sumar verði að
gefa blóðsýni að keppni lokinni. Þau
verða síðan notuð til rannsókna sem
Alþjóða Ólympíunefndin og Evrópu-
sambandið eru að vinna við þar sem
leitað er leiða til að fínna HGH
hormón (Human Growth Hormone) í
blóði íþróttamanna. Grunur hefur
leikið á því sl. ár að íþróttamenn noti
þessi hormónaefni til að auka getu
sína, en rannsóknarmenn hafa staðið
ráðþrota frammi fyrir notkuninni
þar sem efnin skera sig ekki úr sýn-
um enda framleiðir líkaminn þessi
efni. Verið er að leita leiða til að
finna þessi efni sem hlutfallsefni af
öðrum hliðarefnum í líkamnum. Það
er lík aðferð og nú er notuð til þess
að finna út hvort íþróttamenn noti
testesteron hormón eða ekki, en það
efni má finna sem ákveðið hlutfall af
öðru hormónaefni í líkama hvers
manna. Sé allt með felldu er hlutfall-
ið 6 gegn 1 eða minna.
Margt er talið renna stoðum undir
þær grunsemdir að ýmsir íþrótta-
menn noti HGH þar sem það getur
bætt verulega við vöðvabyggingu
þeirra, hefur ekki nærri eins margar
hliðarverkanir og fyrri efni og finnst
ekki við lyfjapróf. Jafnvel hefur ver-
ið talað um HGH sem tískuefni tí-
unda áratugarins. Það er framleitt
víða um heima en stærsti framleið-
andinn er danska líftæknifyrirtækið
Novo Nordisk. Efnið er framleitt til
þess að aðstoða börn sem ekki vaxa
eðlilega og selt í þeim tilgangi vítt og
breitt. M.a. til Kína, en skemmst er
að minnast er kínverskur sundmað-
ur var gripinn glóðvolgur við að
smygla þessum efnum til Ástralíu
áður en heimsmeistaramótið í sundi
hófst þar í landi í janúar. Þau efni
voru komin frá Novo Nordisk.
Landslið Finnlands og Kanada,
skipuð leikmönnum 18 ára og
yngri, mætast í landsleik í íshokkí í
hinni nýju Skautahöll Reykjavíkur í
Laugardal um næstu helgi. Leikur-
inn fer fram í tilefni opnunar hallar-
innar, en nýlokið er að byggja yfir
skautasvellið.
Finnland og Kanada eiga á að
skipa einhverjum bestu ís-
hokkílandsliðum heims. „Það er að
okkar mati mikill fengur fyrir ís-
lenskt íþróttalíf að fá þessi lið hing-
að; að geta sýnt íslendingum ís-
hokkí á heimsmælikvarða,“ sagði
Magnús Jónasson, formaður ís-
hokkídeildar Skautasambands ís-
lands, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
„Þetta er fyrst og fremst til kom-
ið vegna þess að við gengum í al-
þjóða íshokkísambandið fyrir þrem-
ur árum og höfum ræktað sambönd
á þeim vettvangi. Þegar við nefnd-
um þetta við Finnana í fyrra tóku
þeir strax mjög vel í þetta og sögð-
ust meira að segja vilja borga ferð-
imar sjálfir. Þeir gera það og
Kanadamenn reyndar líka, en við
sjáum um gistingu og uppihald fyrir
liðin meðan þau dvelja hérna,“ sagði
Magnús.
Leikurinn fer fram laugardaginn
28. mars kl. 16. Aðgangseyrir verð-
ur kr. 1.000 fyrir 16 ára og eldri og
700 fyrir þá sem eru yngri.
„Hjólhestaspyrna"
GUSTAVO Mendez, leikmaður Vicenza, skorar hér glæsilegt mark með „hjólhestaspyrnu" í leik
gegn hollenska liðinu Roda, sem ítalska liðið valtaði yfir, vann 5:0 á fimmtudagskvöld. Vicenza
mætir Chelsea ( undanúrslitum Evrópukeppni bikarhafa.
Sigurður for-
maður Skíða-
sambandsins
SIGURÐUR Þ. Sigurðsson tók
við fonnennsku í Sldðasambandi
íslands (SKÍ) á stjórnarfundi á
miðvikudag, af Benedikt Geirs-
syni, sem fyrr í vetur tók við emb-
ætti ritara í stjóm íþrótta- og
Ólympíusambands íslands og
varð þar af leiðandi að segja af
sér formennsku í SKÍ.
Benedikt hefur verið átta ár í
stjórn SKÍ, þar af fjögur síðustu
sem formaður. Sigurður Þ. hefur
setið í stjórn SKI síðustu níu ár,
þar af síðustu fjögur sem varafor-
maður. Hann gegnir fomanns-
embættinu fram að ársþingi, sem
fram fer 8. og 9. maí, en gefur
ekki kost á sér lengur. Vitað er að
Egill Jóhannsson hyggst gefa
kost á sér til formennsku á árs-
þinginu, en hann hefur setið í
stjóminni síðustu þrjú ár og var
áður formaður skiðadeildar Ár-
manns um árabil.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
HANDKNATTLEIKUR: KA-MENN AÐEINS TVISVAR Á TOPPNUM / B4