Morgunblaðið - 02.04.1998, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA / MEISTARADEILDIN
Meistararnir lágu
í kvöldkyrrðinni
Evrópumeistarar Borussia Dort-
mund sóttu ekki gull í greipar
Real Madrid í gærkvöldi þegar liðin
mættust í fyrri viðureign sinni í
undanúrslitum Meistaradeildaiinnar.
Hin íræga þýska seigla kom fyrir lítið
því Spánveijar voru miklu betri og
sigur þeirra, 2:0, var sanngjarn. Flest
bendir því til þess að það verði Ju-
ventus og Real Madrid sem leika til
úrslita í ár; óskaleikur margra.
Leikurinn tafðist í 75 mínútur
vegna þess að annað markið brotnaði
og eftir að mistókst að gera við það
var náð í mark af æfingasvæði liðsins
hinum megin í borginni. 100.000
áhorfendur létu töfina ekkert á sig fá
og skemmtu sér konunglega.
Femando Morientes sýndi svo ekki
verður um villst hversu snjall leik-
maður hann er í síðustu viku þegar
hann lék sinn fyrsta landsleik, og
-gerði tvö mörk. Hann gerði fyrra
mark Real á 24. mín. eftir fyrirgjöfRo-
bertos Carlos. Vöm Dortmund sakn-
aði greinilega mjög Jiirgens Kohlers
sem lék ekki með sökum meiðsla og
hvað eftir annað vantaði dýpt í hana
þannig að eldfljótir sóknar- og miðju-
menn Real sluppu í gegn. Ekki tókst
að skora á ný fyrr en á 68. mínútu er
Christian Karembeu fékk frábæra
sendingu frá Morientes, innfyrii- flata
vöm þýskra og skoraði af öryggi.
„Það er fínt að vinna 2:0 og ég er
mjög bjartsýnn fyrir seinni leikinn.
Hins vegar vara ég menn við að slá
\ því föstu að við séum komnir í úrslit,
við eigum enn eftir að leika í 90 mínút-
' ur áður en það verður,“ sagði Jupp
Heynckes, hinn þýski þjálfari Real.
Aðspurður um töfina sagði hann:
„Þetta hlýtur að vera lengsta töf sem
orðið hefur á upphafsspymu leiks í
Evrópukeppninni, ég man ekki eftir
leik sem hefur tafist svona lengi. Það
má hins vegar segja að við séum í æf-
ingu því við lentum í mikilli töf á leik á
Reuters
ALESSANDRO Del Piero gerðí þrjú mörk og hér fagnar hann öðru markinu, sem hann skoraði úr
vítaspyrnu nokkrum sekúndum áður en flautað var til leikhlés. Angelo Di Livio fagnar félaga sínum.
Juve kafsigldi
lið Mónakó
Mallorku þar sem fljóðljósin biluðu
tvívegis.“
Flestir áhorfendur skemmtu sér
konunglega þrátt fyrir töfina, en það
er misjafn sauður í mörgu fé. Nokkur
hópur stuðningsmanna Real reyndi að
æsa þýska áhorfendur með því að
nota ýmis tákn nasista. Heynckes
þarf einnig að hafa áhyggjur af Jú-
góslavanum Predrag Mijatovic sem
meiddist í síðari hálfleik er hann lenti
harkalega á sjónvarpstökuvél utan
vallar, og fyrirliðinn Manuel Sanchis
verður í leikbanni í síðari leiknum.
Dortmund mun einnig sakna leik-
manna í síðari leiknum þvi bæði vam-
armaðurinn Julio Cesar og sóknar-
maðurinn Heiko Herrlich verða í leik-
banni og sömu sögu er að segja af
Steffan Freund. ,Auðvitað er slæmt
að missa þrjá leikmenn í bann, en við
erum með stóran hóp leikmanna,"
sagði Nevio Scala, þjálfari Dortmund
og sagðist bjartsýnn. Hann vildi ekki
kenna töfinni um hvemig lið hans lék,
sagði hana erfiða báðum liðum. „Það
hvarflaði aldrei að mér að krefjast
þess að leiknum yrði frestað. Mér var
alveg sama hvort við byijuðum klukk-
an tólf á miðnætti eða um nóttina.
Hundrað þúsund áhorfendur biðu á
vellinum og þá fer maður ekki heim,“
sagði Scala.
Juventus sigraði í gærkvöldi
franska liðið Mónakó 4:1 í fyrri
leik liðanna í undanúrslitum Meist-
aradeildar Evrópu. ítölsku meistar-
amir fóru á kostum og sóknarmað-
urinn Alessandro Del Piero átti frá-
bæran leik og kom við sögu í öllum
fimm mörkunum. Með sigrinum má
nærri slá því föstu að Juventus sé
komið áfram í keppninni, sérstak-
lega þegar orð Jean Tigana, þjálf-
ara Mónakó, eftir fyrri leik liðsins
við Manchester United, sem lauk
með markalausu jafntefli í Mónakó.
„Við komumst áfram því við eram
miklu betri á útivelli,“ sagði þjálfar-
inn þá.
Del Piero kom Juve yfir á 33.
mínútu með stórkostlegu marki úr
aukaspymu rétt utan vítateigs,
sendi knöttinn yfir vamarvegginn
og efst í markhomið. Fram að leik-
hléi var mikið jjör í leiknum og bæði
lið léku vel. Á 45. mínútu jöfnuðu
Frakkar eftir að leikmenn Juventus
höfðu skallað frá eftir nokkuð
þunga sókn gestanna. Portúgalinn
Francisco Da Costa, sem hafði kom-
ið inná sem varamaður fimm mínút-
um áður, náði til knattarins og
skaut að marld, boltinn fór í Del Pi-
ero og þaðan í markið.
En Adam var ekki lengi í paradís.
Leikmenn Juve byrjuðu á miðju,
Filippo Inzaghi og Zidane prjónuðu
sig skemmtilega í gegnum vöm
gestanna, sem vora enn að fagna
jöfnunarmarkinu, og Zidane var
felldur. Ur vítaspymunni skoraði
Del Piero af öryggi og hljóp fagn-
andi tfl búningsherbergja.
Juventus herti tökin eftir hlé og
uppskar aðra vítaspyrnu er Inzag-
hi var felldur að mati dómarans.
Del Piero fullkomnaði þrennuna
frá vítapunktinum og hefur gert 20
mörk í Evrópukeppninni, þar af
níu í ár. Hann er einnig marka-
hæstur á Italíu og gerði tvö mörk
fyrir Juve er liðið lagði AC Milan
um helgina, bæði eftir föst
leikatriði og margir era famir að
líkja aukaspymum hans við það
sem Frakkinn Michel Platini, önn-
ur hetja Juventus, gerði þegar
hann var uppá sitt besta.
Hinn 23 ára sóknarmaður átti eft-
ir að koma meira við sögu því undir
lok leiksins skipti hann um hlutverk
við Zidane og átti sendingu á hann
inní vítateig og Frakkinn snjalli
skoraði af öryggi 500. mark Juvent-
us í Evrópukeppni.
„Vendipunkturinn var síðasta
mínútan í fyrri hálfleik. Þeir náðu
að jafna og við síðan að komast yfir
áður en þeir náðu að snúa sér við.
Það hlýtur að hafa verið leiðinlegt
íyrir leikmenn Mónakó að fara til
búningsklefans í hálfleik," sagði Gi-
anluca Pessotto, vamarmaður Ju-
ventus eftir leikinn.
Það má segja að reynslan og hefð-
in hafi komið við sögu í gærkvöldi.
Þrátt fyrir að Juve hafi sigrað 4:1
var leikurinn alls ekki svo ýkja
ójafn, en franska liðið hefur aldrei
sigrað í Evrópukeppni en Juve hef-
ur krækt í alla þrjá titlana. Frönsku
meistaramir hafa þrívegis mætt
ítölskum liðum í undanúrslitum og
alltaf tapað en Juve hefur sjö sinn-
um mætt frönskum liðum í Evrópu-
keppninni og alltaf komist áfram.
Marcello Lippi virðist á góðri leið
með að koma félaginu í úrslit þriðja
árið í röð. Leikurinn í gærkvöldi var
43. leikur Juve í röð í Evrópukeppn-
inni síðan þeir léku fyrst til úrslita í
Evrópukeppni bikarhafa árið 1995.
Atli að ná
sér eftir
brjósklos
ATLI Helgason, knattspyrnu-
maður úr Val, hefur ekkert
getað æft í vetur vegna
btjóskloss í hálsi. Hann missti
af þremur síðustu leikjunum
með Val síðasta tímabil vegna
þessa, en gekkst síðan undir
aðgerð í janúar. Hann segir
jafnmiklar líkur á því að hann
geti leikið í sumar eins og
ekki.
„Ég á að fara í læknisskoð-
un í næstu viku og þá fæ ég úr
því skorið hvemig aðgerðin
hefur heppnast og hvort ég
get byijað að æfa. Ég er ekki
búinn að gefa upp alla von, að
minnsta kosti er ég ekki tilbú-
imi að gefa yfirlýsingu um að
ég sé hættur í fótbolta," sagði
Atli.
FOLK
■ MARC Degryse, leikmaður PSV
Eindhoven, sagði í gær að hann
myndi skrifa undir tveggja ára
samning við belgíska félagið Ghent
eftir þetta tímabil. Hann er 32 ára
belgískur landsliðsmaður og fór til
PSV frá Sheffíeld Wednesday fyrir
tveimur áram. Hann lék áður með
Club Brugge og Anderlecht í Belg-
íu.
■ LUIS Enríque, landsliðsmaður
Spánveija sem leikur með
Barcelona, er eftirsóttur hjá ítölsk-
um félagsliðum. Lazio, AC Milan og
Juventus era öll sögð tilbúin að
greiða 2,3 milljarða króna fyrir
hann samkvæmt heimildum
spænska blaðsins E1 Mundo. Luis
Enrique er með samning við
Barcelona til ársins 2001.
■ TIM Flowers, markvörður Black-
bum og enska landsliðsins, meidd-
ist í leik liðsins við Barnsley á
þriðjudagskvöldið. Hann lenti illa á
annarri öxlinni eftir að hafa slegið
knöttinn frá marki eftir homspyrnu
og togaði það illa að búist er við að
hann missi af HM í sumar.
■ ERNST Dokupil, þjálfari Rapid
Vín, var sagt upp sem þjálfara liðs-
ins eftir 5:0 tap fyrir LASK frá Linz
um síðustu helgi. Þetta er stærsta
tap félagsins síðan 1983. Dokupil
fer þó ekki frá félaginu því hann fær
starf „njósnara“.
■ NORBERT Meier hefur verið
sagt upp sem þjálfara Borussia
Mönchengladbach. Við starfi hans
tekur Friedel Rausch, sem var
þjálfari LASK frá Linz í Austurríki.
Rausch er þriðji þjálfarinn hjá
Gladbach á þessari leiktíð. Meier
kom til félagsins í desember eftir að
Hannes Bongartz var rekinn. Liðið
er nú í næst neðsta sæti deildarinn-
ar.
■ PETR Kouba, landsliðsmarkvörð-
ur Tékka, verður ekki áfram í her-
búðum Kaiserslautem næsta tíma-
bil að sögn forseta félagsins. Hann
meiddist í hné í fyrra og hefur ekki
spilað einn einasta leik síðan hann
kom til liðsins frá Deprotivo Cor-
una í júní. Andreas Reinke hefur
verið í marki Kaiserslautern í vetur
og staðið sig mjög vel. Hann er með
samning til ársins 2000.
■ HERBERT Weber, fyrrum lands-
liðsþjálfari Austurríkis, er hættur
sem þjálfari hjá SV Salzburg.
Slavko Kovacic, aðstoðarþjálfari
liðsins, tekur við þar til annar verð-
ur ráðinn. Salzburg, sem var meist-
ari í fyrra, er nú í sjötta sæti 10
stigum á eftir Sturm Graz sem er
efst.