Morgunblaðið - 19.05.1998, Síða 1
b
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
c
1998
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAI
BLAÐ
KNATTSPYRNA
bjargvættur
Morgunblaðið/Ásdís
STEINGRÍMUR Jóhannesson skorar fyrsta mark íslandsmótsins
er hann kom ÍBV yfir á móti Þrótti á Laugardalsvelli i gær eftir
aðeins sex mínútna leik. Fjalar Þorgeirsson markvörður kom
engum vömum við.
Þróttur gerði jafntefli við íslands-
meistara ÍBV í opnunarleik ís-
landsmótsins í knattspymu á Laugar-
dalsvelli í gær. Mót-
ValurB. ið fór fjörlega af
Jónatansson stað því lokatölur
skrífar urðu 3:3. Eyjamenn
jöfnuðu á síðustu
mínútu leiksins og verða að teljast
heppnir að hafa náð einu stig út úr
viðureigninni við nýliðana. Bjarni
Jóhannsson, þjálfari IBV, var ánægð-
ur með jafnteflið. „Það má segja að
þetta glæsilega jöfnunarmark Sigur-
vins á lokamínútunni hafi bjargað
andlitinu fyrir okkur. Þróttarar eiga
heiður skihnn fyrir góða baráttu og
frábæran sigurvilja. Þeir uppskáru
eitt stig og áttu það skilið. Ég er mjög
ánægður að vera búinn með þennan
leik á móti Þrótti hér í Laugardaln-
um. Þeir eru með stemmningslið og
slík lið er erfitt að sækja heim. Það
verða ekki mörg lið sem fara með sig-
ur héðan í sumar,“ sagði Bjami.
Hann sagði að fyrstu leikimir væm
alltaf erfiðir meðan verið væri að fín-
pússa liðin. „Við gerðum tvö mörk í
fyrri hálfleik og fengum færi sem við
hefðum átt að geta drepið í þeim, en
þau nýttust ekki. Það er auðvitað
áhyggjuefni hvemig leikmenn mínir
fóru inn á í síðari hálfleik, með hang-
andi haus. Þetta var eins og svart og
hvítt hvort í sínum hálfleik. Það var
mikil barátta hjá okkur í fyrri hálfleik
en það snerist við í síðari hálfleik. Það
á að vera nóg hjá okkur að skora þrjú
mörk í leik til að sigra. Auðvitað vilja
öll liðin vinna meistarana og það er
hlutur sem við verðum að læra að
sætta okkur við.“
Bjami sagðist ekki ánægður með
vamarleikinn, sérstaklega í síðari
hálfleik. „Varnarleikurinn var allt of
gisinn og strákarnir em ekki búnir
að ná taktinum enn. Við fáum tíma
núna til að slípa liðið saman því það
kemur á morgun [í dag] í fyrsta
skipti allt saman í Vestmannaeyjum.
Við lítum bjartsýnir fram á veginn
og getum ekki annað en bætt okk-
ur,“ sagði Bjarni.
Byrjunin lofar/C5
KÖRFUKNATTLEIKUR
Valur þjálfar
Tindastól
VALUR Ingimundarson hefur
gert munnlegt samkomulag
við stjórn körfuknattleiksdeildar
Tindastóls um að þjálfa úrvals-
deildarlið félagsins á næsta
keppnistímabili. Valur ætlar
einnig að leika með liðinu. Að
sögn Halldórs Halldórssonar,
formanns körfuknattleiksdeildar
Tindastóls, er ekki komið á
hreint til hversu langs tíma
samningur verður gerður. „Við
gengum frá ramma að samningi
í síma um helgina og göngum
endanlega frá honum þegar Val-
ur kemur heim,“ sagði Halldór,
en Valur hefur undanfarin þrjú
ár leikið og þjálfað lið Óðinsvéa í
Danmörku við góðan orðstír.
„Við erum að sjálfsögðu ánægðir
með að fá Val aftur til okkar,
þótt við hefðum gjarnan viljað
halda Páli Kolbeinssyni
þjálfara."
Valur er ekki með öllu ókunn-
ur á Sauðárkróki því hann lék
fimm tímabil með liðinu og var
þjálfari í eitt ár áður en hann hélt
til Danmerkur, með eins árs
viðdvöl í Njarðvík.
Halldór sagði að stefnt væri að
því að halda öllum íslensku leik-
mönnunum sem voru með liðinu í
vetur þótt vissulega yrði það
erfitt sökum þess að nokkrir
þeirra eru í skóla í Reykjavík.
GEKK EINS OG í LYGASÖGU HJÁ ÞÓRDI í BELGÍU/C3
VINNINGSTOLUR
LAUGARDAGiNN
l 16.05.1998 I
\ Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- 1 upphæð ;
; 1.5 af 5 1 2.028.670
2. 4 af 5+*^® 1 303.240
! 3. 4 af 5 51 9.580
4. 3 af 5 1.700 670
Alltaf á laugardögum
Jókertölur vikurmar
5 1 4 7 0
Vinningar Fjöldi vinninga Upphæö á mann
5 tölur 0 1.000.000
4 síðustu 2 100.000
3 síöustu 14 10.000
2 sfðustu 128 1.000
VINNINGSTOLUR
MIÐViKUDAGINN
13.05.1998
--------------
AÐALTÖLUR
33|36
BÓNUSTÖLUR
Vinningar
1. 6 af6
2. 5 af 6 + bömus
3. 5 af 6
4. 4 af 6
3. 3 af 6+ BÖfiUS
165
489
38.461.100
4.422.420
47.480
2.740
390
Alltaf á
miðvikudö
* & V1* * ^ 'v*
í - .... , ■
UppSýsingar:
Lottómiðinn með 1. vjnning sl.
laugardag var seldur Á stððinni
við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði,
en bónusvinningurinn hjá Mat og
myndum við Freyjugötu í Reykja-
vík. Næsta laugardag verður
dregið tvisvar í tilefni af því að
þá verður dregið í 600. sinn.
Ekki gleyma Víkingalottói á
morgun. Eins og þið sjáið hér að
ofan stefnir t.d. bónusvinningur-
inn óðfluga yfir 5 milljónir króna.
Upplýsingar í síma:
568-1511
Textavarp:
451, 453 og 454
íþágu öryrkja, ungmenna og Iþrátta
|b