Morgunblaðið - 02.04.1998, Page 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
I
I
-
.
KNATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR
Amar til Genk?
Konur óvel-
komnar á sam-
komu enskra
fótboltamanna
Bergkamp og Owen?
1998
FIMMTUDAGUR 2. APRIL
BLAÐ
TONY Banks, íþróttaniálaráðherra Bretlands og
Graham Kelly, æðsti embættismaður Knattspyrnu-
sambands Eng-Iands, hyggjast ekki mæta til árlegs
hófs samtaka atvinnuknattspyrnumanna þar í landi
á sunnudagskvöldið vegna þess að kvenfólki er
meinaður aðgangur að samkomunni.
Samtök atvinnumanna í knattspyrnu í Englandi
(PFA) meina Rachel Anderson, eina kvenkyns um-
boðsmanni leikmanna f landinu, aðgang að samkom-
uuni - og er henni einungis meinaður aðgangur
vegna kynferðis. Kelly yfirgaf samkunduna í fyiTa
eftir að f ljós kom að Anderson vai- meinaður að-
gangur og mætir ekki nú. „Þetta er andstætt öllu
sem venjulega kemur frá PFA. Þetta eru úreltar
reglur. Forsvarsmenn [PFA] vita nákvæmlega hver
skoðun nn'n er á þessu," sagði Kelly. Banks mætir
heldur ekki en talsmaður á skrif-
stofu hans sagði: „Haun vill ekki
gera mikið mál vegna PFA, en tel-
ur að samkoman ætti ekki að vera
eingöngu opin karlmönnum.“
Ein milljón
fýrir sigur
Akveðið hefur verið að norræna
meistaramótið í handknattleik
karla og kvenna fari fram í fyrsta
sinn í vor. Karlakeppnin verður í
Gautaborg 23. - 26. apríl, en kvenna-
keppnin í Árósum mánuði síðar. Tvö
íslensk lið taka þátt í karlakeppn-
inni, KA sem deildarmeistari og bik-
armeistaramir. íslendingar verða
ekki með í kvennakeppninni fyrr en
á næsta ári. Ekki liggur endanlega
ljóst fyrir hvað lið taka þátt sökum
þess að deildarkeppni er ekki alls
staðar lokið. Keppt verður í tveim-
ur fjögurra liða riðlum og að því
loknu leika sigurvegarar riðlanna til
úrslita og síðan koll af kolli allt niður
í leik um 7. sætið. Veitt verða pen-
ingaverðlaun fyrir hvert sæti í mót-
inu. Sigurvegarinn fær 10.000 dansk-
ar krónur, rúmlega eina milljón ís-
lenskra króna. Upphæðin fyrir hvert
sæti þar fyrir neðan lækkar stig af
stigi allt niður í rúmar 150.000 krón-
ur fyrir 8. og síðasta sætið. Ferðir og
uppihald fyrir 18 manns úr hverju
liði verður greitt af mótshöldurum.
Að sögn Steens Johansson, sem hef-
ur séð um samskipti fyrir íslands
hönd vegna keppninnar, er fjárhags-
grundvöllur mótsins tryggður næstu
þrjú árin. Til stendur að halda bæði
karla- og kvennakeppnina hér á
landi árið 2000.
Það eru nýstofnuð Samtök 1.
deildar liða í Danmörku, Svíþjóð,
Noregi og á íslandi sem standa fyrir
mótinu en samtökin hafa í samvinnu
við Skandinavíska handknattleiks-
sambandið unnið að því að koma
þessari keppni á. Um tíma leit út
fyrir að íslensk félagslið yrðu ekki
með, en með samþykkt tillögu Guð-
mundar Árna Stefánssonar alþingi-
manns á Norðurlandaþingi sl. haust
var gata íslensku liðanna gerð greið.
Arnar Viðarsson, FH-ingur sem
leikið hefur með Lokeren í
Belgíu í vetur, segist ekki ætla að
framlengja samning sinn við félagið.
„Eg gerði tveggja ára samning við
Lokeren fyrir þetta tímabil, en það
er ákvæði í samningnum sem segir
að báðir aðilar geti sagt honum upp
eftir ár, eða 15. aprfl. Eg hef ákveð-
ið að notfæra mér það og hætta hjá
félaginu. Eg kem heim til að taka
stúdentspróf og geng til liðs við FH.
Síðan er stefnan að fara aftur út því
ég er með þrjú tilboð upp á vasann;
frá Genk og Lilleström í Noregi og
síðan hefur Lokeren einnig gert
mér nýtt tilboð," sagði Amar í sam-
tali við Morgunblaðið.
Hann segir að samskipti sín við
forseta Lokeren og stjórnina hafi
ekki verið upp á það besta og þvi
hafí hann ekki áhuga á að vera þar
lengur. „Eins og staðan er í dag er
Genk besti kosturinn, enda leikur
liðið í Evrópukeppninni næsta tíma-
bil. Ég hef haft mjög gott af veru
minni hér í Belgíu. Hef spilað
marga leiki og náð að sýna mig og
sanna,“ sagði Amar, sem er nýorð-
inn tvítugur. Þess má geta að Arnar
er sonur Viðars Halldórssonar,
fyrrverandi landsliðsfyrirliða úr
FH.
75 mínútna töf
LEIKUR Real Madrid og Borussia Dortmund - fyrri
viðureign félaganna í undanúrslitum Meistaradeildar
Evrópu í knattspyrnu - hófst ekki fyrr en 75 mínútum
á eftir áætlun í Madríd í gærkvöldi. Ástæðan var
óvenjuleg: annað markið á vellinum brotnaði skömmu
áður en flauta átti til leiks! Stög vom milli marks og
girðingar þeirrar sem ætluð er til að halda áhorfend-
um utan vallar. Þeir hristu girðinguna hins vegar
heldur hressilega, þannig að stögin slitnuðu með fyrr-
greindum afleiðingum, auk þess sem hluti girðingar-
innar slóst í áhorfendaskarann og slösuðust nokkrar
vegna þessa. Enginn þó alvarlega að því talið er.
■ Leikirnir / C4
Auk þess sem knattspyrnustjói'i
ársins er ætíð útnefndur á um-
ræddri hátíð er knattspyrnumað-
ur ársins heiðraður svo og efnileg-
asti leikmaðurinn í ensku úrvals-
deildinni. Það eru leikmenn sjálfir
sem kjósa, nöfn þeirra stigahæstu
eru ætíð birt með nokkurra daga
fyrirvara og það hefur nú verið
gert. Þeir sem koma til greina
sem knattspyrnumenn ái-sins eru
eftirtaldir: Dennis Bergkamp, hol-
lenski framherjinn lijá Arsenal -
en þess má geta að hann er af
ýmsum sérfræðingum talinn lang
hklegastur til að hreppa þennan
eftirsótta titil - David Beckhain,
miðvallarleikmaður hjá Manchest-
er United; félagi hans í liði Eng-
landsmeistaranna, Andy Cole, sem
er framheiji; Dion Dublin, varnar-
eða sóknarmaður lijá Coventry;
John Hartson, framlieiji hjá West
Ham; og Liverpool-maðurinn
ungi, Michael Owen, sem er fram-
herji.
í ftokki þeirra efnilegustu eru
þessir tilnefndir: Michael Owen
frá Liverpool - sem þykir nánast
öruggur með að verða fyrir valinu
- Rio Ferdinand, varnarmaðurimi
sterki hjá West Ham; Kevin Ðavies, framherji Sout-
hampton; Nicky Butt, miðvallarleikmaður Manchest-
er United; félagi hans, Paul Scholes, sem einnig er
miðvallarleikmaður; John Hartson, framheiji West
Ham; og Darren Huckerby, framheiji frá Coventry.
Tveir eru því útnefndir í báðum flokkum, Owen og
Hartson.
Það vekur nokkra athygli hveijir eru tilnefndir
og starfsmenn Coventry kættust manna mest að
þessu sinni. „Hér minnist þess enginn hvenær leik-
maður Coventry var síðast útnefndur til einhvers
konar viðurkenningar. Ég fer alla jafna ekki á þessa
samkomu en er ákveðinn í að mæta núna,“ sagði
Gordon Strachan, knattspyrnustjóri félagsins. „Héð-
an ætlaði euginn að fara en eftir að við fengum þess-
ar fregnir pöntuðum við borð fyrir átján manns!“
sagði Strachan.
HANDKNATTLEIKUR: ÁRNIINDRIÐASON SPÁIR VAL OG FH SÆTI í ÚRSLITUM / C3