Morgunblaðið - 17.05.1998, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 17.05.1998, Qupperneq 4
4 D SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ BÍLAR AFTURHLUTINN er stuttur og þakið kúpt. GÍRSTÖNG með álhnúð og álskreyting í mælaborði. LITLA 1,4 1 vélin er öflug og skemmtileg. PUMA er svar Ford við minni gerðum sportbíla eins og Opel Tigra, Renault Coupé, Hyundai Coupé og fleiri slíkra sem njóta mikilla vinsælda víða í ■ Evrópu. Petta eru yf- irleitt bflar sem eru byggðir á grunnplötu fjöldasölubfla en með nýstárlegu og sport- 0 legu útliti en fremur litlum vélum. Svo er einnig um Puma, sem kom fyrst á markað í Evrópu síðastliðið sumar, en helsti munurinn er sá að litla 1,4 lítra vélin í Puma er þrælöflug og ekki skemmir að bíllinn er sláandi glæsi- legur. Puma er fyrsti bfll Ford sem að öllu leyti er hannaður í tölvu. Hann er smíðaður í Köln í Þýska- landi. Nú er Puma komin til Is- lands, aðeins eitt eintak, því miður, og ekki von á fleir- um fyrr en í desember. Umboðsaðilinn segir að það sé ekki heiglum hent að fá bíla afhenta frá fram- leiðanda vegna mikillar eft- irspurnar í Evrópu. Þessi litli sportbíll, svokallaður 2+2 sæta, er byggður á sömu grunnplötunni og Fiesta. En annað eiga þeir ekki sammerkt utan 1,4 lítra, 16 ventla, Zetec SE vélina sem nú er einnig fá- anleg í Fiesta og Escort. Góð sæti Þegar talað er um 2+2 sæti er átt við tvö framsæti og tvö mótuð aftursæti en ekki hefðbundinn sætis- bekk þar sem með góðum vilja þrír geta setið. Það sitja því aðeins tveir í aftur- sætum Puma og betra er að þeir séu ekki mjög hávaxnir því meðalmaður á hæð rek- ur sig upp í loftið. Þegar sest er í framsætin er mað- ur eins og skorðaður af, hliðarstuðningur við síðum- ar er mikill. Þetta er gott því það er gaman að aka Puma hratt í beygjum þótt vitaskuld sé ávallt farið í einu og öllu að umferðar- lögum. Það kom á óvart hve stórt farangursrýmið er í þessum litla bfl en erfitt getur verið að koma þar fyrir stærri hlutum því opið er þröngt. Því var þó eiginlega tekið með hálfum huga að bfllinn skyldi „aðeins“ vera með 1,4 lítra vél og hefði margur maðurinn búist við stærri vél í svona fallegum bíl. En allar efasemdir rjúka út í veður og vind um leið og tekið er af stað. Bfllinn er náttúrulega físléttur, 1.035 kg, og er því snarpur og togið er alveg þokkalegt. Hann vinnur skemmtilega á háum snúningi og virðist stöðugt geta bætt við sig. Það er í raun merkilegt hvað hægt er að ná miklu Morgunblaðið/Ásdís FORD Puma er sérlega glæsilegur farkostur. PIIMA - ökutæki bíla- áhugamannsms FARANGURSRÝMIÐ er nokkuð rúmgott en þröngt. afli út úr svo litlum vélum og ekki mörg ár síðan lang- flestar vélar af svipaðri stærð voru húðlatar. Sporllegur girkassi Fimm gíra kassinn er sportlegur í tvennum skiln- ingi. Gírstöngin er úr áli, glæsilegt stflbragð, og ör- stutt er milli gíra sem flýtir hröðuninni fyrir þá sem eru mikið að flýta sér. Fjöðrun- in er líka sportleg, passlega stíf og liggur bfllinn fyrir vikið vel á vegi. En bfllinn dettur líka ofan í holur á illa nöguðu vormalbikinu. Stýrishjólið er lítið og nett og stýringin létt og nákvæm. Bíllinn virðist þokkalega einangraður. Vegarhljóð er nokkurt en þó ekkert til að gera mál út af og bíllinn virðist alls ekki taka á sig vind enda hannaður í tölvu til að kljúfa loftið með sem minnstri fyrirhöfn. Maður situr fremur hátt í Puma í ljósi þess að þetta er sportbíll. Utsýnið úr honum er ekki ósvipað og í Ka. Gluggapóstar taka mik- ið pláss og gluggar eru litl- ir. Það er dálítið sérstök til- finning að sitja í þessum bíl. Mælaborðið er skreytt með álklæðningu, mælarnir eru hvítir og fyrir miðju er hljómtæki með geislaspil- ara. Rúðuvindur (rafstýrð- ar) eru á hurðarsyllunni og líka rafstýring fyrir útispegla. Allt mjög fínlegt og sportlegt, nokkurs konar sambland af nútímalegum línum og afturhvarfi til sportbfla fyrri áratuga. Vel búinn Staðalbúnaður í Puma er allnokkur, þar á meðal tveir Uknarbelgir, læsivarðir hemlar, rafdrifnar rúður og speglar, 15 tommu álfelgur, 190/50 lágdekk og hljómtæki með geislaspil- ara. Hann verður aðeins boðinn í einni búnaðarút- færslu og því vandalaust valið fyrir kaupendur. Er- lendis er Puma einnig boðinn með 1,7 lítra Vtec vél, 123 hestafla. 1,4 h'tra Zetec vélin sem hér er boðin er 89 hestöfl, vel spræk og vandséð hvað menn hafa með öflugri vél að gera í þennan bfl. Minni vélin ætti auk þess að vera neyslugrönn og hagkvæm. Aætlað verð á bflnum er 1.690.000 krónur sem er náttúrulega talsvert verð fyrir ekki stærri bfl með 1,4 Vél: Zetec S, 1.388 rúmsentimetrar, fjórir strokkar, tveir yfir- liggjandi knastásar, 16 ventlar, 89 hestöfl við 5.500 snúninga á mínútu. 125 Nm tog við 4.500 snúning á mínútu. Rafeindastýrð innsprautun. Eyðsla: 7,4 lítrar í blönduðum akstri. Drifbúnaður: Fram- drifinn, fimm gíra handskipting. Hemlabúnaður: Læsi- varðir hemlar með rafeindastýrðri heml- unarátaksdreifingu, diskahemlar að fram- an, tromlur að aftan. Hámarkshraði: 178 km/klst. Hröðun: 10,8 sekúnd- ur úr kyrrstöðu í 96 km hraða. Lengd: 3,98 m. Breidd: 1,67 m (án spegla). Hæð: 1,34 m. Eigin þyngd: 1.035 kg. Hjólbarðar: 190/50 lágdekk. Hjólhaf: 2,45 m. Verð: 1.690.000 kr. (áætlað). Umboð: Brimborg hf., Reykjavfk. lítra vél en á það ber að líta að Puma er ekki venjulegur bfll. Þetta er farartæki bílaáhugamannsins sem hefur virkilega gaman af því að aka. Auk þess er bfll- inn vel búinn, eins og að of- an greinir. Guðjón Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.