Morgunblaðið - 17.05.1998, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 17.05.1998, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1998 D & BÍLAR Nýr Volvo S80 frumkynntur 28. maí nk. Einn öruggosti bíll í heimi VOLVO frumkynnir nýjan lúxusbfl 28. maí nk. í Gautaborg. Bfllinn kallast S80. Fáar upplýsingar er um bflinn að hafa enn sem komið er og aðeins litlar myndir af aftur- ljósum eru birtar á heimasíðu Vol- vo á alnetinu. Volvo ætlar greini- lega að gæta þess að koma í veg fyrir upplýsingaleka og láta bílinn koma mönnum á óvart þegar hann verður frumkynntur. Engu að síð- ur hefur sitthvað spurst út um tækni þessa nýja bfls sem verður einn sá öruggasti á markaðnum. Volvo S80 verður líklega ekki al- menningsbfll. Hann verður of dýr til þess. Verðið í Svíþjóð er áætlað á bilinu 3-4 milljónir ISK eftir bún- aði og gerðum. S80 er millileikur hjá Volvo því eftir eitt ár kemur ný fólksbflalína á markaðinn sem kall- ast S og V60 og leysir af hólmi S og V70. Öryggi ofor öllu S80 verður einn af heimsins ör- uggustu bflum. Að framan og aftan er krumpusvæði sem tekur á sig högg í árekstrum en hlífir farþega- rýminu. Staðalbúnaður er líknar- belgir fyrir ökumann og farþega í framsæti. Farþegarýmið er byggt inn í sérstakt styrktarbúr. Vöm gegn hliðarárekstrum er fólgin í hliðarpúðum og sérstöku plastefni í hurðum og hliðum sem tekur í sig högg. Auk þess er yfirbyggingin sérstaklega hönnuð til að taka á sig mikið hliðarhögg. Ein tækninýjungin í S80 verður svokölluð hliðarhöggsgardína sem fellur niður úr lofti bflsins við hlið- arárekstur. Hún blæs upp á auga- bragði og hlífir farþegum við höf- uðskaða. Gardínan nær jafnt yfir hliðar í framsætum og aftursætum. 10 strokka vél S80 verður með sex strokka, þverstæðri vél með tveimur yfir- liggjandi knastásum og fjórum ventlum á hvern strokk. Þetta er í meginatriðum sama sex strokka vélin og í 960 en hún hefur verið umbyggð til að passa þvert í vélar- rýmið. Þá hefur verið rætt um að bfll- inn verði boðinn með tíu strokka vél sem smíðuð yrði úr tveimur fimm strokka línuvélum úr S og V70 gerðunum. Ekkert er þó stað- fest í þessum efnum. Hugsanlegt er þó talið að Volvo bjóði þessa vél í dýrustu útfærslu S80 og byði bíl- inn þannig sem valkost við bestu bflana frá BMW og Mercedes- Benz. Olíklegt þykir þó að vélin verði boðin fyrr en S60 verður kominn á markað sem árgerð 2000. TÆKNINÝJUNG í S80 verður svokölluð hliðarhöggsgardína. búnaði sem hefur yfírstjóm á öll- um aksturseiginleikum bflsins. í búnaðinum er fjöldi nema sem skynja snúning hjólanna og til- hneigingu bflsins til að skransa, stöðu stýrisins, hraða bflsins, heml- un og annað sem getur haft áhrif á veggrip bflsins. Sé hætta á því að bfllinn skransi beitir ____________ búnaðurinn hemlunar- átaki á það hjól sem er að losna frá veginum. Nýir stólor Búkkarí bílskúrinn " MARGIR kannast við vanda- mál þegar þeir ætla að dytta að undirvagni bflsins og hafa ekki til þess örugg tæki. Nú geta menn leyst þetta vanda- mál með uppákeyrslubúkkum úr stáli. Búkkamir em seldir saman tveir í kassa og hækka bflinn um 20 sm. Búkkamir vega um 16 kg saman og þeir taka lítið pláss í geymslu því þeir falla hvor of- an í annan. Þeir geta borið allt að 4,5 tonn. Á búkkunum er djúpt fals sem dregur úr hættunni á því að hjólin fari út af þeim. Búkkarnir era seldir á Esso stöðvunum, í Bflabúð Benna og hjá Húsa- smiðjunni og kosta nálægt 6 þúsund kr. Volvo hefur átt náið samstarf við sænska stóla- og bflhlutafram- leiðandann Autoliv. Upp úr þessu samstarfi hefiir verið þróaður nýr bfl- stóll sem verður í S80. Hann er þeim eiginleik- um búinn að við aftaná- keyrslu tekur sætisbakið og hnakkapúðinn við þrýstingi þess sem í sætinu situr og gefur eftir. Áhætta á hálshnykkjum verður mun minni í nýju stólunum en hefðbundnum bflstólum. Morgunblaðið/Kristinn BÍLNUM er ekið upp á búkkana og er þá auðvelt að athafna sig undir honum. EINA myndin af nýjum S80 sem Volvo hefur dreift. Getur ekki skransoð S80 verður með læsivarða hemla, TRACS spólvöm, EBD hemlajöfnunarkerfi og DSA, sem er veggripskerfi sem kemur í veg fyrir að bíllinn skransi. DSA kerfið tengist nýjum rafeinda- og tölvu- 4 Olís og ÓB bjóða nú dísilolíu með mun minna brennisteinsmagni en þekkst hefur hérá landi. • Dfsilolían er nú aðeins með 0,05% brennisteinsinnihaldi miðað við 0,20% áður. Við tökum þetta frumkvæði rúmu ári áður en ný lög um hámark brennisteinsmagns í eldsneyti taka gildi hér á landi. • Minna brennisteinsmagn í dísilolíu ásamt Hreint System3 íblöndunarefnum, sem við setjum í allt okkar bensín, dregur úr mengandi útblæstri og uppgufun óæskilegra efna eins og kolvetnis og koltvísýrings. ■ Með betri bruna vélarinnar verður slit á vél bílsins minna, sem eykur endinguna. ■ Bíliinn verður þýðari og þú þarft minna eldsneyti en áður. Þannig ferð þú ekki aðeins betur með andrúmsloftið heldur einnig með peningana þína. Minni brennisteinn - hreinni útblástur. . 14;“:« A -\ i) Aí> eu ALGJORT , , , . EULL« LeíGUBlLS-TJORAR stu ekKt, LLX'TSSAN\X^ í SuWw secjja að vld cjefúm aldrel séws, Weypun aldrel r\ebauvr> fra\Y\ fyrlr oVkur, sýnuvr\ ektó. tUV\issav\l. 'pað er rangt. Lq nota nýju dlsUolíunf fra Olís ocj OB. Hún fer ek.k.1 bara betur vned bUlnn wiLnn beldur fer bún vnun betur vned alVt andrújnsloftld. Ipad kalla écj aá s_ýna tUlutsseml. Gott fyrir umhverfið. Gott fyrir bílinn. Gott fyrir þig. f'rbdrik Uónsson, hAercedes Be WM'?'. 'títP. m Bi 03 ódýrt bensín f*

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.